Tíminn - 12.02.1993, Page 7

Tíminn - 12.02.1993, Page 7
Föstudagur 12. febrúar 1993 Tíminn 7 Séra Bjami fer í framboð Svo var ástatt er Sveinn Bjömsson forseti Iést að einungis var eitt ár eftir af kjörtímabilinu. Forsetakjör skyldi fara fram sumarið 1952. Ríkisstjómin hafði rætt um það og verið sammála um að stuðla að framlengingu forse- taumboðs Sveins, ef honum entist líf og heilsa eins og allir höfðu vonað. En nú var orðin snögg breyting og þurfti nýrra viðbragða við. Um þetta mál vom nú langir og þreytandi fúndir framundan. Við framsóknarmenn þóttumst vita, að forsetaefni Sjálf- stæðisflokksins væri Thor Thors sendiherra. En aldrei Iétu þeir það uppi, gáfu það ekki einu sinni f skyn í öllum þeim löngu umræðum er urðu um þetta mál. Við framsóknarmenn otuðum fram Pálma Hannessyni. Það var að því leyti ekki full alvara, að Pálmi hafði sagt okkur það skýrt og skorinort, að þetta tæki hann aldrei að sér. En Pálmi var glæsilegt og ágætt for- setaefni, og allir því vel sæmdir af að styðja hann. Tíminn Ieið og þegar tveir mánuðir voru liðnir frá andláti Sveins Bjöms- sonar hafði enginn gefið sig fram til forsetaframboðs. Þvf var ekki að sjá, að mikill eða almennur áhugi væri fyrir forsetakjörinu. Þegar lengra leið fram á vorið fór þó að gæta hræringa um framboð. Gísli Sveinsson, fyrrverandi sýslumaður V.- Skaftfellinga, kunngerði framboð sitt. Mun Gfsli hafa talið sjálfsagt, að hann yrði kjörinn. Gekk hann með þetta of- mat á sjálfúm sér eftir að hann varð forseti sameinaðs þings 1944. Brátt bættist annar við. Það var Ás- geir Ásgeirsson, fyrrverandi forsætis- ráðherra, en um þessar mundir banka- stjóri Útvegsbankans. Kvis hafði verið um það framboð alllengi, en margir héldu þó að ekkert mundi verða úr því. Óðum leið á framboðsfrestinn. Ég man það nú ekki lengur, hvemig það bar að eða atvikaðist, að séra Bjami Jónsson dómprófastur komst á dag- skrá hjá okkur sem forsetaefni. En það er ekki að orðlengja það, að samkomu- lag náðist milli forystumanna Fram- sóknar- og Sjálfstæðisflokks um séra Bjama sem forsetaframbjóðanda. Við Ólafúr Thors tókum að lokum hönd- um saman um þetta. Séra Bjami var lengi tregur, en gaf þó loks kost á sér. Ég hygg að það hafí mest verið fyrir þrábeiðni Ólafs Thors, en þeir voru flokksbræður og vinir. Leið nú óðum að kjördegi. Okkur var ljóst, að ekki mátti sitja auðum hönd- um. Við fómm því að boða til funda um forsetakjörið. Við Ólafur urðum að taka þetta að okkur. Aðrir f ríkisstjóm- inni fengust ekki til þess, og okkur var talið skyldast að hafa um þetta for- göngu eins og málum var komið. Það var í júní sem við Ólafur vomm einkum á ferðinni til þess að reyna að afla séra Bjama fylgis. Ég man að 12. júní 1952 flutti ég ræðu um þetta efni í Félagi framsóknarkvenna í Reykja- vík. Ég man, að ég undraðist, hve kon- umar tóku mér vel, þar sem ég mátti þá ekki að neinu ráði halla á Sjálfstæð- isflokkinn. Ég hélt síðan erindi um forsetakjörið í Reykholti, á Blönduósi, Sauðárkróki, íVestmannaeyjum og víðar. Undirtekt- ir manna vom nokkuð misjafnar. Við Ólafúr fómm saman suður í Keflavík og Grindavík og fengum þar góðar undirtektir á fundum. En það var hálfgerð ólund í sumum framsóknarmönnum yfir því að eiga nú að styðja séra Bjama Jónsson. Þeg- ar ég ræddi málið á þingi ungra fram- sóknarmanna, sem háð var í Reykjavík 17. júní, vom ungu mennimir lítt glaðir yfir fréttunum af þessu forseta- framboði, en tóku mér þó betur en ég hafði búist við. í öllu þessu umróti er forsetakosn- ingamar 1952 komu af stað, var það eitt vandamálið hvort fara skyldu fram almennar útvarpsumræður um for- setakjörið. Við sem stóðum að fram- boði Bjama Jónssonar óskuðum eftir almennum umræðum. Fylgismenn Ásgeirs Ásgeirssonar vildu helst vera lausir við slfkar um- ræður. En þó var orðið við kröfu okkar og fóm umræðumar fram 26. júní 1952. Þær áttu að vera með sama sniði og venja var til á Alþingi. Útvarpsumræðumar Ég tel rétt að birta hér útvarpsræðu þá er ég hélt f þessum útvarpsumræð- um. Hún gefúr að mínum dómi glöggt yfirlit um hvemig þetta leiðinda- og vandræðamál var þá flutt Því er ekki að neita, að málið hafði snúist þannig, að stjómarflokkamir vom þá í hálf- gerðri vamarstöðu, og af þeirri ástæðu meðal annars lögðum við áherslu á al- mennar umræður um málið. Við töld- um von til þess að við styrktum stöðu okkar í umræðunum. Það var þó vafa- samt eins og málið var í pottinn búið. (Hér verður aðeins birt brot úr ræðu Steingríms við umræðumar um for- setakjörið.) [...] Því hefur verið haldið fram af stuðningsmönnum Ásgeirs Ásgeirs- sonar, að forseti lýðveldisins hafi ekk- ert pólitískt vald og þess vegna snerti störf hans ekki stjómmálaflokka. Kjör forseta sé þeim því f raun og vem óvið- komandi. Svo langt hefur verið gengið í þessum áróðri, að jafnvel kunnur lög- fræðingur hefúr leyft sér að halda þessu fram, þótt hann ætti að vita bet- ur. Hér er um augljósa firm að ræða. Enginn mun Ld. neita því f alvöru, að stjómarmyndun sé pólitískt mál. Já, pólitfskasta mál sem til er. Hvað segir reynslan um stjómarmyndanir þau fáu ár, sem liðin em síðan æðsta valdið var flutt inn í Iandið? Reynslan sýnir með óvefengjanlegum dæmum, að þegar meirihluti til stjómarmyndunar er ekki fyrir hendi á Alþingi, ræður vald þjóðhöfðingjans úrslitum f þessu efni. Hinn látni forseti skipaði stjóm, er ríkti hér í tvö ár. Það var utanþings- stjóm Bjöms Þórðarsonar 1942-1944. Þar með varð til fordæmi, sem ekki verður gengið fram hjá. Forseti hafði allt framkvæmdavaldið í sfnum hönd- um þessi ár. Árið 1949 skipaði forset- inn minnihlutastjóm eins stjómmála- flokksins, af því að ekki var hægt að mynda meirihlutastjóm. Hann réð þá hvaða stjómmálaflokki var falin stjóm- armyndun. Hér er því annað fordæmi um beitingu forsetavalds við stjómar- myndun, og vitanlega er það hápólit- ískt mál, hvemig því valdi er beitt Flokkamir og þar með þjóðin eiga mikið undir því að geta borið traust til þess manns sem fer með slíkt vald. Hér má einnig á það benda, að forset- inn hefur í hendi sinni að stofna til átaka um löggjöf sem sett hefur verið af meirihluta Alþingis, ef honum býður svo við að horfa. í 26. gr. stjómarskrár- innar segir svo: „Nú synjar forseti lagafrumvarpi stað- festingar, og fær það þá engu að síður lagagildi, en leggja skal það þá svo fljótt sem kostur er undir atkvæði allra kosningabærra manna í Iandinu til samþykktar eða synjunar með leyni- legri atkvæðagreiðslu. Lögin falla úr gildi, ef samþykki er synjað, en annars halda þau gildi sínu.“ Með þessu ákvæði er pólitfskt áhuga- sömum forseta fenginn möguleiki til að stofna fyrir sfna hönd eða Ld. þing- minnihluta, sem hann á samstöðu með, til mikilla átaka við hinn kjöma þingmeirihluta og knýja þjóðina til kosninga um það mál, sem um er að ræða, en þar með gerir forsetinn sig í raun og vem að pólitískum foringja þegar svo stendur á. Það leiðir auðvitað af sjálfu sér, að um leið og sýnt er og sannað, að forsetinn getur haft, ef hann beitir þvf, meira pólitfskt vald en nokkur annar maður á íslandi, að stjómmálaflokkamir geta ekki undir neinum kríngumstæðum látið það afskiptalausL hver fer með þetta vald. Þess vegna er það einnig söguleg staðreynd, að í þau tvö skipti, sem þjóðkjör forseta hefur farið fram, hafa samtök stjómmálaflokkanna leitt til þess að forsetinn var sjálfkjörinn, og tók Alþýðuflokkurinn þátt í þeim sam- tökum þá. Og ástæðan til þess, að ekki náðist samkomulag að þessu sinni, var sú að minnsti flokkurinn, Alþýðuflokk- urinn, skarst úr leik og vildi engan frambjóðanda heyra nefndan nema einn af alþingismönnum sínum, og það einmitt mann, sem miklu hefur ráðið um stefnu þess flokks á undan- fömum árum, og er enn f dag einn að- alforingi síns flokks. Þegar þjóðinni, við fráfall hins ástsæla og mikilsvirta fyrsta forseta lýðveldis- ins, Sveins Bjömssonar, barst sá vandi að höndum að velja mann í hans stað, tók Framsóknarflokkurinn undir eins þá afstöðu að vinna að því fyrir sitt leyti, að til forseta yrði valinn maður er víðtækast samkomulag gæti orðið um og þó helst þannig, að öll þjóðin gæti orðið sammála um eitt og sama fram- boð. En til þess að svo mætti verða, þurfti forsetaefnið að hafa staðið að mestu eða öllu leyti utan við hin pólit- ísku átök síðustu áratuga. Þetta var nauðsynlegt skilyrði þess að nokkur von væri um samkomulag milli flokk- anna og þjóðarinnar. Þeir sem þekkja þjóðareðli fslandinga og það, hve stjómmálabaráttan er oft heit og óvægin, vita það, að þjóðareining verð- ur aldrei um pólitfska átakamenn. Framsóknarflokkurinn hefur aldrei sett það að meginskilyrði, að fram- sóknarmaður yrði í kjöri, þótt flokkur- inn hafi mörgum ágætum forsetaefn- um á að skipa. Hitt hefur hann frá upp- hafi Iátið sitja í fyrirrúmi, að til þessa æðsta embættis íslensku þjóðarinnar veldist maður, er þjóðin gæti samein- ast um og hefði óskorað traust hennar. Heilsteyptur drengskaparmaður, með sterkri skapgerð er allir gætu treyst að aldrei gerði annað en það sem hann hygði sannast og réttasL Maður sem hefði aflað sér virðingar með löngu og farsælu starfi í þjónustu almennings. Þess vegna hefur Framsóknarflokkur- inn Iitið svo á, að ekki kæmu aðrir til greina í þessa stöðu en aldraðir menn, er búnir væm að inna mikilvæg störf af höndum utan stjómmálabaráttunnar, og án þess að blettur hefði á þá fallið. [...] Forsetakosningamar Forsetakosningamar fóm fram sunnudaginn 29. júní, án þess að sam- komulag tækist um forsetakjör að ósk ríkisstjómarinnar. Allir vissu að fram- boð Gísla Sveinssonar var ekki tekið al- varlega af meginþorra þjóðarinnar. Kjör forseta hlaut að snúast um Ásgeir og séra Bjama, en frambjóðendur vom aðeins þessir þrír. Úrslitin urðu þau, að Ásgeir Ásgeirsson var kjörinn forseti og hafði tæp tvö þúsund atkvæði fram yfir séra Bjama, en þeir skiptu megin- hluta atkvæðamagnsins á milli sín. Gísli Sveinsson fékk rúm 4000 at- kvæði. Þessi úrslit vom að sjálfsögðu mikið áfall fyrir ríkisstjómina, sem hafði fylgt séra Bjama einhuga. Mér fannst f fyrstu að þetta hlyti að leiða til þess, að ég segði af mér, bæðist lausnar fyrir mig og allt ráðuneytið. En þegar frá leið breyttist það viðhorf nokkuð. Margir sem við okkur ræddu sögðu slíkt fráleitt og ekki í mál takandi. Minn flokkur var því andvígur er ég bauð honum þegar eftir kosningar að draga mig í hlé. Að öllu eðlilegu hefði átt að halda rík- isráðsfund fljótlega að forsetakosning- um afstöðnum, en ráðherrar vom ekki f skapi til slíks fundarhalds þá. Það dróst því í meira en þrjá mánuði. Það var ekki fyrr en 9. okt. að forseti hafði ríkisráðsfund að Bessastöðum, og vom þá skapsmunir allra komnir í sæmilegt lag. Ég hafði samið örstutt ávarp og flutti forseta það. Mikill vandi var að semja það þannig, að allir ráðherramir gætu samþykkt það, og vikumar áður höfðu ráðherrar enn verið í úfhu skapi og ekki komnir í jafnvægi eftir forseta- kosningamar. Það vom sérstaklega þeir Ólafur og Hermann sem allt höfðu á homum sér. Afhroðið sem ríkisstjómin galt í for- setakosningunum sagði enn lengi til sín, einkum síðustu mánuði ársins 1952. Þótt öll störf gengju nokkum veginn eðliiega hjá okkur í ríkisstjóm- inni, greri þó aldrei fyllilega um heilt eftir það áfall. Samstarf mitt við hinn nýja forseta, Ásgeir Ásgeirsson, var að vísu gott, því að hann vildi f öllu sýna lipurð og lagni. Þó var það annað andrúmsloft en áður var, því að Sveinn Bjömsson hafði náð ágætum tökum á að starfa með mér. En mér virtist Ásgeir stundum ekki fara rétt að. Þó var ekki hægt að segja annað en samstarf okkar væri gott og árekstralaust með öllu. Þingborg — Félagslundur Rangæingar Alþingismennimir Jón Helgason og Guðni Ágústsson verða til viðtals og ræða þjóðmálin að Laugalandi I Holtum mánudaginn 15. febrúar kl. 21. Guðnl Jón Fimmtudaginn 18. febrúar kl. 15 verða alþingismennimir Jón Helgason og Guðni Ágústsson til viötals I Þingborg I Hraungeröishreppi og kl. 21 sama dag I Félags- lundi I Gaulverjabæjartireppi. Kópavogur — Opið hús Opiö hús er alla laugardaga kl. 10.00 - 12.00 að Digranes- vegi 12. Kaffi og létt spjall. Sigurður Geirdal bæjarstjórí verður til viðtals. Framsóknarfélögin Þorrablót Framsóknarfé lags Seltjarnarness Þorrablót Framsóknarfélags Seltjamar- ness verður haldið laugardaginn 13. feb. nk. kl. 19.30, að Melabraut 5, Sel- tjamamesi. Þorramatur verður að- keyptur og kostar kr. 1.600 fyrir mann- inn, en nauðsynlegar guðaveigar verða menn að koma með sjálfir. Formaður flokksins, Steingrímur Hermannsson, og bæjarfulltrúinn okkar, Siv Friðleifs- dóttir, munu ffytja okkur þorrahugleið- ingar slnar. Slv Þátttöku þarf að tilkynna til einhvers stjómamianna: Siv I slma 621741, Amþórs I sima 611703, Ásdlsar I sfma 612341, Guömundar I sima 619267 eða Jóhanns Pét- urs I sima 622012 i slöasta lagi miðvikudaginn 10. feb. n.k. Við f stjóminni vonumst eftir að sjá sem flest ykkar I góöu formi á þorrablótinu okk- ar. Framsóknarfélag Seltjarnamess Akranes — Bæjarmál Fundur verður haldinn I Framsóknarhúsinu laugardaginn 13. febrnar kl. 10.30. Faríð veröur yfir þau mál, sem efst eru á baugi I bæjarstjóm. Morgunkaffi og meðlæti á staönum. Framsóknarvist — Reykjavík Framsóknarvist verður spiluð n.k. sunnudag, 14. febrúar, I Hótel Lind, Rauöarárstlg 18, og hefst kl. 14.00. Veitt verða þrenn verðlaun, karta og kvenna. Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi flytur stutt ávarp I kaffihléi. Framsóknarfélag Reykjavlkur Norðurland eystra Laugardagur 13. febrúar Blómaskálinn Vln I Eyjafjarðarsveit kl. 10.30. Guðmundur Bjarnason og Jóhannes Geir Sigurgeirsson ræða þjóömálin. Garðar, skrifstofa framsóknarmanna á Húsavlk, kl. 10.30. Valgerður Sverrisdóttir og Guðmundur Stefánsson mæta. Verið velkomin. Framsóknarfíokkurinn Bæjarfulltrúamlr Sigrún Búvélar til sölu Massey Ferguson 390 árg. 1991. Einnig Claas rúllubindivél árg. 1990. Upplýsingar í síma 98-75145. Ástkær sonur minn og bróöir okkar Agnar Helgi Vigfússon frð Hólum (HJaltadal sem andaöist I Landspltalanum þann 3. febníar slöastliöinn, veröur jarö- sunginn frá Hólum mánudaginn 15. febrúar n.k. kl. 13.30. Kveöjuathöfn ferfram frá Háteigskirkju föstudaginn 12. febrúar n.k. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaöir, en þeim sem vildu minnast hans er bent á Krabbameinsfélag (slands og Hjartavemd. Helga Helgadóttlr, systklnl hlns látna og aörir vandamenn y

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.