Tíminn - 05.05.1993, Qupperneq 1

Tíminn - 05.05.1993, Qupperneq 1
Miðvikudagur 5. maí 1993 82. tbl. 77. árg. VERÐ í LAUSASÖLU KR. 110.- Verður þorskkvótinn óbreyttur, eða skorinn ennfrekar og hver ræður í sjávarútvegsráðuneyt- inu, Þorsteinn eða Davíð? Forsætisráðherra á eldhúsdegi: Getum ekki tek- stærri dýfur Námskeið atvinnulausra: „Ég vona að satt væri en ég býð eftir frekari upplýsingum um hvort rétt sé og með hvaða hætti við séum þá að byggja upp stofninn," segir Kristján Ragnarsson, formaður LÍÚ. Davíð Oddsson forsætisráðherra lét svo ummælt í eldhúsdagsumr- æðum á Alþingi í fyrrakvöld að ekki væri hægt að skera aflaheim- ildir meira niður en gert hefúr ver- ið. „Við getum ekki tekið stærri dýfur en við höfum þegar tekið,“ sagði ráðherrann. Þetta hafa margir skilið á þann veg að ekki verði um frekari niður- skurð á aflaheimildum frá því sem nú er. Það skýtur dálítið skökku við framkomnar yfirlýsingar sjáv- arútvegsráðherra eftir að Hafrann- sóknastofnun birti bráðabirgða- niðurstöður togararallsins um lé- legt ástand þorskstofnsins. En sjávarútvegsráðherra hefúr marg- lýst því yfir að við ákvörðun afla- heimilda á næsta fiskveiðiári verði farið eftir ítrustu tillögum fiski- fræðinga og látið í það skína að þorskkvótinn verði ekki meiri en sem nemur 175 þúsund tonnum. Eins og kunnugt er þá er þorsk- kvóti yfirstandandi fiskveiðiárs um 205 þúsund tonn, en Hafrann- sóknastofnun lagði til síðastliðið sumar að kvótinn á fiskveiðiárinu 1992-1993 yrði 190 þúsund tonn. Þorsteinn vildi halda sig við það en Davíð fékk því framgengt að hann var aukinn um 15 þúsund tonn. Halldór Ásgrímsson, alþingis- maður og fyrrverandi sjávarút- vegsráðherra, segir þessi ummæli forsætisráðherra merkileg og þá sérstaklega í Ijósi þess að það er sjávarútvegsráðherra að ákveða aflaheimildir á grundvelli upplýs- inga frá Hafrannsóknastofnun um ástand og horfur helstu nytja- stofna. Amar Sigurmundsson, formaður Samtaka fiskvinnslustöðva, segist vona það besta þegar ákvörðun um aflaheimildir á næsta fiskiveiðiári verða kynntar í sumar. Hins vegar sé því ekki að leyna að sjávarút- vegsmenn hafa að undanförnu ver- ið búnir undir það að þorskkvóti næsta fiskveiðiárs verði aðeins 175 þúsund tonn. „Menn hafa auðvitað ýmsar skoð- anir á þessu. Flestir sem ég tala við Ríkisstjómin treystir sér ekki til að leggja fram frumvarp um sjávarút- vegsmál á yfirstandandi þingi vegna ágreinings í þingflokkum stjórnar- j liða: Halldór Ásgrímsson: Ovissan skaðar sjávarútveginn eru raunsæir og þykjast góðir ef kvótinn verður óbreyttur en búast þó frekar við því að eitthvað verði klipið af honum,“ segir Amar Sig- urmundsson. Ekki náðist í Þorstein Pálsson sj ávarútvegsráðherra. -grh Borgarráð samþykkti í gær auka- fjárveitingu upp á tvær millj. kr. vegna náinskeiða atvinnulausra þar sem aðsókn var mikiu meiri en búist var við, Þessi námskeið hafa verið hald- in í samvinnu við atvinnumála- nefnd og Ráðningastofu Reykja- víkurborgar með stuðningi fé- rbréfí frá Námsflokkum Reykja- vflrar kemur fram að aðsókn hafl veríðmiHu meiri en búistvarvið. Alls bárust um 600 umsóknir en þeir sem tóíru þatt vora um 400. f bréflnu segir að gert hafl wrið ráð fyrir 120 þátttakend- um og þvíhafi viðbótaríjármagn „Auövitað þýðir þetta áframhaldandi óvissu og menn haida að sér höndum með ýmsar ákvaðanir þegar ekki er vitað hvaö er framundan. Á meðan verða menn að eyða tíma í þetta mál f stað þess að einbeita kröftunum að grundvelli sjávarútvegarins og rekstrarumhverfi. Með þessu móti beina menn athyglinni frá þvi stórkostlega tapi sem er í at- vinnugreininni að þessu og því tel ég að þetta muni skaða sjávarút- veginn verulega," segir Halldór Ásgrímsson, alþingismaöur og fyrr- verandi sjávarútvegsráðherra. Eins og kunnugt er þá hefur Þor- steinn Pálsson sjávarútvegsráðherra hætt við að leggja fram frumvarp um sjávarútvegsmál á yfirstandandi þingi vegna ágreinings um einstök atriði þess innan þingflokka stjómarliðs- ins. Síðustu daga hefúr farið mest fyrir andstöðu þingflokksformanns Alþýðuflokksins að þak verði sett á afla smábáta, en fyrirvarar einstakra stjómarþingmanna ná til fleiri þátta s.s. Þróunarsjóðsins og frjálsu fram- sali veiðiheimilda að ógleymdum margítrekuðum yfirlýsingum Sig- hvats Björgvinssonar heilbrigðis- og tryggingaráðherra þess efnis að hann muni aldrei styðja kvótann. Samkvæmt lögum um stjóm fisk- veiða átti endurskoðun löggjafarinn- ar að verða lokið fyrir árslok 1992. í því sambandi átti einnig að hafa sam- ráð við hagsmunaaðila og sjávarút- vegsnefnd þingsins. Hins vegar kaus ríkisstjómin að fara þannig f málið að setja í það pólitíska nefnd sem hafði það aðalverkefni að finna ásættanleg- ar leiðir fyrir stjómarflokkana til að skattleggja atvinnugreinina. Halldór segir að þama virðist ráða ferðinni þráhyggja Alþýðuflokksins og sú undarlega skoðun að mikla peninga sé að finna í sjávarútvegin- um. f því sambandi vitnar Halldór m.a. til nýendurskoðaðrar efnahags- spár Þjóðhagsstofnunar þar sem kemur fram að tapið í atvinnugrein- inni sé meira en fáist staðist til lengd- ar. Hann segir að það staðfesti það sem hann hefur áður sagt að „það getur engin ríkisstjóm setið mjög lengi sem ætlar að sætta sig við bull- andi hallarekstur í helstu atvinnu- grein þjóðarinnar." Halldór Ásgrímsson segir að þótt ekki séu til einfaldar lausnir á vanda sjávarútvegarins þá sé það engin lausn að bíða og horfa á rústimar. „Ég tel að allt uppleggið í kringum endurskoðun laga um stjóm fisk- veiða hafi verið skakkt og orðið til þess að vekja meiri deilur um málið en nauðsynlegt hefði verið. Það er hins vegar staðreynd að stjómar- flokkamir koma sér ekki saman um það og láta í það skína að það styrki málið. Það er alveg nýtt fyrir mér að það styrki mál að ljúka þeim ekki. En svo vont getur það nú verið að það sé hugsanlega rétt.“ -grh Fyrsta móðirin á Fæðingaheimilið Bima S. Pálsdóttir er fyrsta móðirin sem dvelur á Fæðingaheimil- inu við Eiríksgötu um langt skeið. Hún átti dóttur um kl. 4.30 í fyrri- nótt. Dóttir Birnu, sem var 3,22 kg aö þyngd og 49 sm löng, fædd- ist á fæðingadeild Landspítalans en í gærmorgun fluttust þær mæðgur inn á Fæðingaheimilið og una sér þar hið besta. Timamynd Ámi Bjama Aðildarfélög Alþýðusambands Suðurlands krefjast þess að ríki og VSÍ gangi tafariaust til samninga: 600 atvinnulausir á Suðurlandi „Það er afar erfitt að meta hvert framhaldið verður í samningamál- unum. Það bíður nánast hver eftir öðrum í núverandi stöðu en kannski verður þetta eitthvað Ijósara eftir miöstjómarfund ASÍ á morgun, sagði Hansfna Á. Stefánsdóttir, formaður Alþýðusam- bands Suðurlands í gær. Á fjölmennum fundi aðildarfélaga ASÍ kröfðust fundarmenn þess að at- vinnurekendur og rikisstjóm gengju tafarlaust til samninga, ella væri ljóst að launafólk mundi gripa til þeirra aðgerða sem nauðsyn krefði. Um 600 manns eru án atvinnu á Suðurlandi og hefur sá fjöldi verið nokkuð stöðugur. Hansína Á. Stef- ánsdóttir segir að aðalkröfur sunn- lensks launafólks, eins og annarra, snúist öðru fremur um aðgerðir í at- vinnu-, vaxta- og heilbrigðismálum en síðast en ekki síst iækkun matar- skattsins og að launafólki verði tryggðar láglauna- og orlofsbætur. Á fundinum var yfirlýsing rikis- stjómar frá því í apríl sl. gagnrýnd harðlega og þá sérflagi að þar skyldi ekki vera útlistað hvernig fjármagna ætti lækkun virðisaukaskatts á mat- vælum. En sú lækkun ein og sér er talin nema um 3% kaupmáttar- aukningu fyrir þá sem lægstar hafa tekjumar. Þá fordæmdu fundar- menn þá afstöðu atvinnurekenda að slíta viðræðum við ASÍ og lýstu yfir fullri ábyrgð á hendur þeim. -grh

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.