Tíminn - 05.05.1993, Qupperneq 9

Tíminn - 05.05.1993, Qupperneq 9
Miðvikudagur 5. maí 1993 Tíminn 9 ■ DAGBÓK Myndakvöld Feröafélagsins í kvöld, miðvikudag, kl. 20.30 verður Ferðafélagið með síðasta myndakvöld vetrarins f Sóknarsalnum, Skipholti 50a. Hjörleifur Guttormsson, höfundur Ár- bókarinnar 1993: Við rætur Vatnajökuls, kynnir ferðaslóðir sem þar koma við sögu. Fjölmargar Ferðafélagsferðir í sumar, bæði helgar- og sumarferðir, tengjast efni árbókarinnar að meira eða minna leyti. Um er að ræða svæðið frá Lómagnúpi f vestri og austur í Lón, byggðir og óbyggðir. Árbókin kemur út fljótlega. Hér gefst einstakt tækifæri til þess að njóta leiðsagnar um forvitnilegt svæði hjá manni sem gjörþekkir lands- Iag, náttúrufar og mannlíf. Ferðaáætlun liggur frammi á myndakvöldinu. Að- gangur er kr. 500,- (kaffi og meðlæti innifalið). Allir eru velkomnir meðan pláss leyfir, félagar sem aðrir. Tilvalið að gerast félagi. Ferðafélagið heldur áttavitanámskeið 10. og 11. maí nk. Það verður haldið að Mörkinni 6 (risi). Upppantað er á það. Næsta opna hús í Mörkinni 6 verður aug- lýst síðar. Kvöldsýning á Dýrunum í Hálsaskógi Annað kvöld, fimmtudag, verður eftit til kvöldsýningar á bamaleikritinu vinsæla Dýrunum í Hálsaskógi eftir Thorbjöm Egner, sem verið hefur á fjölum Þjóð- leikhússins í allan vetur við miklar vin- sældir. Dýrin í Hálsaskógi eiga það sam- merkt með öðmm verkum Egners að um leið og þau em hrífandi og falleg hafa þau að bera boðskap sem höfðar jafnt til bama og fullorðinna og fellur aldrei úr gildi. Dýrin í Hálsaskógi em því svo sannarlega fyrir böm á öllum aldri. í helstu hlutverkum em Sigurður Sigur- jónsson, Öm Ámason, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Herdís Þorvaldsdóttir, Erling- ur Gíslason, Guðrún Þ. Stephensen, Flosi Ólafsson og Hjálmar Hjálmarsson. Tuttugu og fimm Ieikarar taka þátt í sýn- ingunni, bæði böm og fullorðnir. Sinfóníutónleikar Annað kvöld, fimmtudag, verða sjöttu og síðustu tónleikar í Rauðri ásloiftaröð Sinfóníuhljómsveitar fslands á þessu starfsári. Hefjast þeir kl. 20. Hljómsveitarstjóri er Pavo Járvi frá Finnlandi, en einleikari á píanó Leif Ove Andsnes frá Noregi. Á efnisskránni er Jónsmessuvaka eftir Hugo Alfvén, Píanó- konsert eftir Edvard Grieg og Sinfónía nr. 5 eftir Pjotr Tsjajkofskíj. Fræöslufundur um beinþynningu Gigtarfélag íslands heldur fræðslufund um beinþynningu fimmtudagskvöldið 6. maí, kl. 20.30, f Ársal Hótel Sögu. Erindi flytja læknamir Kári Sigurbergsson og Gunnar Sigurðsson. M.a. verður sagt frá tæki sem notað er til að mæla beinþynn- ingu. Fyrirspumir og umræður verða leyfðar á eftir erindunum. Allir velkomn- ir meðan húsrúm leyfir og aðgangur ókeypis. Mögulegt verður að kaupa heita drykki. Tvær listakonur sýna í Portinu í Hafnarfiröi Þær Katrín Þorvaldsdóttir og Marisa N. Arason halda sýningu í Portinu, Strand- götu 50, Hafnarfirði. Katrín er fædd í Reykjavík árið 1949. Hún hefur haldið námskeið í brúðu- og grímugerð hér heima og erlendis og tek- ið þátt f gjömingum og götuleikhúsum víða um Evrópu. Hún vann einnig við gerð brúða og stjómun með nokkmm brúðuleikhúshópum á Spáni, þar af í tvö ár hjá Centre de Titelles í Lleida (Lerida) á Spáni. Hér heima starfrækir hún nú EMBLU-leikhúsið. Verk Katrínar á sýningunni em brúður og brúðuskúlptúrar, sem hún hefur unn- ið á undanfömum tveimur ámm. Marisa er fædd í Barcelona á Spáni árið 1954. Hún sótti ljósmyndanámskeið hjá Agmpació Fotografica de Catalunya í Barcelona 1981 og stundaði síðan Ijós- myndanám við Institut d’Estudis Foto- grafica de Catalunya í Barcelona 1983- ’86. Hún hefur starfað hjá ýmsum þekkt- um ljósmyndurum hér á landi og einnig sem Jree-lance“ ljósmyndari, en síðast- Iiðin fjögur ár hefur hún verið starfs- maður Ljósmyndasafns Reykjavíkur- borgar. Marisa hefur tekið þátt í samsýn- ingum hér heima og í Barcelona frá ár- inu 1981. Verk Marisu á sýningunni em listrænar ljósmyndir teknar hér á landi og á Spáni. Sýningin er opin daglega frá kl. 14-18, nema þriðjudaga. Henni lýkur 16. maí. (blwrávántaTI Lynghálsi 9. Sími 686300 - kl. 9 til 17 GARÐSLÁTTUR Tökum að okkur að slá garða. Kantklippum og fjarlægjum heyið. Komum, skoðum og gerum verðtilboð. XJpplýsingar í síma 41224, eftir kl. 18.00. Haugsuga óskast keypt Upplýsingar í síma 93-41220. Þegar loks kom að þvl að Clint Eastwood var tilnefndur til Óskarsverölauna eftir 38 ára starf I kvik- myndaiðnaöinum, hreppti hann tvenn fyrir mynd sina „Hinir vægðarlausu“. Clint Eastwood hefur ekki þótt tala af sér um dagana og lengi vel var ímynd hans á hvíta tjaldinu sú aö hann sagði fátt en aðhafðist því meira. En það er eins og aðeins hafi losnað um málbeinið á honum að und- anfömu, kannski á seint fengin Óskarsviðurkenning á starfi hans sinn þátt í því, og nýlega fengu íslenskir sjónvarpsáhorf- endur aðeins að kflrja á bak við grímuna hans með aðstoð breska sjónvarpsmannsins Da- vids FrosL Meðal annars sem þar kom fram er reyndar að hann er af ensku bergi brotinn og þótti Frost þar e.t.v. fengin einhver skýring á því hversu fá orð Clint Eastwood er fáanlegur til að nota til að segja frá sjálfum sér, skoðunum og einkalífi, en þar kom líka fram að hann hefur vissulega ákveðnar skoðanir á ýmsum hlutum og sannfær- ingu. Clint Eastwood verður 63 ára á þessu ári og á að baki 38 ára fer- il í kvikmyndum. Hann er ákaf- lega sjálfsagaður og hugsar vel um líkama og sál, enda ber hann aldurinn vel. Og hann tal- ar ekki um að setjast í helgan stein frekar en önnur framtíðar- áform. Það hefur þó einhvern veginn kvisast að til tals hafi komið að hann og sambýliskona hans til þriggja ára, leikkonan Frances Fisher, hafi látið sér detta í hug að opinbera trúlofun sína um sama leyti og Óskars- verðlaunaveitingin fór fram en þegar í ljós kom að Clint yrði slíkur stórverðlaunahafi hafi op- inberuninni verið frestað, hann geri sér nefnilega góða grein fyrir áhrifum auglýsinganna og geymi sér því þetta tilefni til að komast í fréttirnar til betri tíma! I spcoli «■■■ WM M Ck L______________) Og þá er komið að konunum í Iífi Clints, sem helst hafa hrint honum út í sviðsljós fréttamiðla þegar illa hefur farið. Hann var Íengi vel giftur Maggie, móður barnanna tveggja, tvítugrar dóttur og 24 ára sonar. Þrátt fyr- ir hávaðasaman skilnað og háar fiárkröfur frúarinnar helst enn gott samband milli þeirra. Öðru máli gegnir um leikkonuna Sondru Locke sem bjó með Clint í 12 ár. Þvf sambandi lauk með brauki og bramli, gífúrleg- um fiárútlátum fyrir hann og að því er virðist hatri. Núverandi sambýliskona hans er eins og áður segir Frances Fisher. Er þá Frances Fisher eina kon- an í lífi Clints um þessar mund- ir? Löng þögn, og síðan kemur svarið: „Móðir mín er enn á lífi og hún er alveg einstök kona!“ Reyndar var móðir hans, Ruth, í fylgd með syni sínum, og Fran- ces, þegar Clint Eastwood var heiðraður í Hollywood með veit- ingu tvennra Óskarsverðlauna á dögunum. Kannski hefur Óskarsverölaunaathöfnin veriö stærsta stund lífs Clints Eastwood. Hann vildi a.m.k. vera viss um að konurnar í lífi hans færu ekki á mis viö hana og tók með sér móöur sína fíuth og sam- býliskonuna Frances Fisher.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.