Tíminn - 20.05.1993, Side 8
8 Tíminn
Fimmtudagur 20. maí 1993
Framsóknarfélögin í Hafnarfirði
Opið hús að Hverfisgötu 25 alla þriðjudaga fcj. 20.30.
Komið og fáið yfckur fcaffisopa og spjallið.
Framsóknariélögin
Framsóknarkonur—Vorferð
Félag framsóknarkvenna I Reyfcjavifc fer I vorferð á uppstigningardag 20. mai.
Fariðfrá Umferðanniöstööinni kl. 13.30.
Bláljöllin — Bláa lóniö og margt þar á milli.
Tilkynnið þátttöku til Kristrúnar s. 11746 eða Sigriðar s. 813876. Takið með ykfc-
ur gesti.
Stómln
Vestfirðingar
„Átaktil
endurreisnar14
SWngrimur
Alþingismennimir Steingrimur Hermannsson og Ólafur Þ. Þóröarson munu
fcynna tillögur Framsóknarfiokksins I efnahags- og atvinnumálum á almennum
stjómmálafúndi I stjómsýsluhúsinu á Isafirði þriðjudaginn 25. mal kl. 20.30.
Allir velkomnir
Kjöixtæmissamband framsóknarmanna á Vestíjöróum
Sumartími skrifstofu
Framsóknarflokksins
Frá 17. mal verður skrifstofa Framsóknarflokksins i Hafnarstræti 20, III hæð, op-
in frá kl. 8.00 til 16.00 frá mánudegi til föstudags.
Verið velkomin FramsóknarikMiurinn
Akranes — Bæjarmál
Fundur verður haldinn I Framsóknarhúsinu laugardaginn 22. mal Id. 20.30. Farið
verður yfir þau mál sem efst eru á baugi ( bæjarstjóm.
BæjariuMtriamk
BYGGINGAREFNI
ISVOR
SAMBLIKK - ÍSVÖR HF.
Dalvegi 28 • Pósthólf 435 • 202 Kópavogi
Sími 91 -641255 • Fax 641266
Bændur - Verktakar
Getum boðið báruvalsað ALUZINK
Hentugt í inniklæðningar fyrir hverskonar útihús
og iðnaðarhús.
Verð á klæddum fm kr. 470,00 m/vask.
Takmarkaðar birgðir.
Lilj a Eiríksdóttir
Selfossi
Fædd 25. júlí 1909
Dáin 17. apríl 1993
Sýn mér, sólarfaðir,
sjónir hærri en þessar.
Mdlið mitt er síðast
miklarþig og blessar.
Sýn mér sætt í anda
sæla vini mína,
blessun minna bama
burtfor mína krýna.
Dæm svo mildan dauða,
Drottinn, þínu bami,
eins og léttu laufí
lyfti blcer frd hjami,
eins og lítill lækur
Ijúki sínu hjali,
þar sem lygn í leyni
liggur marinn svali.
(Matthíu Jodiumsson)
Lilja var fædd í Reykjavík. Foreldrar
hennar voru Eiríkur Ingimagnsson,
ökumaður, fæddur 29.06. 1877 á
Akranesi, dáinn 11.05. 1948, og kona
hans Elísabet Jónsdóttir, fædd 11.05.
1878 á Brennistöðum í Borgarhreppi í
Mýrasýslu, dáin 04.12. 1933. Lilja var
elst fjögurra systkina, sem upp kom-
ust. Bræðumir, Jón og Ingimagn, eru
látnir, en systirin, María Wouters,
fluttist til Bandaríkjanna eftir stríð og
býr nú í Florída.
Lilja ólst upp í foreldrahúsum við
Bræðraborgarstíg og gekk í Landa-
kotsskóla. Þar naut hún m.a. hand-
leiðslu mjög góðs móðurmálskenn-
ara, sem hún minntist með virðingu
og þökk. Guðrún hét hún. Hún varð
líka fyrir áhrifum af þeirri trúrækni
sem ríkti þama og kunni mikið af
sálmum, bænum og ljóðum.
Að lokinni skólagöngu vann hún við
ýmis störf, sem til féllu, svo sem fisk-
verkun og framreiðslu, en ljúfast var
henni að minnast vinnu sinnar á fæð-
ingarstofnun, sem Helga Níelsdóttir
veitti forstöðu, og lét hún þess oft get-
ið að hún hefði gjaman kosið sér ljós-
móðurstarfið, ef hún hefði haft tök á
að læra það.
Árið 1934 giftist hún Brynjólfi Valdi-
marssyni bifreiðarstjóra frá Sóleyjar-
bakka, sem fæddur var 01.01.1896 og
lést 19.12. 1973. Hann stundaði
mjólkurflutninga. Þau bjuggu á Sel-
fossi frá 1939 til æviloka.
Böm þeirra vom fimm:
Eiríkur, sem er kvæntur Valgerði
Bjömsdóttur. Þau eiga átta böm.
Valdimar, kvæntur Jakobínu Kjart-
ansdóttur. Þau eiga 2 dætur.
Erlingur dó ársgamall.
Elísabet, gift Steinþóri Þorsteinssyni.
Þau eiga þrjá syni.
Helga, sem er gift Hirti Hjartarsyni.
Þau eiga tvö böm.
Alls eru bamabömin orðin 15 og
langömmubömin em orðin sex.
Eftir að Lilja flutti á Selfoss var hún
lengi framan af heimavinnandi hús-
móðir, saumaði allt og prjónaði á fjöl-
skylduna, og í kringum hana var allt
smekklegt og snyrtilegt. Þegar bömin
stækkuðu, fór hún að vinna úti. Hún
vann m.a. á Sjúkrahúsi Suðurlands og
síðar um 10 ára skeið í Sundhöll Sel-
foss. Hún var ein af stofnendum Kven-
félags Selfoss og vann því félagi svo vel
sem hún mátti. Hún starfaði líka mik-
ið fyrir Sjálfsbjörgu, landssamband
fatlaðra.
Við Lilja áttum svolítið sameiginlegt,
reyndar heilmikið. Báðar vomm við
ömmur Unu Bjargar og Áma Víðis,
sem lengst af bjuggu undir sama þaki
og hún, svo að þau höfðu miklu meira
af henni að segja heldur en ömmu í
sveitinni, a.m.k. þangað til þau fóm að
koma hingað í kaupavinnu að sumr-
inu.
Við kynntumst fyrir svo sem 20 ár-
um, þegar sonur minn, Hjörtur, og
Helga dóttir hennar ákváðu að eyða
ævinni saman.
Lilja var mild og móðurleg í viðmóti
og vildi öllum gott gera. Hún vildi Iáta
hafa sem minnst fyrir sér, en bar hag
annarra þeim mun meir fyrir brjósti.
Slíkra er gott að minnast.
Lilja var orðin ekkja, þegar við kynnt-
umst. Hún var hætt að vinna úti og
bjó áfram á Skólavöllum 2. Innan
fárra ára fluttu Hjörtur og Helga með
bömin sín tvö á efri hæðina á Skóla-
völlum 4, sem er undir sama þaki,
bara annar inngangur.
Þau, eins og annað ungt fólk sem
keppir að því að eignast þak yfir höf-
uðið, urðu að sjálfsögðu bæði að vinna
úti. Una Björg, sem nú er að verða 18
ára, og Ámi Víðir, sem fermdist núna á
pálmasunnudaginn, vom alltaf vel-
komin til Lilju ömmu, þegar pabbi og
mamma vom í vinnunni og þau vom
enn ung og smá. Það er og verður
þeim ómetanlegt. Auk þess sem þau
áttu traust og gott heimili hjá foreldr-
um sínum, áttu þau annað athvarf hjá
ömmu sinni og hún gaf sér ævinlega
nógan tíma til að sinna þeim. Þau eiga
eftir að búa að þeim forréttindum alla
ævi.
Þegar þau stækkuðu gátu þau að
nokkm endurgoldið henni umhyggj-
una, sem hún sýndi þeim ungum. Síð-
ustu tvö árin hrakaði heilsu hennar,
svo að hún þurfti á sífellt meiri hjálp
að halda til þess að þurfa ekki að dvelja
á sjúkrastofnun. Þá hjálp átti hún
sannarlega inni hjá Ijölskyldunni á
efri hæðinni, enda var hún fúslega
veitt Síðustu misserin bjó hún að
mestu hjá Helgu og Hirti og naut um-
önnunar þeirra og bamanna.
Lilju langaði til að lifa ferminguna
hans Áma Víðis, yngsta bamabams-
ins. Henni varð að þeirri ósk. Hún var
óvenju hress þann fallega dag og gat
notið samvistanna við böm, bama-
böm, bamabamaböm og aðra vanda-
menn. Hún var falleg þennan dag,
eins og jafnan áður. Hún var óvenju
glæsileg kona og bauð af sér góðan
þokka, eins og allir sem ævinlegabera
meiri umhyggju fyrir öðmm en sjálf-
um sér.
En nú átti hún skammt eftir ólifað. Á
miðvikudeginum í sömu viku fékk
hún áfall og Iést að 10 dögum liðnum.
Þá rættist önnur ósk hennar. Hún
vildi deyja að vori til. Böm hennar
skiptust á að vaka yfir henni þar til yf-
ir lauk.
Ég ímynda mér að hún hefði viljað
kveðja í sama anda og Matthías Joc-
humsson gerði í versunum hér á und-
an, sem hún hefur vafalaust þekkL
Svo mikið kunni hún af sálmum og
ljóðum. Einhvem veginn finnst mér
að svona hafi hún hugsað. Efst í huga
hennar var umhyggjan fyrir bömum
hennar og öðmm vinum og vanda-
mönnum.
Blessuð sé minning hennar.
Ingibjörg Bergþórsdóttir,
Fljótstungu
Útvegum einnig í miklu úrvali litaðar útiklæðn-
ingar og þakrennur litaðar og ólitaðar.
Maöurinn minn
Guðmann Ólafsson
bónd
Skálabrekku, Þingvallasveit
veröur jarösunginn frá Þingvallakirkju laugardaginn 22. mal kl. 14. Rútu-
ferö veröurfrá BSl kl. 12.30.
Regína Svelnbjömsdótör
_______________________/
Valgerður Ketilsdóttir
frá ÁHsstööum, Skeiðum
Helmahaga 9, Setfossl
lést I Sjúkrahúsi Suöuriands 18. mal.
HaflMM Ketlsson
____________________________________________________________/
Mýs og menn
Of Mice and Men ★★★1/2
Handrit: Horton Foote. Byggt á sam-
nefndri skáldsögu Johns Steinbeck.
Framleiðendur Russ Smith og Gary Sin-
ise.
Leikstjóri: Gary Sinise.
Aöalhlutverk: John Malkovich, Gary Sin-
Ise, Ray Walston, Casey Siemaszko,
Sherilyn Fenn, John Terry og Noble WiF
lingham.
Háskólabfó.
Bönnuð innan 12 ára.
Þetta er í þriðja sinn sem þessi víð-
fræga skáldsaga Johns Steinbeck er
kvikmynduð, en hún hefur komið út á
ísiensku í frábærri þýðingu Ólafs Jó-
hanns Sigurðssonar og stuðst er við
hana við þýðingu myndarinnar. Þetta
er draumaverkefni leikstjórans, Garys
Sinise, en hann fer einnig með hlut-
verk Georgs. Hann nálgast efni sög-
unnar af verðskuldaðri virðingu og
útkoman er mjög góð, og ekki spillir
fyrir frábær leikur bæði aðal- og au-
kaleikara.
Söguna þekkja víst flestir, en fyrir þá,
sem hafa hvorki lesið bókina né séð
hana í kvikmyndabúningi, er hún um
vináttu tveggja landbúnaðarverka-
manna, Georgs (Sinise) og Lenna
(Malkovich). Lenni er líkt og tröllvax-
ið bam, nautheimskur en rammur að
afli, og Georg er alger andstæða hans,
lágvaxinn og skýr í kollinum. Lenni er
góð sál og vill engum illt, en gerir sér
oft ekki grein fyrir afli sínu og siðum
mannfólksins, og Georg þarf sífellt að
vera að bjarga honum úr vandræðun-
um sem hann lendir í. Þeir framfleyta
sér með vinnu á stórbýli, en draumur-
inn er að eignast lítinn bæ og jarðar-
skika með, þar sem þeir geta lifað á
landsins gæðum, lausir við áhyggjur
og streð. Þetta virðist ætla að ganga
hjá þeim, þegar Candy (Walston), ald-
inn vinnumaður, býðst til að borga
helminginn gegn því að fá að búa með
þeim.
Ekki er ráðlegt að segja meira frá
( KVIKMYHDIR )
söguþræðinum vegna þeirra, sem
ekki skyldu þekkja framhaldið. Saga
Steinbecks er einföld, og heillandi
persónunum er ekki auðvelt að
gleyma. Þrátt fyrir einfaldleikann er
boðskapurinn mikill og hefúr tví-
mælalaust ódauðlegt gildi fyrir hvort
sem er lesendur eða áhorfendur. Þetta
skilar sér vel í góðu handriti Hortons
Foote, en hann hefur góða reynslu í
að færa persónur bóka til kvikmynda,
því hann gerði handritið að To Kill a
Mockingbird, sem byggð var á bók
Harpers Lee. Hann fylgir bókinni
nokkuð nákvæmlega, að því undan-
skildu að útfærslu endisins er lítillega
breytt, en það gæti þó að sjálfsögðu
verið runnið undan rifjum Sinise.
Það sem þó gerir myndina verulega
góða er að Gary Sinise og John
Malkovich leika Georg og Lenna frá-
bærlega vel. Báðir hafa útlitið með sér
og erfitt er að ímynda sér nokkum
annan en Sinise sem „líkist" Georg
meira. Bæði hlutverkin eru erfið, en
hlutverk Lenna þó sýnu erfiðara, og
túlkun Malkovich er frábær í einu
orði sagt og færir þessa eftirminni-
legu persónu ljóslifandi upp á hvíta
tjaldið. Aukahlutverk eru mjög vel
mönnuð með Ray Walston fremstan í
flokki og John Terry stendur sig einn-
ig vel, en hann leikur Slim, verkstjóra
þeirra félaga á býlinu.
Gary Sinise færðist mikið í fang með
þessari mynd, en hann má vera stolt-
ur af útkomunni. Það má e.Lv. færa
rök fyrir því að það sé í raun galli
hversu sagan er þekkt og því frásögn-
in ekki eins spennandi fyrir mikinn
þorra fólks. Þetta þarf ekki að vera
rétt, því þótt einstaklingur þekki sög-
una þá missir myndin síður en svo
marks vegna vandaðra vinnubragða,
og það getur heldur ekki verið annað
en hollt fyrir fólk að endumýja kynni
sín af vinunum Georg og Lenna.
örn Markússon