Tíminn - 30.06.1993, Blaðsíða 6

Tíminn - 30.06.1993, Blaðsíða 6
6 Tíminn Miðvikudagur 30. júní 1993 Bnigl Bargmann dómari mun dæma teik Danmerkur og Litháen, sem fer fram 25. ág- úst. Leikurinn er liður (undan- keppni HM. Línuveröir veróa Gfsli Björgvinsson og Sae- mundur Vfgiundsson. Guð- mundur Stefán Marfasson verö- ur varadómari. ... NorðurlamUunót stúlkna- landsliöa f knattspyrnu fer nú fram f Hollandi. Islenska stúlknalandsliöiö tekur þátt f mótinu og er þannig skipaö: Helga Helgadóttir Stjarnan Ragnhildur Sveinsdóttir UBK Anna Lovfsa Þórsdóttir KR Áslaug Akadóttir ÍA Birna Aubertsdóttir UBK Brynja Pétursdóttir |A Eria Hendriksdóttir UBK Guörún Sigursteinsdóttir lA Helga Gunnarsdóttir Sindri Herdls Guömundsdóttir lA Hulda Rútsdóttir Valur Inga Dóra Magnúsdóttir UMFT Ingíbjörg Ólafsdóttir IBA Katrfn Jónsdóttir fl. UBK Sigrfður Þórláksdóttir B( Sigrún Hallgrfmsdóttir (A íslenska liðiö lék gegn Norður- landameisturum Dana á mánu- dag og tapaðist sá ieikur 1-3. ... UngllngalandsIÍAió f frjálsum Iþróttum verður einnig í Hoilandi frá og með næstu helgi. Þar fara fram Ólymplu- dagar æskunnar. Keppendur lyrir íslands hönd veröa Sunna Gestsdóttir USAH, Halldóra Jónasdóttir UMSB, Laufey Stef- ánsdóttir Fjöíni, Sóiveig Björns- dóttir Armanni, Rakel Tryggva- dóttir FH, Ólafur Traustason FH, Stefán Gunnlaugsson UMSE, Sveinn Margeirsson UMSS og Magnús Aron Hallgrímsson Selfossi. ... —■rciono Vlnk, sem iék með Ajax Amsterdam á sfðasta ieiktfmablli. hefur skrifaö undir þrlggja ára samning við (talska 1. deildarliðiö Genoa. Vink, sem er 23 ára gamall, er sjötti leikmaðurinn hjá Ajax sem yfir- gefur fólagið frá þvf liðið vann Evrópukeppni félagsliða 1992. Allir þessir leikmenn hafa farið til Italfu. Vink vantar ekki sjálfs- traustið, þvf hann líkir sjálfum sér viö landa sinn, Frank Rijka- ard, sem ieikur með AC Milan, og segist vera betri en Rijkaard þegar hann var á sama aldri og Vink. ... Franski landsliðsmaðurinn f knattspymu, Laurent Blanc, sem lék með Nimes f frönsku 1. delldinni á slðasta leiktfmabili, hefur skrifað undir þriggja ára samning St. Etienne, sem einn- ig leikur I frönsku 1. deildinni. ... Motocrosskoppnl var haldin um siðustu helgi við Sandskeið. Atta keppendur mættu til leiks og var baráttan mikil. Núverandi Islandsmeist- ari, Helgi Valur Georgsson, reyndist þó sterkastur á enda- sprettinum og náði hann fullu húsi stiga, fékk 65 stig. Reynir Jónsson varð annar með 49 stig og Guðmundur Jónsson hreppti þriðja sætið. Helgi Vatur er efstur f samanlögðu eftir tvær keppnir af f|órum með 117 stig. Reynir hefur 103 og Guð- mundur og Ingibergur Sigurðs- son eru þriðju með 73 stig. Næsta mót fer fram f Vest- mannaeyjum þann 10. júlf. ... Ugia Warszawa, sem vann pólska meistaratitilinn I knattspyrnu f vor, gæti misst tit- ilinn, þar sem einn leikmaður liðsins, Roman Zub, er grunað- ur um iyfjanotkun, en niðurstöð- ur úr seinna lyfjaprófinu verða birtar 9. júll. Zub var tekinn f lyfjapróf I mal eftir viðureign við Widzew Lodz og varð niður- staöan jákvæð. Legia vann leikinn 1-0, en tapar leiknum sjálfkrafa ef seinna lyfjaprófiö verður einnig jákvætt. Verði leikurinn dæmdur Legia í óhag, þá nægir það tii að þeir missi af meistaratitlinum. Franski óþekktarormurinn og knattspyrnusnillingurinn Eric Cantona hefur unnið hug og hjörtu enskra knattspyrnuáhugamanna: Cantona hefur unnið þrjá titlaá þremurárum! Eric Cantona ætlar að yflrgefa Manchester Utd. eftlr næsta keppnlstfmabll. Það er óhætt að segja að á Old TVaf- ford, heimavelli Manchester United í Manchester, hafi leikið fleiri frábærir leikmenn en víðast hvar annars stað- ar í Englandi. Duncan Edwards varð stjama ungur, en lést ásamt fleiri leikmönnum Man. Utd í flugslysi árið 1958. Bobby Charl- ton, sem var heiðursmaðurinn í knattspymunni og frábær leikmaður, Dennis Law, sem var ein allsherjar sprengja á vellinum og síðast en ekki síst George Best, drengurinn með sjálfseyðingarhnappinn. Enn geta áhangendur Man. Utd glaðst Þeir hafa fengið Eric Cantona, franska óþekkt- aromninn, sem átti ekki minnstan hlut í því að Man. Utd tryggði sér enska meistaratitilinn í knattspymu, í fyrsta sinn frá 1967. Þetta var þriðji meistaratitill hans á þremur ámm, en áður hafði hann unnið enska meist- aratítilinn með Leeds og þann franska með Nimes. Cantona hefur farið víða og ljóst er í dag að hann er ekki kom- inn á leiðarenda. Hann hefur þegar lýst því yfir að eftir næsta keppnis- tímabil kveðji hann herbúðir Man. Utd. Eric Cantona er án efa besti og litrík- asti franski leikmaðurinn sem leikið hefur utan heimalands sfns síðan Michel Platini Iék með Juventus á ní- unda áratugnum. Cantona kom tíl Englands fyrir rúmu ári, á „flótta" undan því orðspori sem fékk alla með- alframkvæmdastjóra tíl að forða sér á hlaupum. Cantona viðurkennir galla sína: „Það er eins gott að flestír leik- menn em ekki eins og ég. Þá myndi ríkja algert stjómleysi." Ferill hans sem atvinnumaður er þymum stráður og þá ekki vegna getu hans, heldur hegðunar utan vallar sem innan. Hann hefur ósjaldan lent í slagsmál- um við félaga sína, móðgað þjálfara og framkvæmdastjóra, átt í útístöðum við dómara og ekki legið á skoðunum sínum við aganefnd franska knatt- spymusambandsins og hafa þær at- hugasemdir oft á tíðum verið ári per- sónulegar. Á meðan á dvöl hans hjá frönsku lið- unum Auxerre, Bordeaux, Montpellier og Marseilles stóð, var aldrei logn- molla í kringum piltinn. Frábærir hæfileikar, gífurleg tækni og gífurleg yfirsýn yfir leikinn, en þess á mótí hættulegt skap og óþolinmæði. Það var einmitt það sem kom Cantona í fréttímir eftír aðeins vikudvöl í Eng- landi. Cantona hafði sagt skilið við franska knattspymu eftir að hann hafði verið dæmdur í óréttmætt leikbann. En slíkum listamanni á knattspymuvell- inum var ekki hægt að halda utan við völlinn. Honum var boðið tíl Sheffield Wednesday til reynslu, í viku, þar sem TVevor Francis, framkvæmdastjóri liðsins, tók á mótí honum. Vegna slæms veðurs var hins vegar lítið hægt að leika æfingaleiki þá vikuna og vildi Francis fá að hafa Cantona aðra viku til að prófa hann frekar. Þetta áleit Cantona algera móðgun við sig. Hann væri þekktur franskur lands- liðsmaður og það væri lyrir neðan virðingu hans að þurfa að sanna getu sína eitthvað frekar. Af þeim sökum gekk hann til liðs við nágranna Sheffi- eld Wednesday, Leeds Utd. Fýrir Howard Wilkinson, þjálfara Le- eds, var Eric Cantona hlekkurinn sem vantaði í Leeds-keðjuna, svo félagið ætti möguleika á að vinna enska meistaratitilinn, en staða liðsins var þá nokkuð góð. Enda fór það svo að Leeds stóð uppi sem sigurvegari og átti Cantona stóran þátt í því. Hann dvaldi þó ekki lengi hjá Leeds, en þannig er Cantona. Knattspymu- snillingur með stuttan kveikiþráð og flöktandi. Það er þessa vegna sem hann fór til Man. Utd fyrir eina milljón punda, innan við ár eftír að hann gekk til Iiðs við Leeds. Það hafa gengið ýmsar sögur um ástæður þess að hann fór frá Leeds svo skyndilega sem raun bar vitni, en bæði Ieikmenn og stjómendur Leeds hafa vísað þeim sögum á bug. Stjóm- arformaður Leeds, Leslie Silver, segir um þann ráðahag: „Það barst fýrst ósk um það frá lögmanni Erics Cantona að hann vildi fá sig Iausan frá félaginu og fara til annars félags í Englandi. Skömmu síðar óskaði Cantona sjálfur eftír því. Ein af ástæðunum var, að hann rangtúlkaði það að hann var í nokkmm leikjum settur á varamanna- bekkinn. Auk þess hefur það verið Breiðablik komst í gærkvöldi á topp annarrar deildar með því að leggja ÍR-inga að velli f Mjódd- inni. UBK varð þar með fyrsta lið- ið til að ná í stig á heimavelli íR- inga. Eina mark leiksins kom strax á fimmtu mínútu. Kristófer Sigur- ÍÞRÓTTIR UMSJÓN: KRISTJÁN GRÍMSSON ____________________X stefna félagsins að standa ekki f vegi fyrir því ef leikmenn vilja fara frá fé- laginu. Cantona fór tíl Man. Utd að eigin ósk.“ Michel Mezy, (ýrmm stjómandi hjá Montpellier og núverandi forseti franska félagsins Nimes — félaginu sem Cantona lék síðast með í frönsku deildinni — segist kannast við þessa erfiðu skapgerð Cantona. „Eric er skarpur og bráðgreindur maður, sem getur verið erfitt að eiga við. Þegar eitthvað bjátar á, sleppir hann sér. Hann er skapheitur, en þegar vel gengur þá er ekki tíl betri maður tíl að hafa f liði hjá sér.“ Cantona sjálfur er mjög rólegur yfir þessu öllu saman. „Ég átti margar af mínum bestu stundum f knattspym- unni hjá Leeds United. Ég get skilið að geirsson gaf þá laglega sendingu fyrir markið á Jón Þóri Jónsson sem skoraði glæsilegt mark með bakfallsspymu. Þettavar 1. markið sem ÍR-ingar fá á sig á heimavelli sínum. Þeir áttu skot í stöng um miðbik fyrri hálfleiks og var það í raun og veru eina hættulega tæki- færið sem þeir fengu í leiknum. Úlfar Óttarsson, Valur Valsson og Kristófer Sigurgeirsson vom bestu menn UBK en Kristján Halldórs- son stóð sig að venju best í liði ÍR. sumir segi að ég hafi bmgðist áhang- endum Leeds, en ég get ekki séð það þannig. Ég átti dáh'tið sérstakt með þeim og ég hélt að þeir myndu skilja að ég gat ekki verið áfram þar. Ég lék orðið of lítíð hlutverk í liðinu og und- ir niðri þá líkar mér það illa. Ég veit vel að ég hef skipt oft um félag, en af hverju ætti ég að leika í tíu ár fyrir sama félag, eða jafnvel þrjú ár? Það er engin ástæða tíl þess,“ sagði hann. „Það er hræðileg tílhugsun. Ég vil halda mínu andlega sjálfstæði, svo ég var ánægður með að skipta um félag. Man. Utd leikur knattspymu sem ég skil. Þeir em meira uppbyggjandi og skapandi." Þó að Cantona beri enskri knatt- spymu vel söguna, þá gerir hann sér fuíla grein fyrir göllum hennar. „Þeir leika alltof marga leiki. Það er leikið í deildinni, ensku bikarkeppninni og deildarbikamum, auk þess sem leikn- ir em landsleikir og í Evrópukeppni félagsliða. Þegar við (Leeds Utd) lék- um síðari leikinn gegn Glasgow Ran- gers í Evrópukeppni meistaraliða síð- astíiðið keppnistímabil, vomm við komnir á hnén af þreytu og andlega yfirkeyrðir. Það er ástæðan fyrir því að við töpuðum. Lítið á árangur enskra liða í Evrópukeppnunum síðan þeim var heimiluð þátttaka að nýju fyrir nokkmm ámm. Árangurinn er ekki glæsilegur, ef undan er skilinn Evr- ópumeistaratitíll Man. Utd í Evrópu- keppni bikarhafa, auk þess sem það er alþekkt staðreynd að það er auðveldast að sigra f þeirri keppni." „Eftir að hafa leikið í Englandi skil ég kannski betur en innfæddir hvað gerst hefur. Héma áður fyrr unnu ensku liðin upp skort á tækni með líkamleg- um og andlegum styrk, en nú hafa aðrar þjóðir kortlagt þá og náð þeim á því sviði. Englendingar halda að þeir séu bestír í heiminum, en eins og mál- in hafa þróast, fyrir félögin og lands- liðið, verða þeir að gera sér grein fyrir að svo er ekki lengur." Vera má að Cantona sé raunsær þeg- ar enska knattspyman er annars veg- ar, en hins vegar heillar England hann mjög. „Ég kann vel við England. Á meginlandinu segjum við að Englend- ingar séu kaldir, en það em þeir ekki. Þeir em glaðlyndir og finnst gaman að segja gamansögur og brandara. Það kom mér mjög á óvart" Það er óhætt að segja að Cantona og Englendingar hafi komið hver öðmm á óvart í dag efast fáir um að Cantona lumi á fleiru óvæntu fyrir enska knatt- spymu áður en hann kveður hana. Hins vegar em það hæfileikar hans á knattspymusviðinu, sem gera hann að þeim snillingi sem hann er... og hann veit það! (Byggt á greln úr Worid Soccer) 1. deild karla KR-Valur kl. 20 2. deild karla BI-Þróttur R. kl.20 Þróttur Nes.-UMFG kl. 20 UMFT-Stjaman kl. 20 Leiftur-KA kl.20 Knattspyma 2. deild UBK á toppinn I kvöld: Knattspyma

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.