Tíminn - 09.07.1993, Side 5

Tíminn - 09.07.1993, Side 5
Föstudagur 9. júlí 1993 Tíminn 5 Guðni Ágústsson: Stofnlánadeild má ekki gera að okurvaxtabúllu Svar til Áma Benediktssonar Árni Benediktsson skrifar langa grein í Tímann þriðjudaginn 29. júní sl. þar sem hann ræðir álit sjömannanefndar um Stofnlánadeild landbúnað- arins. Ámi finnur að því að sá er þetta ritar hafi hafið umræðu um til- lögur sjömenninganna eins og þær væru óaðfinnanlegar og einhver ný speki sem enginn mætti segja álit sitt á. Þegar settar eru fram nýjar til- lögur hljóta þeir, sem slíkt gera, að vera undir það búnir að þær kunni að orka tvímælis. Umræðan hófst reyndar um leið og þeir sjálfir héldu sinn blaða- mannafund og þegar er ljóst að bændastéttin varar við tillögunum. Stjóm Búnaðarfélags íslands hafn- ar þeim og álit í þeim dúr berast frá kjörmannafundum og bændum víða um land. Ennfremur hafnar stjórn Stéttarsambands bænda hluta af tillögum sjömannanefndar og segir síðari niðurfellingu sjóða- gjalda „ótímabæra og til þess fallna að skapa óvissu í málefnum". Þann- ig að ljóst er að Ámi Benediktsson talar ekki fyrir þeim tillögum sem Stéttarsambandið fellst á. Dylgjur Arna Ben. Ekki nenni ég að elta ólar við ýms- ar glósur Áma Benediktssonar í garð Stofnlánadeildar. Það væri öðruvísi umhorfs í íslensku þjóðfé- lagi ef fleiri íslensk fyrirtæki hefðu byggt sig upp og rekið sig með jafn- mikilli hagkvæmni og Stofnlána- deildin. Ég taldi mér hins vegar skylt sem formanni fyrir stjóm Stofnlána- deildar að greina frá því hver ég teldi verða áhrifin af róttækum hugmyndum sjömannanefndar á stöðu Stofnlánadeildar og ekki síð- ur að mitt mat væri það að við tæki nýr uppgjörstími í landbúnaði á ís- landi. Ég lagði fram, máli mínu til stuðnings, hlutlausa úttekt endur- skoðanda Stofnlánadeildar, TVyggva Jónssonar. Ekki er mér kunnugt um að sjömannanefnd hafi beðið TVyggva Jónsson um álit, heldur út- reikninga byggða á forsendum nefndarinnar. Árni Benediktsson segir: „Það Hinsvegar hefói þessi ákvörðun mikií áhrifá stöðu yngri kynslóðar- innar í sveitum og torveldaöi kgnslóða- skipti, kallaði á gjald- þrot og uppgjöf þeirra, sem hafa verið aö byggja upp sveitimar i seinni tíö, og verö- faU yrði á bújörðum. Þeir eldri, sem vceru að hverfa frá œvistarfi sínu, fengiu afleiðing- amar í hausinn með þeim hœtti. sjónarmið varð ofan á í sjömanna- nefnd að ef horfið yrði frá slíkum tilfærslum væri það í samræmi við markmið nefndarinnar um að lækka verð til neytenda, lækka kostnað hins opinbera, en jafti- framt að tryggja bændum lífvæn- legri rekstrarskilyrði." Hér á Árni við það að neytenda- og jöfnunargjaldið, sem lagt er á heildsölustig landbúnaðarvara og er 2%, hækki verð til neytenda. Þetta er alrangt. Um Ieið og þessi gjöld hverfa vega vextir að fullu í útreikningi á verði landbúnaðar- vara. Neytandinn borgar áfram jafn hátt verð fyrir vöruna; mjólkina, kjötið eða gúrkuna. Hinsvegar hefði þessi ákvörðun mikil áhrif á stöðu yngri kynslóðar- innar í sveitum og torveldaði kyn- slóðaskipti, kallaði á gjaldþrot og uppgjöf þeirra, sem hafa verið að byggja upp sveitirnar í seinni tíð, og verðfall yrði á bújörðum. Þeir eldri, sem væru að hverfa frá ævi- starfi sínu, fengju afleiðingamar í hausinn með þeim hætti. Ennfremur er líklegt að það vaki fyrir aðilum vinnumarkaðarins að sjóðagjöld verði felld niður og vext- ir fáist ekki teknir inn í verðút- reikning landbúnaðarvara. Þar með yrði kjaraáfall yngri bænda marg- falt Þeir fengju á sig markaðsvexti um leið og kaupliður bóndans væri lækkaður af þessum sökum. Ekki á sama báti Hversu undarlegt sem það er, þá eru þeir félagar Árni og Hákon Sig- urgrímsson ósammála að því leyti. Ámi vill burt með alla jöfnun og fé- lagslega samhjálp, það er pólitíkin sem þessar tillögur snúast um — og skoðun út af fyrir sig, en kemur að ég hélt úr félagslega sinnuðu brjósti. Hákon hinsvegar ætlar að sækja nýtt fjármagn í ríkissjóð „til þess að greiða fyrir nauðsynlegri nýliðun í landbúnaðinum og til nýrrar atvinnusköpunar í sveitum", eins og hann segir í grein sinni. Vöruverðið eða ríkið Ég tel það fjarstæðu að ætla að bændur sæki nýtt fjármagn til rík- issjóðs við núverandi aðstæður og enn síður sé það til jöfnunar innan stéttarinnar án þess að vöruverð lækki. Fyrir utan hitt að níðhöggin og rógurinn hefur verið sleitulaus í þrjátíu ár í garð bænda, vegna þess fjármagns sem ríkið hefur sett inn í greinina. Hér kalla t.d. rógberamir þá upphæð landbúnaðarstyrki þar sem matvæli em í lægra VSK- þrepi. Hitt er svo ljóst að Bretar, Frakkar og Þjóðverjar, þessi stórveldi, leggja ekki VSK á sínar landbúnaðaraf- urðir nema mjög lágt þrep í Frakk- landi og Þýskalandi. Þar heitir þessi aðgerð .jöfnuður til neytenda" en ekki „styrkur til landbúnaðar". Bændur og iðnaðarmenn TVésmiðurinn, rafvirkinn, múrar- inn eða bifvélavirkinn em allir með í sinni útseldu vinnu félagsleg gjöld sem neytandinn borgar, en falla stéttarfélaginu til. öll stéttarfélög hafa einhverja upphæð, sem ekki síst þeir-yngri njóta til að byggja sig upp, enda em þeir hið nýja vatn sem er að endumýja stéttina. Því verður ekki trúað að bændur sjái sér nú hag í því að vaxta- sprengja falli á yngri bændur á þeim tíma sem íslenskur landbún- aður dregst saman og ekki síst þeir yngri, með verðtryggð lán, róa líf- róður. Raunvextir í Iðnlánasjóði em nú 12,5% og sjóðagjöld þar notuð í styrki; þetta er fyrirmyndin sem sjömannanefnd hampar. Danskir bændur em t.d. að takast á við gríðarlega erfiðleika, þar fara menn aðra leið en sjömannanefnd leggur til hér. Þar er gripið til þess ráðs að lækka raunvexti, hér skal ganga öfuga leið. Lokaorð Nú er um að gera að hrapa ekki að neinu. Sterk Stofnlánadeild er mik- ilvæg, hana má ekki veikja eða gera að okurvaxtabúllu sem hættir að veita lán til að endumýja bænda- stéttina. Árni og Hákon gera mikið úr því að hinir lágu vextir Stofn- lánadeildar hafi kallað á „óvarkámi í fjárfestingu“. Hvar er þessi mikla offjárfesting í sveitum, sem stafar af því að framkvæmt sé út í loftið til að græða á lágum vöxtum? Ég-lít á þessar aðdróttanir sem kennisetn- ingar, ekki sem raunvemleika. Bændur byggja hús vegna þess að þá vantar hús, en ekki af einhverj- um annarlegum gróðasjónarmið- um. Það er t.d. mikill munur á þeim vinnubrögðum hvort vextir em hækkaðir á þegar gerðum skuldbindingum eða einhverjum nýjum flokkum lánveitinga. Séu lánveitingar deildarinnar skoðaðar kemur í ljós að fjárfest- ingalánin em óvemleg, enda lítið byggt í sveitum. Aftur á móti vega jarðakaupalánin til kynslóðaskipta langþyngst. Hitt er svo önnur saga að það hef- ur enginn sagt að allt skuli standa óbreytt um aldur og ævi. En þar verður leiðarljósið að vera að styrkja landbúnaðinn sem heild, en ekki sundra honum. Ég vil trúa því að forystumenn bænda nái saman í þessu máli og hafni öllum óraun- hæfum tillögum. Höfundur er alþingismaöur. Samb'ðarmenn: Upplýsingar um ævl og störf tvö þúsund fslendinga. Ritstjóri: Vilhelm G. Krístinsson. Vaka-Helgafell 1993. 749 bls. Hið fyrsta, sem vekur athygli les- enda er þeir skoða þessa bók og fletta, er hve allur frágangur hennar er vandaður og smekklegur. Megin- atriði í frásögnum af ævihlaupi þeirra, sem frá er greint, koma eink- ar skýrt fram og vilji lesendur fá að vita eitthvað um einstök atriði í ævi tiltekins manns, án þess að lesa allan kaflann, er slíkt auðfundið. Þá er það og fengur að myndir em af öllum „söguhetjum" bókarinnar. Eitt er það atriði, sem ávallt hlýtur að valda aðstandendum uppflettirita á borð við þetta nokkmm heilabrot- um: Hverjir eiga að vera með og hverjir ekki? Við þessari spumingu verður vitaskuld aldrei gefið einhlítt svar og sjálfsagt verður aldrei valið svo öllum líki, nema þá öll þjóðin verði tekin með. f þessu efni ríður því mest á því að ritstjóm marki sér skýra stefnu og fylgi henni, eftir því sem kostur er. í fyrri ritum af þessu tagi hefur það sjónarmið oftast ráðið, að birta ein- vörðungu æviágrip þeirra, sem þeg- ar hafa haslað sér völl í þjóðlífinu, em af einhverjum orsökum orðnir þjóðkunnir. Ef ég man rétt, hefur slík ritstjómarstefna stundum verið gagnrýnd, ekki síst fyrir þá sök að hrúgað væri saman upplýsingum um „valinkunna eldri borgara", en SAMTIÐARMENN yngra fólk kæmi lítt við sögu. í þess- ari bók var önnur stefna tekin og lýs- ir ritstjórinn henni svo í inngangs- orðum: „Við val á fólki í bókina var það eitt haft í huga að viðkomandi væri áber- andi í íslensku þjóðlífi um þessar mundir, ýmist vegna atvinnu sinnar, félags- eða tómstundastarfa og skipti aldur þar ekki máli.“ Þetta er í sjálfu sér athyglisverð rit- stjómarstefna, en engan veginn auð- ( BffiKOB ) veld í framkvæmd. Lesandinn hlýtur að spyrja sjálfan sig, hverjir séu áber- andi. Em það þeir sem hafa hæst, þeir sem oftast er getið í fjölmiðlum, eða hvað? Þegar á heildina er litið virðist mér að valið hafi tekist vel, en þó er því ekki að neita að í bókina vantar umfjöllun um fjölmarga mæta menn og konur, sem vinna störf sín í kyrrþey, hafa víða mikil áhrif, jafnvel völd, og eiga hiklaust erindi í öll uppsláttarritaf þessu tagi, þótt ekki geti þau talist „áberandi" í venjulegum skilningi þess orðs. Á hinn bóginn er í bókinni fjallað um ýmis „nóbodí“, sem fátt hafa sér til ágætis unnið annað en að gapa á torgum og í fjölmiðlum og verða sjálfsagt mörg hver gleymd áður en árið er úti. Ég hef að sjálfsögðu ekk- ert á móti því að þessa fólks sé getið, en óttast að þetta val geti rýrt nota- gildi bókarinnar þegar til lengri tíma er litið. Það er nú einu sinni svo að ýmsir þeir, sem mest „ber á“ um þessar mundir, eru einskonar tísku- fyrirbrigði, hefur tekist að vekja á sér athygli, en ekki unnið sér orðstír. Það hafa hins vegar margir gert, sem hér er að engu getið, en vitaskuld getur verið að a.m.k. sumir þeirra hafi ekki svarað. En þrátt fyrir þess- ar aðfinnslur tel ég góðan feng að þessari bók. Hún er handhæg, þrátt fyrir stærðina, og náma af upplýs- ingum, sem allar eru einkar skýrt fram settar. Jón Þ. Þór Einkavæðing í Frakklandi Efnahagsmálaráðherra Frakklands, Edmond Alphandéry, skýrði 26. maí (1993) frá drögum að lögum um sölu 21 hinna stóru frönsku ríkisfyrirtækja, á meðal þeirra Elf Aquitaine, Renault, Air France og Credit Lyonnais. Econ- omist sagði svo frá 29. maí 1993: „(Efnahagsmálaráðherrann) gerir sér vonir um að afla 40 milljarða Ffr (jalh- virði 7,3 milljarða $) í ár. Söluverð (þessara stóru ríkisfyrirtækja) á í heild sinni að verða miídu hærra, jafnvel umfram 300 milljarða Ffr. (Ráðherr- ann) þarf einungis að finna kaupendur að hlutabréfum þeirra. Það er þó hæg- ara sagt en gert... Til að vekja áhuga á þeim í kauphöllum mun ríldsstjómin gera það sem hún má til að slaka á spennu í peningamálum (to ease mo- Wiðskiaptalífi) netary policy further) og til að laða að útlenda kaupendur. Grípa kann hún líka til ýmiss konar skattaívilnana." ,Nýja ríkisstjómin þekkir til einka- væðingar. Meðan núverandi forsætis- ráðherra, Edouard Balladour, var fjár- málaráðherra 1986-88, seldi hann rík- iseignir fyrir 83 milljarða Ffr. í drögun- um að nýju lögunum er þó á ýmsa vegu vikið frá lögunum frá 1986.1 þeim em tilnefnd 12 bankar, vátryggingarfélög og iðnfyrirtæki, sem til stóð að selja 1986, og að auki 9 önnur, á meðal þeirra Renault, Aerospatiale, vopna- smiðja. Þessi fyrirtæki era þó ekki efst á sölulista ríkisstjómarinnar. Á nokkr- um vikum hyggst hún selja hluta þann, sem ríkið á enn (25,5%), í Credit Local de France, lánastofnun sveitarfélaga.“ „... í drögunum er sjö manna einka- væðingarráði heimilað að benda á (sug- gest) fjárfesta, sem myndað gætu harð- an bóg (noyau dur) hluthafa til að vemda einkavædd fyrirtæki gegn óvin- samlegum uppkaupum. Með því móti er pólitískum áhrifum bægt frá, að rík- isstjómin segir, en gagnrýnendur (draganna) segja, að efnahagsmálaráð- herrann hefði enn síðasta orðið í þess- um efnum. Þá er í drögunum fallið frá fyrri 20% skorðum við eignarhluta út- lendinga í einkavæddum fyrirtækjum, til að þau gangi fremur í augu forráða- manna útlendra fjárfestingarsjóða. í staðinn mun ríkisstjómin halda f sín- um höndum „gullnum hlutabréfum" í fyrirtækjum, sem hún vill tryggja Frökkum yfirráð yfir, þannig að hún geti hindrað óvinsamleg uppkaup eða sölu á „megin“-eignum þeirra." „Ef framvarp samkvæmt drögum þessum verður samþykkt í júlí (1993), eins og ríkisstjómin vonar, gæti hún tekið til við einkavæðingu þeirra í sept- ember (í haust). Þangað til bíður Ball- adur þó ekki eftir söluverðinu. Franska ríkisstjómin tilkynnti 24. maí (1993), að hún gæfi út ríkisskuldabréf til fjög- urra ára til að örva atvinnulíf. Til stend- ur að leysa þau inn með söluverði ríkis- eigna. Kaupendur þeirra, sem undir vilja leggja á kauphöllinni, geta fengið þau innleyst við hlutabréfúm í nýlega einkavæddum fyrirtækjum."

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.