Tíminn - 21.08.1993, Síða 3

Tíminn - 21.08.1993, Síða 3
Laugardagur 21. ágúst 1993 Tíminn 3 Kornuppskeran léleg í ár vegna frostnátta: Uppskeran verður bara notuö í fóður „Megnið af kominu er ónýtt fyrír vestan Markarfljót. Tjóniö er erfitt að meta en hægt er að nota hluta uppskerunnar í grænfóður," seg- ir Krístján Bjamdal Jónsson, jarðræktaráðunautur á Selfossi. „Við gerum okkur grein fýrír því að þetta var kalt ár en hefðum þó viljað fá 2,5 tonn af komi af hverjum hektara." Astaeðuna fyrir því að svona fór seg- ir Kristján meðal annars vera þá að næturfrost skall á um 10. ágúsL „Þótt byggið hafi orðið illa úti er það ekki það eina því háin er einnig mjög lítil og allt grænemti og græn- fóður lélegt," segir Kristján. Sveinn Ingvarsson í Reykjahlíð í Skeiðahreppi hóf komræktun fyrir ári og tekur sex hektara undir rækt- unina. Hann segir að sér sýnist eng- an komþroska verða í ár og tekur undir það með Kristjáni að nætur- frostið í kringum 10. ágúst hafi gert útslagið. „Þótt hiti hafi farið niður fyrir frostmark í þrjár nætur á það ekki að hafa nein áhrif en þetta var svo mikið frost. Það er hægt að búast við slíku í lok ágúst og fyrir miðjan september en ekki fyrir miðjan ág- úst. Þetta er því bæði búið að vera of kalt og of þurrt sumar. Ég verð bara að stöðva komsöfnunina og slá komið í rúllur og setja það beint í fóður," segir Sveinn. -GKG. Fjármálaráðuneyti gefst ekki upp á að innheimta vask af erlendum — tímaritum: Askrifendur undir skipulögðu eftirliti „Það er gert ráð fyrír því að menn greiði virðisaukaskattinn um leið og þeir greiða áskriftina," segir Steingrímur Arí Arason, aðstoðar- maður fjármálaráðherra. Þetta er niðurstaðan af fundi hlutaðeig- andi aðila um það hvemig best sé að standa að innheimtu virðis- aukaskatts af eriendum tímaritum. Eins og kunnugt er reyndist óframkvæmanlegt að innheimta skattinn við afhendingu tímarit- anna í póstinum. lendrar tímaritaútgáfu mun versna mjög. „Það hefur verið undirstrikað, að þetta sé spuming um jafnræði milli erlendrar og innlendrar tíma- ritaútgáfu. Það vandamál, að tryggja þetta jafnræði, er ekki séríslenskt fyrirbæri," segir Steingrímur. GS. SISSliPl . Guðlaugur Slgurgelrsson, elnn elgenda Vetrarsólar, afhondlr vlnn- íngshöfum í Qötskyldugetraun fyrtrtæklslns vínninga þeirra. Fjölskyldugetraun Vetrarsólar: Nýlega var dregið ítjölskylduget- sláttuvélar, limklippur, litlar ijöl- raun Vetrarsólar hf. Þrjár STIGA notavélar fyrir stóra garða, golf- garðsláttuvélar vom i vinning og velli o.fl. Vetrarsól rekur wrslun í hafa þær verið afhentar vinnings- Hamraborg í Kópavogi og fæst höfum. þar auk sláttuvéla og garðáhalda Vetrarsól er umboðsaðili fyrir ýmis búnaður til vetrarins, svo STIGA f Svíþjóð sem framleiðir sem snjóblásarar, vetrarfatnaður, alls konar garðvinnuáhöld, bamasleðar og snjóþotur. Samvæmt reglugerð sem fjármála- ráðuneytið gaf út í gær eiga áskrif- endur erlendra tímarita að framvísa tilskildum gögnum og inna af hendi greiðslu á virðisaukaskatti innan mánaðar frá því að áskrift er greidd. „Haft verður eftirlit með því að gerð verði skil á skattinum. Með skipu- legum athugunum verður kannað hvort viðtakendur blaða og tímarita í áskrift hafa staðið skil á skattin- um,“ segir í fréttatilkynningu frá ráðuneytinu. — Utgefendur íslenskra tímarita og fleiri aðilar hafa sagt það vera tæknilega óframkvæmanlegt að inn- heimta virðisaukaskatt af erlendum tímaritum. Var það ekki klúður að fara ekki eftir þeim ráðleggingum? „Það lá alveg Ijóst fyrir að þetta væri úrlausnarefni sem þyrfti að fást við. Það má auðvitað til sanns vegar færa að framkvæmdaaðilar hefðu mátt vera búnir að ganga frá þessu áður,“ segir Steingrímur Ari. Um tíma leit út fyrir að erlend tímarit myndu sleppa við virðisaukaskatt- inn. Ef þessi lausn reynist ekki var- anleg frekar en sú upphaflega má ljóst vera að samkeppnisstaða inn- Halldór Guðmundsson hja Mali og mennmgu segir að kalda stríðinu sé lokið í íslenskum bókmennta- heimi: Boðskapurinn er þó ekki „Kalda stríðinu er lokið í íslenskum bókmenntum sem er gott fyrir and- Nú um helgina verða leiknar undanrásir vegna Lands- banka/Visa-mótsins í atskák. Teflt verður f Reykjavík og á Akureyri þessa daga en að viku liðinni á ísafirði. Sex efstu menn mótsins í Reykjavík komast áfram í úrsliL einn frá Akureyri og einn frá ísafirði. Úrslitakeppnin fer væntanlega framfjanúar 1994. Mótið f Reykjavík hefst kl. 14.00 á laugardag og fer fram að Faxafeni 12. Öllum er heim- U þátttaka að greiddu gjaldi, 1500 kr. fyrir fullorðna en 800 kr, fyrir unglinga 15 ára og yngri. horfinn rúmsloftið í útgáfu og bókmennta- starfsemi hér á landi," segir Halldór Guðmundsson, útgáfustjóri Bókaút- gáfú Máls og menningar. „Það er enn að finna boðskap í bókmennt- um okkar þótt ekki verði hann leng- ur felldur inn í skotgrafahemað kalda stríðsins, hvort sem menn snúast gegn umhverfismengun, fjöldamenningu, klisjum tungu- málsins eða annarri yfirborðs- mennsku.“ í Tímanum í gær sagði Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur aftur á móti að það væri forkastanlegt hvemig pólítíkin slæddist inn í bók- menntir og aðrar listir og minntist á að úthlutun rithöfundalauna hefði til dæmis löngum þótt vafasöm. ,Auðvitað eru ýmiss konar per- sónuleg átök sem valda stöðugum stormum í vatnsglasi íslenska menningarlífsins en þeir ganga oft þvert á gamlar víglínur og hafa ekki sömu flokkspólítísku skírskotun og áður,“ segir Halldór. -GKG. Útsala 40% afsVáttur Meiriháttar STÓK-riMLA Bjóðum HANKOOK sumarhjólbarða fyrir fólksbíla með 40% afslætli. Frábærir hjólbarðar - einstakt tækifæri Verðsýnishorn: 155R12 Kr. 2130,- 145R13 " 1990,- 155R13 " 2260,- 165R13 " 2370,- 175/70R13 " 2570,- 185/70R13 Kr. 2790, 175R14 " 2970, 185/70R14 " 2990, 195/70R14 " 3360, 165R15 " 2690, Barðinn hf. Skútuvogi 2 - sími 683080 VELADEILD FALKANS • VELADEILD FALKANS • VELADEILD FALKANS • VELADEILD FALKANS SACHS KUPLINGAR I MAN - BENZ - VOLVO - SCANIA iFARARBRODDI ' CJÖRUTÍU ÁR! Framleiðendur vandaðra vöru- og fólksflutningabifreiða nota SACHS kúplingar og höggdeyfa sem upprunalega hluta í bifreiðar sínar . Það borgar sig að nota það besta! Þekking Reynsla Þjónusta FÁLKINN SUÐURLANDSBRAUT 8 • 108 REYKJAVIK SÍMI: 91-81 46 70 • FAX: 91-68 58 84 • VÉLADEILD FÁLKANS • VÉLADEILD FALKANS • VÉLADEILD FÁLKANS • VÉLADEILD FÁLKANS • VÉLADEILD FÁLKANS •

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.