Tíminn - 21.08.1993, Blaðsíða 5

Tíminn - 21.08.1993, Blaðsíða 5
Laugardagur 21. ágúst 1993 Tíminn 5 Smeygt sér í smuguna Jón Kristjánsson skrifar: Af atburðum liðinnar viku hafa veiðar ís- lenska flotans í „Smugunni" svokölluðu ver- ið langfyrirferðarmestar í fréttum og við- brögð íslenskra og norskra ráðamanna við þessum veiðum. Atburðarásin var hröð í málinu og áður en hendi var veifað voru tug- ir skipa komnir af stað til veiða þegar útgerð- armenn höfðu áttað sig á þeirri „smugu“ sem þama var opin. Gamla máltækið segir að það flýgur fiskisagan og svo var í þessu tilfelli. Hvers vegna ekki fyrr? Það má spyrja sem svo, því þessar veiðar voru ekki hafnar íyrir löngu, eins og við- brögðin nú eru skörp. Þetta hafssvæði hefur verið opið, og hafi íslendingar rétt til að veiða þar nú, hafa þeir haft hann áður. Sannleikurinn er sá að það er ekki fyrr en nú síðustu misserin sem íslenskir útgerðar- menn eru famir að líta til alþjóðlegra haf- svæða um veiðar. fslandsmið hafa verið gjöf- ul þrátt fyrir allt og meðan einhverjir mögu- leikar vor til að gera út á heimamiðum völdu menn þann kost. Það er í sjálfú sér eðlilegt. Útgerð á alþjóðlegum hafsvæðum utan lög- sögu kostar mikla fjármuni umfram það að gera út á heimamiðum. Þröngt um á íslands- miðum Hins vegar eru aðstæður þannig nú að afla- heimildir em stöðugt minni og þar við bæt- ist að afli hefur verið tregur langtímum sam- an. Fleiri svæði en áður eru lokuð og oftar er lokað í langan tíma. Allt eykur þetta erfið- leika í útgerðinni og gerir það að verkum að farið er að líta til fleiri átta. Þegar Færeying- ar fóru að landa fiski í Barentshafi á Norð- austurlandi af togurum sem skráðir voru í Mið- Ameríku opnuðust smám saman augu íslendinga fyrir því að þeir gætu átt þama möguleika og skriðan fór af stað. Ástæðan fyrir þessum skörpu viðbrögðum em meðal annars þær sem ég nefndi. í Noregi kraumar undir Það er greinilegt að þetta hefur komið Norðmönnum í opna skjöldu. Ekki bætir úr skák að haustið er heitt í stjómmálum í Nor- egi og kosningar framundan og sjómönnum þar er heitt í hamsi út af ýmsum uppákom- um sem til dæmis fylgja veiðum Rússa í Bar- entshafi og löndunum þeirra í Noregi. Nú hafa Norðmenn boðið upp á viðræður um málið sem er í sjálfu sér viðurkenning á rétti okkar til þess að veiða á úthafinu. Það er rétt fyrir íslendinga að taka upp þessar við- ræður, og ég hygg að um það sé ekki pólitísk- ur ágreiningur. Við höfum ætíð fylgt þeirri stefnu að veiðum utan lögsögu eigi að stjórna, og höf- um aldrei neit- að viðræðum um slík mál. Þess vegna eiga þessar viðræð- ur að snúast fyrst og fremst um úthafsveið- amar og hvem- ig þeim verður stjómað. Það er ekki hægt að gera þá kröfu til íslendinga að við höldum einir að okkur höndum til þess að sýna siðferðilegt fordæmi í þessum efn- um, hvemig sem á stendur á okkar heima- miðum. Hlutur Rússa málið er hins vegar ekki svo einfalt að það séu aðeins íslendingar og Norðmenn sem þama eiga hlut að máli. Rússar em stórtæk- ir veiðimenn á þessu hafsvæði og það er tómt mál að tala um að Norðmenn og íslendingar einir geti stjómað þessum veiðum, ef Rússar em þar fyrir utan. Auknar veiðar þeirra á þessu hafsvæði má meðal annars sjá af tölum um innflutning á heilum þorski frá lýðveld- um Sovétríkjanna fyrrverandi til Evrópu- bandalagsins. Árið 1991 nam þessi innflutn- ingur á ferskum og frystum þorski 23.874 tonnum, en árið 1992 nam hann 64.965 tonnum. Á sama hátt hefur útflutningur Norðmanna á þennan markað af heilum þorski stóraukist eða úr 6.315 tonnum árið 1991 í 18.101 tonn árið 1992, sem sagt þre- faldast. Viðræður um hvað? Auðvitað em það fjölmörg atriði varðandi sjávarútvegsmál sem þarfnast viðræðna við Norðmenn. Þar er um að ræða skiptingu á úthafskarfa, veiðar úr norsk- íslenska sfldar- stofninum, og einnig rennur samningur um loðnuveiðar út í lok þessarar vertíðar. Þá höf- um við samstarf við Norðmenn í Namco, en þar er meðal annars fiallað um hvalveiðar á norðurslóðum. Þótt þessi verkefni séu brýn eiga þó viðræðumar fyrst og ffemst að fialla um það hvemig úthafsveiðunum f Barents- hafi verði stjómað. Vandamálið er komið upp vegna þessara veiða. Norðmenn hafa beðið um viðræður vegna þeirra, og við emm ekki eini aðilinn þar að. Það kemur svo í ljós í næstu viku hvort þeir em tilbúnir með eitthvert út- spil í þessu efni. Það er ekki séð á þessari stundu. Það er alveg ljóst að þetta mál verður ekki leyst til fulls nema með alþjóðlegu samkomulagi. Hvað segja lögin? f lögum um veiðar íslenskra skipa utan fisk- veiðilandhelgi íslands frá 1976 er kveðið á um rétt sjávarútvegsráðherra til aþ setja reglugerð um veiðar íslenskra skipa utan fiskveiðilandhelgi íslands. Þar segir svo í fyrstu grein: „Sjávarútvegsráðherra setur með reglugerð þær reglur um veiðar íslenskra skipa utan fiskveiðilandhelgi íslands, sem nauðsynlegar þykja tyil þess að framfyígt verði ákvæðum alþjóðasamninga sem íslendingar em aðilar að, eða þá samningar sem gerðir em milli ís- lenskra og erlendra stjómvalda." Það er alveg ljóst að dómi sérffæðinga að á gmndvelli þessara laga er ekki fært að banna veiðar íslensku skipanna í Barentshafi þar sem ekki em neinir alþjóðasamningar í gildi um veiðar á þessu hafsvæði. Borgar sig að veiða? Þeirri spumingu hefur að sjálfsögðu ekki verið svarað hvort það borgi sig fyrir íslenska útgerðarmenn að stunda veiðar í Barentshafi þegar siglingin þangað tekur fióra sólar- hringa hvora leið. Slíkt fer eftir aflabrögðum fyrst og fremst og öðmm aðstæðum. Ljóst er að slík útgerð er miklu álitlegri fyrir frysti- togara en aðra. Þegar rætt er um viðbrögð útgerðarmanna f þessu efni má ekki gleyma því að nokkur umræða hefur verið um út- hafsveiðar að undanfömu, og hafa útgerðar- menn verið hvattir til að leita fyrir sér í þessu efni, og þá einkum útgerðir frystitogara. Ekki má heldur gleyma því að nýsett löggjöf heimilar landanir erlendra togara í íslensk- um höfum. Tilhneigingin hefur því verið að losa um hömlur í þessum efnum og leita á ný mið, í orðsins fyllstu merkingu. Áróðursstaðan Hins vegar er eðlilegt að hafa nokkrar áhyggjur af áróðursstöðunni í málinu. Við ís- lendingar höfum sem betur fer fengið það orð að hamla gegn rányrkju í fiskveiðum, og vera forustuþjóð varðandi vinnu að alþjóða- samningum um stjóm fiskveiða. Því andliti út á við viljum við halda áfram. Það er þó ekki sanngjöm krafa að með tilliti til þessa eigum við að halda að okkur höndum. Við eigum þó að vera tilbúin til viðræðna við aðr- ar þjóðir, og um það er ekki pólitískur ágreiningur, en við eigum að fylgja okkar skoðunum og hagsmunum fast fram í slík- um viðræðum. Það er einfaldlega of mikið í húfi í fiskveiði- málum almennt til að við höfúm nokkur efni á að sýna linkind í þeim efnum. Ein rödd Það er ekki líklegt að á þessu máli finnist skjót lausn. Hver sem samningavilji Norð- manna er þá er ekki líklegt að svigrúm þeirra sé mikið, nú þegar kosningar standa fyrir dymm í landinu og sjávarútvegsmálin eru logandi heit kosningamál á stórum svæðum landsins og þá einkum í Norður-Noregi þar sem lífið byggist fremur á sjávarútvegi en í öðrum landshlutum. Málefni varðandi „Smuguna“ verða því áreiðanlega enn til umræðu um nokkra hríð. Tvennt er þó mjög áríðandi. Það fyrsta er að ríkisstjórnin tali einni rödd í því, en á það hefur nokkuð skort sem í öðrum stórmálum og í öðru lagi að reynt sé að skapa sem mesta pólitíska sam- stöðu í landinu um viðbrögð og stjómarand- staðan hafi aðild í málinu. Það hefur ávallt reynst okkur best í þeim örlagaríku málum sem snerta samninga um við aðrar þjóðir um fiskveiðar og hafréttarmál.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.