Tíminn - 21.08.1993, Blaðsíða 14

Tíminn - 21.08.1993, Blaðsíða 14
14 Tfminn Laugardaggr21. ágúst 1993 EinkunnagJ5f Tímans: 1=mjög lélegur 2=slakur 3=1 meðallagi 4=góður 5=mjög góður 6=frábær VALUR-ÍBKO-2 (0-1) Elnkunn leiksins: 3 Lið Vals: Bjami Sigurðsson 3, Jón Helgason 2, Bjarki Stefáns- son 2, Jón Grétar Jónsson 2, Gajie Milovic 4, Sævar Jónsson 2, Kristinn Lárusson 2 (Guðmund- ur Brynjólfsson 72. mín. 2), Ág- úst Gylfason 2, Hörður Már Magnússon 2, Sigurbjöm Hreið- arsson 4, Anthony Karl Gregory 2. Lið ÍBK: Ólafur Pétursson 3, Jak- ob Jónharðsson 4, Ragnar Stein- arsson 3, Karl Finnbogason 3, Jó- hann Magnússon 2, Kjartan Ein- arsson 3, Sigurður Björgvinsson 4, Gunnar Oddsson 5, Marko Tbn- asic 3 (Róbert Sigurðsson 46. mín. 2), Georg Birgisson 3, Óli Þór Magnússon 3. Dómari: Egill Már Markússon 4. Gul spjöld: Bjarki Stefánsson Val og Jakob Jónharðsson og Kjartan Einarsson ÍBK. Rautt spjald: Sævar Jónsson Val (fékk tvö gul fyrst fyrir brot og svo fyrir að verja með hendi). ÍBK sigraði Val 2-0 í Getraunadeildinni í gærkvöldi: „Við hungraðir í sig ur en þeir þreyttir“ ÍBK sigraði Válsmenn 2-0 á heimavelli þeirra síðamefndu í Getraunadeiídinni í gærkvöldi. Staðan í hálfleik var 1-0 fyrir ÍBK. Við þennan sigur færast Keflvík- ingar upp í 4. sæti deildarinnar með 20 stig en Valur datt í kjölfarið niður í fimmta sætið. Gunnar Oddsson, fyrirliði ÍBK, var að vonum ánægður með stigin þrjú. „Það sem ég held að hafi gert gæfumuninn í þessum leik var að við vorum hungraðir í sigur en Valsmenn vom þreyttir eftir Evr- ópuleikinn frá því á miðvikudag- inn. Gamla góða baráttan skilaði sínu líka hjá okkur í kvöld. Það spilaði líka inn í að Valsmenn gátu ekki stillt upp sínu sterkasta liði og reyndar við ekki heldur þar sem Gestur Gylfason var í leikbanni og Eysteinn Hauksson er veikur. Ég er ánægður með minn leik enda finn ég mig mun betur á miðjunni en í Kvennaknattspyma: IA og Stjarnan mætast í úr- slitum bikarsins á morgun Á morgun fer fram úrslitaleikur í bikarkeppni kvenna í knattspyrnu. Leikurinn fer fram á aðalleikvangi Laugardalsvallar og hefst leikurinn klukkan 16. Það verða lið Akumes- inga og Stjömunnar sem leiða sam- an hesta sína á morgun og sam- kvæmt stöðunni í 1. deild kvenna þá ættu Stjömustúlkur að teljast sigur- stranglegri en Skagastúlkur hafa oft komist í úrslit í bikarkeppninni og vöminni, þar sem ég spilaði í fyrra,“ sagði Gunnar Oddsson, fyr- irliði ÍBK, í samtali við Tímann eft- ir leikinn. Fyrstu 20 mínútur leiksins bám þess ekki merki að um þreytta Vals- menn væri að ræða. Þeir áttu þá leikinn og fengu mörg hættuleg marktækifæri. Jón Grétar Jónsson kiksaði t.a.m. á markteig og Antony Karl Gregory átti skalla að marki sem Ólafur Pétursson varði í slá og yfir. En Keflvíkingar komu meira inn í leikinn eftir þessi færi heima- liðsins og skomðu eina mark fyrri hálfleiks á 20. mínútu. Þar var að verki Kjartan Einarsson eftir stungusendingu Gunnars Odds- sonar. Óli Þór Magnússon og Kjart- an fengu stuttu síðar dauðafæri til að skora en Bjami Sigurðsson, markvörður Vals, kom í veg fyrir að það tækist með góðum úthlaupum. Seinni hálfleikur var ekki eins fjömgur og virtist eins og ÍBK hefði leikinn í höndum sér. Vals- menn áttu í erfiðleikum með að skapa sér færi gegn sterkri vöm Keflvíkinga þar sem Sigurður Björgvinsson var sterkur í loftinu. Það var síðan úr einni af skyndi- sóknunum að ÍBK skoraði. Sævar Jónsson felldi þá Óla Þór innan vítateigs og Óli Þór skoraði ömgg- lega úr vítinu, sitt ellefta mark í deildinni. Þar við sat og ÍBK vann 2-0. Gunnar Oddsson spilaði geysivel fyrir ÍBK. Hann býr yfir mikilli yfir- ferð og gerði lítil sem engin mis- tök. Gajie Milovic var sterkur í vöm Vals en aðrir vom slakir. i að ÍA sé mikið bikarlið. l sló UBK út í 4-liða úrslitum eftir framlengdan Ieik en Stjaman sigraði 2. deildar lið Dalvíkur létt. Stjaman og ÍA hafa mæst einu sinni í sumar og var það á heimavelli Stjömunnar í Garðabæ. í þeirri viðureign sigraði Stjaman ömgglega 5-2. Stúlkumar mætast síðan aftur í deildarkeppn- inni á Skaganum næstkomandi mið- vikudag. Um helgina: Knattspyrna Laugardagur 2.deild karia UBK-BÍ..............kl.14 Leiftur-Þróttur Nes.kl.14 4.deild karia Fjölnir-Árvakur.....kl. 13.30 Hamar-Snæfell.......kl.14 Aftureld.-Víkingur Ól. .kl.14 Léttir-HB...........kl.17 Hafnir-Njarðvík.....kl.14 Emir-Ármann.........kl.17 Hvatberar-Leiknir...kl.17 KS-Hvöt.............kl.14 Neisti-HSÞ.b........kl.14 Dagsbrún-SM.........kl.14 Austri-Einherji.....kl.14 Sunnudagur Bikarúrslit í kvennaflokki: Stjaman-ÍA..........kl.16 Evrópukeppni meistaraliða: Partizani Tirana-ÍA.kl.15 l.deild karia ÍBV-KR kl.18.30 Fylkir-Þór Ak.......kl.18.30 Mánudagur l.deild ÍBK-FH..............kl.18.30 Skagastúlkan Jónína Víglundsdóttir verður f eldlínunni á morgun. HM í frjálsum: Slakt hjá Pétri Pétur Guðmundsson keppti í gær í kúluvarpi á HM í Stuttgart, síðastur íslensku keppendanna, og kastaði hann aðeins 18.11 metra. Pétur hafnaði í 15. sæti í sínum riðli og varð næstsíðastur. Yfir það heila þá lenti hann í 28. sæti af 32 keppend- um. Aðeins þrír keppendur að þeim 12 sem komust áfram köstuðu yfir 20 metra sem var sú lengd sem þurfti að nást til að komast áfram. Níu keppendur sem komust áfram köstuðu því undir 20m og kastaði sá sem lenti í 12. sæti 19.56m. Pétur var því nokkuð frá því að komast áfram. Bridge UMSJÓN: BJÖRN ÞORLÁKSSON Þraut29 Suður gefur; allin NORÐUR * ÁKG93 T 762 ♦ D64 + T8 4 V ♦ + SUÐUR T Á3 ÁKGT752 Á75 suður vestur norður austur 15 pass 1 + pass 3 gr pass 4 ♦ pass 6 ♦ allir pass Útspil: hjartadrottning. Austur setur níuna í fyrsta slag og sagnhafi drepur með ás. Þá kemur tígulás, lauffiarki frá vestri, fiarki og þristur. Hvemig er best að hugsa framhaldið? Sagnhafi reynir væntanlega að forðast að taka spaðasvíninguna og austur má ekld trompa spaða því útspilið er búið að brjóta slag fyrir vömina. Það er engin 100% leið í spilinu en hægt er að spila upp á allar legur af öryggi, utan þá að austur eigi eyðu í spaða. í þriðja slag spilar sagnhafi spaðatíu á ásinn. Ef slagurinn heldur er spaðagosinn tekinn, ekki kóngurinn vegna þess að ef austur trompar þá eru komin upp vandamál. Nú eru þrjár stöður hugsanlegar: a. Austur trompar, sagnhafi yf- irtrompar, tekur síðasta trompið með drottningu blinds, hendir hjartanu í spaðakóng og trompar seinna lauf í blindum. b. Ef austur leggur spaðadrottn- ingu á, þá trompar sagnhafi og á 12 slagi að minnsta kosti. c. Ef austur setur lítinn spaða eða hendir af sér, kastar sagnhafi hjartatapslagnum. Vestur á þá slaginn en sagnhafi á afganginn. Ef vestur spilar spaða til baka, lætur sagnhafi þristinn í borði og trompar heima. Síðan tekur hann tvö síðustu trompin, endar í blindum og tekur spaðaslagina. NORÐUR ♦ ÁKG93 T 762 ♦ D64 ♦ T8 VESTUR AUSTUR 4 D87654 * * 2 V DGT V K9864 ♦ - ♦ 983 * D964 * KG32 SUÐUR ♦ T 5 Á3 ♦ ÁKGT752 + Á75 Besta íferð Evrópu- mótsins í Menton NORÐUR ♦ ÁG94 V Á4 ♦ T2 ♦ K9632 VESTUR AUSTUR ♦ 53 + T92 V KD8732 V GT96 ♦ K76 ♦ G953 ♦ DG +94 SUÐUR + KD76 T 5 ♦ ÁD94 ♦ ÁT75 Það er mál manna að af cllum þeim ágætu spilum sem upp komu í opna flokknum á Evrópu- meistaramótinu í Frakklandi í sumar, hljótist Hollendingnum Bauke Muller sá heiður að eiga fallegustu íferð mótsins. Þetta spil kom upp í leiknum á milli Hollands og Póllands. Pólska snilldarparið, Zmudzinski og Bal- icki, var þreytt og Lesniewski og Martens hafði verið skipt inn á í seinni hálfleik í þeirra stað. í suð- ur sat ungur heimspekingur, Muller, sem hlýtur að hafa farið rétt fram úr rúminu þennan dag- inn því hann hitti á eina af stærri bridgestundum lífs síns í leikn- um gegn Póllendingunum sem síðar urðu Evrópumeistarar með miklum yfirburðum. Pólland tap- aði hins vegar leiknum gegn Hol- landi 5-25 og þetta spil átti drjúg- an þátt í því. Útspilið var hjartakóngur. Mull- er tók með ás og tvisvar tromp og endaði í blindum. Þá trompaði hann hjarta, fór inn í borð á lauf- kóng og spilaði laufi að tíunni. Úúúps, hugsuðu skammsýnir áhorfendur sem ekki voru með á nótunum en vestur var þar með endaspilaður í 6. slag. Lesniewski skilaði tígli til baka og snilldar- bragð Mullers skilaði honum 12 slögum í kyrrþey eftir það. Á hinu borðinu fór pólski spilarinn 3 niður í sama samningi. Sagnvcnjur - Michaels Þar sem bridgevertíðin nálgast, veturinn, er ekki úr vegi að halda áfram þar sem frá var horfið í því að kynna sagnvenjur. í þættinum í dag er Michaels-sagnvenjan endurbirt vegna tilmæla frá les- endum. Michaels á vaxandi fylgi að fagna hérlendis sem annars staðar f heiminum. í næsta þætti verður svo farið í Kröfu-Stayman (forcing stayman). Michaels-sögnin er notuð til að Iýsa tveggja lita hendi og biður svarhönd um að velja á milli lita. Hún er hvort tveggja hindrunar- sögn og gefur líka góðar upplýs- ingar um hvort fómir séu góðar. Einnig getur hún komið spilur- um í punktalítil geim sem bless- ast vegna mikillar skiptingar og góðrar samlegu. Hápunktafiöldi er yfirleitt lítill eða 6-10 punktar. Sagt er ofan í lit opnara, hækkað um eitt sagnstig, og lofar sögnin a.m.k. 9 spilum í þeim tveimur litum sem sögnin vísar til og yfir- leitt 10. Ef andstæðingamir segja í láglit lofar M. því yfirleitt 5-5 í hálitunum. Dæmi: suður vestur norður austur 1 lauf 2 lauf Vestur gæti verið með DGxxx KGxxx x xx Ef andstæðingamir segja í hálit lofar M. 5 spilum í hinum hálitn- um og 5-lit í öðrum láglitanna. Ef sagt er yfir hálit andstæðinganna er mögulegt að svarhönd verði að fara á þriðja sagnstigið og því er æskilegt að hafa sterkari spil þeg- ar sagt er ofan í hálit heldur en láglit. norður austur suður vestur pass pass 1 hj. 2hj. Hér þyrfti vestur að hafa eitthvað þessu líkt; A) KDxxx x xx KDxxx eða B) ÁDxxx x x DGlOxxxx Svarhönd þarf ekki nema þrílit til að styðja hálitinn. Ef svarhönd getur ekki stutt hálitinn, spyr hún um láglitinn með tveimur gröndum C) KDx Kxxxx DGxx Dx D) xx Kxxx Gx Áxxxx C segir 2 spaða. D segir 2 gr. og pass eftir 31auf/3tígla. Hins vegar ef láglitur opnara er lauf, hækkar svarhöndin umsvifalaust í 5 lauf ef andstæðingarnir fara í 4 spaða. Það ætti að vera gulltrygg fóm.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.