Tíminn - 21.08.1993, Qupperneq 19

Tíminn - 21.08.1993, Qupperneq 19
Laugardagur 21. ágúst 1993 Tíminn 19 „Spaðai nn qni i gosi rnin inn“ nin u u o u u um h' 1 1 1 1 II eiðL y i m ir að var hringt í neyðarsíma Mount Vernon lög- reglunnar, 911, föstudagskvöldið 27. mars 1992. Lögreglu- og sjúkrabílar voru komnir á vettvang fimm mínútum síðar, að Franklin stræti kl. 20.15. Gatan var mannlaus að öðru leyti en því að á götunni lá ungur meövitundarlaus maður. Hann hafði verið skotinn rétt ofan við hægra aug- að. Andlitið var illa skrámað eins og hann hefði verið á hlaupum þegar hann féll til jarðar. Eron Seeley taldi sig sjálfskipaöan Al Capone hinna síöari tlma og varöi heiöur sinn meö dramatlskum hætti. Hann var samstundis fluttur á sjúkrahús. Tveir lögreglumenn fylgdu honum en eftir stóð her rannsóknarmanna yfir rauðum polli. Mario Manganiello og Michael Lar- otanda rannsóknarlögreglumenn voru á meðal þeirra sem eftir urðu. Þeir fundu 6 skothylki úr 25 kal- íbera skammbyssu. Fólk dreif að en enginn virtist hafe séð hvað gerst hafði. það leið stundarfjórðungur en þá gaf ung kona sig fram og sagði: „Eg sá hvað gerðist en ég veit ekki hver gerði það.“ Hún hafði verið að halda upp á afmæli dóttur sinnar. Stand- andi í eldhúsinu heima hjá sér, var hún 20 mínútum áður að horfa út um gluggann er hún sá hóp ung- menna á götunni. Þá kom einhver hlaupandi í áttina að hópnum með byssu á lofti og skaut á hópinn. Hún sýndi lögreglunni hvar skotmaður- inn hafði staðið en ítrekaði að hún hefði ekki séð framan í andlit hans. Samræðunum lauk þegar hópur ungs fólks kom hlaupandi og spurn- ingar dundu á Michael og Mario hvar Cleavon væri. Þá fyrst fengu lögreglumennimir vitneskju um nafti fórnarlambsins. Aöeins 16 ára gamall Hann var aðeins 16 ára gamall, hér Cleavon Johnson og hafði ekki skráð aðsetur. Það tók nokkra stund að yfirheyra unglingana þar sem þeir voru flestir í miklu uppnámi en í meginatriðum rímaði vitnisburður þeirra við frá- sögn konunnar í eldhúsglugganum. Krakkamir höfðu verið að ganga breiðstrætið í rólegheitunum þegar maður birtist þeim skyndilega á hlaupum og hóf skothríð. Þau forð- uðu sér sem hraðast mátti en upp- götvuðu ekki fyrr en allt var afstaðið að eins úr hópnum var saknað. Það var Cleavon Johnson. Hann var hins vegar ekki sá eini sem hafði verið hæfður af skotmanninum. í ljós kom að tvö ungmennanna vom með skotsár eftir byssumanninn, ung stúlka hafði fengið kúlu efst í öxlina og annar var hæfður í fótinn. Báðir áverkamir vom minni háttar og eft- ir skamma legu á sjúkrahúsi útskrif- uðust unglingarnir, jaftiheilir og áð- ur. Vonlaus barátta Á meðan þessu fór fram barðist Johnson fyrir lífi sínu á spítalanum. Ættingjar hans vom látnir vita og þeir hröðuðu sér til fundar við Iæknana. „Við gemm allt sem í okk- ar valdi stendur en í sannleika sagt emm við mjög svartsýn á að hann muni hafe það af,“ sagði vakthafandi læknir við foreldra piltsins. Hann hafði hlotið mikinn heilaskaða þar sem kúlan hafði farið í efri hluta höfuðsins. Daginn eftir lést Johnson af völdum sára sinna. Of mörg vitni? Það tók lögregluna allnokkum tíma að byggja upp heillega mynd af árásinni þar sem vitnin vom mý- mörg og sumir virtust vísvitandi villa um fyrir lögreglunni. Frásagnir vom nokkuð ósamstæðar eins og oft verður í mikilli geðshræringu en síðar kom í ljós að einstaka „vitni“ var að reyna að vemda foringja sinn. Þá dreif að mikinn hóp vandræða- unglinga og á tímabili virtist sem lögreglan væri að missa tök á æst- um múgnum en þó tókst um síðir að afstýra teljandi vandræðum. Flestir þeirra sem lent höfðu í árás- inni vom meðlimir í götuklíku sem kallaði sig „hin ósnertanlegu" með tilvísun í bannárin, gullaldartíma A1 Capone. Unglingarnir vom flestir á sakaskrá þrátt fyrir ungan aldur og lögreglan óttaðist að morðið gæti hmndið af stað bylgju alvarlegra af- brota í þessu almesta glæpahverfi New York borgar. Því reið á að leysa málið hið fyrsta áður en götuklík- umar tækju lögin í sínar hendur. Nánasti vinur fómarlambsins, Rhodes, veitti fyrstur upplýsingar sem síðar urðu til þess að málið leystist. Það snerist um partý og heiður. Spaöagosinn Viku áður hefði verið boðið til veislu. Leitað var á öllum við inn- ganginn þar sem ekki var óalgengt að menn kæmu vopnum búnir til slíkra fagnaða. Drengur að nafni Burke hafði farið á fjörumar við unga stúlku en komst að því sér til skelfingar er líða tók á kvöldið að hún var kærasta gestgjafans. Gest- gjafinn dró upp byssu og miðaði á Burke. Hann baðst afsökunar og yf- irgaf veisluna ásamt félögum sínum. Samkvæmt frásögn Rhodes hafði gestgjafinn hótað þeim öllu illu og látið í það skfna að þetta væri geymt en ekki gleymt Burke var höfuðið á klíkunni sem kallaði sig „hina ósnertanlegu" en gestgjafinn var aft- ur æðsti maður öflugrar glæpaklíku sem síðar kom f ljós að hafði ótrú- lega mikil umsvif þrátt fyrir lágan meðalaldur liðsmanna. Rhodes og hinn látni Johnson vom aftur á bandi Burkes. Lögreglan spurði Rhodes hvað gestgjafinn héti og reyndist hann vera Eron Seeley, kallaður spaðagos- inn. Spurning um stolt Brúnir Marios og liðsmanna Iyft- ust. Eron Seeley var alræmdur glæpamaður sem vel gat verið vald- ur að morði. Hann spurði Rhodes hvemig þetta tengdist atburðum kvöldsins. Hann svaraði að árásar- maðurinn hefði verið svipaður „spaðagosanum" í útliti og hann hafði kallað eitthvað í líkingu við: „Ykkur skal lærast að láta mitt fólk í friði." Síðan hafði hann hafið skot- hríðina, fyrst beindi hann byssunni að Burke sjálfum en síðar að vinum hans sem vom á ferli með honum. Lögreglunni þótti tengingin lang- sótt, að maður réðist inn í hóp ung- menna og hæfi skothríð vegna þess að einhver úr hópnum hefði dansað við kæmstuna hans í samkvæmi skömmu áður. „Þið þekkið ekki lögmál götunnar," sagði Rhodes alvarlegur. Þetta snýst um stolt og ég vissi um leið og Burke fór á fjörumar við dömuna hans Seeleys að það myndi leiða til eftirmála. Mario og Michael hristu höfuðið og horfðu á unglinginn í þögulli spurn. Ranghugmyndir gengjanna á göt- unni virtust komnar úr siðfræði ítölsku mafíunnar. Handtaka og sönnunargögn Eftir að hafa talað við öll vitnin og borið saman frásagnir var ákveðið að gefa úr handtökuheimild á hend- ur Eron Seeley, „spaðagosanum". Eldsnemma morguninn eftir um- Mario Manganiello komst fljótt á spor- iö þegar hann heyröi nafn „spaöagos- ans" nefnt. kringdi lögreglan heimili Seeleys. Ráðist var til inngöngu án viðvömn- ar þar sem Seeley var talinn vopnað- ur og hættulegur. Inni í íbúðinni vom sjö óhrjáleg ungmenni, öll í fastasvefni en skriður komst á hóp- inn við hina óvæntu heimsókn. Se- eley sjálfur var fyrstur til að átta sig og sá eini sem reyndi flótta en lög- reglunni tókst fljótlega að yfirbuga hann og færa í jám. Cleavon Johnson féll fyrir kúlu morö- ingjans sama dag og honum var sleppt úr fangeisinu. Búið var að fá húsleitarheimild og Seeley var beðinn um að sýna lög- reglunni hvaða herbergi hann ætti. í leðurjakka sem fannst í herberginu var 25 kalíbera skammbyssa svip- aðrar tegundar og hafði kostað Johnson lífið og þurfti því varla vitn- anna við. Þá fundust fjórar byssur aðrar, mikið magn af skotfæmm og ýmis eggvopn. Auk þess fúndust í íbúðinni 46 krakk-skammtar og nokkur grömm af kókaíni. Seeley var lesinn réttur sinn en áð- ur en því lauk sagði hann drafandi röddu: „Ég ætlaði ekki að skjóta þijá ég hafði bara einn í sigti.“ Þetta fmmhlaup Seeleys gat ekki talist honum til framdráttar vegna þess að engin leið var fyrir hann að vita hversu margir hefðu særst í árásinni öðmvísi en hann hefði sjálfúr verið á staðnum. Hinn ungi glæpaforingi var hins vegar í mjög slæmu ástandi, uppdópaður af eitur- lygum og sýnt var að ekki yrði hægt að taka hann til yfirheysrlu næstu tvo sólarhringana. Seeley var ákærður formlega fyrir morð af yfirlögðu ráði og vopnaða árás 31. mars 1992. Hann hafði fótt sér til málsbóta en þrástagaðist á því að hann hefði ekki átt „nokkurra kosta völ“. Hættuleg umsvif Þetta var 3. morðið í Mount Vemon þetta ár og aðeins var komið fram í mars. Það var kaldhæðni örlaganna að sá sem féll fyrir kúlu hans hafði losnað úr fangelsi sama dag eftir að hafa aftilánað 5 mánaða dóm fyrir þjófnað. Ættingjar hans náðu aldrei að líta hann augum eftir að honum var sleppt úr haldi. Johnson hafði farið beint til klíkunnar á götunni, beint í sama farið og það kostaði hann lífið. Þegar dró að réttarhöldunum yfir Seeley reis mikil ólga á meðal ung- mennanna á götunni sem skiptu sér í tvær fylkingar. Önnur fylgdi Seeley að málum en hin var á móti. Seeley hafði verið foringi öflugrar glæpa- starfsemi þrátt fyrir að vera aðeins 23ja ára gamall. Hann var með fjölda fólks á framfæri og svo virtist sem fjármögunun samtakanna væri aðallega fólgin í dópsölu og vændi. Hann hafði her manns í kringum sig, átti fasteignir og limósínur og svo virtist sem sagan um A1 Capone væri að endurtaka sig. Munurinn á Seeley og A1 Capone var þó í megin- atriðum sá að Seeley vann sjálfúr skítverkin. „Spaðagosinn" eins og Seeley var kallaður var ótrúlega áhrifamikill maður. Hann hafði snemma séð efniviðinn í villuráfandi börnum og ungmennum götulífs- ins, oft voru þau án heimila og mat- ar. Hann tók þau til sín, veitti fæði og húsaskjól en í staðinn unnu þau fyrir hann með glæpum. í herbúð- um þessa fólks fór aldur og virðing saman nema framtakssamir fremdu að eigin frumkvæði glæpi sem klík- an hagnaðist á. Þá klifu þeir upp metorðastigann. í ljósi þessa reynd- ist Seeley stórhættulegur áhrifa- valdur og lögum og reglu var fengur í að taka slíkan mann úr umferð þótt gjaldið hefði verið mannslíf. Ekki dáiö til einskis í kjölfarið á morðrannsókninni urðu yfirvöldum ljós hin gríðarlegu umsvif sem „krakkamir á götunni“ höfðu og því var gerð rassía til að stöðva faraldurinn í tíma. Borgin lagði fram nokkurt fé til að efla for- varnarstarf og það virðist hafa tekist þokkalega því hægt og bítandi hefur glæpatíðni hjaðnað í Mount Vemon síðustu misseri. Augu yfirvalda beindust fyrst af alvöru að þeim mikla vanda sem við var að eiga í kjölfar morðsins á Cleaver Johnson. Hvað það varðar má segja að hann hafi ekki dáið til einskis. Það sem kom lögreglunni mest á óvart var að börn allt niður í 10-12 ára gömul höfðu lifibrauð af smá- glæpum. Gamla ævintýrið um Oli- ver TVvist eftir Dickens var því enn við lýði, nú á leiksviði Mount Vemon en T\vist sjálfan vantaði í söguna að þessu sinni. Það var fátt nýtt sem kom fram er réttað var í málinu. Seeley játaði sekt sína og var dæmdur í 25 ára fangelsi. Spaðagosinn mun því taka sér hlé frá störfum sínum og á með- an munu aðrir sjá um að stokka spil- in.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.