Tíminn - 21.08.1993, Side 24

Tíminn - 21.08.1993, Side 24
■ ■ m JTI m m ■> Ji ■■m '' jrm mW imi 'ú£;' ' %Si Bhm ■■ 5 Mnliflk Áskriftarsími Tímans er 686300 NYTTOG FERSKT DAGLEGA reiðholtsbakarí VOLVUFELL113-SlMI 73655 Laaábriel , HÖGG- DEYFAR Versliö hjá fagmönnum GJvarahlutir Hamarshöfóa 1 Hamarshöfða 1 Simi676744 Tíminn LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST1993 Rúmlega 600 íslenskir áhorfendur styðja þétt við bakið á væntanlegu sigurliði á heimsleikum íslandshesta í Hollandi: Stefnir í mesta sigur íslendinga frá upphafi íslenska landsliðiö hefur haft yfirburði það sem af er heimsmeist- aramóts íslenskra hesta sem nú stendur yfir í Spaarnwoude í Hol- landi. Mótið hófst formlega á fimmtudag og stendur til sunnu- dags. Haldi svo fram sem horfir er allt útlit fyrír stærsta sigur ís- lendinga á þessum mótum frá upphafi. Rúmlega 600 íslendingar voru mætt- ir á heimsmeistaramótið seinnipart- inn í gær og í dag er von á fleirum. Það lætur nærri að fjórði til fímmti hver maður á mótinu sé íslendingur en um hádegi í gær voru tæplega þrjú þúsund gestir á mótssvæðinu. Búist er við að þar verði um eða yfir tíu þús- und manns um helgina. Liðsstjórar íslenska liðsins, Pétur Jökull Hákonarson og Pétur Sigurður Maríusson voru ánægðir með frammi- stöðu sinna manna þegar blaðamaður Tímans ræddi við þá að mótshaldi loknu í gærdag. „Það er búinn að ríkja hér góður andi. Þetta eru reyndir keppnismenn og það er létt yfir okkar mönnum. Þeir eru einbeittir og ætla sér að gera stóra hluti,“ sagði Pétur Jökull í gær. íslensku áhorfendumir hafa stutt dyggilega við bakið á íslenskum kepp- endum og jafnvel það rækilega að sumum þykir nóg um, að sögn Péturs Jökuls. „Þeir styrkja okkur í einu og öllu,“ segir hann. „Svo vitnað sé í Þjóðverjana þá segja þeir að við séum að vinna þetta á áhorfendunum. Þeir styðji þannig við bakið á okkur að þeir hafi aldrei séð annað eins. Þeir voru að tala um það í gríni — og öllu gríni fylgir alltaf einhver alvara — að kæra vegna þess að íslenski hópurinn hefði áhrif á dómarana." Að sögn dómaranna hafa íslensku keppendumir náð betri árangri en nokkru sinni fyrr í þessari keppni. Endanleg úrslit ráðast ekki fyrr en á sunnudag. Eins og stendur er gamla kempan Reynir Aðalsteinsson í sjötta sæti í tölti II á skúmi frá Geirshlíð. Hann á góða möguleika á að vinna sig upp í A-úrslit Hinn 17 ára gamli Sigurður Matthí- asson er inni í úrslitum í B- flokki á Þráni og hefur möguleika á að vinna sig upp í A-úrslit í A- úrslitum er Baldvin Ari Guðlaugsson á Nökkva í fimmta sæti, Einar Öder Magnússon á Funa er í þriðja sæti. í fjórgangi er Baldvin Ari á Nökkva í fjórða sæti og Sigurður Magnússon í því fimmta á Þráni. Árangur íslendinganna í fimmgang- inum er glæsilegur en þeir halda þar þremur efstu sætunum og er stefnt að því koma þeim fjórða inn af fimm mögulegum. Arangur Sigurbjöms Bárðarsonar heima hefúr verið óslitin sigurganga í sumar og hann heldur sama spretti Frá Árna Gunnarssyni í Hollandi " - • * . * ■ '• , ' _________________________________ .. . • • > ' Svlpmyndlr frá helmsmelstaramótl fslandshesta I Hollandl. hér úti. Hann hleypti hér hestinum Höfða í fyrsta sinni í 250 m gæðinga- skeiði og náði tímanum 23,40 mínút- um sem er verulega góður árangur. Sigurbjöm hefur þegar tryggt sér gullið í 100 m gæðingaskeiði á Höfða og hann þarf ekki að bæta tíma sinn í lengri sprettinum nema um 0,2 sek- úndur til þess að verða heimsmeistari í samanlögðu. Á því á hann góða möguieika en þau úrslit ráðast í dag. Höfði er margfaldur íslandsmeistari og Reykjavíkurmeistari bæði í gæð- ingaskeiði og fimmgangi. Muni hann sigra fimmganginn hér og ná þeim ár- angri sem stefnt er að í gæðingaskeið- inu verður þar nánast um einsdæmi að ræða. DENNI DÆMALAUSI

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.