Tíminn - 12.10.1993, Blaðsíða 2

Tíminn - 12.10.1993, Blaðsíða 2
2 Tíminn Þriðjudagur 12. október 1993 Tveir þingmenn Framsóknarflokksins flytja tillögu á Alþingi um að: Landið verði gert að einu kjördæmi Tveir þingmenn Framsóknarflokksins, Jóhannes Geir Sigurgeirs- son og Finnur Ingólfsson, hafa flutt þingsályktunartillögu á Alþingi um að kannaðir verði kostir þess að ísland verði gert að einu kjör- dæmi. Jóhannes Geir sagðist telja þessa leið mun skynsamlegri en aö fara að gera endurbætur á núverandi kosningakerfí, þvf að það kerfi sé kolómögulegt. Ný kjördæmaskipan var til um- ræðu á fundi Félags frjálslyndra jafnaðarmanna í síðustu viku. Þar kom fram nokkuð almennur vilji frummælenda á fundinum til að gera breytingar á kjördæmaskipan- inni. Frummælendur voru aiþingis- mennimir Bjöm Bjamason, Ólafur Ragnar Gn'msson og Jón Baldvin Hannibalsson. Menn höfðu nokkuð mismunandi viðhorf um hvemig ætti að breyta kosningakerfinu, en lýstu yfir vilja til að skoða allar leið- ir. Athygli vakti innlegg Jóhannesar Geirs á fundinum, en fram til þessa hefur verið talið að Framsóknar- flokkurinn stæði einna harðast gegn jöfnun atkvæðisréttar milli landshluta. Jóhannes Geir sagðist vera andvíg- ur hugmyndum sjálfstæðismanna um að gera endurbætur á núver- andi kjördæmakerfi. Skynsamlegra sé að gera grundvallarbreytingar á kjördæmaskipaninni í landinu. „Ég geri mér grein fyrir því að það verður ekki hægt að standa á móti því að jafna atkvæðisréttinn frá því sem nú er. Versta staða sem ég gæti séð, út frá hagsmunum landsbyggð- arinnar, væri að atkvæðisréttur væri jafnaður á grundvelli núver- andi kjördæmaskipunar. Ég tala nú ekki um ef það yrði gert eins og sjálfstæðismenn tala um með því að skipta Reykjaneskjördæmi í tvennt og Reykjavík í þrennt. Þá kæmi upp sú staða að 2/3 þingmanna kæmu úr þessum kjördæmum og teldu það sitt hlutverk að vinna sérstak- lega að hagsmunum þessa lands- hluta. Ég held að út frá sjónarhóli lands- ins alls og ekki síst landsbyggðar- innar, væri miklu skynsamlegra að landið yrði gert að einu kjördæmi og þingmenn litu á sig sem þing- menn landsins alls. Ég er sannfærð- ur um að það myndi þýða að miklu fleiri þingmenn en annars myndu bera hag hinna dreifðu byggða fyrir brjósti," sagði Jóhannes Geir. Hann sagðist einnig líta svo á að skoða beri hugmyndina um að gera ísland að einu kjördæmi með tilliti til hugmynda um að færa aukið vald heim í héruð og til sveitarstjóma. Jóhannes Geir sagði að lítil um- ræða hefði farið fram um þessi mál innan Framsóknarflokksins. Hann sagðist telja nauðsynlegt að slík umfjöllun færi fram innan flokksins þar sem fyrirsjáanlegt sé að mikil umræða verði um þessi mál f þjóð- félaginu á næstu vikum og mánuð- um. Hann sagði nauðsynlegt að menn gæfu sér góðan tíma í að gera breytingar á kosningakerfinu og skoða allar hliðar á málinu. -EÓ Verkamannasambandið: Framkvæmdastjórn Verkamannasambands ísiands mótmælir harðlega uppsögn Gyifa Páfs Hersis, verkamanns í Stálsmiðj- < unnl. . . Stjómin skorar á Stálsmiðjuna að draga uppsögnina til baka og minnir á 4. gr. laga um stéttarfe- lög og vinnudeilur. Þar er skýrt tekið fram að atvinnurekenda sé óheimilt að reyna að hafa áhrif á starfsmanna sinna af astéttarfélögum og vinnudeilum t.d. með uppsögn úr vinnu. Eins og kunnugt er þá hefur Verkamannafélagið Dagsbrún kært uppsögnina til Félagsdóms og verður málið væntanlega dóm- Bókun með kjarasamningi sjúkraliða frá 1987: Samningsbundin leikskólapláss? í bókun með kjarasamningi sjúkra- liða ffá árinu 1987 er kveftið á um að sjúkraliðar geti fengið greiddan mismun á gjaldi bjá dagmóður og á bamaheimilum rfldsspítala en að undanforau hefur heilbrigðisráft- herra hafnað því að leikskólapláss séu hluti af ráðningasamningi heil- brigðisstétta. Ráðherra hefur helst beint spjótum sínum að hjúkrunarffæðingum og sagt að þeir njóti fyrst og fremst for- gangs umfram aðrar stéttir á sjúkra- stofnunum varðandi leikskólarými fyrir böm sín. Hann hefur jafhffámt sagt að eigi að umbuna fólki sérstak- lega, eigi að gera það fyrir opnum tjöldum. Svo virðist sem sjúkraliðar hafi það framyfir hjúkmnarfræðinga að hafa ákvæði um leiksskólapláss f kjara- samningi. . -HÞ Jeppi Jóns Sigurðssonar seðlabankastjóra kostar 4,9 milljónir króna: Tæpur helmingur bíl- verðsins í skatthítina króna af verði bílsins beint í ríkis- sjóð en auk þess má Jón Sigurðsson punga út um 80 þúsund krónum í hlunnindaskatt á mánuði vegna bflsins. Bflakaup Seðlabankans hafa vakið hörð viðbrögð og m.a. var fjallað um þau í utandagskrárumræðu á Al- þingi í gær. Þá hefur am.a. stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna sent frá sér ályktun þar sem þessi bflakaup era fordæmd harðlega og spurt hvemig í ósköpunum sé hægt að reka raun- hæfa og trúverðuga efnahagsstefnu sem byggi á niðurskurði og spamaði hjá nícinu þegar firrtir embættis- menn hjá hinu opinbera, sem greinilega em í engum tengslum við raunveraleikann, haga sér eins og uppstrílaðir einræðisherrar af verstu sort SÁ/EÓ Umhverfisvæn nýjung: Nýi bfllinn sem Seðlabankinn keypti undir Jón Sigurðsson, bankastjóra og fyrrum ráðherra, er af gerðinni Jeep Grand Wagoneer L.T.D. Samkvæmt upplýsingum sölumanns nýrra bfla hjá Jöfri hf., umboðsaðila fyrir Wagoneer, þá kostar þessi gerð tæplega 4,9 milfj- ónirkróna. En verð bfls af þessu tagi er að stór- um hluta tollar, bifreiðagjöld og söluskattur til ríkisins en ekki að- eins kaupverð hans, flutningskostn- aður til landsins og þóknun til sölu- aðila. Samkvæmt upplýsingum um- boðsins greiðast um 2,4 milljónir Bankaráð Seðlabankans hefur engin afskipti haft að jeppakaupum seðlabankastjóra: Seðlabankastjórarnir sjálfir völdu jeppann Geir Gunnarsson, bankaráðsmaður f Seðlabanka fslands, segir aö bankaráð Seölabankans hafi ekki haft önnur afskipti af bílakaup- um bankans en að ákveða að samþykkja, í fjárhagsáætlun, aö veija 3 milljónum króna til bflakaupa á þessu ári. Það er banka- stjóm Seðlabankans, en í henni sitja bankastjórar bankans, sem tók ákvörðun um aö kaupa Grand Wagoneer jeppa undir Jón Sig- urðsson seðlabankastjóra. „Síðan ég settist í bankaráðið hef- ur það ekki skipt sér að því hvers konar bflar séu keyptir fyrir bank- ann,“ sagði Geir Gunnarsson. Það virðist því ekki vera að öllu leyti rétt sem Sighvatur Björgvins- son viðskiptaráðherra sagði í um- ræðum á Alþingi í gær að bankaráð Seðlabankans hafi tekið allar ákvarðanir í þessu máli. Það era bankastjóramir sjálfir sem taka ákvörðun um hvers konar bflar era keyptir fyrir bankann. Bflinn sem Jón Sigurðsson fær er fjármagnaður að hluta með sölu á öðram eldri bfl sem bankinn átti. í umræðunum á Alþingi, sem fóra fram að framkvæði Guðrúnar Helgadóttur (Alb.), kom fram að Seðlabankinn á 10 bfla. Flestallir bflamir em jeppar. Bflinn sem not- aður er til seðlaflutninga er 10 ára gamall, en hinir em allir yngri en 5 ára. Bflakostnaður bankans síðustu fjögur ár er um 20 milljónir. Jó- hannes Nordal, fyrrverandi banka- stjóri, hefur fengið heimild frá bank- anum til að vera áfram á bflnum sem hann hefur notað sem banka- stjóri í nokkur ár. Þá kom fram í umræðunum að Jóhannes mun fá skrifstofu í seðla- og myntsafni bankans, en verið er að byggja heila hæð ofan á hús safnsins. Þingmenn, jafnt úr stjóm og stjórnarandstöðu, gagnrýndu harð- lega bflakaup Seðlabankans og fleirí opinberra stofnana og ríkisfyrir- tækja, en eins og fram hefur komið í fréttum hafa forstjóri Þjóðhags- stofnunar og forstjóri Byggðastofn- unar nýlega fengið sér nýja jeppa. Þingmenn bentu á að þessi kaup væri ekki trúverðug á sama tíma og verið væri að skerða starfskjör ann- arra opinberra starfsmanna eins og t.d. hjúkranarfræðinga sem vinna á sjúkrahúsum. Sighvatur Björgvinsson sagðist hafa tekið ákvörðun um að óska eft- ir upplýsingum um starfskjör for- stöðumanna viðskiptabanka í eigu ríkisins og annarra opinberra lána- stofnana. Hann sagði eðlilegt að þessi kjör væra allstaðar hin sömu og að bflafríðindin væra sniðin að bflafríðindum ráðherra, en hann sagðist hafa gran um að sumir for- stöðumenn banka og lánasjóða njóti betri kjara í þessum efnum en ráð- herrar. Sighvatur sagðist ekki hafa vald til að skipta sér af því hvemig bfla Seðlabankinn kaupi og vitnaði í því sambandi til laga um bankann. Þetta gagnrýndu þingmenn. Ólafiir Ragn- ar Grímsson (Alb.) benti t.d. á að ráðherra geti beint tilmælum til bankans eins og heilbrigðisráðherra hafi gert þegar ákveðið var að segja upp starfsfólki bamaheimila sem sjúkrahúsin reka. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir (Kvl.) sagði undarlegt hvað ráðherrann sé valdalaus í þessu máli. Ráðherra skorti ekki vald þeg- ar skerða þurfi kjör hjá almennu launafólki. Nú sé hins vegar ekkert hægt að gera eftir því sem ráðherr- ann segir. -EÓ Margnota dömubindi Margnota dömubindi úr hreinu bómullarefni eru umhverfisvæn og kærkomin nýjung á markaðnum fyrir þær konur sem hafa ofnæmi fyrir dömubindum úr pappír og þeirra sem þurfa aft nota dömubindi alladaga. Það er fyrirtækið Ýmus hf. sem hef- ur hafið innflutning á þessu þarfa- þingi og hyggst ennfremur fram- leiða þessi dömubindi hér á landi. Auðvelt er að þrífa þessi margnota dömubindi og eins munu þau vera þægileg í notkun. Þessi dömubindi er einnig sögð vera í anda nýrrar umhverfisstefnu þar sem um er að ræða minni papp- írsnotkun, minna sorp og veralega kostnaðarlækkun. -GRH

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.