Tíminn - 12.10.1993, Síða 3

Tíminn - 12.10.1993, Síða 3
Þriðjudagur 12. október 1993 Tíminn 3 Össur Skarphéðinsson umhverfisráðherra sendir umhverfisráðherra Bretlands bréf vegna breytinga á kjarnorkuendurvinnslustöðinni í Sellafield: Lýsir fullri ábyrgð á hendur Breta össur Skarphéðinsson umhverfis- ráðherra hefur sent umhverfisraft- herra Bretlands bréf þar sem segir að ísland muni gera hvem þann að- ila sem veldur aukinni mengun í efnahagslögsögu Islands ábyrgan fyrir hugsanlegu tjóni sem íslend- ingar verða fyrir af þeim sökum. Umhverfisráðherra gefur þessa yf- iriýsingu með tilvísun til mengun- arbótareglunnar sem staðfest er í Ríóyfirlýsingunni um umhverfi og þróun og samþykkt var á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Ríó de Ja- neiró í júní árið 1992. Þann 4. október síðastliðinn rann út frestur sem bresk stjómvöld veittu til athugasemda við umsókn forráðamanna kjamorkuendur- vinnslustöðvarinnar í Sellafield um að auka endurvinnslu á geislavirk- um úrgangi í stöðinni. íslensk stjómvöld gerðu athugasemdir við umsóknina á gmndvelli þess að ekki hafi með óyggjandi rökum verið sýnt fram á að geislamengun aukist ekki við fyrirhugaðar breytingar á endurvinnslustöðinni í Sellafield. í bréfi Össurar til Johns Gummers, umhverfisráðherra Bretlands, er bent á mengunarhættu hér við land og hugsanleg neikvæð áhrif aukinn- ar geislamengunar í Norður-Atl- antshafi og Norður-íshafi á sjálf- bæra nýtingu auðlinda sjávar á þessu svæði. Lýst er fullri ábyrgð á hendur Breta ef breytingamar á Sel- Iafieldstöðunni leiða til aukinnar mengunar við ísland. Kosið í nefndir á Alþingi: Mannabreytingar hjá krötunum Um 60% Um miðjan síðasta mánuð voru um 60% fleiri á atvinnuleysis- skrá borgarinnar en á sama tfma í fyrra eða hátt í 2.300 manns miðað við hátt í 1.400 á sama tíma í fyrra. Eins og í fyrra eru heldur fleiri konur skráðar atvinnulausar en kariar. Þær eru nú 1.248 á móti 1.016 körhim en á sama tíma í fyrra voru 718 konur atvinnu- lausarámóti647körium. -Hl* Kosið var í nefndir Alþingis í fyrra- dag. Nokkrar breytingar urðu á nefndum, fyrst og fremst hjá Alþýðu- flokknum. Búið er að kjósa formann og varaformann í utanríkismála- nefnd, en eftir er að kjósa formenn annarra nefnda. Björn Bjamason (Sjfl.) var endurkjörinn formaður ut- anrikismálanefndar og Steingrímur Hermannsson (Frfl.) var kjörinn varaformaður í stað Rannveigar Guð- mundsdóttur (Alfl.). Sigbjöm Gunnarsson (Alfl.) var kjör- inn í fjárlaganefnd í stað Karls Stein- ars Guðnasonar sem hætt hefúr þing- mennsku. Sigbjöm mun jafnftamt taka við formennsku í nefndinni af Karli Steinari. Gunnlaugur Stefáns- son (Alfl.) settist í heilbrigðisnefnd í stað Sigbjöms. Gísli Einarsson (Alfl.) var kjörinn í félagsmálanefnd í stað Gunnlaugs Stefánssonar. Gísli sest einnig í iðnaðamefnd í stað Össurar Skarphéðinssonar (Alfl.) og í landbún- aðamefnd f stað Sigbjöms Gunnars- sonar. Petrina Baldursdóttir var kjörin í samgöngunefnd í stað Sigbjöms Gunnarssonar, í menntamálanefnd í stað Rannveigar Guðmundsdóttur og í umhverfisnefnd í stað Gunnlaugs Stefánssonar. Gunnlaugur var kjörinn í sjávarútvegsnefnd í stað Össurar Skarphéðinssonar. Þá gerði Kvennalistinn þá breytingu hjá sér að Anna Ólafsdóttir Bjömsson var kjörin aðalmaður í utanríkismála- nefnd í stað Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur. Ingibjörg Sólrún verður varamaður í nefndinni. -EÓ Samdráttur einkennir tölur um framleiðslu búvara á síð- asta verðlagsári: Sala á kjöti minnkaöi um 6,8% Sala á kjöti dróst saman um 6,8% á síðasta verðlagsári, en því lauk 31. ágúst síðastliðinn. Samdrátturinn kemur nær allur fram í minni sölu á kindakjöti, en sala á því dróst saman um 15,8%. Samdrátturinn í sölu á kindakjöti er ekki alveg marktækur vegna kjötútsölu sem ríkissjóður stóð fyrir sfðla sumars í fyrra. Sala á svínakjöti jókst um tæp 5% á síðasta verðlagsári og virðist svína- kjötið stöðugt vera að vinna markað af öðrum kjötgreinum. Sala á nauta- kjöti stóð nánast í stað milli verð- lagsára. Hins vegar jókst sala á hrossakjöti um 17,4%. Þá dróst sala á alifuglakjöti saman um 2,3%. Framleiðsla á kjöti jókst á síðasta verðlagsári um 2,9%. Aukning var í öllum kjötgreinum nema kindakjöti þar sem framleiðsla dróst saman um 1%. Á þessu tímabili framleiddu ís- lenskir bændur 17.398 tonn af kjöti, en salan nam 16.433 tonnum. Nær öll umframleiðslan skýrist af of- framleiðslu á kindakjöti. Sala og framleiðsla á mjólk dróst saman um u.þ.b. 1,5% á síðasta verðlagsári. Samdráttur var einnig hjá eggjabændum. Framleiðslan dróst saman um 4,7%, en salan um 2,8%. -EÓ Nuer þrefaldur vmningur var hann 156.480.000kr Spilaöu meö fyrir kl. 4 á miðvikudaginn!

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.