Tíminn - 12.10.1993, Blaðsíða 6

Tíminn - 12.10.1993, Blaðsíða 6
6 Tfminn Þriðjudagur 12. október 1993 Forsætisráðherra Kanada, Kim Campbell, á undir högg að sækja Púöur í kosninga- slagnum „Leyfið mér fyrst að sigra í kosningunum og spyrjið mig svo,“ svarar Jean Chrétien spurningu fréttamanna um hvað hann ætli að gera eftir að vera orðinn forsætisráðherra. En nú benda allar kosningakannanir til að þessi franskkynjaði Kanadamaður vermi þann eftirsótta stól næsta kjörtímabil eftir þingkosningarnar í Kanada 25. október nk. Kosningahríð tröllríður nú kan- adískum fjölmiðlum með venju- legum uppákomum og gríni, sem íslendingar og aðrir þekkja, sem búa við svonefnt lýðræði. FVrir fá- um dögum áttust forystumenn fimm stærstu stjómmálaflokk- anna við í sjónvarpi. Umræður fóru fram tvö kvöld í röð; hið fyrra á frönsku, en síðara á ensku. í Kanada tala menn tveim tungum opinberlega og enginn alvöru stjómmálamaður kemst upp með að geta ekki bjargað sér á báðum, - í þingræðum þykir snjallast að segja aðra hvora setningu á frönsku og hinar á ensku. Umræð- ur þessar í sjónvarpi segja menn að venjulega ríði baggamuninn um niðurstöður kosninga og að þær geti jafhvel gerbreytt fylgi frambjóðenda eftir frammistöðu. Hafa sumir haft á orði að það væm undarlegar niðurstöður kosninga í lýðræðisríki sem réðust af þriggja stunda (x2, þegar tungumar em lagðar samanl) orðaskaki, sem helst líkist vestfirskum kosninga- fundi. Ásakanir og klögumál ganga á víxl, en kjósendur verða litlu nær um stefnumið eða ætl- unarverk eftir kosningar. Forystu- mennimir em lokaðir inni dagana fyrir sjónvarpsorrahríð þessa, þar sem þeim em Iagðar línumar og orð í munn, þeir snyrtir og fægðir og kennt að tala og hreyfa sig. Þjálfarar þeirra leggja ríkt á við þá að fara nú ekki að segja eitthvað af alvöm sem þurfi svo að fara að skýra og leggja út af í löngu máli næstu daga. Glistrup Kanada Spútnikinn á stjómmálahimnin- um, Preston nokkur Manning, stýrir nýjum flokki, Umbótaflokk- inum. Hann virtist kunna á þessu góð tök. Manning þessi er Glistmp Kanada og veit á öllu góðar og ein- faldar lausnir sem andstæðingar hans kalla ólýðræðislegar og hið versta lýðskmm. í sjónvarpinu beindi hann mestanpart spuming- um til hinna, enda hafði hann ekk- ert að verja, þar sem um nýjan flokk er að ræða sem tekur nú vænt fylgi frá íhaldsflokknum og Kim Campbell, núverandi forsæt- isráðherra Kanada. Hún á við ramman reip að draga sem eftir- maður Brians Mulroney, en hann hvarf af sviðinu fyrir skömmu sem óvinsælasti forsætisráðherra Kan- ada frá upphafi. Kim Campbell kvaðst ekki geta farið nákvæmlega út í að skýra í skömmum viðræð- um hvemig hún ætlaði að lækka fjárlagahallann. Eftir á var hún ásökuð um hroka og merkilegheit, þótt vissulega segði aumingja kon- an satt með fjóra gjammandi and- stæðinga í kringum sig með ásak- andi vísifingur á lofti eins og kú- rekar í byssuleik. Af veikum mætti .Leyfiö mér fyrst að sigra t kosningunum, spyrjiö mig svo, “ segir Jean Chrétien sem fer fyrir Frjálslynda flokknum. Hann á góðan kost á forsætisráðherrastóln- um. hefur hún reynt að benda á þá fleygu setningu Chrétiens, sem vitnað er til fremst og sagt, að hann væri ekki hótinu betri. Slappur í ensku En enginn vænir Jean Chrétien um hroka. Hann er sveitarforingi Frjálslynda flokksins og glottir út í annað, enda lamaður vöðvi í ann- ari kinninni. Þótt ýmsum finnist hann vera af þreyttri sort stjóm- málamanna og þarfnist endumýj- unar hefur hann vissulega þann sjarma sem fólk vill gjaman sjá hjá leiðtogum sínum og skítt þá með annað. Framburður hans á ensku máli er afar franskur og stundum á hann auðsjáanlega erfitt með að finna réttu orðin á ensku og lætur þá bara frönskuna gossa. Kanada- maður nokkur af bresku kyni segir að þetta sé höfuðkostur og ætlar að kjósa hann. Forsætisráðherra, sem kunni ekki einu sinni að segja Kanada skammlaust, eigi örðugt með að skrökva að sér, svo að hann skilji. Chrétien hefur lagt mikla áherslu á að gagnrýna fyrri stjóm íhalds- manna fyrir að eiga sök á hrika- legu atvinnuleysi. í þessu landi, sem er einna ríkast allra landa að náttúrugæðum, er atvinnuleysi meira en 10%. Hann segir íhalds- menn láta þetta sig engu varða og sinni einvörðungu ríkisbubbun- um. Kim Campbell svarar fullum hálsi og segir að hún sé sú eina sem komi með frambærilegar lausnir á efnahagsvandanum og láti sig fjárlagahallann skipta. (Auðvitað eru menn hér ekkert frekar en sums staðar annars stað- ar sammála um hve hár sá vondi Audrey McLaughlin, nýdemókrati. halli sé og er þráttað um tölur frá 8 milljörðum til 35 milljarða doll- ara). Sé nú unnið af raunsæi að lausn efnahagsvandans og réttur við fjárlagahallinn, komi af sjálfu sér að efnahagur heimilanna rétt- ist við og bætist bú bænda með nýjum atvinnukostum. NAFTA, hið nýja efnahagsbandalag Mex- fkó, Bandaríkjanna og Kanada, er þeim líka tamt á tungu. Frjáls- lyndir þykjast vilja þar fá breyt- ingu, en þeim er þá bent af lítilli kurteisi á að þeir kusu yfir sig samninginn á þingi og höfðu þá ekki uppi ýkja mikil mótmæli þeg- ar þeir áttu þess kost. Nú séu þeir bara að reyna að vinna sér fylgi Kim Campbell, forsætisráðherra, kann að láta á sérbera og er orðhvöss. En hún á við ramman reip að draga f kosningabaráttunni. íhaldsflokkurinn tapar fylgi. andstæðinga samningsins og kveði síðan við annan róm að kosningum loknum. Hrekktir sjúklingar Heilbrigðiskerfið hefur og verið eitt aðalumræðuefnið, hér eins og á íslandi. Audrey McLaughlin stýr- ir NDP, Nýjum Demókrötum, sem er eins og nafnið bendir til krata- flokkur af bestu sort. TVygginga- mál og gott heilbrigðiskerfi eru henni mikið hjartans mál og hefur hún verið einna duglegust við að gagnrýna stallsystur sína Kim Campbell fyrir að hrekkja sjúk- linga, þótt Jean Chrétien láti vissulega í sér heyra stundum um sama efni. Chrétien fræddi Kim Campbell á að Kanadamenn færu ekki inn á spítala af því að þeir væru ríkir heldur af því að þeir væru veikir. Þótti þetta gott inn- legg í málin. Audrey þessi McLaughlin þótti réttilega standa sig einna best í sjónvarpsumræðunum, þótt stundum ætti hún bágt með að yf- irgnæfa lætin í hákörlunum. Eftir á lýstu margir kjósendur því yfir að þeir vildu gjama kjósa hana og krataflokkinn hennar en ætluðu þó ekki að gera það. Þeir óttast að atkvæðið fari forgörðum og hyggj- ast því frekar styðja Frjálslynda flokkinn til valda. Kannanir spá því að NDP fái aðeins 8 af hundraði þeirra kjósenda sem nú hafa ákveðið sig. Frjálslyndir, með Jean Chrétien í fararbroddi, hafa hins- vegar greinilega forystu allra flokka, þótt ekki nái þeir meiri- hluta með 37 af hundraði. En allir búast við minnihlutastjóm Frjáls- lynda flokksins, en enginn talar um samsteypustjórn, þótt vissu- lega sýnist sem margt sé skylt með frjálslyndum og NDP, a.m.k. fyrir kosningar. íhaldiö á undanhaldi Stórar breytingar verða að gerast, ef íhaldsflokkurinn á eftir að ná sér á strik á svo skömmum tíma. Kannanir gefa honum fylgi 22 af hundraði og það sem er alvarleg- ast í þeirra augum er að Umbóta- flokkurinn með - að dómi and- stæðinganna - hinn viðurstyggi- lega lýðskrumara Preston Mann- ing, er orðinn þeim mun stærri að fylgi í enskumælandi hémðum Kanada. Sá flokkur hefur á lands- vísu fylgi 18 hundruðustu ákveð- inna kjósenda. Campbell reynir að gera lítið úr (Hvað á hún líka að segja, blessunin?). Hún bendir á að 11 af hundraði séu enn óákveðnir, en svo mikið er víst að nú em hvergi spömð hin breiðu spjót í árásum á Preston litla Manning, en hann er mjór og lág- vaxinn með skræka rödd. Hann er brosmildur þessa daga, er býsna rökfastur og sópar að sér fylgi úr vesturhémðum og þar með ís- lendingabyggðum, einkum frá íhaldinu. Gamalt og gróið krata- fylgi NDP hleypur í staðinn yfir á Frjálslynda til þess að verja garð- ana, enda segir Chrétien með syngjandi frönskum hreim: Komið til sigurvegaranna og takið þátt í stjómmálum í stað þess að vera áhorfendur og fleygja atkvæðinu á þá sem tapa. Québec vill sjálfsstjóm Québec-búar eiga sér eigin flokk, sem eingöngu býður fram þar í sveit og heitir Bloc Québécois. Þar er í fyrirrúmi myndarkarl að nafni Lucien Bouchard og hefur nú í könnunum 13% alls fylgis, þótt ekki sé boðið fram um allt ríkið. Hann gerir þeim Campbell og Chrétien marga skráveifuna og þrátta þeir um það, Bouchard og Chrétien, hvor tali enskuna með meiri frönskuhreim og skiptir það auðvitað sköpum í þessu frönsku- mælandi héraði. Meginstefha Qué- bec-flokksins er að ná sjálfsstjóm í Québec. Ekki verður við þetta skilist án þess að minnast á ýmsa og all- marga smáflokka sem bjóða fram. Þeir fengu ekki að vera í sjónvarp- inu með stóm krökkunum, en fengu eigin tíma degi síðar. Kenn- ir þar ýmissa grasa: Kristilegur flokkur Biblíubókstafsins (hér væm engir glæpir ef Jesús Kristur væri settur í öndvegið), Marx-Len- ínistar (ó, já), Græni flokkurinn (umhverfisvænir og hatast við að leggja vegi undir blikkbeljur), Flokkur hugleiðinga og krafta- verka (sem Bárður Snæfellsás gæti verið fullsæmdur af) og nokkrir fleiri af svipuðum toga. I umræð- um leiðtoga þessara flokka kvað heldur en ekki við annan róm. Prúðmennskan uppmáluð, lítil sem engin framíköll og menn skýrðu stefnu sína af einlægni og rökfestu. Þetta var eins og ekki væri um stjórnmálafund að ræða, -n nú, enda kannski ekki um stjómmálamenn að ræða. Kanada- manni varð á orði: „Verstur skoll- inn að ekki er hægt að kjósa neinn þeirra án þess að kasta atkvæði sínu á glæ,“ enda á enginn þeirra sér nokkurt færi að spillast á þing- setu. Samtals er þeim spáð 3 af hundraði. Þegar reykinn leggur og byssum- ar hljóðna að kvöldi 25. október verða sennilega komnir nýir landsfeður og -mæður í ráðherra- stólana og að ýmsu breytt lið sem vermir þingbekkina í Ottawa. En að öðm leyti fastir liðir eins og venjulega. E. Hanson Saskatchewan, Kanada.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.