Tíminn - 12.10.1993, Síða 8
12Tíminn
Þriðjudagur 12. október 1993
Stjómmálaskóli FUF
Stjómmálaskóli Félags ungra framsóknarmanna f Reykjavfk hefst þriðjudaginn
19. október n.k. að Hafnarstræti 20, 3. hæð.
Meðal námsefnis:
Ræðumennska og fundarsköp. Leiðbeinandi Vigdls Hauksdóttir, varaformaöur
FUF Reykjavfk.
Skráning fer fram ð skrifstofu Framsóknarflokksins, sfmi 624480, fyrir föstudag-
Inn 15. október. Syómki
Vestur-Skaftfellingar
Aöalfundur framsóknarfélaganna f Vestur-Skaftafellssýslu verður haldinn I veit-
ingasalnum Ströndinnl I Vlkurskála föstudaginn 15. október Id. 21.00.
Oagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kosning fulltnja ð Kjördæmisþing.
3. Önnur mál.
Á fundinn koma Jón Helgason alþinglsmaöur og Ólafia Ingólfsdóttir, formaður
KSFS.
Nýir félagar velkomnir. Slfómin
Kópavogur—Opið hús
Opið hús veröur hjá Framsóknarflokknum I Kópavogi á laugardögum kl. 10-12
að Digranesvegi 12. Komiö og spjallið um bæjar- og landsmálin. Heitt á könn-
unni.
Mosfellsbær —
Kjalames — Kjós
Aöalfundur Framsóknarfélags Kjósarsýslu verður haldinn laugardaginn 16. októ-
ber n.k. kl. 17.00 I sal félagsins að Háholti 14 I Mosfellsbæ. Nánar auglýst slðar.
Stfómin
Suðurland
Steingrfmur
Kjördæmisþing framsóknarmanna á Suöurfandi verður haldiö laugardaginn 23.
október 1993 I Vestmannaeyjum og hefst kl. 10.00 árdegls. Dagskrá nánar aug-
lýstslöar.
Stfóm KSFS
Norðuríandskjördæmi eystra
Kjördæmisþing framsóknarmanna I Noröurfandskjördæmi eystra verður haldið
að Stórutjamaskóia f Ljósavstnshreppi laugardaginn 16. okL nk. og hefst kL
10:00 f.h. stundvtolega.
Aðaldagskrármálið verður hið alvarfega stjómmálaástand sem nú ríkir I landinu.
Steingrímur Hermannsson, formaður Framsóknarflokksins, verður gestur þings-
ins.
Formenn félaga eru hvattir til aö halda aðalfundi I félögunum og kjósa fulltrúa á
þingiö.
Kolbrún Þormóðsdóttir mun aðstoöa viö undirbúning þingsins og ber aö tilkynna
þátttöku til hennar I slma 21180, Akureyrf. Stjóm KFNE
Aðalfundur
Framsóknarfélags
Kjósarsýslu
verður haldinn I sal félagsins að Háholti 14, Mosfellsbæ,
16. október n.k. Id. 17:00.
Fundarefni:
Venjuleg aöatfundarstörf og þar með talið kjör fulltrúa á kjördæmisþing frarrv-
sóknarmanna á Reykjanesi. Framboösmál og önnur mál.
Að aöalfundi loknum veröur gert hlé til skrafs og viöræöna kl. 20:15 og þá hefst
kvöldveröur.
Gestir fundarins verða Steingrímur Hermannsson og frú Edda Guðmundsdóttir.
Fólki, sem ekki hefur tök á að mæta á aðalfund, er bent á, aö það er velkomiö
með gesti slna I hlé eftir aöalfund og sföan til kvöldveröarins.
Vrnsamlega hafið samband við Gytfa Guöjónsson (vs. 985-20042, hs. 666442)
og Sigurö Skarphéðinsson (vs. 667217 og hs. 666322). Hafiö samband fyrir
föstudagskvöld. sýómin
Framsóknarfélag Siglufjarðar
heldur aöalfund miövikudaginn 13. október kl. 20.30 aö Suðurgötu 4 Siglufiröi.
Dagskrá:
1. Aöalfundarstörf
2. Kosning fulltrúa á kjördæmisþing
3. Kosning fulltrúa á aöatfund miðstjómar Framsóknarflokksins
4. Önnur mál Stjómin.
Norðuríandskjördæmi eystra
Kjördæmisþing verður haldið 16. október næstkomandi.
Formenn félaga eru hvattir til að halda aðalfundi og kjósa fulltrúa á þingið. Dag-
skrá og fundarstaður nánar auglýst slöar.
KFNE
Aðalfundur Framsóknarfé-
lags Ámessýslu
veröur haldinn I Framsóknarhúsinu, Eyrarvegi 15, Selfossi, mánudaginn 18.
október kl. 21.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðatfundarstörf
2. Kosning fulltrúa á Kjördæmisþing
3. Önnur mál
Sjjómin
Verkafólk
Rangárvallasýslu
Aðalfundur Verkalýösfélagsins Rangæings veröur haldinn I Verkalýðshúsinu á Hellu
28. október 1993 kl. 20.30.
Venjuleg aðalfundarstörf. Stjómin
Minningartónleikar
Páll Isólfsson.
Um þcssar mundir er minnst aldar-
afmælis Páls ísólfssonar tónlistar-
manns, en hann fæddist á Stokks-
eyri 12. október 1893. Meðal atriða
af þessu tilefni voru tónleikar í ís-
lensku óperunni 9. október á veg-
um Styrktarfélags Óperunnar, þar
sem þau Ingibjörg Marteinsdóttir
sópran, Þorgeir Andrésson tenór og
Lára Rafnsdóttir píanóleikari fluttu
sönglög og þijú píanóstykki eftir
tónskáldið. Jafnframt gerði Jón
Þórarinsson tónskáld í tónleika-
skránni stutta grein fyrir ferli lista-
mannsins og verkunum sem flutt
voru.
Nú orðið er næstum ógemingur að
gera sér grein fyrir þeirri byltingu
sem orðið hefúr í tónlistarlífi íslend-
inga á þessari öld. Páll ísólfsson varð
fyrstur langskólagenginna tónlistar-
manna til að setjast að hér á landi —
Jón Leifs, jafnaldri hans og skóla-
bróðir í Leipzig, og Sveinbjöm
Sveinbjömsson störfuðu mest-
megnis erlendis. Þegar Páll kom
heim frá Þýskalandi árið 1921, há-
lærður í tónlist og organleik, biðu
hans í fyrstu ekkert nema snöp við
einkakennslu á píanó; árið 1924
varð hann stjómandi Lúðrasveitar
Reykjavíkur og 1926 organisti Frí-
kirkjunnar. Árið 1930 hlaut Páll
fyrstu verðlaun í samkeppni um Al-
þingishátíðarkantötu; það ár var
Ríkisútvarpið stofnað og Tónlistar-
skólinn í Reykjavík og varð Páll
fyrsti skólastjóri hans jafnframt því
sem hann tengdist útvarpinu órjúf-
anlegum böndum. Þegar Sigfús Ein-
arsson féll frá árið 1939 tók Páll við
stöðu organleikara Dómkirkjunnar.
Á efri ámm taldist honum svo til að
hann hefði spilað við um 2000 mess-
ur um dagana og 2500 jarðarfarir,
og að auki setið um 3000 fúndi.
A tónleikunum í íslensku ópemnni
varð okkur ljóst hve ríkan þátt Páll
ísólfsson á í þeim menningarjarð-
vegi sem vér, sem nú emm mið-
aldra, uxum upp í. Lögin hans virð-
ast oss jafn íslensk og landið sjálft.
Nú heyrast þau hins vegar tæplega
Iengur nema sem „síðasta lag fyrir
fréttir" eða óskalög í þætti Her-
manns Ragnars. Þama vom m.a.
Máríuvers úr Gullna hliðinu, Blítt er
undir björkunum, Hrosshár í
strengjum, Víst ertu, Jesú, kóngur
klár, Idagskeinsól, Kossavísur, Sá-
uð þið hana systur mína, Heyrðu
snöggvast Snati minn og Litla
kvæðið um litlu hjónin — hin síð-
astnefndu tvö sem aukalög. Flest
em þessi sönglög smágerð og þola
illa stórstöng með ógurlegu vfbra-
tói; Ingibjörgu tókst Ld. langbest
upp þegar hún skrúfaði niður í stóm
röddinni og söng með þokkafullum
hætti og áherslu á skýran textafram-
burð Kossavísumar og Litlu hjónin.
Þorgeir hefúr aðdáanlegan texta-
framburð — hjá honum skilst ævin-
lega hvert orð — og hann flutti
sönglögin yfirleitt vel, þótt röddin
mætti einhvern veginn vera liðugri
á stundum. Sennilega em bæði
hann og Ingibjörg frekar á ópemlín-
unni en í sönglögunum.
Lára Rafnsdóttir spilaði af smekk-
vísi með söngvumnum, og píanó-
stykkin þrjú op. 5, Burlesca, Inter-
mezzo, Capriccio, flutti hún mjög
vel. Lára er í stöðugri sókn sem pf-
anóleikari.
Páll ísólfsson markaði með ævi-
starfi sínu gríðarleg og varanleg
spor í tónlistarlífí íslendinga. Hans
varð hlutskipti „generalistans",
brautryðjandans sem víða þarf að
taka til hendi, og getur því ekki ein-
beitt sér að einhverju einu. Mikið
var látið af honum sem organista, og
sumir sögðu hann vera í fremstu
röð í veröldinni á því sviði — enda
er nú verið að endurútgefa orgelleik
hans á geisladiskum — en kannski
hefði hann orðið ennþá betri organ-
isti ef hann hefði einbeitt sér að því.
Sömuleiðis em tónsmíðar hans, svo
hugþekkar og ágætar sem þær em,
engin stórvirki, og reyndar er hann
bestur í smálögunum. En enginn
einn maður hefur líklega verið harð-
ari í því að halda Bach og annarri
æðri tónlist að þjóðinni, gegnum
útvarpið og Tónlistarskólann, og á
tónleikum, og enda þótt margt það
frækom hafi fallið í hrjóstmgan
jarðveg, eins og orðið „sinfóníu-
garg“ er órækastur vitnisburður
um, þá bám mörg sáðkorn hans
ávöxt í þeirri tónlistarmenningu
þjóðarinnar sem við nú njótum.
Sig. SL
Norrœnt kvennaþing í ágúst nk., Nordisk Forum:
r o
I Abo í Finnlandi
Norrænt kvennaþing um jafnréttis-
mál, Nordisk Foram, verður haldiö í
annað sinn í boði Norrænu ráðherra-
nefndarinnar í ágúst 1994. Nú hefur
þinginu verið valinn staður í Ábo í
Finnlandi og tíminn 1.-6. ágúst
1994. Fyrsta þingið var haldið í Osló
í ágúst 1988 og er meira en 800 ís-
lenskum konum minnisstætt, þar
sem þær blönduðu geði og gleði við
kynsystur sínar frá öðram Norður-
löndum.
Yfirskrift NF ‘94 er „Líf og störf
kvenna — gleði og frelsi" og mark-
miðið er sem fyrr að efla norræna
samvinnu um jafnréttismál og vekja
áhuga einstaklinga, kvennasamtaka
og yfirvalda á jafnréttismálum og
stuðla að samvinnu landanna á þessu
sviði.
íslensk undirbúningsnefnd NF hefur
þegar unnið mikið starf og er þó
meira starf framundan. Formaður
nefndarinnar er Valgerður Gunnars-
dóttir, en starfsmaður Bima Hreiðars-
dóttir sem hefur aðsetur á skrifstofu
jafnréttismála. Landsnefnd NF var
stofriuð sl. vor og er hennar hlutverk
að miðla upplýsingum og virkja „gras-
rótina" til þátttöku í Nordisk Forum.
Nú þegar er fjöldi félagasamtaka og
einstaklinga hér á landi í fullum gangi
að undirbúa íslenskt framlag á NF,
bæði á eigin vegum og í samstarfi við
aðra hópa á Norðurlöndunum.
Á NF '94 verður auðvitað mikið um
NORDISKT FORUM
, - 6 AUGUSTl 1994 • ÁBO • FINLAND
Veggspjald Nordisk Forum fyrir 1994
er eftir sænsku konuna Maivor Pers-
son. Þaö var valiö ísamkeppni, en
261 spjald barst I keppnina, alls staö-
ar aö frá Noröurlöndum.
að vera. Þar verður dagskrá á vegum
framkvæmdanefndarinnar, þar sem
m.a. verður tekið til umíjöllunar nor-
ræna velferðarkerfið, frumbyggjakon-
ur og konur í þriðja heiminum. Þá
stendur framkvæmdanefndin fyrir
vinnusemínar um kvennaþing Sam-
einuðu þjóðanna, sem haldið verður í
Peking árið 1995. Haldin verður jafn-
réttisráðstefna og sveitarstjómarráð-
stefna. Þar verður menningardagskri
Temahús verða sett upp í Ábo þar
sem svipað framlag kvenna frá Norð-
urlöndunum verður sett undir sama
þak. Þá verður komið upp temahom-
um á NF, þar sem hver sem er getur
fengið hálftíma í senn til ráðstöfunar
til að segja frá hugðarefnum sínum.
Það verður margt og mikið á boðstól-
um, ekki síst félagsskapur og skoðana-
skipti við frænkur á Norðurlöndum og
framandi gesti. Nú verður þess gætt
að hafa túlkun á ensku í boði, en fyrir
6 árum, í Ósló, mun hafa gætt nokk-
urrar óánægju kvenna frá .jaðarþjóð-
unum“ vegna tungumálaörðugleika.
Ábo er háskólabær og því mikið úrval
af gistimöguleikum á ýmsu verði.
Samið hefúr verið við Flugleiðir um
hagstæð fargjöld og ýmsir möguleikar
munu á stuðningi hagsmunafélaga.
Það þarf því hreint ekki að vera óyfir-
stíganlegur fjárhagslegur þröskuldur,
sem kemur í veg fyrir að íslenskar
konur komist til Ábo í ágústbyrjun
1994.
Kynningar- og hvatn-
ingarfundur
Sunnudaginn 24. október nk. boðar
undirbúningsnefnd NF ‘94 til opins
fundar á Hótel Borg kl. 13.00-17.00 tíl
að kynna Nordisk Forum ‘94. Þar
verður fjölbreytt dagskrá í boði, sagt
frá undirbúningi og gestír fá sýnis-
hom af því sem í boði verður í Ábo
næsta sumar.