Tíminn - 12.10.1993, Síða 9
Þriðjudagur 12. október 1993
Tíminn 13
■ DAGBÓK
Félag eldri borgara
í Reykjavík og nágrenni
Leshringur úr Sturlungu kl. 17-18.30 í
dag í Risinu, austursal.
Þriðjudagshópurinn kemur saman í
Risinu kl. 20 í kvöld. Sigvaldi stjómar.
Rabb um rannsóknir
og kvennafræði
í dag, þriðjudaginn 12. okt, mun Mar-
grét Jónsdóttir félagsfræðingur fjalla um
rannsóknir sfnar á stöðu og hlutverkum
kvenna í þremur trúarhópum á íslandi.
Rabbið, sem er á vegum Rannsóknastofu
í kvennaffæðum við Háskóla íslands,
verður í stofu 311 í Ámagarði kl. 12 til
13.
Hafnarborg:
Sýning í tilefni af 5 ára afmæli
Frá 9. til 25. október verður í Hafnarborg
sýning á verkum f eigu stofhunarinnar.
Sýningin er haldin í tilefni af því að tíu ár
eru liðin frá stofnun Hafnarborgar, en
fimm ár frá formlegri opnun hennar
1988.
Tíu ár em liðin síðan dr. Sverrir Magn-
ússon og kona hans Ingibjörg Sigurjóns-
dóttir gáfú Hafnarfjarðarbæ húseign
sína við Strandgötu, ásamt veglegu lista-
verkasafni og nokkmm bókakosti, en
með þeirri gjöf var Iagður grunnur að
Hafnarborg. Næstu fimm ámm var varið
til umfangsmikilla byggingarfram-
kvæmda og árið 1988 hófst starfsemi
Hafnarborgar af krafti í nýjum og glæsi-
legum salarkynnum. Á þeim fimm ámm,
sem sfðan em liðin, hefúr verið öflug
starfsemi í Hafnarborg, myndlistarsýn-
ingar, tónleikahald og aðrir menningar-
viðburðir.
Á þessum tímamótum hefur verið gefin
út bók sem inniheldur annál starfsem-
innar sfðustu fimm ár, auk greina sem
tengjast starfinu og skrár yfir listaverka-
eign Hafnarborgar. Fjallað er sérstaklega
um veglegar listaverkagjafir þeirra Ei-
ríks Smith og Elíasar B. Halldórssonar
og um utangarðslist Bókin er 140 blað-
síður og í henni er fjöldi mynda af lista-
verkum, bæði úr safni Haftrarborgar og
frá sýningum listamanna þar. Bókin er
hönnuð af Jóni Proppé, en flestar Ijós-
myndimar í henni tók Lárus Karl Inga-
son. Filmuvinnslu og prentun annaðist
prentsmiðjan Prisma í Hafnarfirði. Bók-
in verður til sölu í Hafnarborg.
í tilefni af því að tfu ár em liðin frá gjöf
dr. Sverris og Ingibjargar hefur stjóm
Hafnarborgar verið afhent framlag til
stofnunar minningarsjóðs um þau hjón-
in. Á bak við þetta framlag standa fimm
menn, þeir Ámi Grétar Finnsson, Einar
I. Halldórsson, Ellert Borgar Þorvalds-
son, Sveinn Guðbjartsson og Þór Gunn-
arsson, en þeir hafa lagt fé til sjóðsins
ásamt fleiri einstaklingum og fyrirtækj-
um.
Framlagi þeirra fylgir tillaga að starf-
semi og markmiði sjóðsins. Ihenni felst
að verja skuli fé úr sjóðnum til að veita
táknræna viðurkenningu til þess eða
þeirra Hafnfirðinga, sem vakið hafa verð-
skuldaða athygli á sviði lista og menn-
ingar. Viðurkenningu þessa skal veita ár
hvert við sérstaka athöfn sem haldin
verður til að minnast framlags þeirra
hjóna til menningar- og listalífs í Hafn-
arfirði.
Ferðafélag íslands:
Myndakvöld F.l. annað kvöld
Fyrsta myndakvöld vetrarins í Sóknar-
salnum, Skipholti 50a, er núna á mið-
vikudagskvöldið 13. október og hefst það
stundvíslega kl. 20.30. Fyrir hlé verða
sýndar myndir úr einni vinsælustu sum-
arleyfisferðinni, Árbókarferðinni „Við
rætur Vatnajökuls", sem farin var 7.-11.
júlí á slóðir Árbókarinnar 1993. Farar-
stjóramir Ámi Bjömsson og Hjalti Krist-
geirsson kynna. Eftir hlé sýnir Höskuld-
ur Jónsson myndir einnig af svæði Ár-
bókarinnan Skaftafell-Kjós. Skemmtileg
myndasýning af landsvæði sem á sér fáa
lfka hvað fegurð og fjölbreytni í náttúm-
fari snertir. Allir velkomnir, félagar sem
aðrir. Góðar kaffiveitingar í hléi. Að-
gangseyrir 500 kr. (kaffi og meðlæti inni-
falið). Fjölmennið!
Borgaraleg ferming vorið 1994
Skráning er hafin á námskeið til undir-
búnings borgaralegri fermingu vorið
1994. Siðmennt stendur að námskeið-
inu, sem undanfarin ár.
Upplýsingar veittar hjá Siðmennt (sjá
símaskrá).
Kínverskir tónlistarmenn
með fom hljóðfæri
Dagana 7.-19. október verða fimm kín-
verskir hljóðfæraleikarar hér á landi á
vegum KÍM, Kfnversk-íslenska menn-
ingarfélagsins, í tilefni af 40 ára aftnæli
þess. Þeir hafa meðferðis þjóðleg kín-
versk hljóðfæri fom, það elsta, Sheng
sem er einskonar munnorgel, á sér sögu
frá því um 1600 f.Kr. Hin hljóðfærin eru
yngri, Dizl, bambus-þverflauta, er um
2000 ára gömul, Pípa, fjögurra strengja
lúta, um 1300 ára gömul, Eihu, tveggja
strengja fiðla, á sér 1200 ára sögu.
Yngsta hljóðfærið f hópnum er Yanqin,
eins konar „dulcimer", sem barst til Kína
nýlega, eða á 16. öld, með arabískum
kaupmönnum. Allir hljóðfæraleikaramir
em sérfræðingar í kínverskri tónlist,
hver á sitt hljóðfæri.
Næstu tónleikar þeirra verða í dag,
þriðjudag, á ísafirði. 15. október liggur
Ieið þeirra til Akraness og 16. október að
Revkholti f Borgarfirði.
Á eftiisskránni em þjóðlög frá ýmsum
hémðum í Kína og Mongólfu, ýmist fyrir
einleikshljóðfæri eða öll hljóðfærin sam-
an. Þjóðlögin bera falleg og Ijóðræn nöfn
á borð við Hundmð fúgla tilbiðja fuglinn
Fönix, Regndropar falla á bananalauf og
Dansandi gullsnákur.
Heimsókn þeirra til íslands er skipu-
lögð af Vináttustofnuninni í Peking með
aðstoð kínverska sendiráðsins í Reykja-
vík.
Eiginkona mln, móöir, tengdamóöir og amma
Sigurveig Ástgeirsdóttir
Kvlsthaga 8, Reykjavík
er lést f Landspltalanum aö morgni 5. október verður jarösungin frá Nes-
kirkju miövikudaginn 13. októberkl. 13.30.
Þorstelnn Finnbogason
Ástgeir Þorstelnsson Ambjörg Siguröardóttlr
Finnboai J. Þorsteinsson Sjöfn Ágústsdóttlr
Kristfn Á. Þorsteinsdóttlr
Amdís Þoretelnsdóttir Sólmundur Björgvinsson
og bamaböm
__________________________/
Elskulegur eiginmaöur minn, fósturfaöir, tengdafaðir, afi og langafi
Torfi Sigurðsson
Mánaskál, Laxárdal
andaöist á Landspitalanum 9. október. Jaröarförín fer fram frá Höskulds-
staöakirkju laugardaginn 16. októberkl. 14.00
Agnes Slgurðardóttir
Guðni Agnareson Ágústa Hálfdánar
Agnar Guðnason
bamaböm og bamabamaböm
______________________ J
Michael Aspel er framarlega f flokki morgunkaffisgestgjafa, sem hvetja kaffineytendur til að láta eitthvað af hendi
rakna til söfnunar góðgerðasjóös til baráttu gegn krabbameini. Smáupphæð fyrir hvern bolla og undirskriftalistum
verður komið á framfæri við Heimsmetabók Guinness, enda er hér um heimsframtak að ræða.
v ' - V:
Morgunstund gefur gull í mund
— og nú á morgunkaffibollinn að gera það líka!
Mörg er fjáröflunarleiðin og góðu
málefnin eru óteljandi. Nýlega var
herferð hafin í Bretlandi til að
safna fé til sjóðs hjúkrunarkvenna
sem berst gegn krabbameini og
var þá lögð aðaláherslan á kaffi-
neytendur, að þeir létu eitthvað af
hendi rakna til sjóðsins í hvert
sinn sem þeir fengju sér kaffi-
bollal Það fylgdi fréttinni af þessu
framtaki að ætlunin væri að fara
sömu leið til fláröflunar um heim
allan og undirskriftalistum með
nöfnum þeirra, sem leggja sitt af
mörkum til góðs málefnis í hvert
sinn sem þeir njóta kaffibolla, yrði
komið á framfæri við Heimsmeta-
bók Guinness.
Augljósir boðberar boðskaparins
voru þeir sem sjá um vinsæla
morgunþætti í útvarpi og sjón-
varpi, einmitt þegar fólk er að
reyna að baksa við að koma sér í
stand til að horfast í augu við
komandi dag með kaffibolla. í
Bretlandi létu því ekki sitt eftir
liggja frægar persónur eins og Mi-
chael Aspel, Jenny Seagrove, Ga-
brielle Drake og Chris Tarrant,
m.a. En það hefur líka áreiðanlega
munað um þátttöku heils árs-
þings Verkamannaflokksins og
Brixton-fangelsisins!
ÞÆR SETTU SVIP A 20. OLDINA
JACQUELINE ONASSIS
Síðar þekkti allur heimur hana
einfaldlega sem „Jackie". Jacque-
line Lee Bouvier fæddist í Sout-
hampton, New York, 1929. Hún
var ástríðufullt, uppreisnargjarnt
bam sem dáðist að öllum dýrum,
sérstaklega hundum og hestum,
og hún varð afburða hestakona
sem sjá má á myndinni. Jacque-
line fékk ung stúlka starf við
Washington Time-Herald, fyrst
sem ljósmyndari, en varð síðar
fréttamaður. Og 1952, þegar hún
starfaði enn sem Ijósmyndari fyrir
Times-Herald, var hún send til að
taka myndir af öldungadeildar-
þingmanninum frá Massachu-
setts, John F. Kennedy. Ári síðar
vom þau gift. Þeim fæddust þrjú
börn, Caroline (f. 1957), John (f.
1960) og Patrick, sem dó tveim
dögum eftir fæðinguna 1963. Þeg-
ar JFK varð forseti, beindi nýja
forsetafrúin athyglinni sérstak-
lega að því að endurskipuleggja
Hvíta húsið og vinna að fram-
gangi alls kyns listtjáningar. Hún
fylgdi manni sínum á ferðum
hans og sat við hlið hans í bílnum
þegar hann var skotinn 1963.
Bandaríkin, já segja má öll heims-
byggðin, og Jackie urðu fyrir
skelfilegu áfalli. Fimm árum síðar
giftist Jackie gríska auðjöfrinum
Aristotle Onassis, en hann dó
1975. Eiginmenn Jackie Onassis
hafa ekki orðið fleiri.