Tíminn - 27.11.1993, Blaðsíða 9

Tíminn - 27.11.1993, Blaðsíða 9
Laugardagur 27. nóvember 1993 Sakamál Þegar Lacombe vissi hver beið hans varð hann hissa. Sam Lancer var einn af fyrr- um félögum hans, miðlari eins og nann hafói sjálfur verið, en beir höfóu ákveðið að hafa ekki frekari sam- skipti. Hann gæfti sín ekki og gekk út úr húsi.nu. U.þ.b. 15 sekúndum seinna heyrði Monica byssuhvell. Hún hraðaði sér að glugganum og sá kærastann sinn falla á gangstéttina. S COTT LACOMBE vissi að sér hefðu orðið á mistök, en vonaðist til að fá tæki- færi til að finna leið út úr sínum vandamálum. Hann hafði verið handtekinn í Maine í janúar 1985 fyrir að dreifa fíkniefnum, aðallega kókaíni. Það sem hafði rekið Lacombe út í slíka iðju, var svipað og hjá flest- um öðrum; miklir peningar og auðvelt að komast í vímu. Hann hafði vaðið um í villu og svíma og áttaði sig ekki á afglöpum sínum fyrr en handjárnin lokuðust um úlniði hans og fangelsisrimlarnir undirstrikuðu frelsissviptinguna. Þá komst hann að því að „vinir* hans voru engir vinir, eftir að hann hafði verið handtekinn. Ákæruvaldið gaf honum einn kost. Ef hann vildi ekki eyða lung- anum úr ævinni innan fangelsis- veggjanna varð hann að hjálpa yf- irvöldum að koma upp um eitur- lyfjahringinn, sem talið var að teygði anga sína víða og hefði mikil umsvif. Lacombe tók tilboðinu og veitti lögreglunni upplýsingar sem leid- du til handtöku Daniels Tin, sem álitinn var höfuðpaur kókaíns- hringsins. Lacombe var ekki stolt- ur yfir framkomu sinni, en löng- um hefur helsta von lögreglunnar til að uppræta slíka eiturlyfja- hringi, falist í framburði „smápeð- anna'. Til að mynda hafði komist upp um Lacombe og 19 aðra miðl- ara þegar einn af snuðrurum lög- reglunnar kjaftaði frá starfsemi þeirra. Vitni tortímt 2. júlí 1985 voru Lacombe og vinkona hans, Monica Sloan, að eyða síðustu stundunum saman, áður en framtíð Lacombe yrði ráð- in af yfirvöldum. Það voru minna en 12 klukkustundir þangað til Lacombe átti að mæta á fund dómara sem skera átti úr um hvort fangelsisvistin yrði skilorðsbundm eða ekki. Klukkan níu um kvöldið, settust þau í stofunni hjá Monicu og fóru að horfa á bíómynd í sjónvarpinu. Nokkrum míútum seinna tók Monica eftir bíl sem renndi inn innkeyrsluna. Hún fór út til að at- huga málið. í bílnum sat einn maður sem Monica kannaðist ekki við að hafa séð. Harin skrúfaði niður rúðuna og kynnti sig sem Sam Lancer. Hann sagði Monicu að hann vildi eiga eitt orð við Lacombe varðandi réttarhöldin. Monica spurði hvort hann vildi koma inn en maðurinn sagðist frekar vilja hitta Lacombe utan dyra. Þegar Lacombe vissi hver beið hans varð hann hissa. Sam Lancer var einn af fyrrum „kollegum' hans, miðlari eins og hann hafði sjálfur verið, en þeir höfðu ákveð- ið að hafa ekki frekari samskipti. Hann gætti sín ekki og hélt til fundar við fyrrum félaga sinn. Scott Lacombe. Hann galt fyrir vitneskju sína með lífi sínu. Joel Fuller var sérhæfður í só&alegum verkum. Hann fékk vel borgað fyrir en mikið vill meira. U.þ.b. 15 sekúndum seinna heyrði Monica byssuhvell. Hún hraðaði sér að glugganum og sá kærastann sinn falla á gangstéttina. Hún hljóp strax út en bíllinn yfirgaf vettvang á mikilli ferð. Monica sá strax að Lacombe var illa særður. Han hafði verið skot- inn af stuttu færi með haglabyssu og það var stórt gat á höfði hans og hálsi. Hn reyndi að segja eitt- hvað hugheystandi við Lacombe, en hann andaðist nokkrum sek- úndum seinna í örmum hennar. Rangur grunur Stanley Cunningham fulltrúi var skipaður yfirmaður rannsóknar- innar. Á meðan menn hans unnu sín störf reyndi hann að yfirheyra Monicu Sloan en hún var í miklu sjokki. Hún var alblóðug og grét í sífellu en Cunningham vissi að það gat skipt sköpum fyrir lausn málsins að hún skýrði sem fyrst frá því sem hún hafði séð. Eftir nokkrar árangurslausar tilraunir stundi Monica upp nafni morð- ingjans. Hún lýsti útliti hans og gat einnig gefið þokkalega lýsingu á bílnum. Þegar Cunningham spurði hvort hún hefði séð í hvaða átt bíllinn hefði ekið, hrundi hún saman og henni var komið undir læknishendur. Cunningham og menn hans hröðuðu sér til heimilis Sams Lancer og vöktu hann upp. Hann bar af sér allar sakir og fannst fáránlegt að hann væri sakaður um morð. Þegar Cunningham bar saman útlitslýsingu Monicu við hinn rétta Sam Lancer, sá hann að einhver var að koma sökinni á saklausan mann. Auk .þss var Lancer með gilda fjarvistarsönnun. Þar með var skýrt að nafn Sams Lancer hafði verið notað sem tál- beita til að fá Lacombe út úr hús- inu. Cunningham benti hins vegar á líklegan aðila sem hægt væri að „kaupa til að gera hvað sem er', Joel Fuller. Útlitslýsingin passaði við hann, hann var viðriðinn eit- urlyfjasöluna og næsta skref Cunningham var að hafa uppi á honum. Vantaði herslumuninn Fuller hafði tvisvar verið ákærð- ur fyrir morð en vegna skorts á sönnunargögnum hafði honum verið sleppt í bæði skiptin. Megin- skýringin var sú að hann átti vini á æðstu stöðum og þeir höfðu staðið á bak við fjarvistarsannanir og annað slíkt. Innan við tveimur tímur eftir morðið hafði lögreglan uppi á bíl Fullers. Hann hafði lagt honum utan við kaffinhús og sat sjálfur inni og drakk bjór. Lögreglan skoðaði bflinn í krók og kima en fann ekkert athugavert og við svo búið var ákveðið að fylgjast með Fuller en láta ekki strax til skarar skríða. Árla næsta morguns var Monica kölluð til að skoða myndir. Af u.þ.b. 50 myndum sem henni voru sýndar valdi hún eina úr, mynd af Joel Fuller, en gat samt ekki verið viss um að hann væri morðinginn. Það voru Cunningham og mönn- um hans nokkur vonbrigði að hún skyldi ekki treysta sér 100% að bera kennsl á manninn því ef ein- hver vafi væri á að Fuller væri sá seki, mundi verjandi hans tæta Monicu í sig og málið myndi ekki standast fyrir rétti. Fuller var tekinn til yfirheyrslu auk þess sem leit var gerð í hýbýl- um hans. Ekkert fannst sem benti til sektar hans. Tekið var húðsýni til að reyna að finna púðurleifar (iðulega gert við morðrannsóknir) en niðurstaðan var neikvæð. Lacomber hafði verið myrtur með afsagaðri haglabyssu en ekk- ert vopn fannst, ekkert blóð eða nokkuð annað haldbært. Fuller hélt ákveðið fram sakleysi sínu og málið leit illa út í augum Cunning- ham. Daginn eftir voru þeir yfirheyrðir sem þekktu best til Fuller. Sam Lancer sagðist hafa hitt hann dag- inn eftir og þá hefði Fuller sagt að hann „hefði verk að vinna' en slikar staðhæfingar stoða lítið fyrir rétti. Vitnin á kaffihúsinu báru að Fuller hefði fyrst sést um hálftíu kvöldið áður en samkvæmt út- eikningum lögreglunnar var vel mögulegt að komast frá morð- staðnum að kaffihúsinu á 15 mín- útum. Cunningham fór til emb- ættis saksóknara með þessi veiku gögn í höndunum en eins og hann bjóst við var málinu vísað frá. Frekari sannanir þurfti til. Mánuðir liðu og hvorki gekk né rak. Að lokum var málið saltað niður í skúffu en Cunningham vann á bak við tjöldin að rann- sókn málsins, emda þekktur fyrir að gefast ekki upp. En það sem máli skipti fyrir var að aðalvitnið í eitulyfjamálinu var horfið, og því neyddist lögreglan til að sleppa hinum grunaða höfuðpaur, Daniel Tinn, úr haldi. Flóttatilraunin Um mitt sumar 1987 var Cunn- ingham settur í fangelsi fyrir vopn- að rán og fékk þá 7 ára dóm. Hann sat inni í 1 ár en gerði þá tilraun til stroks sem misheppnaðist. Klefafé- lagi hans sem tók þátt í tilrauninni var yfirheyrður vegna flóttatil- raunarinnar og hann var reiðubú- inn til að tala, ekki um flóttann heldur morðið á Scott Lacombe. Fuller hafði notað tímann í fanels- inu til að hreykja sér af „morðinu sem gerði hann að milljónamær- ingi'. Hann hafði fengið hvorki meira en minna en 200.000 doll- ara fyrir að „afmá' aðalvitnið í dópmálinu, Scott Lacombe. Sá sem réð hann til verksins var Daniel Tinn. Máhð var tekið upp og aftur var Daniel Tinn fangelsaður. Veijendur Tinns og Fullers héldu því fram að ekki væri hægt að taka málið upp vegna framburðar sam- fanga. {fyrsta lagi væri vætti hans vafasamt og í öðru lagi væri mögulegt að fanginn hefði spunn- ið upp söguna til að fá eigin refs- ingu mildaða. Á meðan lögmenn þrefuðu um þessi atriði var ákveð- ið að flytja Fuller í annað fangelsi af ótta við að honum yrði komið fyrir kattarnef með svipuðum hætti og Sam. Jótning Fuller virtist flutningunum feg- inn. Þegar á hann var gengið kikn- aði hann undan margra mánaða álagi og sagði alla sólarsöguna. Hann játaði að hafa drepið Scott Lacombe fyrir stórfé, greitt af Daniel Tinn. Síðar hafði hann gerst ágjarn og reynt að kúga Tinn til að láta sig hafa meira fé. Tinn brást ókvæða við og eftir það ótt- aðist Fuller um líf sitt og það var orsökin fyrir flóttatilrauninni að hans sögn. Loksins var hæft að fullnægja réttlætinu. Cunningham og ætt- ingjar Lacombe fögnuðu sigri réttvísinnar en kannski skipti mestu máli að játning Fullers sannaði sekt Daniels Tinn. Ekki er enn búið að dæma í máli hans en talið er fullvíst að tími hans sem eiturlyfjabaróns sé liðinn.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.