Tíminn - 13.04.1994, Qupperneq 4

Tíminn - 13.04.1994, Qupperneq 4
4 i? Miövikudagur 1B. apríl 1994' STOFNAÐUR 1 7. MARS 1 91 7 Útgáfufélag: Tímamót hf. Ritstjóri: Jón Kristjánsson Ritstjórn og auglýsingar: Stakkholti 4, 105 Reykjavík Inngangur frá Brautarholti. Sími: 631600 Símbréf: 16270 Pósthólf 5210, 125 Reykjavík Setning og umbrot: Tæknideild Tímans Prentun: Prentsmibja Frjálsrar fjölmiölunar hf. Mánabaráskrift 1400 kr. m/vsk. Verb í lausasölu 125 kr. m/vsk. Regnhlífarmaburinn Kosningaáróður Sjálfstæbisflokksins í borginni tekur á sig skringilegustu myndir. í sjónvarps- fréttum á mánudagskvöldið mátti sjá borgar- stjórann í Reykjavík hálfloppinn á bekk á Ægis- síðunni með stóra regnhlíf til þess að hlífa sér fyrir útsynningséljunum. Nokkrir úlpuklæddir blaðamenn sátu andspænis honum, álíka loppnir. Engu var líkara en hér væri um gjörn- inga að ræða, eða það sem á ensku máli heitir „happening", en nóbelsskáldið Halldór Kiljan Laxness gaf það ágæta íslenska nafn „uppá- koma". Hins vegar var hér um að ræða blaðamanna- fund þar sem hinn nýi borgarstjóri var að kynna kosningaloforð Sjálfstæðisflokksins í borgar- stjómarkosningunum sem framundan eru. Hið íslenska veðurfar gerði uppákomuna hjákátlega í meira lagi. Það, sem er sérkennilegt við kosningaloforðin fyrir þessar kosningar, er að ríkisvaldinu er ætlað að greiða þau að stómm hluta. Þar er um að ræba vegaframkvæmdir og framkvæmdir við barnaspítala við Landspítalann, sem lofað er að leggja í 100 milljónir króna, og lengingu fæð- ingarorlofs. Það er auðvitað skiljanlegt í þessu tilfelli, þegar mikið liggur við að gefa kosningaloforð, að rík- isvaldinu sé ætlað að borga. Fjárhagur borgar- sjóðs er ekki þannig að hann standi undir öllum þeim loforðum sem gefin vom á Ægissíðunni og fleimm sem væntanleg em. Ummæli Árna Sig- fússonar um ab hann hefbi rætt þessi mál við viðkomandi ráðherra og undirtektir verið góðar vökm vissulega athygli. Það sýnir að ráðherrar Sjálfstæðisflokksins í ríkisstjórn em í viðræðum um ab greiða kosningaloforð Sjálfstæðisflokks- ins í höfuðborginni, án þess að hafa til þess nokkurt umboö frá Alþingi sem fer með fjár- hagsmálefni ríkisins. Borgarstjórnarmeirihlutinn veit ekki sitt rjúk- andi ráð. Ottinn við að missa völdin er slíkur að það er gripið til hinna furðulegustu aðferða til þess að reyna að snúa taflinu við. Blaðamanna- fundur regnhlífarmannsins á Ægissíðunni er til vitnis um þessa örvæntingu. í kosningabarátt- unni núna leggja borgarstjórinn og borgar- stjómarmeirihlutinn ofurkapp á að sýnast „fjöl- skylduvænir". Skrifstofa borgarstjóra í ráðhús- inu þykir ekki nógu „fjölskylduvæn" fyrir blaða- mannafundi af þessu tagi. Bmblið er svo nálægt þar. Hins vegar em fjölmargar spurningar sem verð- ur ab svara í kosningabaráttunni. Á að halda hinu lokaða stjómskipulagi í borginni? Em einkavæðingaráformin gleymd og grafin? Eiga útboð framkvæmda að vera hálflokuð áfram? Þessar og miklu fleiri spurningar krefjast svara. Tilraun Áma Sigfússonar til þess að draga ríkis- valdib inn í kosningabaráttuna í Reykjavík er mjög athyglisverð og þab má áreiöanlega búast við tíbindum af þeim samstarfsvettvangi, ef að líkum lætur. Hetjudabir og axarsköft Það er einkennilega holur hljómur í gleði Sighvats Björg- vinssonar og Morgunblaðsins vegna mikils spamaðar stjóm- valda í heilbrigðismálum. Morgublaðið skrifar um þennan spamaðarárangur í leiðara í gær og Sighvatur ræddi hann í Ríkis- útvarpinu, og á báðum stöðum er mikið úr því gert að spamað- ur sjúkratrygginga nam rúmum 900 milljónum milli áranna 1992 og 1993. Þaö er í rauninni grátlegt að horfa upp á það hvemig ríkis- stjómin og talsmenn hennar treysta á ab minnisleysi lands- manna, tímaskortur eða jafnvel áhugaleysi verði til þess ab fólk meðtaki gagnrýnislaust þann áróður sem að því er réttur. Þannig er þab sameiginlegt í málflutningi Sighvats og Morg- unblabsins að mikið er gert úr því að „árangur hafi náðst í spamaði" og látið í það skína, einkum hjá Sighvati, að þessi ár- angur sýni meö einhverjum hætti ab gagnrýni stjómarand- stæðinga hafi með einhverjum hætti veriö óréttmæt eba ekki átt við rök að styðjast. ímynd búin til Hér em vitaskuld á ferðinni ósvífnar sögufalsanir, sem miða að því að búa til nýja, en út- hugsaða ímynd úr þriggja ára flumbmgangi og axarsköftum ríkisstjómarinnar. Þessi ímynd felst í því að draga upp mynd af ríkisstjóm sem þorði að gera óvinsæla hluti, en skilar líka ár- angri. Sannleikurinn er nefni- lega sá aö „árangurinn", sem náöst hefur í sparnaði í heil- brigðiskerfinu, er ekkert svar við þeirri gagnrýni og þeim óvin- sældum sem ríkisstjómin er bú- in að afla sér. Enginn efast um að ríkissjóður hefur borgað minna í heilbrigðisþjóustu en ábur, en heilbrigöisþjónustan hefur hins vegar ekki orðið að sama skapi ódýrari. Meginskýr- ingin á „spamaði" ríkisins er að nú er búið að snúa upp á hend- ina á sjúklingum og þeir em látnir borga brúsann í miklu rík- ari mæli en áður þekktist. Það GARRI var þetta sem gagnrýnt var á sínum tíma og þau vinnubrögb, sem viðhöfð vom vib að koma þessum breytingum í kring. Sjúklingaskattar Garri minnist þess ekki ab hafa heyrt stjómarandstæðinga eða launþegasamtök efast um að nýir sjúklingaskattar í formi aukinnar kostnaðarþátttöku al- mennings myndi spara ríkis- sjóði útgjöld. Gagnrýni þessara aðila beindist að því að verið væri að færa kostnaðinn af heil- brigöiskerfinu frá sameiginleg- um sjóðum landsmanna yfir á sjúklinga og að það væri meira að segja gert án þess að bráð- nauðsynlegur undirbúningur slíkrar tilfærslu hefði farib fram. Niðurstaða útgjaldareiknings sjúkratrygginga í fyrra gefur alls ekki raunhæfa mynd af því hvort tekist hefur að spara í heilbrigðiskerfinu eða ekki. Þar er abeins fjallað um útgjöld rík- issjóðs, sem veröur sífellt minni hluti heildarútgjaldanna. Að- gerðir ríkisvaldsins til raunvem- legs spamaöar í heilbrigðiskerf- inu, sambærilegar við þær að- gerðir sem fyrrverandi ríkis- stjóm beitti sér fyrir — þ.e. með því ab láta sjúklinga njóta sömu kjara og áður, en knýja fram spamað í kerfinu — hafa verib teljandi á fingrum annarrar handar. Guðmundur Bjamason, al- þingismaöur og fyrrverandi heilbrigbisráðherra, hefur bent á það að ef rökum Morgun- blaðsins og Sighvats er beitt til hins ýtrasta, er leikur einn að spara svo mikið í heilbrigbis- kerfinu aö útgjöld sjúkratrygg- inga yrðu nánast engin. Aðeins þurfi að flytja allan kostnað yfir á sjúklinga og þá kosti heil- brigðiskerfið sama og ekki neitt! Slíkt væri vitaskuld pólitísk ákvörðun á sama hátt og það var pólitísk ákvörðun aö „spara" í heilbrigðiskerfinu með því að láta sjúklinga borga meira. Tilraunir Sighvats og Morgun- blabsins til aö búa til hetjudáö úr axarsköftum og tilfærslu á út- gjöldum er því ósmekkleg. Og þó minni almennings kunni að vera stutt, er nánast ósvífni aö búast við að þessu hafi menn gleymt nú þegar. Garrí Hausavíxl Flestir fögnuðu þegar sovéski kommúnisminn geispaði gol- unni og töldu þar með að betri og umfram allt friðvænlegri framtíð væri fyrir höndum. Vígbúnaðarkapphlaupið rén- aöi og hemaðarbandalag kommaríkjanna lognaðist útaf og herforingjar áttu í mestu vandræðum með að finna sér óvini. Svo vom haldnar fyrstu lýð- ræðislegu kosningarnar í Rúss- landi undir eftirliti Ólafs Ragn- ars alþingismanns og Magnús- ar Öskarssonar, þáverandi borgarlögmanns, og fleiri mætra manna sem kunna á lýðræði. Er ekki aö orðlengja það að flokkur Zhírinovskíjs vann stærsta kosningasigurinn og er stærsti flokkurinn á rúss- neska þinginu. En enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur, því allt fór í bál og brand í mörgum fyrrver- andi sovétlýðvelda og horfir nú ófriðlegar í Evrópu en um langt skeið. Sökudólgar fundnir Leiötogi stærsta flokks Rúss- lands hefur mjög sérstæðan stíl í umgengni við aðra stjóm- málamenn, ekki síst þá sem búa utan móðurlands hans, sem manni skilst að nái langt inn í flest eða öll lönd um- hverfis heilaga jörð Rússlands. Þau landamæri ætlar leiðtog- inn ab lagfæra við fyrsta tæki- færi. Þessi sérstæði stjórnmálamab- ur er burtrækur úr mörgum þjóðlöndum og þykir ekki í húsum hæfur fyrir dólgshátt. Zhirlnovikl kaiuöl gnil og gr|0(l I nömimonn il gyölngmultum iom olndu Ul motmaU tyrtr uUn ruianaiku raölimannMk/Uiloiuru I Straiborg I gair. Hmamyd lUuUr Zhirínovskí 1 Strasborg: Hrækti og kastaði í ræöu, sem hann flutti á Evr- ópuþinginu í Strassborg í fyrra- dag, hótabi hann ab láta kasta sprengjum á borgir í vestan- verðri álfunni, ef menn héldu sig ekki á mottunni gagnvart Rússum og vildarvinum þeirra. En aðalásökunin, sem hann bar upp á vesturálfumenn, var að hafa fundið upp kommún- ismann og neytt honum upp á Rússa, að manni skilst helst til að útrýma þeim. A víbavangi Ljóst má vera að það er vand- lifað í henni veröld. Fyrir að- eins örfáum árum stóbu Vest- urlandamenn gráir fyrir jám- um til að forðast útbreiðslu kommúnismans frá austri og var hvergi til sparað að hafa ógnarjafnvægi sem ógurlegast. Hættan stafaði frá heims- valdasinnuðum sovéskum kommúnistum. En nú kemur hótunin að aust- an um að setja stórar bombur á borgir Vestur-Evrópu fyrir að hafa innleitt kommúnismann yfir Ráðstjómarríkin fyrrver- andi. En sósíalisminn á upptök sín í vestasta hluta álfunnar. Hvar er söguskoðunin? Nú væri fróðlegt að heyra hvab marxískir fræðimenn hafa um þessa breyttu stöðu að segja. Ein- hvers staöar hljóta þeir að vera, því ekki er langt síðan þab úði og grúði af þeim á málþingum og í ritverkum. Voru þeir bæði gáf- aðri og fróðari en aðrir menn og svo þekktu þeir svo afskaplega vel framvindu sögunnar, því marxísk söguskoðun var einn grundvallarþáttur vísindaiðkana þeirra. Og svo höfðu þeir stjóm á sögunni — sögöu þeir. Þeir, sem aðhylltust marxisma, deildu því með Zhirínovskíj að vera í nöp við stjómarhætti fyrir vestan gamla og gauðrifna járn- tjaldiö, en endaskipti hafa að öðm leyti orðiö á afstöðunni. Herskáir Sovétmenn hótuðu áð- ur fýrr ab beita hervaldi til ab frelsa Vesturlönd undir komm- únismann, en nú ætlar sigurveg- ari fyrstu lýöræðislegu kosning- anna í Rússlandi að beita valdi um álfuna vestanveröa til aö hefna fyrir að menn þar um slóð- ir tróðu kommúnismanum upp á Rússa og fleiri þjóðir austur þar. Eins og nú standa sakir, er erfitt ab sjá hvort er lakari skyssa að koma kommúnisma á eða af- nema hann. En austur í álfu virð- ist vera sama hvaba stórvand- ræði steöja aö, allt er Vestur-Evr- ópumönnum að kenna og er sökudólgaima að leita meðal þeirra. Það eiga Zhirínovskíj og gömlu kommamir sameiginlegt, eins og kannski svo margt annað. OÓ

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.