Tíminn - 13.04.1994, Síða 5

Tíminn - 13.04.1994, Síða 5
Miðvikudagur 1>Bu aprfl 1994 5 Jóhanna Long: Örugg störf sjúkraliða aö liggur fyrir ab lagt veröi fram á Alþingi frumvarp heilbrigðisrábherra í níu greinum um sjúkraliða. Seinni liður í fimmtu grein þessa frum- varps hefur valdið nokkrum titr- ingi meðal hjúkrunarfræðinga. Meirihluti nefndarinnar sem samdi frumvarpið, tveir frá heil- brigðisráðuneytinu og tveir frá Sjúkraliðafélaginu, mælir með þessari grein allri. Minnihlutinn, sem samanstendur af tveimur hjúkrunarfræðingum, er á móti seinni lið fimmtu greinarinnar, sem hljóðar þannig í heild sinni samkvæmt tillögu meirihlutans: Sjúkraliði starfar á hjúkrunar- sviði og vitinur undir stjóm þess hjúkmnarfrceðings sem fer með stjóm viðkomandi stofhunar, deildar eða hjúkmnareiningar og ber ábyrgð á störfum sínum gagn- vart honum. Sjúkraliði starfar á lœkninga- sviði samkvœmt fyrirmœlum, undir handleiðslu og á ábyrgð lœknis eða sérfrceðings, að svo miklu leyti sem sltk störfem ekki falin öðmm með lögum eða reglu- gerðum. „Margir sjúkraliðar vinna þessi störfí dag og hafa hjúkrunarfrœðingar ekki amast við því, svo framarlega sem þeir kalli sig ekki sjúkraliða við þessi störf, heldur aðstoð- arfólk, þ.e. hjúkrunar- frœðingamir em andvígir því að sjúkraliðar starfi sem stétt íþessum stöif- um." VETTVANGUR Ekki ógnvekjandi fyrir hjúkrunarfræðinga Mér finnst þessi grein alls ekkert ógnvekjandi fyrir hjúknmarfræð- inga. Þau störf, sem um er að ræöa, eru t.d. á heilsugæslustöðv- um og má nefna í því sambandi aðstoð við gifsvinnu, sótthreins- im og pökkun áhalda, móttöku á sýnum og sendingu á þeim til rannsóknar, töku hjartalínurita, vinnu á röntgenstofu og aðstoð við forvarnarstörf. Enn fremur er um að ræða þátttöku í heima- hjúkrrm, sem er orðin stór þáttur í heilsugæslu. Af nógu er aö taka. Margir sjúkraliðar vinna þessi störf I dag og hafa hjúkmnarfræö- ingar ekki amast við því, svo framarlega sem þeir kalli sig ekki sjúkraliða við þessi störf, heldur aðstoðarfólk, þ.e. hjúkrunarfræð- ingamir em andvígir því aö sjúkraliðar starfi sem stétt í þess- um störfum. Gjörbreytingar á 28 árum Þegar sjúkraliðar komu fyrst til starfa 1966, fyrir 28 ámm, vom þeir hugsaðir sem aðstoðarstétt hjúkmnarfræðinga og em þannig enn þann dag í dag og vissulega munu sjúkraliöar koma til með að vinna mest undir stjóm hjúkmn- arfræðinga áfram. En er ekki eðli- leg þróun í nútíma þjóöfélagi að starfsvettvangur stétta breytist á 28 ámm? Að minnsta kosti hefur starfssviö og menntun hjúkmnar- fræðinga vissulega breyst mikið á þessu sama tímabili frá 1966. Breytingamar hafa skapað þeim ný verkefni, jafnvel utan sjúkra- húsa og heilsugæslustöðva, s.s. ýmis forvamarstörf sem em þýð- ingarmikil í dag. Þess vegna hefur skapast viss ekla í þjónustustörf- um á heilsugæslustöðvum sem falla vel að menntun sjúkraliöa, sem einnig hefur lengst og breyst síðastliðin 28 ár. Samkvæmt lagafmmvarpinu komum við til með að starfa und- ir stjóm einhvers aðila: læknis, hjúkrunarfræöings, ljósmóður (við aðstoð við mæðravemd og ungbamaeftirlit) eða jafnvel tannlæknis. Sömuleiðis gætu sjúkra- og iðjuþjálfar nýtt sér sjúkraliða til aðstoðar. í framtíð- inni mætti bæta inn í nám sjúkra- liða fögum sem miðuðu ákveðið að vinnu hjá sjúkra- og iöjuþjálf- um. Hér er einvörðungu verið aö tala um breiðari starfsvettvang en ekki aukið valdssvið, eins og kemur líka vel fram í seinni lið fimmtu greinar hér að ofan, „að svo miklu leyti sem slík störf em ekki falin öðmm með lögum og reglugerð- um". Á engum yrði brotiö. Tölur sýna glöggt að sjúkraliðastöðum hefur fækkað smátt og smátt á stóm sjúkrahúsunum í Reykjavík og e.t.v. víðar, en stöðum hjúkr- imarfræðinga hefur fjölgað á sama tíma. Er ekki eðlilegt í ljósi þessa að sjúkraliðar vilji sjá fram á tryggan, ákveðinn starfsvettvang að loknu námi sínu? Höfundur er sjúkralibi. Sigurgeir Jónsson: Nytjastofnar á Islandsmiöum eru sameign íslensku þjóöarinnar Enginn efast um það, að væri ekki fiskur í hafinu umhverf- is ísland, þá væm lífskjör hér á landi með öðrum og vetri hætti en nú er. Þá uppbyggingu, sem orðið hefur í landinu allt frá miðri nítjándu öld, má að miklu leyti rekja til aukinna fiskveiða og -vinnslu. Um aldamótin síðustu, þegar vemlegur kraftur komst í fiskveiðar íslendinga, þá fylgdist það að, aukin atvinna og krafan um fullt sjálfstæði handa fólkinu sem byggði landið. Á þeim tíma var lítill auður í landinu og lítib um stórefna- menn eba fyrirtæki. Aröurinn hafði fram aö þeim tíma verið fluttur úr landi, mest til Dan- merkur. Upp úr aldamótunum síöustu vom breskir togarar uppi í landsteinum, hirtu aðeins kola og hentu hinu. Á þessari útgerð var stórgróöi fyrir eigenduma. Hún malaði þeim gull, á sama tíma og fólkiö í landinu var atvinnulaust og hafði vart í sig eða á. Það var gæfa íslands að á þeim tíma var ekki komið á þaö kerfi sem nú gildir á miðunum vib landið og á að reyna að rígbinda enn frekar. Með því hefðu Bretar öðlast eignarrétt — kallast afnota- réttur á tungumáli sægreifanna — og vart sleppt tangarhaldi sínu á þeim til fólksins í landinu. ísland hefði á þann hátt oröiö eins og hvert annað lénsland útlendinga. í dag er þessi hætta vissulega fyr- ir hendi, en nú em sægreifamir notaðir sem leppar fyrir erienda lénsherra og þurfa að greiöa þeim skatt, sem tekinn er úr sameigin- legri auölind íslensku þjóðarinn- ar, og ef ekki er greitt er fólkið í landinu fyrsti veðréttur. Kvótakerfiö í þeirri umræðu, sem nú fer fram um vanda Vestfirðinga, þá virðist það gjörsamlega hafa farið fram- hjá einstaka abilum, sem um mál- ið hafa fjallað, ef til vill af ráðnum hug, að vandi Vestfirðinga stafar fyrst og fremst af því að þeirra út- gerö hefur miðast viö það ab koma með nýjan fisk í land og vinna hann í vestfirskum fisk- vinnsluhúsum. Stefna Vestfirð- inga hefur ekki verið stefna verk- smiðjuskipasægreifanna. Stefna greifanna er í stuttu máli eftirfar- andi: a. enginn afli til vinnslu í landi; b. gerum fiskvinnsluhús byggðar- lagsins verðlaus; c. gemm fólkið í landinu atvinnu- laust. Einhver rekur upp bofs og spyr, á ekki að stöðva þetta? Svör verk- smiðjuskipasægreifanna era skýr: Okkar fyrirtæki em nánast þau einu sem skila „hagnaði"! Ég spyr: Er það réttlætanlegt að hagnaður, sem fenginn er úr sameiginlegri auölind allrar þjóðarinnar, skili sér allur í vasa leppa erlendra lénsherra? Nei og aftur nei. Áður en þetta dæmi er gert upp, er þaö krafa mín til Alþingis Islendinga að verksmiðjuskipasægreifarnir greiði tjónið sem verður þegar þeir framfylgja stefnu sinni, sem greint var frá hver er hér að ofan. VETTVANGUR „í dag er þessi hœtta vissulega fyrir hendi, en nú em sœgreifamir not- aðir sem leppar fyrir er- lenda lénsherra og þurfa að greiða þeim skatt, sem tekinn er úr sameigin- legri auðlind íslensku þjóðarinnar, og efekki er greitt er fólkið í landinu fyrsti veðréttur." Hiö sama gildir raunar um allt land, nema hjá þeim vinnslum sem láta kvótalausa sjómenn veiöa fyrir sig á þrælakjörum. Líka stendur sú vinnsla vel, sem fær nýjan fisk daglega og flytur hann út með flugi eða í lofttæmdum umbúðum. Eins og fyrr segir, þá vom hér breskir togarar upp úr aldamótum sem aðeins hirtu kola og fleygðu hinu. Síöan var siglt út og aflinn seldur. Hvernig skyldi líf í þessu landi vera núna, ef þessi stefna hefði haldið áfram? Að öllum Iík- indum væri ekki um neina byggð í landinu að ræba, utan nokkra embættismenn Bretadrottningar í Reykjavík og á Akureyri. Það kvótakerfi, sem nú er viö lýði í botnfisktegundum, hefur enga kosti, en marga galla. Þessir em helstir: - Það eyðir byggð í landinu. - Það sópar þjóðarauðnum á fárra hendur og síðan úr landi. - Þab gerir þá fátæku fátækari. - Það skapar atvinnuleysi. - Það eyðir smábátaútgerð, sem þó landar öllum sínum afla nýj- um innanlands. - Það hefur drepiö skipasmíðaibn- aðinn. - Þjóðin í heild verður fátækari, þó einn græði. Þetta em aðeins fáir gallar þessa kvótakerfis sem hægt væri að telja upp, en rétt er að benda á þann gafia við þetta kerfi sem verstur er. Því hefur verið haldið fram að kerfið byggöi upp þorskstofninn. í því sambandi er rétt að benda á að sxunrið 1993, eftir að HAFRÓ lokaði svæði fyrir togveiðum til langs tíma út af Vestfjörðum, þá ætluðu tveir eigendur kerfisins, annar á Skagaströnd, hinn á Ak- ureyri, vitlausir að verða. Sögðu þeir að þeir hefðu staöið í þeirri trú aö kvótakerfið væri þannig að þeir mættu veiða því sem næst hvar sem væri, hvenær sem væri, með hvaöa veiðarfæri sem væri og bættu síðan við: eins og þeir höfðu gert hingað til. Reyndar þurftí HAFRÓ að fá leyfi hjá LÍÚ til að loka togslóðinni og fékkst það vegna þess að LÍÚ taldi að ekki borgaöi sig að skarka þar lengur, enda var það svo að ágangur á togslóö jókst í öfugu hlutfalli við aflann. Vemdun í þeirra huga á einungis við þegar smábátaveiðar em annars vegar. Þaö mætti svo vera HAFRÓ um- hugsunarefni hvort heppilegt sé að tvístra fiski í æti, kannski tak- mörkuöu, eða veiða þorsk á leiö á hrygningarstöðvar, öfugt viö það sem gert er við lax. Ef þorskstofn- inn er í sókn, þá er það ekki vegna kvótakerfis fiskihagfræöinnar, þab er ekki kerfi fiskvemdar held- ur kerfi lénsherranna. Höfundur er sjómabur.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.