Tíminn - 13.04.1994, Blaðsíða 8

Tíminn - 13.04.1994, Blaðsíða 8
8 Mi&vikudagur 13. april 1994 Framhaldsskólamót Skeibdrottning íslendinga, Sigrún Brynjarsdóttir, fer hér mikinn á Ljúf. Er tilhlökkunarefni oð sjá þennan snjalla Ak- ureyring á Landsmótinu ísumar. Framhaldsskólamótiö í hesta- íþróttum var haldið um helg- ina og þótti takast mjög vel. Framkvæmd mótsins var sér- staklega rómuö af þul mótsins, Einari Ragnarssyni, en í for- keppninni voru t.d. þrír nem- endur dæmdir í einu. Sögöust dómaramir bókstaflega hafa mokað mótinu áfram, en það stóö í þrjá daga með um 100 keppendur hvaöanæva af landinu. Ósagt skal látið hvort prófdómarar í munnlegum prófum við framhaldsskólana taki upp þennan þrennusið- sjálfsagt gengju stúdentspróf- in hraðar fyrir sig þannig og óneitanlega einstök tilfinning að láta moka sér í stúdentinn. Hvað Guðna Guðmundssyni rektor og þeim háu herrum þætti um slíkt, skal þó ósagt látið, en altjent saknaði yðar einlægur vinningshafa úr sín- um gamla skóla, MR, í þessari einni elstu íþrótt mannkyns- ins — reiðlistinni. Helstu úrslit uröu: 4- gangur: Hákon Pétursson ÍR á Neró, Anna Björk Ólafs- dóttir FLB á Óði, Amar Grant VMA á Leikni, Maríanna Gunnarsdóttir VÍ á Garra og Sigrún Brynjarsdóttir VMA á Brynjari. 5- gangur: Sigrún Brynjars- dóttir VMA á Ljúf, Höröur Hermannsson ÍR á Mekki, Edda Rún Ragnarsdóttir FB á Sindra, Hákon Pétursson ÍR á Kalsa og Þóra Brynjarsdóttir FS á Fiðringi. Tölt: Amar Grant VMA á Leikni, íris Björk Hafsteins- dóttir MH á Gleði, Berglind Ámadóttir FÁ á Össuri, Anna Björk Ólafsdóttir FLB á Óði og Hákon Pétursson ÍR á Neró. Amar Grant sigraði í íslenskri tvíkeppni meö 113,91 stig og hestur hans, Leiknir frá Amar- írís Björk og Clebi ítöltinu. stööum, var valinn snyrtileg- asti hestur mótsins. Stigahæsti knapi mótsins var Hákon Pét- ursson með 146,72 stig. Sumir mœttu í kjólfötum til keppninnar. Arnar Crant og Gísli Ceir Cylfgson takast á í töltinu. Tíu efstu í S-gangi. Annríki í Fák Nú er voriö komið og allir vilja fá hestana sína jámaða á stundinni og eitthvaö þurfa gæðingamir líka að fá ofaní sig. Allt mæðir þetta á hirðum hestamannafélaganna, ekki síst hjá því stærsta, Fák í. Reykjavík. Það er einmitt yfir- hirðir Fáks, Guðmundur Valdi Einarsson, sem mundar hér jámingahamarinn góöa og fé- lagi hans, Óskar Þór Hall- grímsson, heldur löppum. Guömundur er hér með for- láta jámingahamar, sem hann segir einn af þremur fmrnein- tökum, sérstaklega hannaður af framkvæmdastjóra félags- ins, Haraldi Haraldssyni, sem hefur danskt meistarapróf í jámingum. HESTAR GUÐLAUGUR TRYGGVI KARLSSON Fróbleg rábstefna Landgræsla ríkisins, Landssam- band hestamanna, Búnaðarfé- lag íslands, Félag hrossabænda og Landbúnaðarráöuneytið blésu til málþings á föstudaginn var um landnýtingu og ímynd hestamennskunnar. Stjómend- ur þingsins vom Níels Ámi Lund, deildarstjóri í Landbún- aðarTáðuneytinu, og Sólveig Ás- geirsdóttir hjá Fáki. Meðal um- ræðuefna vom Hesturinn og landið, þar sem Sveinn Runólfs- son landgræðslustjóri flutti er- indi undir nafninu: Aðgát skal höfð í nærveru lands, og sést hann hér fremst á meðfylgjandi mynd ásamt Sveinbimi Dag- finnssyni, ráðuneytisstjóra Lbm. Einnig var fjallað um landnýtingu og varðveislu land- kosta, íslenska hrossastofninn og síðast var varpað fram spum- ingunni: Hvað getiun viö gert? Erindi á ráðstefnunni vom fjór- tán talsins og þótti hún takast með ágætum. .......V" * ■

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.