Tíminn - 13.04.1994, Side 9

Tíminn - 13.04.1994, Side 9
Mibvikudagur 13. apríl 1994 9 Bosníumúslímar sagöir ganga á lagib eftir loftárásir Nató: Viðvöran frá Clinton Reuter Michael Rose, yfirforingi gæsluliðs Sameinuöu þjóö- anna í Bosníu, sagöi í gær aö herlið Bosníumúslíma í Gor- adze hefði hafið skothríð með sprengjuvörpum á stöðvar Bo- sníu- Serba við borgina, án nokkurrar undangenginnar ögmnar af hálfu Serba. Hefðu eftirlitsmenn S.þ. í Goradze fengið fyrirmæli um aö fá Bo- sníumúslíma til að hætta skot- hríöinni. Clinton Bandaríkjaforseti beindi skömmu síöar máli sínu til Bosníumúslíma og varaði þá við því að reyna að nota loft- árásir Nató til að bæta stöðu sína hemaðarlega. Bosníu-Serbar, sem sitja um Goradze sem er á valdi ís- lamskra landa þeirra, hættu skothríð á borgina að mestu skömmu eftir hádegi í fyrra- dag. Telja ýmsir að loftárásir Nató á stöövar Serba við Gor- adze hafi valdið mestu um það. Sjálfir segja þeir að árásimar hafi ekki valdið þeim miklu tjóni, sumar af sprengjunum sem kastað var reyndust eitt- hvaö gallaöar og sprungu ekki og Radovan Karadzic, leiðtogi Bosníu-Serba, sagði að aðrar sprengjur hefðu geigað og fall- ið á miðborgina í Goradze, sem er á valdi múslíma. Ratko Mladic, yfirhershöfð- ingi Bosníu-Serba, sagði í gær að her hans hefði fyrirmæli um að skjóta niður herflugvélar Nató ef framhald yrði á árásum bandalagsins. Yfirvöld Bosníu-Serba gáfu í skyn í gær að 11 franskir hjálp- arstarfsmenn, sem yfirvöldin segja hafa reynt að smygla skotfærum til múslíma í Saraje- vo, yrðu leiddir fyrir rétt. Em hjálparstarfsmenn þessir nú í haldi hjá Bosníu-Serbum. Tals- maður Premiere Urgence, hjálparstofnunar þeirrar er mennimir 11 tilheyra, fullyrðir að ásakanimar um smyglið séu ekki á rökum reistar. Jeltsín Rússlandsforseti varaöi Vesturlönd í gær við því að reyna að leysa Bosníudeiluna með vopnavaldi, sagði að það gæti leitt til þess aö Bosníu- stríðið stæði „endalaust." Sergej Shakhraí, aðstoðarfor- sætisráðherra Rússlands, segir loftárásir Nató á Bosníu-Serba hafa orðið vatn á myllu harð- línusinnaðra andstæðinga Jelt- síns og þar með áfall fyrir lýð- ræði Rússa. Ratko Mladic t.v. og Radovan Karadzic, leiötogar Bosníu-Serba, virba fyrir sér vígstöövarnar viö Coradze ígœr. íraska Kúrdistan: Albanir saka Grikki um árás á landa- mæraverði Þýsk blaða- kona myrt Aþenuborg, Reuter Sali Berisha, forseti Albaníu, hélt því fram í gær að gríska stjómin bæri fulla ábyrgð á árás sem gerð var á albanska varð- stöö á landamærum Grikklands og Albaníu á sunnudag. Vom tveir albanskir landamæraverðir drepnir í árásinni og þrír særðir. Gríska stjómin segir þaö af og frá aö hennar menn hafi átt nokkum hlut að árásinni. Hún kvaðst í dag ætla að vísa úr landi fyrsta ritara albanska sendiráðs- ins í Aþenuborg, vegna þess að Albanir hefðu vísað úr landi ræðismanni Grikkja í Gjirokast- er í suðurhluta Albaníu. Samkomulag þessara tveggja Balkanríkja hefur versnað und- anfarið út af gríska þjóðemism- innihlutanum í Suöur-Albaníu, sem Grikkir segja Albani þrengja að, og straumi Albana til Grikklands. Hafa Albanir sótt þangaö mjög í atvinnuleit frá því aö stalínskt stjómarfar var aflagt hjá þeim 1990. ■ Salahuddin í íraska Kúrdistan, Reuter Kúrdnesk yfirvöld í Norður-ír- ak hafa handtekið tvo menn, sem að sögn yfirvaldanna myrtu þýska blaðakonu, Lissy Schmidt, og lífvörð hennar 3. þ.m. Segir Kadir Hamajane, abstoðarforstjóri Assayésh, ör- yggisþjónustu Íraks-Kúrda, að morðin hafi verið framin að skipun yfirmanns öryggis- þjónustu íraks í Kirkúk. Hafi mennimir tveir þegar játað á sig morðin. Lissy Schmidt var eini erlendi blaðamaðurinn, sem dvaldi ab staðaldri í íraska Kúrdistan. Hamajane heldur því enn- fremur fram að banamenn hennar hafi tekið þátt í árás á starfsmenn Sameinuðu þjóð- anna þarlendis fyrr í mánuðin- um. I árásinni særðust tveir starfsmannanna. Bandaríkin hafa sakaö Sadd- am Hussein íraksforseta um að hafa lagt fé til höfuðs hjálpar- starfsmönnum S.þ. og öbmm útlendingum í íraska Kúrdist- an. íraksstjóm segir það til- hæfulaust níð. ■ Finnland stefnir á PFP Helsinki, Reuter Esko Aho, forsætísráðherra Finnlands, sagöi i gær að Finnar hefðu í hyggju að taka þátt í hermálasamstarfi innan Samstarfs um frið (Partners- hip for Peace, PFP). Aðspurður kvaðst Aho ekki líta svo á aö þetta væri skref í áttina til að- ildar Finnlands að Nató. Nató kom fram með PFP fyr- ir tveimur mánuðum og bauð aðild að því öllum þeim Evr- ópuríkjum sem ekki em þegar í bandalaginu. Bandarískt sendiráð grýtt Ankara, Reuter Sendiráð Bandaríkjanna í Ank- ara, höfuðborg Tyrklands, mæltist í gær tíl þess við tyrk- nesku stjórnina að hún sæi sendiráöinu fyrir aukinni vemd og greiddi skaðabætur fyrir skemmdir sem íslamskir öfga- menn ollu á sendiráðsbygging- unni á sunnudag. Þúsundir manna undir fomstu áminnstra öfgamanna söfnuð- ust saman á sunnudag í Ankara, Istanbúl og fleiri borgum, grýttu sendiráð Bandaríkjanna í fyrr- nefndu borginni og ræðis- mannsskrifstofu þeirra í þeirri síöamefndu og festu upp tyrk- neskan fána við dyr sendiráðs- ins. Fólk þetta sagðist vera að mótmæla árásum Bosníu-Serba á borgina Goradze, sem er á valdi Bosníumúslíma. Tyrk- neskar einkasjónvarpsstöövar höföu fjallað um árásirnar á borgina og farið í sambandi með ósmáar ýkjur .■ Þjóöastríöib í Rúanda: Uppreisnarmönnum spáb sigri Einingar í skæmher Föðurlands- fylkingar Rúanda (RPF), upp- reisnarhreyfingar er hefur mikib fylgi meðal Tútsa, vom síðdegis í gær komnar inn í úthverfi Kigali, höfuöborgar landsins, og áttu þar í höggi við stjómarherinn, en í honum em ab mestu Hútúar. í raun og vem er hér um aö ræða stríö á milli þessara tveggja þjóða, en af þeim em flestir landsmanna í Mið-Afríkuríki þessu. Hútúar em miklu fjöl- mennari, en Tútsar réöu yfir þeim um langan aldur. Er fjand- skapur þjóöa þessara ekki nýr af nálinni. Enn er veriö að flytja frá Rúanda vesturlandamenn, sem þar bjuggu, en þó viröast manndráp- in þar og önnur hryðjuverk, sem stabiö hafa yfir í viku, ekki hafa komið vemlega niður á þeim, miðaö við þaö sem frést hefur. Þó vom myrtir tíu belgískir friðar- gæsluliöar í þjónustu Sameinuöu þjóðanna, ab líkindum helst vegna þess að þeir reyndu að verja Agathe Unilingyimana, for- sætisráðherra landsins, sem var myrt þegar í upphafi óaldarinn- ar. Hún var Hútúi, en hafði gagn- rýnt mjög Juvenal forseta Haby- arimana, sem einnig var af þeirri þjóð. Fylgismenn hans, flestir Hútúar, trylltust er flugvél sem hann var með var skotin niður fyrir viku og hófust handa vib ab brytja nibur (í mörgum tilfellum í orðanna bókstaflega skilningi) fólk sem þeir töldu að væri and- stætt hinum látna forseta. Urbu einkum fyrir því Tútsar en einnig margir Hútúar. Lífvörbur Habyarimana, sem í em um 2000 manns, er af sum- um sagöur hafa haft forgöngu um hrannmorðin, en aðrir stjómarhermenn, margir dmkknir, drógu ekki heldur af sér við þau og einnig tók þátt í þeim fjöldi óbreyttra Hútúa. Sagt er böm hafi drepið hvert annaö niður á götunum í Kigali og sjón- arvottar segja frá konum meb ungaböm á baki sem gengu um meö sveðjur og drápu manneskj- ur er vom ósjálfbjarga af áverk- um. Giskab hefur veriö á ab um 10.000 manns hafi verib drepnir í hrannmorðunum. Bráðabirgöaríkisstjóm, sem einkum Hútúar munu standa að, flýði frá Kigali í gær. Franskir her- foringjar þar spá RPF skjótum sigri. ■ _ Aðalfundur íslandsbanka Aðalfundur Islandsbanka hf. 1994 verður haldinn í Borgarleikhúsinu mánudaginn 25. apríl 1994 og hefst kl. 1630. 1. Dagskrá Aðalfundarstörf í samræmi við 19. grein samþykkta bankans. 2. Tillögur til breytinga á sam- þykktum bankans. 3. Önnur mál, löglega upp borin. Hluthafar sem vilja fá ákveðin mál tekin til meðferðar á fundinum, skulu í samræmi við 16. grein samþykkta bankans, gera skriflega kröfu um það til bankastjórnar, Kringlunni 7, 3. hæð, Reykjavík, í síðasta lagi föstudaginn 15. apríl næstkomandi. Framboðsfrestur til bankaráðs rennur út þriöjudaginn 19. apríl n.k. kl. 1000 fyrir hádegi. Framboðum skal skila til bankastjórnar. Atkvæðaseðlar og aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum eða umboðsmönnum þeirra í íslandsbanka hf. Ármúla 7, Reykjavík 3. hæð 19. apríl frá kl. 1015 - 1600 og 20. og 22. apríl n.k. frá kl. 915 - 1600 og á fundardegi frá kl. 915 - 1200. Ársreikningur félagsins fyrir árið 1993 sem og tillögur þær sem fyrir fundinum liggja verða hluthöfum til sýnis á sama stað frá og með mánudeginum 18. apríl næstkomandi. Hluthafar eru vinsamlegast beðnir um að vitja aögöngumiða og atkvæðaseðla sinna fyrir kl. 1200 á hádegi á fundardegi. Reykjavík, 5. apríl 1994 Bankaráð íslandsbanka hf. ISLANDSBANKI

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.