Tíminn - 26.10.1994, Qupperneq 3

Tíminn - 26.10.1994, Qupperneq 3
Mi&vikudagur 26. október 1994 3 Friörik Sophusson fjármálaráöherra: Gagnrýni knúði rábherra í ræðupúltið „Þaö er ekki markmib né stefna ríkisstjórnarinnar ab auka atvinnuleysi eöa launa- mun í landinu," sagbi Friörik Sophusson fjármálaráöherra á þingi BSRB í fyrradag. Fjármálaráöherra sá sitt óvænna og bað um að fá aö ávarpa þingfulltrúa við setn- ingu þingsins eftir aö hafa setiö undir harðri gagnrýni á efna- hagsstefnu ríkisstjórnar frá for- ystumönnum launafólks, sem voru gestir BSRB viö þingsetn- inguna. En samkvæmt dagskrá var ekki gert ráö fyrir því aö fjármálaráðherra tæki til máls viö setningu þingsins. Ráöherra sagöi aö þegar rætt væri um nýskipan í ríkisrekstri, einkavæðingu, aukin útboö, þjónustusamninga og breyt- ingar á starfsmanna- og launa- málum hjá ríkinu, þá væri þaö ekki til þess aö auka á atvinnu- leysið eða launamun, heldur til þess að ná árangri og sem mestri hagkvæmni í ríkisrekstr- inum. Opna írska meistara- mótiö í júdó: Sterkir ís- lendingar urðu fyrstir Á opna írska meistaramótinu í júdó, sem fór fram um helg- ina, slógu íslensku keppend- urnir rækilega í gegn. í sveita- keppninni varð Island í fyrsta sæti, en á eftir komu Þjóðverj- ar, Englendingar og írar. Hall- dór Hafsteinsson vann allar viöureignir sínar í opna flokknum á ippon, en slasað- ist undir lokin og þurfti að sætta sig við silfriö. Bjarni Friðriksson hljóp þá í skarðið og vann allar sínar viðureign- ir, en hann var upphaflega fararstjóri í feröinni! Atli Gylfason, sem er aöeins 16 ára, náði bronsinu í -86kg flokki, og Vignir Stefánsson hreppti gullið í -65kg flokki. Hann er aðeins 18 ára, en hann vann 9 af 10 viðureign- um sínum á ippon, fullnaöar- sigri. Ekki er hægt að segja annað en framtíðin sé björt hjá íslenskum júdómönnum eftir þennan glæsilega árang- ur. ■ Friðrik sagði að í þessum efn- um færu saman hagsmunir þeirra, seip stjórna ríkinu tíma- bundið, og starfsmanna þess. En síðast en ekki síst ættu þess- ir aðilar einnig sameiginlegra hagsmuna að gæta aö hjá rík- inu vinni hæft starfsfólk og þar sé góður starfsandi. ■ Frá setningu kirkjuþings i gœr. Tímamynd CS Róttœkar breytingar á kirkjuskipaninni til umrœbu á tuttugasta og fimmta kirkjuþingi: S j álfstæbi og ábyrgb kirkjunnar verði efld Herra Ólafur Skúlason, biskup íslands, og Þorsteinn Pálsson kirkjumálaráðherra lögðu báöir áherslu á sjálfstæði og ábyrgö kirkjunnar, í ávörpum sínum við setningu kirkjuþings í gær. Herra Ólafur Skúlason fjallaði um vald fjölmiðla í setningar- ræöu sinni og sagði þá einkum sýna áhuga á kirkjunni þegar friöur hennar væri einhverra hluta vegna rofinn, eins og síð- ustu mánuðir sýndu. Tuttugasta og fimmta kirkjuþing þjóðkirkjunnar hófst í gær með messu í Bústaðakirkju þar sem sr. Siguröur Sigurðarson vígslubiskup predikaði og þjónaði fyrir altari ásamt Þorbirni Hlyni Árnasyni biskupsritara. Helsta mál kirkjuþings að þessu sinni er frumvarp til laga um stöðu, stjórn og starfshætti ís- lensku þjóökirkjunnar. í frum- varpinu er gert ráð fyrir ab ákvörð- unarvald um skipulag og nokkru leyti fjármál kirkjunnar færist frá Alþingi og ráðuneyti til kirkjulegra stofnana. Frumvarpið felur í sér mestu breytingar á kirkjuskipan- inni sem oröiö hafa um langt ára- bil. Búist er viö að frumvarpið verði rætt á kirkjuþingi síðdegis í dag. í setningarræöu sinni sagöi bisk- up íslands aö þótt hann vildi efla sjálfstæöi kirkjunnar til aö bera fulla og endanlega ábyrgö á eigin málum, væri hann ákveöinn í stuöningi sínum við þjóökirkjufyr- irkomulagið eins og viö þekkjum það. „En vitanlega ber kirkjunni t.d. að ráða sóknaskipan sinni, prestakallaskipan og prófasts- dæma... Og sjálfsagt er það líka aö kirkjunnar menn beri fullnaðar ábyrgö á tilhögun um veitingu prestakalla og um kosningu bisk- upa og kirkjuþingsfulltrúa," sagöi biskup meðal annars. Þorsteinn Pálsson, dóms- og kirkjumálarábherra, lýsti einnig þeirri skoöun sinni að rétt sé að viðhalda þjóðkirkjuskipulagi. Hann sagðist í öllum aðalatriöum vera sammála þeirri meginstefnu, sem fram kemur í frumvarpinu um breytt skipulag kirkjunnar, og sagöist telja að skilningur ríkti á Alþingi um þær hugmyndir sem þar koma fram. Ráðherrann ítrek- abi jafnframt þá hugmynd sína að launamál presta verði þáttur í þeirri grundvallarbreytingu sem hér er veriö aö ræöa um. Herra Ólafur Skúlason biskup ræddi um fjölmiðla í setningar- ræðu sinni. Hann sagði m.a.: „Fjölmiðlar þykja oft ekki mjög samstíga kirkjunni, nema þegar þannig ber viö, að friður kirkjunn- ar er einhverra hluta vegna rofinn, svo að þeir, sem mest fjalla um æs- ing, sundrungu, jafnvel óvild og illsku, og nærast af slíku, fá gullið tækifæri. Og sýna síðustu mánuðir að slíkir sjá sér hag í því aö auka frekar við ókyrrö og fara eftir því einu, sem kitlar einkennilegar taugar og skiptir þá þjónusta við sannleikann minna máli." Biskup sagbi ab fjölmiölar væru orönir að fjóröa vaídinu í þjóöfélaginu og velti því upp hvort tími væri til kominn að biðja í almennri kirkju- bæn fyrir fjölmiðlum og þeim sem þar stjóma á sama hátt og beöiö er fyrir forseta, ríkisstjórn, Alþingi, dómendum og dómstólum. Hann sagðist þó ekki gera tillögu um aö það verði gert, þótt gaumgæfa mætti þörf „fyrir opinbera bæn og upphátt fyrir þessum áhrifavöld- um í íslensku þjóðlífi... Og mætti þá einnig bæta viö, þó ekki endi- lega upphátt, aö biöja sérstaklega fyrir þeim sem fóðra fjölmibla á hæpnum eða alröngum upplýs- ingum." ■ Irving Oil á íslandi Kanadískt fjölskyldufyrirtæki, Irving Oil Ltd., rábgerir að reisa olíubirgðastöb r Reykjavík og reka þar jafnframt öfluga dreif- ingarstöð þar sem áleitin mark- abssetning er talin koma sér vel fyrir neytendur. Þetta kemur fram í frétt sem full- trúi Irving Oil, hæstaréttarlög- maðurinn Othar Örn Petersen, sendi frá málflutningsstofu sinni í gær, en eigendur þess fyrirtækis eru m.a. hæstaréttarlögmennirnir Ragnar Aðalsteinsson, Viðar Már Matthíasson og Tryggvi Gunnars- son. DV segir frá því í gær að líkur séu á samstarfi milli Hagkaupa, Bón- us og Irving Oil, og telur það renna stoðum undir þá kenningu ab nýlega hafi Hörður Helgason, sem til skamms tíma var aðstoð- arforstjóri Olís, verið ráðinn til Hofs hf., sem er aðaleigandi Hag- kaupa og á auk þess Bónus aö hálfu á móti, Jóhannesi Jónssyni og fjölskyldu hans. Borgarráö samþykkir tillögu borgarstjóra: Nefnd gegn svartri atvinnustarfsemi Örebro hafnaöi í 2. saeti í sœnsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu: Markmibib nábist Örebro, liö þeirra Hlyns Stefáns- sonar og Árnórs Guöjohnsen, hafnaði í 2. sæti í sænsku úrvals- deiidinni í knattspyrnu, sem lauk á sunnudag. Liöið sigrabi þá Land- skrona 3-0, en á meban náöi Gautaborg 1-2 útisigri á Malmö FF, sem dugöi þeim til að hampa meistaratitlinum. Jafntefli hjá Gautaborg hefbi dugað örebro til sigurs. Arnór lagöi upp fyrsta markiö fyrir Örebro og í heildina léku íslendingarnir vel meö liöinu sem endranær. í upphafi keppnis- tímabilsins var markmiöið hjá Öre- bro að ná Evrópusæti og það tókst og mun félagið keppa í Evrópu- keppni félagsliða að ári libnu. Ab auki er þetta besti árangur Örebro til þessa í úrvalsdeildinni. Bæöi Arnór og Hlynur verða liklega meö Örebro áfram, enda frammistaða þeirra með liðinu góð í sumar og hefur reyndar Arnór verið talinn koma til greina sem knattspyrnu- maður ársins í Svíþjóð. Gautaborg fékk 54 stig, Örebro 52, Malmö 49, Norrköping 47, Öster 45, Solna 39, Halmstad 38, Degerfors 32, Hels- ingborg 32, Trelleborg 30, Frö- lunda 27, Hammarby 22, Land- skrona 17 og Hácken 14. Tvö síö- ustu liðin féllu í 1. deild. ■ Á fundi borgarráðs í gær var samþykkt tillaga borgarstjóra um að skipuð verði samstarfs- nefnd Reykjavíkurborgar, ríkis og aðila vinnumarkaðarins til að gera tillögur um fyrirbyggj- andi abgerbir gegn svartri at- vinnustarfsemi. Nefndinni er m.a. ætlað að kanna sérstaklega útboðsgögn og þær kröfur sem gerðar eru til verktaka, skil á lögbundnum gjöldum í opinbera sjóði og í sjóöi verkalýðsfélaga og sam- ræmingu á reglum og abferðum ríkis og borgar. í greinargerð með tillögunni segir að aukning á svartri at- vinnustarfsemi sé ein afleiðing versnandi atvinnuástands. Laun- þegar séu í sífellt vaxandi mæli ráðnir sem undirverktakar, en ekki teknir á launaskrá fyrir- tækja. Um leið beri þeir sjálfir ábyrgð á því að lögbundin gjöld skili sér í opinbera sjóöi, en á því sé mikill misbrestur. Mikil um- ræða hafi átt sér stað að undan- förnu um svarta atvinnustarf- semi og þvr verið haldiö fram ab um milljaröa vanskil sé aö ræöa. Borgarstjóri telur eðlilegt að borgaryfirvöld hafi forgöngu um að leita leiöa til úrbóta í þessum efnum, enda sé Reykjavíkurborg stærsti útboðsaðilinn á höfuð- borgarsvæðinu auk þess sem af- leiðingar erfiðs atvinnuástands bitni harkalega á íbúum hennar. Borgarstjóri tilnefnir einn full- trúa í nefndina, Innkaupastofn- un Reykjavíkurborgar einn full- trúa og óskað verður tilnefningar tveggja fulltrúa frá fjármálaráðu- neyti þar sem annar komi frá embætti skattrannsóknarstjóra. Þá verður óskað tilnefningar eins fulltrúa eftirtalinna aöila: ASÍ, VSÍ og Verkamannafélagsins Dagsbrúnar. ■

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.