Tíminn - 26.10.1994, Qupperneq 11
Mi&vikudagur 26. október 1994
11
Félag ísl. leikskólakennara:
Krefst jafn-
ari tekju-
skiptingar
í kjaramálaályktun 6. haust-
þings Félags íslenskra leik-
skólakennara, sem haldiö
var í sl. viku, er krafist jafn-
ari tekjuskiptingar og a&
kjör launafólks ver&i lei&rétt
vi& ger& næstu kjarasamn-
inga.
Þá mótmælir þingib harölega
abför ríkisvaldsins aö velferð-
arkerfinu. Að mati þingsins
hafa síðustu ár einkennst af
þjóöarsátt og málamiðlunar-
tillögum, sem áttu að leiða til
stöðugleika í þjóðfélaginu.
Þingið telur að sá stöðugleiki
hafi falið í sér hækkun skatta,
lækkun barnabóta, auknum
álögum á aldraða og sjúka,
minnkandi kaupmætti og
auknu atvinnuleysi. Þingið
skorar á stjórnvöld að snúa af
þessari óheillabraut og efla
velferðarkerfið, hækka skatt-
leysismörk og taka á skattsvik-
um og því siðleysi sem við-
gengst víða í þjóðfélaginu.
Skífan gefur út:
Þó líði ár og öld
— tvöfalda geislaplötu meö mörgum vinsœlustu lög-
um Björgvins Halldórssonar
í ár eru li&in 25 ár frá því
Björgvin Halldórsson söng
sitt fyrsta lag inn á hljóm-
plötu. Þa& var lagiö Þó líöi ár
og öld. Á þessum aldarfjórö-
ungi hefur Björgvin sungiö á
4. hundraö lög inn á íslensk-
ar hljómplötur, og hann hef-
ur veriö vi&ri&inn upptökur
á tæplega 600 lögum. Þaö er
því sannarlega kominn tími
til a& líta yfir farinn veg.
Á þessari tvöföldu geislaplötu
er að finna 40 af. vinsælustu
lögum Björgvins. Flest eru þau
sígild orðin og nægir að nefna
lög á borð við Þó líði ár og öld,
Tœtum og tryllum, Eg las það í
Samúel, Gullvagninn, Ævintýri,
Eina ósk, Ástin, Ég lifi í draumi,
Riddari götunnar og Ég er ennþá
þessi asni. Plötunni fylgir
skemmtilegur inngangur eftir
Jónatan Garðarsson um feril
Björgvins, ítarlegar upplýsing-
ar um öll lögin og fjölmargar
ljósmyndir frá síðustu 25 ár-
um.
Þess má loks geta að sett hef-
ur verið upp sérstök skemmt-
un á Hótel Islandi, sem byggir
á ferli Björgvins og ber sama
nafn og platan.
Úr Snædrottningunni. Sögumaðurinn, sem leikinn er af Hilmi Snœ Gubnasyni, sést hér segja Rœningjadótturinni,
sem leikin er af Steinunni Ólínu Þorsteinsdóttur, sögu.
Nýtt barnaleikrit:
Ný hljóöfœraverslun
Tónabúðin Akureyri hefur opnab útibú oð Laugavegi 163, Reykja-
vík (á horni Laugavegar og Höfðatúns/Skúlagötu). Þar fæst mikið
úrval af hljóðfœrum, mögnurum og hljóðkerfum. Starfsmenn eru
þeir Ágúst Atlason og jón Ingólfsson og síminn er 24515.
Snædrottningin frum-
sýnd í Þjóðleikhúsinu
ríkin út?
Deyja
Market Forces and World Develop-
ment, ritstýrt af René Prendergast og
Frances Stewart. St. Martin's Press (og
Macmillan), 217 bls., £45.
VIÐSKIPTI
„Kaldhæðni er, að hin fleyga
forsögn Leníns — að ríkið
muni deyja út — virðist vera
að rætast, þótt ekki alveg að
þeim hætti, sem hann sá fyrir.
I ritgerðasafni þessu er athygli
beint að því, að vegur ríkisins
hefur verið fallandi um árabil.
í flestum ritgerðanna ellefu í
safni þessu er reynt að sýna
fram á snögga bletti á þeirri
röksemd, aö frjálst markaös-
kerfi sé þróunarlöndum líkleg-
ast til árangurs." Svo segir í rit-
dómi FT Review of Business
Books 15. mars 1994.
„Frá 1970 til 1989 hafa lönd
meb tekjuhæstu 20% jarðar-
búa aukið hlut sinn í heildar-
tekjum heimsins úr 74% í
89%, en hlutur hinna meb
tekjulægstu 20% jarðarbúa
hefur fallið niður í 1,5%. Jafn-
framt hefur tekjumunur og fá-
tækt vaxið víðast í Subur-Am-
eríku og Afríku ... Bókin geym-
ir ábendingar þess, að heimur-
inn hrópi síður á minni stjórn
en betri stjórn."
Skattavinjar
Tax Flavens and Thelr Uses, eftir Caro-
line Doggart. Economist Intelligence
Unit, 183 bls., £75.
„Handbók þessi — rituö á ljósu
máli, sem minnir á Economist —
er ágætur inngangur a& þessum
hlutum ... m.a. ab sögu skatta-
vinja, skráningu fyrirtækja í þeim
og tekjuskatti fyrirtækja og ein-
staklinga og stö&u gagnvart öðr-
um skattayfirvöldum." Svo segir í
ritdómi FT Review of Business
Books 15. mars 1994.
„Sviss var& fyrsta skattavinin, að
vir&ist. Campione á landamærum
þess og Ítalíu varö að skattavin,
þar eö bæöi löndin báöust undan
fjárhagslegri forsjá þess. Minerva
á milli Tonga og Fiji varö fyrir
skömmu aö fyrstu neðansjávar
skattavininni. Enginn skattur er á
Ascension-eyju og aöeins 4%
skattur á Svalbarba, sem tilheyrir
Noregi."
„Doggart hefur á lista sínum
nokkra óvænta aðila: Frakkland
og Ítalíu í Evrópu í sumu tilliti og
jafnvel Bandaríkin fyrir marga
Evrópubúa sakir tiltölulega lágs
skatts sambandsríkisins. ... Þar e&
praktískar rábleggingar hafa for-
gang í handbókinni, er henni
þröngur stakkur skorinn. Gagn
hefði veriö ab meira lesefni um
aðhald a& skattavinjum, en það er
breytingum undirorpiö, og hver
framtíö þeim er búin, þar eð
breytingar em að verða á álagn-
ingu og innheimtu skatta víða
um heim." ■
í dag, mi&vikudaginn 26.
október, frumsýnir Þjó&leik-
húsi& barnaleikriti& Snæ-
drottninguna eftir Evgení
Schwartz, sem byggt er á
samnefndu ævintýri eftir
H.C. Andersen. Snædrottn-
ingin var fyrsta barnaleikrit-
i& sem sýnt var í Þjó&leik-
húsinu, áriö 1951, og er nú
sýnt í nýrri mynd.
Gerða og Kári búa í sátt og
samlyndi hjá ömmu sinni þar
til Snædrottningin birtist
óvænt, hneppir Kára í álög og
lokkar hann til sín. Gerða litla
heldur af stað út í hina víðu
veröld í leit að Kára, með
hjartahlýjuna eina að vopni.
Leit Gerðu berst víba og endar
norður á heimsenda, þar sem
Snædrottningin býr í klaka-
höli sinni. A leið sinni hittir
Gerða bæbi kynjaverur og tig-
inboriö fólk, lendir í klóm
ræningja og eignast ræningja-
stelpu að vinkonu. Við leitina
nýtur hún dyggrar aöstoðar
sögumanns þessa litríka ævin-
týris og allra þeirra nýju vina
sem hún eignast á leið sinni.
Oft er Gerða í miklum háska
stödd og útlitiö svart, en allt
fer þó vel að lokum og kærleik-
urinn sigrar ískalda klakaver-
öld Snædrottningarinnar.
Ný blóma- og gjafavöru-
verslun:
Ís-Blóm
Ný blóma- og gjafavöruverslun
hefur opnab ab Háaleitisbraut
58-60, Ís-Blóm. Boðið er upp á
skreytingar við öll tækifæri og
bestu gæði í blómum, sem völ
er á. Afskorin blóm, pottaplönt-
ur og gjafavörur.
Eigandi er Ragnar Stefánsson,
til þjónustu reiðubúinn. „Okkar
blóm fyrir ykkur" er mottó
verslunarinnar.
Síminn er 883344.