Tíminn - 26.10.1994, Page 16
Vebrib í dag (Byggt á spá Veburstofu kl. 16.30 í gær)
Mibvikudagur 26. ágúst 1994
• Suöurland og Su&vesturmit), Faxaflói og Faxaflóamib: Norb-
austan kaldi og léttir heldur til, er líbur á daginn.
• Vestfirbir til Norburiands eystra, Norbvesturmib og Norbaust-
urmib: Allhvpss norbaustan átt á mibum og annesjum, en hægari í
innsveitum. El.
• Austurland ab Clettingi, Austfirbir, Austurmib og Austfjarba-
mib: Norbaustan og síbar norban átt, hvassvibri á mibum og annesj-
um, en hægari til landsins. Slydda eba rigning.
• Subausturland og Subausturmib: Norbaustan átt, hvassvibri A-
til á mibum, en annars kaldi eba stinningskaldi. Skúrir, einkum á mib-
um og annesjum.
Bœjarstjórn Hafnarfjaröar um Listahátíö Hafnarfjaröar:
Vika í gagnasöfnun áö-
ur en málið fer til RLR
Á bæjarstjórnarfundi í Hafn-
arfiröi í gær var ákvebiö aö
gefa bæjarendurskoöanda og
bæjarlögmanni eina viku til
aö afla þeirra gagna, sem tal-
iö er aö vanti til aö ljúka end-
urskoöuninni á Listahátíö
Hafnarfjaröar og fjárhags-
skuldbindingum bæjarins í
henni og aö undirbúa máliö
þannig aö hægt sé aö af-
henda þab RLR til rannsókn-
ar.
Þessi ákvörðun kom fram í til-
löguformi og segir í henni aö
enginn, sem nálægt þessu máli
hafi komiö, geti í raun firrt sig
ábyrgö, því stjórn fjármála há-
tíðarinnar hafi farið gjörsam-
lega úr böndum.
Eins og fram hefur komiö í
Tímanum, hefur bæjarstjórinn
lýst því yfir aö bæjaryfirvöld
vilji ekki flana ab neinu.
í sérstakri bókun, sem bæjar-
fulltrúar Alþýðuflokksins
lögðu fram á fundinum, kom
fram að þeir telja þaö meö ólík-
indum hversu miklu moldviöri
búiö væri aö þyrla upp um
störf fyrrverandi meirihluta og
veriö væri aö reyna aö koma
höggi á alþýöuflokksmenn.
Hins vegar er sagt í bókuninni
aö þeir, sem njóta framlaga úr
bæjarsjóöi, þurfi aö gera skýrar
skilagreinar og aö skoöa þurfi
mál listahátíöarinnar nánar.
Þaö flækir sérstaklega máliö í
Hafnarfiröi aö Listahátíö Hafn-
arfjaröar er hlutafélag, sem tók
að sér að sjá um listahátíðina,
en þaö var bæjarstjórinn í
Hafnarfirði sem réð Arnór Be-
nónýsson sem framkvæmda-
stjóra, og störf hans væru því á
ábyrgð þáverandi bæjaryfir-
valda. Strangt til tekið gæti því
svo fariö aö rannsókn á fjár-
málum hátíöarinnar ætti
heima hjá félagsmálaráöuneyt-
inu sem yfirvaldi sveitarstjórn-
armála, frekar en hjá RLR, en
sem kunnugt er þá er fyrrum
bæjarstjóri í Hafnarfirði ráö-
herra félagsmála. ■
Breibadalsheibin:
Snjóflóö
hrifur
tvo bíla
Stórt snjóflóð féll á tvo fólksbíla á
Breiðadalsheiöi skömmu eftir há-
degi í gær. Ökumenn og farþegar
beggja bílanna sluppu meö
minniháttar meiösli, en snjóflóð-
ið hreif bílana meö sér niður
snarbratta hlíöina, annan um 70
metra og hinn öllu lengra. Alls
voru sex manns í bílunum tveim-
ur, í öörum var aðeins ökumaður,
en í hinum voru þrír fullorðnir og
tvö börn. Bíllinn, sem fólkið meö
börnin var í, haföi fest sig á heið-
inni og var aö bíöa eftir aðstoö
þegar flóðið féll.
Þriöji bíllinn rétt slapp viö flóð-
iö, en hann var í útjaöri þess þeg-
ar þaö dundi niður hlíðina. ■
Umrœba utan dagskrár um fjársvelti Háskóla íslands:
Efasemdir um gæbi
háskólanáms í H.í.
Stjórnarandstaöan óttast aö
niöurskuröur á fjárveitingum
til Háskóla íslands hafi leitt til
þess aö Háskóiinn sé orbinn
annars flokks menntastofnun
í samanburði viö háskóla er-
lendis. Menntamálaráöherra
vísar þessu á bug.
Þetta kom fram í umræðum ut-
an dagskrár um Háskóla íslands,
sem efnt var til í gær að beiðni
Valgerðar Sverrisdóttur, þing-
manns Noröurlandskjördæmis
eystra. Svavar Gestsson, fyrrver-
andi menntamálaráðherra, sagöi
Ólaf G. Einarsson menntamála-
ráðherra ekki bera skynbragö á
þaö sem raunverulega væri aö
gerast innan Hákskólans, sem
væri nú þegar á góðri leið meö
aö veröa annars flokks stofnun.
Svavar sagöi þaö sömuleiðis
staöreynd aö ménntun á há-
skólastigi væri aö flytjast úr
landi.
Menntamálaráðherra hafnaöi
staðhæfingum Svavars, en tók
jafnframt fram aö hann vildi
gjarnan breyta forgangsrööun á
fjármunum þannig að meira af
fjárlögum ríkisins rynni til
menntamála.
Valgeröur Sverrisdóttir benti á
að þrátt fyrir aö forsætisráðherra
talaöi um bata í efnahagslífinu,
þyrfti Háskólinn nú aö búa viö
raunlækkun á framlögum. Á síö-
ustu sjö árum hefur nemendum
viö Háskóla íslands fjölgað um
50%, en raunlækkun framlags
frá ríkinu hefur á sama tíma ver-
ib 1,5%. ■
Þormóbur rammi hf. á
Siglufirbi:
Hagnabur
fyrstu átta
mánubina
Reksturinn hefur gengiö vel
hjá Þormóbi ramma hf. á
Siglufiröi þaö sem af er þessu
ári. Hagnaöur varö fyrstu átta
mánuöina upp á 50,5 milljónir
króna, en veltan á tímabilinu
var rétt rúmur milljaröur. Velt-
an er svipub og hún var á sama
tíma í fyrra, en þá var hagnaö-
urinn rétt tæpar 70 milljónir
króna. Reksturinn er því á
svipubu róii í ár og í fyrra.
Eigiö fé Þormóbs ramma er nú
613 milljónir króna og nettó-
skuldir um 784 milljónir. Eigin-
fjárhlutfallið er 32,5% og veltu-
fjárhlutfall 1,65.
Rækjuveiðar og -vinnsla hefur
veriö buröarásinn í rekstri fyrir-
tækisins og var hlutfall rækju í
veltunni um 60% fyrstu átta
mánuðina. Bolfiskvinnslan hef-
ur hins vegar veriö að dragast
saman vegna kvótasamdráttar. ■
jólasveinninn kominn
Þó enn squ tveir mánubir til jóla er jólasveinninn kominn í glugg-
ann hjá Islenskum heimilisibnábi í mibþœ Reykjavíkur. Þetta er ör-
lítib fyrr en undanfarin ár, en þeir hjá Islenskum heimilisibnabi
segjast stilla jólasveininum upp betta snemma til ab minna fólk á
aosenda jólapakkana til útlanaa tímanlega. rímamynd cs
Útvarpsstjórinn
og píslarvotturinn
lllugi Iökulsson, Heimir Steinsson og Hannes Hólmsteinn Cissurarson sátu
í gær fyrir svörum á fundi Vöku um dagskrárstefnu Ríkisútvarpsins. Sigurb-
ur C. Tómasson, dagskrárstjóri Rásar 2, var einnig bobabur á fundinn, en
mœtti ekki. Heimir Steinsson varb þvíab svara fyrir brottvikningu llluga
og Hannesar. rímamynd c5
íslenskar sjávarafurbir:
Hlutafé
Landsbank-
ans selt
Talsmenn Framleiðenda hf.,
þeir Friðrik Gubmundsson hjá
Tanga á Vopnafirði og Einar
Svansson hjá FISK á Sauðár-
króki, tilkynntu sendu í gær frá
sér tilkynningu um aö Fram-
leiðendur hf. hafi keypt 19,1%
hlutabréfanna í íslenskum
sjávarafurðum af Regin hf.,
sem er eignarhaldsfélag Lands-
bankans. Framleiðendur hf. er
félag framleiöenda sem starfa
innan vébanda íslenskra sjáv-
arafurða. ■
BEINN SIMI
AFGREIÐSLU
TÍMANS ER
631 • 631