Tíminn - 11.02.1995, Qupperneq 1
STOFNAÐUR 1917
79. árgangur Laugardagur 11. febrúar 1995 .30. tölublaö 1995
Samningar um Hval-
fjaröargöng vel á veg
komnir:
Göngin fyrir
þingflokkana
eftir helgi
Tillaga til þingsályktunar um
samning á milli samgönguráö-
herra og Spalar hf. um gerö
jaröganga undir Hvalfjörö verö-
ur lögö fyrir þingflokka á Al-
þingi eftir helgi. I>etta er gert til
þess aö unnt sé aö ganga frá
samningum um framkvæmdir,
en þeir eru vel á veg komnir.
Máliö var kynnt af sam-
gönguráöherra á ríkisstjórnar-
fundi. Samningstextinn hefur
tekiö lítillegum breytingum frá
upprunalegu uppkasti, m.a.
vegna Evrópska efnahagssvæö-
ísins.
Veröbólgufiörings fariö
aö gaeta meöal inn-
lendra framleiöenda?
Matur hækkar
Verö á matar og drykkjarvörum
var 1,5% hærra í byrjun febrúar
en í janúarbyrjun, til viöbótar
1,8% hækkun sem þá haföi orö-
iö frá byrjun desember, sam-
kvæmt vísitölureikningum
Hagstofunnar. Veröhækkunin í
janúar var skýrö meö ámóta
verölækkunum fyrir jólin. En
ástæöa áframhaldandi hækk-
unar núna í febrúar sýnist ekki
liggja í augum uppi. Veröhækk-
anir þessar eru aöallega á unn-
um matvælum, bæöi innlend-
um og erlendum. En verö á bú-
vörum háöum verölagsgrund-
velli (rösklega fjóröungi
matvælakaupa) hefur ekki
hækkaö undanfarna mánuöi,
og er raunar 1,5% lægra en fyr-
ir ári síöan.
Aörar innlendar mat- og
drykkjarvörur (en búvörur) eru
nú jafnaöarlega 2% dýrari en í
október, en 3,5% dýrari í nóv-
ember. Þessar vörur eru rúm-
lega helmingur allra mat- og
drykkjarvara í grundvelli fram-
færsluvísitölunnar. Innflutt
matvæli eru einnig 2% dýrari
en í október. ■
• % tým
m- • __| ✓ f ■ • Tímamynd CS
tinrœoisnerrann OQ jornkarlinn „Þá erSibasti toffarinn á Alþingi kominn á hjólib," sagbi
Þröstur Víöisson, einrœbisherra Vélhjólafélags gamlingja, þegar einn þriggja heiöursfélaga félagsins kom í heimsókn í húsakynni félagsins
ígœr. Á sínum yngri árum ók Matthías um götur ísafjarbar á mótorhjóli og samkvœmt heimildum Tímans þakkar hann hjólinu m.a.
kynni sín af eiginkonu sinni. í blaöinu í dag erítarlegt viötal viö Þröst um starfssemi félagsins og einnig viö Matthías Bjarnason um ár sín
á hjólinu. Sjá bls. 8 og 9
Langlundargeö rafiönaöarmanna á þrotum náist ekki kjarasamningar á nœstu dögum.
Rafiönaöarsambandiö:
Launakröfur hækka um 10%
semjist ekki á næstunni
Guðmundur Gunnarsson, formað-
ur Rafiönaöarsambands íslands,
segir að ef það tekst ekki að ljúka
kjarasamningum á næstu dögum
og samstaöa náist ekki með stjóm-
völdum um þær aðgerðir sem ASÍ
hefur kynnt, þá muni það óhjá-
kvæmlega leiða til þess að launa-
kröfur stéttarfélaganna hækki
verulega. Hann telur viðbúið að
launakröfur sambandsins muni
þá hækka um allt að 10%.
Formaður Rafiönaðarsam-
bandsins segir að sambandiö sé
sammála þeirri kjarajöfnunar-
stefnu sem miðar að hækkun
læstu launa og aö laun milli-
tekjufólks, eins og t.d. rafiðnaö-
Eiríkur Cuönason Seölabankastjóri segir krónuna sterka og gengishcekkun fyllilega réttlœtanlega:
Gengi krónunnar hefur hækkað
um tæplega eitt prósent
„Jú, gengi krónunnar hækkaði
um tæplega 1% frá miðvikudegi í
síöustu viku og fram á mánudag,
með markvissum inngripum
Seðlabankans, sem færði gengis-
vísitöluna (sem sýnir meðalverð
erlendra gjaldmiðla) niöur sem
þessu nemur", svaraöi Eiríkur
Guönason Seðlabankastjóri,
spurður hvort Tíminn hafi tekið
rétt eftir að verð erlendra gjald-
miöla hafi verið að lækka upp á
síökastiö og gengi íslensku krón-
unnar hafi þar meb hækkað.
Astæöuna segir Eiríkur: „Viö
emm með svokallað miðgengi,
og stefnan er sú, að halda geng-
inu þar eöa láta þaö ekki víkja
meira en 2,25% frá þessu mið-
gengi. Á millibankamarkaði
rokkar gengiö svolítiö til og frá
og gengi krónunnar haföi sigið
og færst nálægt vikmörkunum.
Með því aö taka í taumana er
Seðlabankinn að snúa þeirri þró-
un viö, og færa gengisvísitöluna
aftur nær miögengi. Þaö þýddi í
þessu tilviki, að viö þurftum aö
styrkja krónuna, hækka gengi
hennar, sem lækkar þá auðvitað
verö á erlendum gjaldmiðlum.
Viö teljum þetta fyllilega rétt-
lætanlegt. Það er ýmisslegt já-
kvætt í efnahagslífinu sem leyfir
slíka aögerö. Krónan er sterk. Það
hefur verib hagstæöur viöskipta-
jöfnuöur, stöðugleiki í verðlags-
málum og batnandi hagur hjá
ríkinu, þótt viö vildum gjarnan
sjá hann batna meira, atriöi sem
öll stuðla aö sterkum gjald-
miöli."
Spuröur hvort hækkun á gengi
krónunnar sé ekki sjaldgæft fyr-
irbæri, svaraöi Eiríkur: „Það hef-
ur örsjaldan gerst aö meö aðgerö
hafi gengi krónunnar hækkaö.
En núna erum við tiltölulega ný-
lega byrjabir aö starfa á milli-
bankamarkaöi (maí 1993) og síö-
an hefur það gerst aö gengið hef-
ur hækkaö einstaka daga, eða að
vdö höfum gripið markvisst inn
einstaka daga. En gengishækk-
unin nú er meiri en ábur hefur
gerst á jafn löngum tíma". ■
armanna hækki þá eitthvab
minna. Hann segir rafiðnabar-
menn leggja höfuöáherslu á sér-
kjarasamninga og þá einkum á
félags- og réttindaákvæðin.
„Þegar kreppir aö verða öll at-
riöi í kjarasamningum aö vera
mjög ljós og þetta eru grund-
vallaratriöi sem menn berjast
núna fyrir á öllum vígstöbv-
um." segir Guömundur.
Á fundi miðstjórnar Rafiön-
aöarsambandsins, stjórnum og
trúnabarráðum aöildarfélaga í
gær var samþykkt aö hvetja
stjórnir og trúnaðarmannaráð
abildarfélaga til aö halda fundi
og og afla heimilda til frekari
aðgerða, náist ekki fljótlega ár-
angur í yfirstandandi kjaravið-
ræöum. Á fundinum var einnig
harölega gagnrýndur sá seina-
gangur sem hefur veriö í við-
ræðum vegna endurnýjunar
kjarasamninga.
Sem dæmi þá hafa rafiðnaðar-
menn ekki enn fengiö vibræöur
um sínar kröfur hvorki við fjár-
málaráðuneyti né Reykjavíkur-
borg, þrátt fyrir aö tveir mánuð-
ir séu libnir frá því aö kröfur
þeirra voru tilbúnar. ■