Tíminn - 11.02.1995, Blaðsíða 5

Tíminn - 11.02.1995, Blaðsíða 5
Laugardagur 11. febrúar 1995 5 / Tímamynd CS Ovissutímar Jón Kristjánsson skrifar Utanríkismál skipa æ stærri sess í stjórn- málaumræöu hérlendis. Ástæðan er þær miklu breytingar, sem hafa orðið í þessum málum á undanförnum árum, bæöi al- þjóðaviðskiptum og öryggismálum. Heimsmynd eftirstríðsáranna hrundi með Berlínarmúrnum 1989 og gífurlega um- fangsmiklir samningar hafa verið gerðir á viðskiptasviðinu. Þessar breytingar hafa ekki farið framhjá okkur íslendingum. Afstaðan til viðskipta- og efnahagsbandalaga hefur verið rúmfrek í stjórnmálaumræðu síðustu árin. Kaldastríbsumræöa á Alþingi Síðastliðinn fimmtudag fór fram almenn umræða um utanríkismál á Alþingi. Þær umræður snerust að miklu leyti um fortíð- ina og þá einkum fortíö forustumarina Al- þýðubandalagsins. l>að var auðheyrt af þeim umræðum að sjálfstæðismenn og al- þýðubandalagsmenn hafa engu gleymt. l>aö verður að nægja sem innlegg í þessa umræðu frá minni hálfu, að mér finnst ein- kennilegt að þegar foringjar Alþýðubanda- lagsins ungir að árum höföu upplifað ógn- arstjórnina sem þeir lýsa í Austur-Þýska- landi, þar sem saklausir námsmenn voru hræddir um konur sínar og börn, þá skyldu þeir halda áfram ótrauðir að berjast fyrir framgangi sósíalismans eftir að heim kom. Og ekki var afstaðan til vestrænnar sam- vinnu að neinu leyti endurmetin, og lamið óspart á þeim mönnum sem voru þar í for- svari. Viðburöarík ár Ég byrjaði fyrir alvöru að fylgjast með stjórnmálaþróuninni fyrir tveimur áratug- um, og svo sannarlega hafa miklar breyt- ingar átt sér stað á þeim tíma. Þá skiptust framsóknarmenn í fylkingar með og á móti hersetu í landinu, og andstæöinga Nato mátti finna innan Framsóknarflokksins. Alþýðubandalagsmenn lágu ekki á liði sínu að skerpa þessar andstæður, ef þeir áttu nokkurn möguleika á því. Framsóknarmenn höfðu ávallt þá stefnu að halda uppi viðskiptasamböndum við ríki Austur- Évrópu, óháð því stjórnarfari sem þar var. Sannleikurinn er sá, að leiðir viöskiptanna hafa áhrif á þróunina, og harblínustefna í viðskipt- um vib Sovétríkin heföi áreiðanlega ekki flýtt fyrir falli kommúnismans. Ég man hins vegar eftir hörbum deilum um vib- skiptasamninga við þá, sem gerðir voru að frum- kvæði framsóknarmanna. Á þessum grunni byggjast samskipti okkar við Kína nú, þótt langt sé frá að þar sé allt sem skyldi hvað varðar stjórnarfar og réttindi fólksins. Leiöir vibskipta Stefna Framsóknarflokksins hefur ávallt verið sú að gera samninga um viöskipti sem víðast. Viðskipti við Evrópuþjóöir voru tryggð á sínum tíma meb svokallaðri „bókun 6", sem reyndist okkur vel um ára- bil. Á sama hátt teljum við að tryggja beri viðskipti okkar við Evrópusambandið á þeim grunni sem felst í EES- samningnum. Við teljum að aðild að því komi ekki til greina, því engin þjóð hefur samið sig frá Rómarsáttmálanum, sem samrýmist ekki fullveldi íslendinga. Sjávarútvegshagsmun- ir okkar falla engan veginn ab stefnu þess. Við studdum aöild að Alþjóbaviðskipta- stofnuninni og Gatt-samninginn meb því pólitíska samkomulagi sem nábist um það aö rústa ekki landbúnaðinn. Við leggjum á það mikla áherslu að við- I halda og efla markaðina í Bandaríkjunum og í Asíu, sem eru okkur afar mikilvægir. Samskipti okkar við Evrópuþjóðir mega ekki leggja stein í götu okkar á^þessum mörkuðum. Það veröur að vera leibarljós í stefnumótun næstu ára. Varnar- og öryggismál Umræður um utanríkismál hafa upp á síbkastið fremur snúist um viðskipti en öryggis- mál. Síðan kalda stríð- inu lauk, virðist sú um- ræða liggja nokkuð í láginni hér. Ég get ekki ab því gert, ab mér finnst stundum ríkja nokkuð fölsk öryggis- kennd hérlendis og fólk vera sannfært um það að óvinurinn sé horfinn og friöur genginn í garð. Aðstæður hafa vissulega breyst, og ekkert er sem áður. Mér finnst átök milli austurs og vesturs ekki líkleg, ef má ein- falda hlutina svo mikið. Hins vegar vekur það ugg, svo ekki sé meira sagt, þegar hlustað er á sendiherra Rússlands hérlendis lýsa hættunni á því aö kjarnorkuvopn lendi í höndunum á stríðs- herrum og jafnvel hryðjuverkamönnum í Sovétríkjunum fyrrverandi. Sú hætta vofir einnig yfir að átök fari vaxandi milli ólíkra menningarheima, milli norðurs og suðurs. Ég var fyrir ári staddur á fundi þingmanna- sambands Nato, þar sem vikið var að þess- ari hættu í fyrirlestrum, og nú nýverið gaf framkvæmdastjóri Nato yfirlýsingar um þessa hættu og mat hana til jafns við hætt- una af kommúnismanum fyrr á tíö. „Samstarf í þágu friöar" Þab er því mín sannfæring, ab við íslend- ingar verðum ab finna okkur stað í þessu umróti og verðum ab taka þátt í öryggis- samstarfi vestrænna þjóba innan Nato. Starfsemi bandalagsins mun breytast meb breyttum aðstæþum, og hún hefur gjör- breyst á fáum árum. Áætlun er í gangi um nánara samstarf við ríkin í Mið- og Austur- Evrópu. Þessi áætlun ber heitið „Samstarf í þágu friöar". Hún felur í sér samráð og samstarf við vibkomandi lönd á sviði vam- armála. Hér þarf þó að fara að öllu með gát, til þess ab skapa ekki nýjar girbingar í Evr- ópu og endurvekja andrúmsloft kalda stríbsins. Þau hörbu átök, sem nú eru innan gömlu Evrópu, eru áminning um að enn er langt frá því að fribur sé genginn í garb. Afvopn- un og slökun milli risaveldanna er mikið fagnaðarefni, en ástandið er um margt flóknara nú og meiri hætta á staöbundnum átökum. Hrærlngar í fjölmiölaheim- inum Þau tíðindi, sem gerst hafa í fjölmiðla- heiminum nú í vikunni; hafa vakib at- hygli. Þau eru ljóst dæini um þá samruna- þróun, serri víöa er að verða og ég ætla ekki að hafa mörg orð um að sinni. Þær breyt- ingar á eignarhaldi Frjálsrar fjölmiðlunar, sem skýrt hefur verið frá, þýða að Hörður Einarsson hverfur frá félaginu. Þeir Hörður og Sveinn R. Eyjólfsson voru harðir keppi- nautar í blaðaútgáfu á sínum tíma, en tóku síðan höndum saman. Um næstsíðustu áramót komu þeir á óvart með því að taka að sér útgáfu Tímans. Ég hef því átt sam- skipti við þá félaga síðasta árib, sem hafa verið mjög gób. Ég vil ekki láta hjá líða, nú þegar Hörður hættir afskiptum af Frjálsri fjölmiðlun, ab þakka honum mjög góö kynni á þeim tíma, sem vib áttum samstarf að útgáfumálum, og óska honum góbs í því sem hánn tekur sér fyrir hendur.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.