Tíminn - 11.02.1995, Side 12

Tíminn - 11.02.1995, Side 12
12 Laugardagur 11. febrúar 1995 Kjör heiburs- borgara fjarbar Bæjarstjóm Hornafjarðar hefur kosib Ásgrím Halldórsson heið- ursborgara Hornafjarðar vegna mikilvirks framlags hans til at- vinnuuppbyggingar og annarra starfa í Hornafirbi. Ásgrímur fæddist 7. febrúar 1925 og er því nýorbinn sjötug- ur. Foreldrar hans voru Halldór Ás- grímsson alþingismaður og Anna Guöný Guðmundsdóttir. Ásgrímur lauk Samvinnuskóla- prófi 1946. Hann starfaði hjá Kaupfélagi Vopnfirðinga 1946- 1953. Kaupfélagsstjóri var hann hjá Kaupfélagi Austur-Skaftfellinga frá því í mars 1953 til 1. ágúst 1975. Hann var jafnframt fram- kvæmdastjóri Fiskimjölsverk- smibju Hornafjarðar frá stofnun 1969 til 1. ágúst 1975 og Borgeyj- Homa- ar h/f frá 1953 þar til í júní 1977. Ásgrímur sat í hreppsnefnd Hafnarhrepps í 11 ár, þar af nokk- ur ár sem oddviti hreppsnefndar. Ásgrímur stofnaði fiskvinnslu- og útgerðarfélagið Skinney h/f og var framkvæmdastjóri þess fram á síðasta ár. Framlag Ásgríms til hinnar öfl- ugu atvinnuuppbyggingar, sem verið hefur í Hornafiröi á libnum áratugum, er ómetanlegt og því var samþykkt einróma í bæjar- stjórn Hornafjaröar að heiöra Ás- grím á þessum tímamótum. Eiginkona Ásgríms er Guðrún Ingólfsdóttir, sem verið hefur virk í félags- og menningarmál- um byggöarlagsins og staðið við hlið eiginmanns síns í þeim vandasömu og erfiðu störfum, sem honum hefur veriö trúab fyr- ir. ■ BEINN SÍMI: 553 U 30 ÁRMÚLA 13 • SÍMI: 568 12 00 Tökum notaða bíla sem greiðslu upp í nýja og bjóðum ýmsa aðra greiðslumöguleika. Tekið hefur verið tillit til vaxta í útreikningi á mánaðargreiðslum. Frá 677.000,- kr. 169.250,- kr. út og 17.281,- kr. í 36 mánuði. 677. Sœnskœttabir kjúklingar komnir íhús hjá Reykjabúinu. jón Magnús jónsson, sem rekur búib ásamt Gubmundi bróbur sínum, er hér ásamt 3 mánaba „Svíum", sem eru reyndar orbnir talsvert pattaralegir fuglar. Tímamynd cs Reykjabúiö — ekki Reykjagaröur: Mibstöb alifuglafram- leibslunnar í Mosfellsbæ í Mosfellsbæ er höfubborg kjúklinga- og alifuglaræktar í landinu, og þar hófst alvöru kjúklingarækt á sjöunda ára- tugnum, þegar Jón M. Gub- mundsson á Reykjum, þá odd- viti Mosfellshrepps, hóf ab framleiba holdakjúklinga, sem hlutu mikib lof á neyt- endamarkabi. Jón á Reykjum var einmitt stofnandi Reykja- búsins, sem synir hans tveir, Gubmundur og Jón Magnús, reka í dag. Reykjabúiö starfar að stærst- um hluta að ungarækt og rækt- un stofns, sem fyrirtækib selur til hænsnabúa víða um landið. Auk þess selur Reykjabúið nokk- uð af kjúkiingakjöti á veitinga- staði landsins. Reykjabúib er eini framleiðandi kalkúnakjöts á íslandi, en sala þess hefur vax- ið umtalsvert á örfáum árum og er komið inn á jólamatseðilinn hjá fjölmörgum fjölskyldum í landinu. Tvö fyrirtæki í Mosfellsbæ sinna neytendamarkaöi fyrir kjúklinga. Annab þeirra er Reykjagarður hf., sem hefur höfuðstöðvar sínar í Mosfells- bæ, en neyddist til að flytja eld- isstöðvar sínar og sláturhús austur fyrir fjall, að Ásmundar- stöðum og að Hellu. Að sögn Bjarna Ásgeirs Jónssonar, fram- kvæmdastjóra Reykjagarös hf., þótti bæjarbúum ýmsum ekki viö hæfi ab slíkur rekstur færi fram í bænum. „Þeir fluttu hingað upp í sveit, en þoldu svo ekki lyktina," sagði hann. Frystihús fyrirtækisins og sölu- starfsemi er þó í Mosfellsbæ. Eins og fram kom í Tímanum hefur Reykjagarður yfirburða- stöðu á markaðnum og hlut- deildin talin nálægt 60 prósent- um. Hitt sölufyrirtækið heitir Markaðskjúklingar hf. og selur þaö undir merkinu ísfugl. Af- urðir ísfugls koma frá allmörg- um kjúklingabændum á suð- vesturhorni landsins. Fyrirtækið rekur fullkomið sláturhús, pökkun, sölumennsku og dreif- ingu afurðanna. Ranglega var farið með nafn fyrirtækis í myndatexta meb forsíðumynd í Tímanum á þriðjudag, þegar sagt var frá nýj- um, sænskum kjúklingastofni, sem nú er kominn í stærri kjúk- lingabú landsins og góðar vonir eru bundnar vib. Þar var mynd af Jóni Magnúsi Jónssyni í Reykjabúinu, ekki Reykjagarði eins og þar stóð. Biðjumst viö velvirðingar á þessum mistök- um. ■ Macintosh Performa 475 er öflug einkatölva, sem hentar sérlega vel hvort heldur er fyrir heimili, skóla eða fyrirtæki. Hægt er að nota hana fyrir nánast allt sem viðkemur námi, starfi eða leik. Svo er hún með íslensku stýrikerfi og fjölmörgum forritum á íslensku. Macintosh Performa 475 er með 15" Apple-litaskjá, stóru hnappaborði, mús, 4 Mb vinnsluminni og 250 Mb harðdiski.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.