Tíminn - 11.02.1995, Side 14

Tíminn - 11.02.1995, Side 14
14 Hagyrðinaaþáttur Samviskan og eigandi hennar Engitm skyldi um grcesku gruna Guðmund Áma, þann heiðursmann. Hann er sáttur við samviskuna, síðan hún yfirgaf eigandann. Samverji Stóriðjuloforö Klœkjum búitm krataher kmnkar margt í laumi. Ætlar nú að eigna sér álverið í Straumi. Ópal Vegna tilmæla til hagyröinga um aö þeir yrki dýrt til aö hafa meö annaö slagiö, sendir Aöalsteinn Sigurösson eft- irfarandi sléttubönd í tilefni þess aö dag er tekiö aö lengja. Vorstemmning Fjalla andar blíður blcer, blómin landið prýða, alla grandi fcerir fjœr fyrða landsins blíða. Aftur á bak er vísan svona: Blíða landsins fyrða fjcer færir grandi alla, prýða landið biómin, blær blíður andar fjalla. Strandamaður telur sig vera oröinn full fyrirferðarmik- inn í þættinum og sendir afsökun. Þeir hafa oftgaman að glíma við gátur, og botna vísur, sem aldurinn takmarkar önnur svið og eltast ei lengur við „skvísur". Um leið og Strandamanni er þökkuö vísan og annar kveðskapur, sem styttir stundirnar og birst hefur í þætt- inum, er hann beðinn aö gleyma hógværðinni og senda okkur kveðskap eftir því sem andinn blæs honum í brjóst. Sömu skilaboö eru öðrum hagyrðingum send. Öllum góöum vísum og haglega gerðum kveöskap er tekið meö þökkum og er aldrei ofaukið. Fyrripartar og botnar Allir bankar bjóða lán, basl og þanka svæfa. Botn: Varla svífast vaxta rán, virðing alla slæva. Stefán Bjarnason Síðan botnar frá Helga og Búa: Ráðherranna verk og vit verða skráð á bækur. Botnar: Dýrka þeirra verk og vit lattdsins heimskar blækur. eöa Sveinafjöldinn sýndi lit, snilldin var þeim kækur. eöa Þykkust verða þessi rit, þrotlaus viskulækur. Nýr fyrripartur: Efég smíða ætti brag um ungar, fríðar snótir. Þessi ætti aö ýta undir andagiftina. Botnar og vísur sendist til Tímans Brautarholti 1 105 Reykjavík P.s. SKRIFIÐ GREINILEGA Laugardagur 11. febrúar 1995 Fáir þora að vera gler- andskotitískusmart Spurning: Um daginn var viö- tal í blaði viö stúlku, sem kom frá útlöndum. Hún sagöi aö ís- lendingar væru tveim árum á eftir tímanum í tísku og þess vegna gamaldags. Hún sagði að í útlöndum gengju allir í plast- fötum núna og létu ekki sjá sig í ööru. Er þetta rétt? Hér er alltaf verið aö segja aö viö séum svo smart og nýtískuleg, en svo koma svona fréttir. Svar: Ég varð voða fúll þegar ég las þetta. Ég verð aö lýsa mig af- skaplega mikið ósammála gagn- vart svona ummælum í blöö- um. Viö íslendingar erum þekkt þjóö aö því leyti aö þegar út- lendingar koma hingaö, þá bera þeir aö við séum mjög smart fólk. Aftur á móti þegar kemur að mjög afgerandi tískunýjungum, sem eru mjög áberandi, þá er þessi þjóö alltof smá til þess aö almenningur tileinki sér á svip- stundu tísku eins og þá úr plasti og öörum óheföbundnum efn- um. Þetta er gífurlega smart, en er fyrir fólk sem gefur sig út fyrir að vera tískuklætt og skiptir þá mjög oft um í fataskápum sín- um. Þessir vel klæddu íslend- ingar eru náttúrlega klassískari þó við förum mikiö eftir tísku. Þannig hlýtur náttúrlega allur almenningur aö vera. í útlönd- um eru ekki heldur allir hátísku- klæddir og þaö er bara ósönn al- hæfing að segja að allir þar séu í plastfötum. Þegar ég fer til út- landa, verö ég að segja aö mér finnst meirihluti fólks, sem ég sé, ótískulega klæddur og ósmart. Síöan sér maöur vissa pró- sentu af fólki sem er gífurlega tískuklætt, en það sér maöur heldur ekki hér. Þetta er rétt hjá stúlkunni aö því leyti. Geirvörtur óhugsandi á kosningafundum Nú, til dæmis, er verið að út- búa framboðslista hjá öllum stjórnmálaflokkum og á öllum listunum eru margar konur. Ég veit ekki hvort þaö væri konum eða flokkum þeirra til fram- dráttar, ef framboðskonur kæmu í vinylplasttoppum, sem geirvörtumar sæjust í gegnum, á kosningafundi. Jafnvel þó þær séu ungar og vel vaxnar og þar fram eftir götunum. Ég er hræddur um aö þaö færi ekki vel í fólk atkvæöalega séð. Ef aftur á móti er um að ræöa stúlku, sem syngur meö popp- hljómsveit og er þekkt nafn og stendur fyrir frekar frjálsan lífs- stíl, getur hún komiö fram hvar sem er og verið mjög smart í gegnsæju plasti. Þarna er um aö ræöa gífurlega mismunandi áherslur og lífs- máta. Og svo náttúrlega aldur. Þaö er til dæmis ýmislegt í karl- mannafatatísku núna sem ég mun ekki tileinka mér. En ég klæöi mig samkvæmt tísku eigi aö síöur, því þaö er mitt starf. En ég mundi aldrei, sem maður á fertugasta og sjöunda aldurs- ári, fara aö eltast viö einhverja absúrdtísku, þó aö tvítugur strákur í poppinu gæti sem best klætt sig og puntaö og verið flottur í skrýtnum flíkum. Fyrir nokkrum árum komst þaö í tísku aö karlmenn gengu í ógegnsæjum sokkabuxum og nokkurs konar skotapilsum, síö- Hvernig áég aö vera? Heiöar jónsson, snyrtir, svarar spurningum lesenda um meö klauf. Þetta gat verið mjög smart til dæmis meö mitt- isjökkum, á gæja með mikið sítt hár sem berst á, er kornungur í útlitsgeiranum og er afgreiðslu- maöur í tískubúð, farðari eöa í popphljómsveit. En fjörutíu og sjö ára skallapoppari getur þaö ekki og ekki ég heldur. Ég dáist til dæmis aö Mick Jagger fyrir hans kraft og þraut- seigju í því að vera stjarna. Hann er oft mjög smart meður- inn, en hann er stundum alveg út í hött af fimmtugum manni aö vera. Jafnvel þó hann sé Mick Jagger. í vinnunni eba á tískuballi í greininni, sem spurningin varðar, fannst mér að veriö væri að höfða til tískuelítu. Þaö getur vel veriö aö íslensk tískuelíta sé kannski ekki alveg eins vel með á nótunum og Lundúna- og Par- ísartískuelíta. Ég hef grun um aö viökomandi kona hafi rétt fyrir sér þar. En svona hátíska á kannski ekki við nema á popptónleik- um, á diskóteki eða þar sem tískufólk kemur saman. Þaö mætir enginn í gegnsæjum föt- um eöa meö alls kyns krúsidúll- ur í vinnu á skrifstofu hjá virtu fyrirtæki. Ef starfskraftur mætti einhvern veginn svona í vinn- unni hjá erlendu fyrirtæki, sem ekki er í útlitsgeiranum, yröi hann rekinn heim alveg eins og úr Búnaðarbankanum hér. Misskilningurinn liggur í því aö í umræddri grein var verið að tala um ballföt þeirra, sem vilja vera í hátísku. Og þaö eru ekki margir íslendingar sem gera þetta fullkomlega vel. En ef ég má nefna nafn, þá er það ein fegursta unga kona íslands, sem mér finnst alltaf dálítið spenn- andi aö sjá hvernig er klædd þegar ég hitti hana, af því aö hún tilheyrir því sem viö getum kallaö tískuelítu. Hún heitir Andrea Róberts- dóttir, er fyrirsæta og er inter- essant og fögur stúlka, og mér finnst hún líka spennandi af því aö þegar ég hitti hana finnst mér skemmtilegt aö sjá í hverju hún er. En hún er ein af örfáum hátískustúlkum og gerir þetta afskaplega skemmtilega. En þá sjaldan ég kem á ung- lingastaöi, finnst mér eitthvað vanta á aö einhverjir hafi frum- kvæði aö ríöa á vaðið og vera glerandskotitískusmart. ■

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.