Tíminn - 11.02.1995, Blaðsíða 15
15
Laugardagur 11. febrúar 1995
Davíb Oddsson er ánœgbur meb Alþýbuflokkinn sem samstarfsflokk. Svartsýnn á
kennaraverkfall sem gœti stabib til septemberloka:
Áframhald á Viðeyjarstjórn
kostur sem hann mun skoða
Davíð Oddsson, forsætisráð-
herra, segist bæði persónulega
og máiefnalega ánægöur meö
samstarfið við Alþýðuflokk-
inn, í samtali sem birtist í Við-
skiptablaðinu. Hann er spurð-
ur hvort ekki sé eölilegt að
flokkarnir taki saman hönd-
um á nýjan Ieik komi þeir vel
út úr kosningunum: „Ef það
gerist þá yrði það örugglega sá
kostur sem fyrst yrði skoðaö-
ur." Ráöherrann segir þó að
báðir flokkar gangi óbundnir
til kosninga og að hann úti-
loki ekkert í stjórnarmyndun-
arviðræðum.
í þessu þriggja síöna viðtali
Viðskiptablaðsins er farið yfir
feril þessarar ríkisstjórnar síð-
ustu fjögur ár. Davíð er ánægö-
ur. Stjórnin hafi tekið við slæmu
búi en vel hafi ræst úr. Hann
kennir Ólafi Ragnari ekki
um dulinn ríkissjóðshalla sem
við blasti vorið 1991. Stjórnin
hafi verið veik. „Það fór allt á
bögglauppboð í þinginu," segir
Davíð.
Deilur ríkisstjórnarflokkanna
afgreiðir Davíð og segir að það
hafi veriö „smávægilegur hanas-
lagur og tog" sem hafi staðið um
„einstaka ómerkari atburöi."
Varðandi kjaramálin segir
Davíð að „menn vilja ekki fara í
dellurólið. Hinir ábyrgari for-
ystumenn á vinnumarkaði
skynja þetta. Þeir telja sig rétti-
lega eiga nokkuð hrós skilið fyr-
ir þessa stöðu og vilja ekki vera
að eyðileggja hana," segir Dav-
íð.
Varðandi yfirvofandi vinnu-
deilur segir Davíð að kaupkröfur
verkalýðshreyfingarinnar séu
mun meira í snertingu við til-
vemna en kröfur kennara, sem
segi opinberlega að þeim komi
ekki við hvað atvinnulífið geti
borið, sem honum þyki dálítið
merkilegt. Hann segir kröfur
kennara úr tengslum við allan
veruleika, en hann útiloki að
sett verði lög á verkfallið.
Davíð er ekki bjartsýnn á að
lausn finnist á verkfalli kennara
og spáir að það verði bæði erfitt
og langt, standi jafnvel til loka
september. ■
Þjónarnir sjö frá Café Kölbert.munu án efa vekja athygli á menningarhá-
tíbinni Sólstöfum, enda óvenjulegir þjónar um margt.
Kvennalistinn á Vestfjörbum:
Jóna Valgerður
í efsta sæti
Sólstafir — 6 vikna norrœn menningarhátíb héfst í dag:
Finnskur tangó og
danskt kaffileikhus
Norræn menning mun breiða
úr sér víða um landið um þessa
helgi og næstu 6 vikur á menn-
ingarhátíðinni Sólstafir sem
hefst í dag kl. 14.15 í Norræna
húsinu. Hátíðin stendur fram
yfir þing Noröurlandaráðs sem
fer fram í Reykjavík 27. febrú-
ar til 2. mars. Meðal þess efnis
sem í boði er um helgina má
nefna finnskan tangó, danska
kaffileikhúsiö. Café Kölbert,
myndlistarsýningu í Norræna
húsinu, dagskrá helguð dönsk-
um bókmenntun, auk þess
sem norskir tónlistarmenn
koma til landsins og hefja tón-
leikaferðalag á Akureyri á
sunnudag.
Danska kaffileikhúsið'Kölbert
hefur á sínum snærum 7 sér-
þjálfaða þjóna og framreiða
hvað sem hugurinn girnist, en
ekki síst foríðarþrá, söngva, grín
og gleðilæti. Þjónar þessir eru
sagðir sýna yfirmáta kurteisi,
sem jaðrar við ósvífni og dóna-
skap. Café Kölbert verður á
sveimi í Kringlunni frá 11 til 13
í dag.
Finnskt tangókvöld verður á
Hótel Borg í kvöld, með þátt-
töku þjóna kaffileikhússins.
Þetta eru sex tangóleikarar með
Reijo Taipale í fararbroddi.
Tangóinn er sagöur orðinn tján-
ingarform hinnar finnsku sálar í
dag.
Svend Wiig Hansen opnar
sýningu í dag í Norræna hús-
inu. Sama dag verður dagskrá í
húsinu helguð dönskum bók-
menntum.
Norsku tónlistarmennirnir
sem leika á Akureyri annað
kvöld eiga ættir að rekja.til Afr-
íku og tónlistin upprunnin af
þeim slóðum. Þeir munu efna
til tónleika í skólum á ísafirði og
í Reykjavík.
Loks er að nefna norræna
kvikmyndahátíð sem hefst í Há-
skólabíói í dag, laugardag, og
stendur hún í rúma viku. ■
Undarlegir sjúklingar íleikritinu Morfín, sem Kvennaskólinn setur á svib og frumsýnir í kvöld.
Fúría, leikfélag Kvennaskólans:
Undarlegir samsjúklingar
Ungur maður er lagður inn á
sjúkrahús vegna smávægilegra
óþæginda í maga. Hann kynnist
fljótt samsjúklingum sínum,
sem reynast í meira lagi furðu-
legir, auk þess sem starfsaðferðir
hjúkrunarfólks eru ekki þær
sem menn eiga að venjast. Þegar
ungi maðurinn kemst að því að
æskuást hans er sjúklingur á
sama sjúkrahúsi taka hlutirnir
ab gerast.
Þetta er í örstuttu máli þráður
í leikriti Svend Engelbrechtsen,
gamanleiknum Morfín. Le
félag Kvennaskólans fru
sýnir verkið í kvöld í Héði:
húsinu, Seljavegi 2, vestur í l
Leikstjóri er Þröstur Guðbjai
son. Morfín verbur sýnt
sinnum.
Bœjarfulltrúi AB í Carbabœ telur frambobslista flokksins í Reykjaneskjördœmi
vera lista Suburnesjamanna og Hafnfirbinga:
Telur listann ekki
sigurstranglegan
„Ég tel þab ekki vera," segir
Hilmar Ingólfsson bæjarfulltrúi
Alþýbubandalagsins í Garbabæ
abspurbur hvort hann telji
frambobslista Alþýbubanda-
lagsins og óhábra í Reykjanes-
kjördæmi vera sigurstrangleg-
an. Hann segir ab listinn sé listi
Suburnesjamanna og Hafnfirð-
inga og síban komi Seltjarnar-
nes og Mosfellsbær. Hilmar tel-
ur ab það sé tap fyrir flokkinn
ef hann fær ekki tvo þingmenn
í kjördæminu.
Þótt framboðslisti AB og óháðra
hafi verið samþykktur samhljóða
á 200 manna fundi kjördæmis-
ráðsins í fyrradag virðast forystu-
menn flokksins í Garðabæ og
Kópavogi ekki vera neitt sérstak-
lega ánægðir og m.a. er Valþór
Hlöðversson bæjarfulltrúi flokks-
ins í Kópavogi ekki á listanum.
Hilmar segir þaö mjög miður að
ekki skuli hafa verið viðhaft for-
val við val manna á listann. Hann
telur að það sé að öllu jöfnu meiri
baráttuhugur í þeim frambjóð-
endum sem gefa kost á sér að
Guðmundsdóttir formaður
Sjúkraliðafélags íslands hefði eitt-
hvert fylgi, þá hefði hún átt að
skipa annað sæti listans en ekki
það þriðja.
Eins og kunnugt er þá er
óbreytt skipan í tvö efstu sæti
lista AB í Reykjaneskjördæmi frá
síðustu alþingiskosningum. Ólaf-
ur Ragnar Grímsson formaður
flokksins leiðir listann og í öðru
sæti er Sigríður Jóhannesdóttir
kennari í Kefluvík. Helgi Hjörvar
Reykjavík er í fjórða sæti og
körfuboltahetja þeirra Grindvík-
inga, Guðmundur Bragason, er í
sjöunda sæti. Sigurvegari flokks-
ins við sveitarstjórnarkosningarn-
ar sl. vor í Mosfellsbæ, Guðný
Halldórsdóttir, er í næst neðsta
sæti listans og heiðurssætið skip-
ar Benedikt Davíðsson forseti
ASÍ. ■
Ólafur Ragnar Grímsson.
fyrra bragði og þurfa að ganga í
gegnum kosningabaráttu og
kosningar, en þeim sem beðnir
eru að gefa kost á sér. Hann er
jafnframt þeirrar skoðunar að ef
menn tryðu því að Kristín Á.
í dag verbur væntanlega gengib
formlega frá skipan frambobs-
lista Kvennalista á Vestfjörbum
fyrir næstu alþingiskosningar.
Efsta sæti listans skipar Jóna
Valgeröur Kristjánsdóttir þing-
kona Hnífsdal, Björk Jóhanns-
dóttir; Hólmavík verður í öðru
sæti, Ágústa Gísladóttir ísafirði í
þriðja sæti, Þórunn Játvarðardótt-
ir Reykhólum skipar fjórða sætið
og Árnheiður Guönadóttir
Breiöuvík í Vesturbyggð verður í
fimmta sæti.
„Þaö ganga allskonar sögur á
Vestfjöröum, enda menn sagna-
glaðir þar vestra," segir Jóna Val-
gerður en um tíma var talið aö
hún mundi ekki gefa kost á sér í
framboð fyrir Kvennalistann.
„Ég var búin að heyra aö ég
væri aö fara í framboð fyrir Fram-
sóknarflokkinn og fyrir Jóhönnu
og ég veit ekki hvað og hvað,"
segir Jóna Valgerður Kristjáns-
dóttir sem hefur verið sjötti þing-
jóna Valgerbur Kristjánsdóttir.
maður Vestfiröinga á yfirstand-
andi kjörtímabili. ■