Tíminn - 11.02.1995, Qupperneq 19
Laugardagur 11. febrúar 1995
‘SBlVÉfjfcfwa- Í4-iTk.TrjfHr
(CflntOtnwCwl.
19
Steen Johann Steingrímsson
Steen Johann Steingrímsson var
fœddur í Reykjavík 8. ágúst 1954.
Hann andaðist í Landspítalanum
13. janúar síðastliðinn. Steen Jo-
hann var sonur Grethe Bendtsen
og Steingríms Þorleifssonar, fyrr-
verandi stórkaupmanns. Steen bjó
hjá móður sinni í Austurbrún 6 í
Reykjavík. Hann var einkabam
móður sinnar, en átti fimm hálf-
systkini samfeðra. Steen vann í
Bjarkarási í tœplega 25 ár. Bálfor
hans fór fram frá Fossvogskirkju
20. janúar.
Og du skal ikke lukke
dine 0jne
og stá afmœgtig
nár det onde sker.
Men trofast mod hver kalden
i dit hjerte
skal du forkynde
hvad du gemmer der.
Du h0rer fugle flyve
gennem natten.
Du horer regnen falde,
og du ved,
at nmdt omkring i verden
spirer blomster
afváde graves
mprke ensomhed.
(Halfdan Rasmussen)
í fáum orðum vil ég minnast
Steen Johanns Steingrímssonar
og þeirra góöu kynna, sem ég og
mín fjölskylda höfðum af hon-
um og fjölskyldu hans. Þau
byrjubu fyrir rúmum tuttugu ár-
um er móðir mín flutti í sama
hús og þau bjuggu í. Þá þegar
upphófst mikill vinskapur milli
okkar. Grethe og móðir mín
át'tu gott skap saman og Steen
Johann og móðir mín eyddu
mörgum glaöværum stundum
saman. Ekki síst kom nærgætni
og hlýja þeirra mæðgina fram,
þá er heilsu móður minnar tók
að hraka og fötlun hennar gerbi
henni erfiðara fyrir.
Steen Johann var alla ævi
heilsulítill og var með Downs
syndrome. Þrátt fyrir þessar tak-
t MINNING
markanir auðnabist honum að
ná verulegum þroska, og nýtti
þar með til fullnustu þab sem
honum var gefið. Naut hann
þar einstakrar umhyggju móbur
sinnar, sem gerði allt sem í;
mannlegu valdi er til þess aö
þroska hann og skapa honum
sem eðlilegast líf.
Þó hann hefði ekki þroska
fulloröins manns, var hann
samt vel gefinn. Hann talabi og
skrifaði bæði íslensku og
dönsku, hann fylgdist vel meb
fréttum í útvarpi og sjónvarpi,
og hann hugleiddi og dró álykt-
anir oft af undraverðum skiln-
ingi. Hann var sem stórt þrosk-
ab barn, og eins og börnum er
títt, með ríka og óflekkaða rétt-
lætistilfinningu, sem þeim er til
fulloröinsþroska teljast, veitist
oft erfitt. Hann velti fyrir sér
rökum tilverunnar og komst að
kærleiksríkri niðurstööu.
Þau mæbgin voru hluti af
okkar fjölskyldu, þau tóku þátt í
gleöi okkar og sorgum, voru
með okkur á ánægjustundum
fjölskyldunnar. T.d. er okkur
minnisstætt ab í brúðkaupi
dóttur okkar flutti hann ræðu
og frumsamið ljóð, sem við
geymum enn sem dýrgrip frá
þeim atburði.
Þegar þau mæðgin voru hjá
okkur síðasta gamlárskvöld, var
greinilegt að heilsu hans var far-
ið að hraka mjög. Samt sem áð-
ur flutti hanh eitt af frum-
sömdu ljóöum sínum um ára-
mótin, og skrifaði það upp, og
munum við geyma þab til
minningar um hann.
Steen Johann sýndi hve langt
er hægt að ná í lífsþroska þrátt
fyrir takmarkanir, því hann not-
abi allt það sem honum var gef-
ið og uppskar því ríkulega.
Ragnheiður Haraldsdóttir,
Hörður Arinbjamar
og fjölskylda
Við Steen Johann erum búnir
ab þekkjast í mörg ár. Kynnt-
umst fyrst þegar við vorum
saman á Sólheimum í Gríms-
nesi. Síðan flutti ég til Reykja-
víkur og byrjuðum viö ab vinna
saman í Bjarkarási.
Mig langar til ab þakka þér
fyrir samveruna í vinnunni og
þegar við vorum félagar í Perlu-
festinni. Einnig þakka ég þér
fyrir ab hafa verið mér til stuðn-
ings þegar við vorum í ritnefnd-
inni í Bjarkaráspóstinum.
Ég sakna þín mjög mikið.
Drottinn er minn hirðir, mig mun
ekkert bresta.
Á grœnum gmndum lœtur hann
mig hvílast,
leiðir mig að vötnum, þar sem ég
má nœðis njóta.
Hann hressir sál mína,
leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir
nafns síns.
(Úr 23. Davíðssálmi)
Ég votta þér, Greta mín, mína
dýpstu samúð. Allir á sambýl-
inu samhryggjast þér innilega.
Láms Hjálmarsson,
Sigluvogi 5
DAGBÓK
42. dagur ársins - 323 dagar eftir.
6. vlka
Sólris kl. 9.37
sólarlag kl. 17.48
Dagurinn lengist um
8 mínútur
Félag eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni
Sveitarkeppni í brids kl. 13 á
morgun sunnudag og félagsvist
kl. 14 í Risinu. Dansað kl. 20
sunnudagskvöld í Goðheimum.
Sýningar á leikritinu „Reimleikar í
Risinu" eftir Ibunni og Kristínu
Steinsdætur eru á þriðjudögum,
fimmtudögum, laugardögum og
sunnudögum. Upplýsingar á
skrifstofu, s. 5528812. Margrét
Thoroddsen er til viðtals á þribju-
dag. Panta þarf viðtal.
Félag eldri borgara
Kópavogi
Félagsfundur veröur haldinn að
Fannborg 8 (Gjábakka) í dag,
laugardag, kl. 14. Fundarefni: Fé-
lagsmál. Laufey Steingrímsdóttir
matvælafræðingur mætir. Húsið
öllum opib.
Félag eldri borgara
Suburnesjum
Þorrablót félagsins er í Stapa á
morgun, sunnudag, kl. 12. Jó-
hannes Kristjánsson skemmtir.
Kórsöngur, dans og fleira.
Abalfundur Menningar-
og fribarsamtaka
íslenskra kvenna
verður haldinn í dag, laugardag-
inn 11. febrúar, kl. 14 að Vatns-
stíg 10. Venjuleg aðalfundarstörf.
Önnur mál. Kaffi og kökur á bob-
stólum. Mætum allar. Stjórnin.
Málverkasýning
Sigurbjörns jónssonar í
Galleríi Regnbogans
framlengd
Undanfarna tvo mánubi hefur
Sigurbjörn Jónsson sýnt stór mál-
verk í Galleríi Regnbogans við
Hverfisgötu. Vegna mikils áhuga
gesta Regnbogans hefur verib
ákveðið að framlengja sýninguna
til 22. mars nk. í lok mars verbur
opnuð í galleríinu sýning á verk-
um Tryggva Ólafssonar.
Endurfluttir einleikir í
Leikhúskjallaranum
Mánudagskvöldið 30. janúar s.l.
voru frumfluttir einleikirnir Saga
dóttur minnar, Bóndinn og Slag-
hörpuleikarinn eftir Ingibjörgu
Hjartardóttur í Listaklúbbi Leik-
húskjallarans. Vegna frábærra
viötakna og fjölda áskorana hefur
leikhópurinn ákveðiö aö endur-
flytja þættina í Leikhúskjallaran-
um á morgun, sunnudag, kl. 16.
Leikkonurnar, sem flytja leikþætt-
ina, eru Guðrún María Bjarna-
dóttir, Guðbjörg Thoroddsen og
Ingrid Jónsdóttir (slaghörpuleik-
arinn). Leikstjóri er Sigríður
Margrét Gubmundsdóttir.
„Kósý" og „Café
Kolbert" í Listaklúbbn-
um
Danski gamanleikhópurinn „Café
Kolbert", sem samanstendur af 7
stimamjúkum þjónum, treður
upp í Listaklúbbi Leikhúskjallar-
ans á mánudagskvöld. Þetta er í
annaö sinn sem þeir félagar koma
hingað til lands, en í ár eru þeir
hér á vegum Sólstafa, norrænnar
listahátíðar. Auk þess kemur fram
hljómsveitin „Kósý", en hana
skipa þeir Magnús Ragnarsson,
Markús Þór Andrésson, Ulfur Eld-
járn og Ragnar Kjartansson. Allir
eru þeir nemendur við M.R. Dag-
skráin hefst að venju kl. 20.30, en
húsið er opnað kl. 20.
Fyrirlestur í Norræna
húsinu
Á mánudag, 13. febrúar, kl. 20
heldur danski arkitektinn Kim
Herforth Nielsen fyrirlestur í Nor-
ræna húsinu sem hann nefnir:
„Modernisme eller postmodern-
isme". Kim er annar eigandi
teiknistofunnar 3xNielsen.
Teiknistofan hefur haft mikil
áhrif á þróun byggingarlistar í
Danmörku þann áratug sem stof-
an hefur starfað. í anddyri Nor-
ræna hússins stendur nú yfir sýn-
ing á verkefnum teiknistofunnar.
Sýningu Kristjáns Jóns-
sonar í Hafnarhúsinu
ab Ijúka
Nú er aö ljúka sýningu á málverk-
um eftir Kristján Jónsson í sýn-
ingarsalnum í Hafnarhúsinu
v/Tryggvagötu. Á sýningunni eru
26 málverk i ýmsum stærðum,
sem öll eru unnin með blandaðri
tækni á striga. Sýningin er opin
frá kl. 14 til 18 um helgina.
Fréttir í vikulok
Hreyfing á rekstri
Frjálsrar fjölmiblunar
Sveinn R. Eyjólfsson, stjórnarformaður og útgáfustjóri DV,
hefur keypt helmingshlut Haröar Einarssonar, framkvæmda-
stjóra DV, í Frjálsri fjölmiðlun. íslenska útvarpsfélagið hefur
svo keypt þriðjung í fyrirtækinu en Sveinn hyggst halda meiri-
hlutaeigninni sjálfur.
Deilt um tengsl Stasi
viö Islendinga
í sjónvarpsþætti í vikunni kom fram að Guðmundur Ágústs-
son, bankastjóri íslandsbanka, hefði haft bein samskipti við
austurþýsku leyniþjónustuna Stasi á námsárum. í kjölfar þátt-
arins var hart deilt á Alþingi en Björn Bjarnason, formaður ut-
anríkismálanefndar, ásakaöi alþýðubandalagsmenn fyrir að
hafa ekki gert hreint fyrir sínum dyrum hvað varðar fyrri
tengsl sín við fyrrum Kommúnistaflokk Austur- Þýskalands.
Alþýðubandalagsmenn mótmæltu harðlega og sagbi Ólafur
Ragnar Grímsson, formaður flokksins, ab ásakanir Björns bæru
vott um „sjúklegt hugarfar".
Halldór Ásgrímsson vill hefja hval-
veiöar aö nýju
Formaöur Framsóknarflokksins og fyrrverandi sjávarútvegs-
ráðherra vill hefja hvalveiðar að nýju í vísindaskyni. Hann seg-
ir óhæft að ekkert sé fylgst með vexti og viðgangi hvalastofn-
anna hér við land og útilokar ekki inngöngu í Alþjóða hval-
veibiráðið að nýju.
Kennarar höfnuöu tilboöinu
Fátt virðist geta komið í veg fyrir verkfall kennara eftir að
kennarar höfnuðu tilboði samninganefndar ríkisins. Boðað
verkfall kemur til framkvæmda 17. feb. nk.
Umdeilt tilvísanakerfi
Tilvísanakerfi veröur komib á í Iæknaþjónustunni eftir 9
daga. Kerfib á að spara ríkinu 100 milljónir og sjúklingum 50
milljónir skv. spálíkani sem gert hefur verið. Sérfræðingar hafa
deilt hart um gildi kerfisins.
Loönuveiöi aö glæöast
Loks hyllir undir að loönufrysting geti hafist en fyrsta loön-
an kom að landi í vikunni. Bæði hefur gengið erfiðlega að
finna loðnuna, auk þess sem hún heldur sig mjög djúpt en
hrognafylling er nú að aukast og má búast við. frystingu upp úr
helginni.
Sumarbústaöir fluttir til Súöavíkur
10-15 sumarbústaðir verða fluttir að Súðavík á næstunni en
þeir munu gegna hlutverki bráðabirgðahúsnæðis áður en upp-
bygging hefst á staðnum í sumar. Bústaðirnir koma frá Suður-
og Vesturlandi.
Fjöldi danskra feröamanna stór-
eykst
Tæplega fimmtungur erlendra ferðamanna í janúar var Dan-
ir, eða 1100 manns. Danir og Svíar voru þriðjungur allra ferða-
manna í janúar.
Nýr kjúklingastofn
Nýr sænskur kjúklingastofn er að komast á markað innan-
lands en kjúklingarnir eru fljótir ab vaxa í sláturstærð og þann-
ig hagkvæmari kjúklingabúunum.