Tíminn - 11.02.1995, Blaðsíða 21

Tíminn - 11.02.1995, Blaðsíða 21
Laugardagur 11. febrúar 1995 fílWÍMli Pamela Anderson fær kauphækkun Stjarnan úr þáttunum Strandverðir (Baywatch), sem íslenskir sjón- varpsáhorfendur þekkja mætavel, fékk nýlega ríflega kauphækkun. Álykta má sem svo að hún byggist aðalléga á glæsilegu útliti hennar, sem laðar milljónir karlmanna að sjónvarpsskjánum um allan heim, fremur en leikhæfileikum. Ekki er vitað hve mikið Pamela fær greitt á ári fyrir leik sinn í þáttun- um, en umsamin kauphækkun ku hafa verið um 8 milljónir ísl. króna á hvern þátt, sem þykir dágott. Annars segja illar tungur að sílíkonkostn- aður Pam sé það mikill að henni veiti ekki af góðu rekstrarumhverfi, en það er nú allt önnur saga. ■ Kynbomban Pamela Anderson. Atribi úr Dances with Wolves. Indíánar saka nú Costner um ab tala tveim tungum. Costner hættur að dansa með úlfunum Hann fékk þá til að læra tungu- mál sitt upp á nýtt, hann fékk þá til að bera virðingu fyrir sjálf- um sér á ný, hann fékk heiminn til að virða þá og hann hlaut sjö óskarsverðlaun fyrir kvikmynd- ina Dansar viö úlfa (Dances with Wolves). Kevin Costner er maðurinn sem Sioux-indíánar hafa virt og dáð eftir að hann lagöi í stór- virkið Dances with Wolves, fyrir fimm árum. Sú mynd sýndi þeirra hlið á málunum og hafa þeir litið á hann sem hetju síð- an. En nú hefur kastast í kekki á milli Costners og þessara fyrrum vina hans. Ástæðan er bygging spilavítis, sem Costner hyggst standa fyrir í útjaðri Svörtufjalla í Suður-Dakóta. Hverfa 584 ekr- ur af landsvæði indíánanna, ef af byggingunni verður. Svörtufjöll eru indíánunum jafn heilög og Vatíkanið kaþ- ólskum. Sögulegur grunnur er þeim mikilvægur og eins og al- kunna er verður æ minna um óbyggð svæði þeim til handa. Talsmenn Siouxindíánanna hafa eðlilega snúist öndverðir gegn Costner og segja að þessi áform hans sanni að hann hafi engar hugsjónir, eina ástæöan fyrir því að hann gerði Dances with Wolves hafi verið gróða- von. Ef tillögur Costners með spila- vítið ná fram að ganga, er verið að tala um spilavíti sem opið væri allan sólarhringinn, 320 herbergja hótel, 18 holu golf- völl og svo framvegis. Indíán- arnir myndu ekki aðeins missa stóran hluta lands síns, heldur í SPEGLI TÍMIANS Kevin Costner. yrði afskekkt samfélag þeirra hægt og rólega túrismanum að bráð. Lífið hefur ekki leikið við Costner síðari misseri. Hann stendur nú í skilnaði, sem kosta mun hann um 80 milljónir bandaríkjadala. Þá hafa síðustu myndir hans ekki /íáð aö slá í gegn. Nýjasta myndin, Waterw- orld, verður sú dýrasta sem sög- ur fara af og eru menn ekki á eitt sáttir um hvort myndin muni seljast. Tökur hafa staðið yfir í sjö mánuði og enn er langt í land. Umfangsmikil mannvirki hafa sokkið, þ.á m. ein stærsta sviðsmyndin á Hawaii fyrir skömmu. ■ t ANDLAT Ólafur S. Sigurgeirsson lést 2. febrúar. Inga Runólfsdótttir Chudacoff, frá Hólum í Norðfirði, lést 21. janúar. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey. Sigurður Grétar Ingimundarson, Hrafnakletti 2, Borgarnesi, lést í Sjúkrahúsi Akraness 27. janúar. Jarðarförin hefur far- ið fram í kyrrþey. Gunnar Guölaugsson, Hjallavegi 33, Reykjavík, lést á heimili sínu 25. janúar. Út- förin hefur fariö fram í kyrr- þey. Sigurður Magnússon verkstjóri, Hjallavegi 31, andaöist á heimili sínu 30. febrúar. Skarphéðinn Njálsson lést á Hlíf, ísafirði, 3. febrúar. Margrét Brynjólfsdóttir, Álfheimum 17, Reykjavík, lést á heimili sínu 3. febrúar. Guðrún Eyjólfsdóttir, Birkihæð 6, Garöabæ, lést 6. febrúar. Sigríður Zoega, Bankastræti 14, andaöist í Landspítalanum 5. febrúar. Henrý Kr. Matthíasson símsmiður, Efstasundi 71, lést á heimili sínu 6. febrúar. Hólmfríður Jónsdóttir lést á heimili sínu sunnu- daginn 5. febrúar. Guðrún Kristjana Guðmundsdóttir, kennari, Ásvallagötu 17, Reykjavík, lést á heimili sínu 6. febrúar. Anna Katrín Sigfúsdóttir, Hrafnistu, lést í Landspítal- anum að kvöldi 7. febrúar. Marinó Magnússon frá Þverá, Ólafsfirði, Bylgju- byggð 39a, Ólafsfirði, lést í Fjórðungssjúkrahúsinu á Ak- ureyri 6. febrúar. Kristín Einarsdóttir frá Vestm.eyjum, Hraunbæ 128, Reykjavík, andaðist í Landspítalanum 7. febrúar. Kári Gunnarsson bílstjóri, lést í Landspítalan- um 8. febrúar. Gunnar Þorsteinsson, Litla-Hofi, Öræfum, andað- ist að morgni 8. febrúar á elli- og hjúkrunarheimilinu Skjólgarði, Höfn. Anna Hjartardóttir, Aðalstræti 19, ísafirði, and- aðist á Fjóröungssjúkrahús- inu á ísafirði, miövikudag- inn 8. febrúar. Eiríkur Björn Ragnarsson, Skógum, andaðist að morgni 6. febrúar. Sáli og sex- bomban Litbrigbi næturinnar (Color of Night) ★ Handrit: David Matalon og Buzz Feits- hans. Framleibendur: Michael Chapman og Billy Ray. Leikstjóri: Richard Rush. Abalhlutverk: Bruce Willis, Jane March, Lesley Ann Warren, Lance Henriksen, Brad Dourif, Scoft Bakula, Ruben Blades og Kevin J. O'Connor. Regnboginn. Bönnub innan 16 ára. Það er ekki mikið spunnið í þessa „erótísku" mynd þrátt fyr- ir að aðstandendur hennar og leikarar hafi flestir náð ágætum frama á stundum. Sagan er á þá leið að sálfræð- ingurinn Bill Capa (Willis) leitar ásjár vinar síns og kollega eftir að sjúklingur hans fremur sjálfs- morö. Sá kynnir hann fyrir sín- um sjúklingum sem eru í hóp- meðferð, hver öbrum skrýtnari og dularfyllri. Þegar svo vinur- inn er myrtur fellur grunur á sjúklingana og Capa þarf að taka við þeim og reyna að kom- ast að því hver þeirra er morö- inginn. Á sama tíma kynnist hann Rose (March), sem er enn ein dularfulla persónan, og meb þeim takast eldheitar ástir. Vandræði Capa aukast síðan enn meir þegar svo virðist sem hin nýja ástkona hans tengist málinu. Það er skemmst frá því að segja ab Litbrigði næturinnar er fremur ómerkileg mynd. Hún verður aldrei spennandi þrátt fyrir að persónusköpun sé nokk- KVIKMYNDIR ÖRN MARKÚSSON ub lífleg í formi sjúklinganna. Þeir eru það skásta við myndina og vel leiknir af sjóuðum auka- leikurum eins og Brad Dourif, Lance Henriksen og Lesley Ann Warren. Aðalleikararnir Bruce Willis og Jane March eru síöan sérkapítuli útaf fyrir sig. Willis er hreint og beint hlægilegur þegar hann er að rembast við að leika sálfræðinginn, maður sem getur varla komist klakklaust í gegnum hlutverk skotglaðrar löggu. March er jafnvel verri, þótt það sé sjálfsagt ekkert leiö- inlegt fyrir karlkyns áhorfendur að horfa á hana misvel klædda í nokkrum „eldheitum" ástarat- riðum. Kvenkyns áhorfendur verba að gera þab upp við sig sjálfar hvort sama gildi um Bruce Willis. Það ætti ekki að koma neinum á óvart aö þessar senur hafa næstum ekkert ab gera með söguþráðinn. Litbrigði næturinnar er mis- heppnuð mynd á nær allan hátt, verður aldrei spennandi eða áhugaverð þótt það hafi ver- iö ætlunin. Hennar veröur lík- lega minnst fyrir þab í framtíð- inni að bubbanum á Bruce Will- is bregði fyrir í henni. Absendar greinar, afmælis- og minningargreinar sem birtast eiga í blabinu þufa ab hafa borist ritstjórn blabsins, Brautaholti 1, tveimur dögum fyrir birtingardag, á disklingum vistab í hinum ýmsu ritvinnsluforritum sem texti, eba vélritaðar. WWW SÍMI (91)631600 FAXNUMERIÐ ER 16270

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.