Tíminn - 14.02.1995, Blaðsíða 5

Tíminn - 14.02.1995, Blaðsíða 5
Þri&judagur 14. febrúar 1995 5 La traviata íslenska óperan frumsýndi La traviata eftir Verdi föstudag 10. febrúar viö miklar undirtektir leik- húsgesta. La traviata er tveggja vasaklúta stykki — söguþráöurinn og tónlistin leggjast á eitt um aö hræra jafnvel ómúsíkölskustu steinhjörtu og vekja tár á hvörm- um harðgeöja manna. Hlutverk Víólettu er mikið stjörnuhlutverk og Sigrún Hjálmtýsdóttir vann ennþá einn listsigur í hlutverkinu; þaö er raunar lyginni líkast aö sama söngkona geti skilað meö glæsibrag jafnólíkum hlutverkum og Næturdrottningunni í Töfra- flautu Mozarts og Víólettu í La traviata. Meö hlutverk Alfredos fór hinn stórefnilegi tenór Ólafur Árni Bjarnason og Bergþór Pálsson gerir hlutverki Germonts eftir- minnileg skil. Efnilegur, segi ég um Ólaf Áma, því enda þótt hann fari létt meö hlutverk Alfredos og TÓNLIST SIGURÐUR STEINÞÓRSSON syngi mjög vel, þá er vafalítiö að honum á eftir aö fara mikið fram ennþá. Kannski olli því frumsýning- arskrekkur, en fýrsti þátturinn var' heldur dauflegur og veislugleðin í sölum Víólettu ósönn, þótt fagur- lega væri sungiö. Hinir þættirnir tókust hins vegar stórvel, átök Ví- ólettu og Germonts í fyrra atriði 1. þáttar og veislusenan í hinu síðara — þar sýndu Júlía Gold og David Greenall ágæt tilþrif í ballettdansi — og loks lokaatriöið sem Sigrún skilaði ótrúlega vel. Leikstjóri er Bríet Héðinsdóttir, leiktjöld hann- aði Sigurjón Jóhannsson, en Hulda Kristín Magnúsdóttir bún- ingana. Allt er þetta prýðilega lukkað og ennþá einu sinni ekkert sérlega áberandi hve grunnt sviöið er í húsi Óperunnar. Hljómsveitar- stjóri er Robin Stapleton og kons- ertmeistari Gerður Gunnarsdóttir. Kór íslensku óperunnar, undir stjórn Garðars Cortes, sýndi sín venjulegu tilþrif, en sumir telja þennan kór einn besta ópemkór á Norðurlöndum. Auðvitað kemur sægur manna að undirbúningi og framkvæmd sýningarinnar, sem þó veröur ekki getið hér að ööru leyti en því, að til þess að svo ágæt- lega taldst til og raun ber vitni, þurfa allir að gera sitt besta. Og það er raunar þaö sem Robin Stapleton segir vera sérkenni ís- lensku ópemnnar: starfsandinn, vinnugleöin, áhuginn — allir leggja sig fram til hins ýtrasta. Leikskrá, undir ritstjóm Baldurs Sigurðssonar, er 64 bls., með lær- Ciuseppe Verdi. dómsfullum ritgeröum um Verdi sjálfan, um tónlistina í ópemnni og hljóðritanir á henni, um Dum- as og Kamelíufrúna, en efni óper- unnar er byggt á þeirri sögu. La traviata er önnur stóra óper- an á eftir Töfraflautunni sem sett hefur veriö upp tvisvar á 13 ára ferli íslensku ópemnnar, og valda því eilífar vinsældir þessara ópera. Áriö 1983 fóm meö aðalhlutverk- in í La traviata Ólöf Harðardóttir, Garöar Cortes og Halldór Vil- helmsson og nú, 12 árum síöar, er komin ný kynslóð sem gerir þetta með glæsibrag — og raunar er söngvaraúrvalið slíkt, aö tvísett er í sum hlutverkin. Þetta er semsagt skemmtileg og áhrifamikil sýning, sem vonandi hlýtur þá aösókn sem hún á skilið. Sumir hljóm- sveitarstjórar segjast „ekki geta lif- að" nema þeir stjórni La traviata a.m.k. einu sinni á ári, og mörgum óperuvinum finnst þeir aldrei sjá hana of oft. Því auk hinnar dásam- legu tónlistar eru persónurnar sér- lega mannlegar og „sympatískar" — jafnvel Germont gamli kemur vel út aö lokum, ekki síst í túlkun Bergþórs, sem sýnir þarna á sér nýja hliö sem söngvari. s Einar Olafsson: Áð búa til Vorið 1992 skrifaði ég svolitla grein í DV og lagði út af umfjöll- un Moskvufréttaritara sjónvarps- ins um nýlega opnuð skjalasöfn þar eystra. Fréttaritarinn hafði komist að því, að þar væri að finna ýmis skjöl, sem vörðuðu íslendinga, og íét í veðri vaka, að þau mundu varpa nýju ljósi á ýmislegt og þá fyrst og fremst tengsl íslenskra sósíalista og/eða kommúnista viö Sovétstjórnina. í grein minni komst ég svo að orði, að hvað sem þessi skjöl mundu leiða í ljós, hvort sem það yrði eitthvað nýtt eöa ekki, mætti búast við að þau yröu not- uö til að ófrægja íslenska komm- únista og vinstri sósíalista. Það gekk eftir. Haustið 1992 kom út þykk bók eftir tvo unga sagnfræðinga, Árna Snævarr og Val Ingimundarson, sem byggð- ist mikið til á skjölum frá Moskvu og Austur- Berlín. Þessi bók hét hvorki meira né minna en Liðsmenn Moskvu. Þegar til kom voru fáar ef nokkrar nýjar upplýsingar sem máli skiptu í bókinni. Það er auðvitað sjálfsagt mál að kanna skjöl, þegar þau verða aðgengileg, og greina frá þeirri könnun, en það þarf ekki miklar umbúðir um litla upp- skeru. Hins vegar geta umbúðir haft margvíslegan tilgang. Þeir bættu svo um betur með VETTVANGUR „Þegar á allt er litið er það ekki þessi uppdiktaði glœpur sem skiptir máli. Höfuðglœpurinn er auð- vitað sá að vera sósíal- isti. Uppdiktaði glæpur- inn er til að undirstrika hann." klukkutíma löngum sjónvarps- þætti, sem sýndur var í sjónvarp- inu 5. feb. sl., og fjölluðu þar, eins og flestum er kunnugt, um samskipti íslendinga viö austur- þýsk stjómvöld og leyniþjón- ustu þeirra, Stasi. En þátturinn var sama marki brenndur og bókin, miklar umbúöir um litla uppskeru. Það sem máli skipti hefði mátt afgreiöa meö frétt upp á eina málsgrein: „Könnun á skjalasöfnum Stasi bendir til, að engir íslendingar hafi haft tengsl viö Stasi sem orð sé á gerandi." Þetta var nú það eina sem var fréttnæmt í þættinum, og það var bara fréttnæmt af því að sumir höfðu aliö með sér þá ósk að íslenskir námsmenn í Austur- Þýskalandi hefðu verið á mála hjá Stasi. Annað, sem fram kom í glæp þættinum, var vel þekkt þeim sem eitthvaö hafa fylgst með sósíalistahreyfingunni á íslandi. Enda er þetta það sem rætt hefur verið um eftir sýningu þáttarins. Með umbúðunum um þessa litlu frétt var verið að búa til glæp. Það má svo sem segja að allt hafi verib vel skjalfest í myndinni. Allt er satt og rétt frá greint. En svo er haldib áfram (allt satt og rétt!): Þarna er Hjör- leifur nefndur (í skjölum Stasi), þarna er Svavar nefndur, þarna er Árni nefndur, og svo er bent: sjáið Hjörleif, sjáib Svavar, sjáið Arna. Og þegar líka er búiö að benda á, ab Stasi hafi veriö vond stofnun og stjórnarfarib þarna hafi veriö vont og Einar Olgeirs- son (umbobsmaður hins vonda!) hafi haft milligöngu um að þeir fóru þangab til náms, þá skiptir litlu máli þótt frá því sé skýrt ab hvergi sé að finna stafkrók um að þeir hafi tengst Stasi, myndin snýst samt um tengsl þeirra viö Stasi. Þetta er það sem athyglis- verbast er vib þennan sjónvarps- þátt. En umræban að þættinum loknum er ekki síður athyglis- verð. Morgunblaðið tók upp þráðinn 7. febrúar og spann áfram á enn glæfralegri hátt en höfundar sjónvarpsþáttarins leyfðu sér: „íslenskur námsmað- ur njósnabi fyrir Stasi," hljóðaði fyrirsögnin. Þab hafði nefnilega fundist smáglæpur þrátt fyrir allt: einn íslensku námsmann- anna hafði unnið smá viðvik fyr- ir Stasi. Raunar reis sá smáglæpur ekki einu sinni undir nafni þegar á allt er jitið. Leibari Morgunblaösins þenn- an sama dag er svo dæmigeröur fyrir þetta glæpamál allt saman, en þar er sagt: „Árni [Björnsson] viburkenndi í fyrsta sinn í þætt- inum, að hafa fengib slíka beiðni [um samstarf við Stasi] en kveðst ekki hafa orðib við henni." Var þá nokkuð ab viöurkenna? Og: „Allir hafa þeir ... margsinnis hafnab öllum staðhæfingum bæði Morgunblaðsins og ann- arra um náin tengsl þeirra við stjórnvöld í Austur-Evrópu. Það er fyrst nú, þegar þeir eiga engan annan kost, að þeir ýmist játa störf fyrir Stasi eða viðurkenna, að eftir hafi verib leitað." Samt hafa engin skjöl fundist sem benda til náinna tengsla við Stasi. Þvert á móti! Þetta minnir á manninn sem stolib var frá og var alltaf kallabur Jón þjófur eftir það. Morgunblaöið gefur sig út fyrir aö verá áreiöanlegt og vandaö blab. En það er bara ekkert vand- abra en pólitískt ofstæki rit- stjórnarinnar leyfir. Öllu ömur- legra er hlutskipti sagnfræðipró- fessorsins Þórs Whitehead, sem lét Alþýðublaðið hafa eftir sér þessa spurningu 9. febrúar: „Hvers vegna sögöu þeir ekki frá þessum tengslum sínum við austurþýsku leyniþjónustuna Stasi?" Þab mætti tína fleira til úr málflutningi hans varöandi þetta mál, en þetta er nóg til að efast um hæfni hans til að draga ályktanir af sögulegum skjölum. Þegar á allt er litið er það ekki þessi uppdiktaði glæpur sem skiptir máli. Höfuðglæpurinn er auðvitab sá að vera sósíalisti. Uppdiktaði glæpurinn er til að undirstrika hann. Það er auövit- að synd að eini maðurinn, sem eitthvab hefur sannast á (þótt það hafi svo sem ekki verið neitt), er löngu hættur að vera eitthvert nafn í pólitík og var aldrei stærra nafn en svo ab fæst- ir muna það. En mér er reyndar til efs að það hafi tekist að búa til glæp sem endist. Almenningur hefur einfaldlega lítinn áhuga á hvaö kom fyrir menn á stúdents- árum þeirra erlendis fyrir 30 ár- um. Ef Svavari og Hjörleifi geng- ur illa í pólitík á Islandi nú, þá er það út af einhverju allt öðru. Höfundur er skáld. Um „monnípeningastreymi" til „monnípeninga" Því mibur er það oft svo, að maður fer ekki að átta sig almennilega á mönnum fyrr en þeir eru dauðir. Þannig var það t.d. ekki fyrr en nú um daginn, sem ég gerði mér grein fyrir því að Dagur skáld Sigurðarson var ekki allur þar sem hann var séð- ur. Hann var nefnilega ekki aðeins orðhagur, eins og vera ber meö skáld, heldur var hann einnig snjall hagfræðingur. Því var á þann veg varib með Dag, að oftar en ekki skorti hann skotsilfur, eða „monnípening", eins og hann kallaði þaö. Aubvitað gat þetta verið bagalegt, sérstaklega þegar ekki var til ann- arra ráða ab grípa en ab fara á „bís- ann". Þab er nú þannig á blessuðum „bísanum", að flestir eru þar heldur illa fjáðir, jafnt þeir sem slá og hin- ir sem slegnir skulu. Því er oft lítib að hafa hjá hverjum og einum. En Dagur var ekki að kippa sér upp við það. Þess var heldur ekki að vænta, því hann studdist við algjörlega óbrigðula hagfræðikenningu. Hún er svona: „Monnípeningar" leita þangað þar sem nóg er af þeim fyr- ir. Segjum t.d. aö Dagur stormaði inn á Mokka án þess að eiga eina einustu krónu, hvað þá heldur fyrir kaffibolla. Væri enginn þar staddur, sem gerði sig líklegan til að bjóða honum upp á kaffi, þá gekk hann aö fyrsta manni og bað hann ab lána sér tíkall. Því næst sýndi hann þeim næsta tíkallinn og sagbi eitt- hvað í þessa veru: Sjáðu, ég á tíkall, nú vantar mig bara hundrabog- nítíukall upp í kaffibolla. Þú „redd- ar" því. Þessi aðferö brást skáldinu ekki. Á þeim árum, sem ég umgekkst Dag, dugði þetta ráð honum einnig þótt um væri að ræða umfangsmeiri fjár- SPJALL PJETUR HAFSTEIN LÁRUSSON festingar en í kaffibolla. Þannig gekk bara nokkuð vel að slá fyrir flösku með því að beita þessari hag- fræðikenningu. Nei, hann Dagur Sigurðarson þurfti ekki að fara í Háskólann til að læra hagfræði, hún var honum í blóö borin. Nú veit ég að lesendur furða sig á þeirri skammsýni minni, ab hafa ekki áttað mig á þessari snilli Dags fyrr en nú. En hagfræöikenningar eru að því leyti frábrugðnar skáld- skap, að kostir þeirra og gallar verða ekki metnar út frá hughrifum, held- ur samanburði við aðrar kenningar í sömu grein. Og svo vitaníega því, hvernig til tekst með framkvæmd- ina, en það er önnur saga. Það er meira ab segja þannig með hag- fræöina, að tveir menn geta komist að nákvæmlega sömu niöurstöðu, en með svo ólíkum hætti, ab annar stendur uppi sem snillingur í grein- inni, meðan hinn afhjúpar sig sem aula. Og þá kem ég loks ab kjarna málsins. Maður nokkur, sem hefur verib að vasast í stjórnmálum í u.þ.b. aldarf jórðung, lét nýlega taka saman skýrslu, sem sýnir að á ís- landi safnast auður á fárra manna hendur. Sem sé, „monnípeningar" leita þangað þar sem nóg er af þeim fyrir. Svo sem títt er mebal stjóm- málamanna, fékk hann spreng- lærða sérfræðinga til að finna þetta út fyrir sig. Minna dugði honum ekki. Og þegar háskólastóbið haföi loks áttab sig á eðli fjárstreymis í borgaralegu hagkerfi og samið skýrslu um þessa snilldaruppgötv- un sína, þá varð stjórnmálamaður- inn svo öldungis hlessa, að hann hljóp með tíðindin í fjölmiöla. Ég hef þab meira ab segja fyrir satt, að hann bíði þess nú í ofvæni ab fá hagfræbiverðlaun Nóbels. Eg veit, aö Dagur Siguröarson heföi aldrei nennt að drekka kaffi með þessum ónefnda stjórnmála- manni, hvað þá heldur brennivín. En miída fyrirhöfn heföi blessabur rábherrann getaö sparað sér og fræðingunum, ef hann hefði ein- hvern tíma gefib sér tóm til aö sitja smástund á Mokka og fylgjast meö honum „praktísera" kapítalisma.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.