Tíminn - 05.07.1995, Side 1

Tíminn - 05.07.1995, Side 1
STOFNAÐUR 1917 79. árgangur Miövikudagur 5. júlí 1995 122. tölublað 1995 Hœtt viö aö landvinnslan fœrist í vaxandi mœli út á sjó. Bolfiskvinnsla innan IS: Allt að 7,3% verri afkoma Árni Benediktsson, stjórnar- formaður Vinnumálasam- bandsins, segir aö heildaraf- koma frystihúsa í hefbbund- inni bolfiskvinnslu innan ís- lenskra sjávarafurða hf. hefur versnað um allt að 7,3% frá síðasta ári og fram á mitt þetta ár. Hann segist óttast að við- brögðin við þessari versn- andi afkomu veröi sú að vinnslan fær- ist í vaxandi mæli út á sjó með tilheyr- andi afleið- ingum fyrir Arni Benediktsson. atvinnu land- verkafólks. Arni segir að geng- isfelling sé ekki í umræðunni, enda sé raungengi krónunnar lágt um þessar mundir. Það sem einkum veldur þess- ari versnandi afkomu í bolfisk- vinnslunni er m.a. lækkandi afurðaverð, kostnaðarhækkan- ir og óhagstæð gengisþróun samtímis í Bandaríkjadollar og ensku pundi. En síöast en ekki síst hefur hráefni til vinnsl- unnar farið minnkandi og er ekki eins stöðugt og áður var í framhaldi af skertum afla- heimildum á íslandsmiðum. Málefni frystihúsa í hefð- bundinni bolfiskvinnslu inn- an ÍS og viðbrögð við versn- andi afkomu verða til umræðu á sérstökum fundi sem hald- inn verður á Akureyri nk. föstudag, 7. júlí. ■ Ætli hann hafi próf ásvona verkfœri? Malbikunarflokkur vib Suburhlíb í Reykjavík fékk tímavilltan jólasvein í heimsókn í gcer. Vibkomandi mun dags daglega vera einn af starfshópnum en gerbi þetta til ab lífga upp á daginn. Tímamynd: Pjetur Jóhann C. Bergþórsson búinn ab mynda meirihluta í Hafnarfiröi: Ekkert vandamál ab fá fólk í nefndir Pílastceöi viö Dóm- kirkjuna: Neybar- ástand vib útfarir Eftir 1. september verða engin bílastæði í miðbæn- um ætluð starfsmönnum Dómkirkjunnar í Reykja- vík. Sakir þess hefur borg- arráði verib ritað bréf þar sem úrlausnar er leitab. Bílastæðamálin í mið- bænum hafa löngum verið í algjörum ólestri og segja Andrés Ólafsson, kirkju- vörður Dómkirkjunnar, og Marínó Þorsteinsson, vara- formaður sóknarnefndar, að neyöarástand skapist iðu- lega í kringum athafnir Dómkirkjunnar, sérstaklega fjölmennar jarbarfarir. Starfsmenn kirkjunnar hafa þó haft sín stæði en borgin hefur úthlutað þeim tveim- ur stæbum undir Pósthús- stræti 13. Nýlega barst svo bréf frá Bílastæðasjóði þar sem stæðunum var sagt upp. Af því tilefni ritaöi sóknarnefnd borginni bréf og borgarráð vísaði málinu til borgarhagfræðings. Af öryggisástæöum hefur verib gagnrýnt þegar lög- reglan lokar ákveðnum svæðum í grennd við Dóm- kirkjuna. M.a. hefur verið bent á slæmt aðgengi slökkviliðsbíla, ef eldsvoða bæri ab höndum í miðbæn- um. Önnur úrræði en að- gerðir lögreglunnar eru þó ekki í sjónmáli. ■ „Ég veit ekki betur en gamlir oddvitar eins og Stefán Jóns- son og Páll V. Daníelsson séu í stuðningsmannahóp okkar, af þessum eldri kanti. Það er ljóst ab með okkur er fyrrver- andi bæjarfulltrúi, Hjördís Gubbjörnsdóttir, og hún hef- ur fengið sannfærandi yfir- lýsingu frá Sólveigu Ágústs- dóttur, fyrrum bæjarfull- trúa," segir Jóhann G. Berg- þórsson í Hafnarfirði abspurður um stubning inn- an Sjálfstæbisflokksins í Hafnarfirbi vib meirihluta- samstarf hans og Ellerts Borg- ars Þorvaldssonar við Alþýbu- flokkinn í bæjarstjórn. „Hins vegar höfum við ekkert ætlað ab fara að búa til ein- hverjar klofningslínur. Það voru á milli 80 og 90 manns hjá okkur í gærkvöldi þar sem við kynntum þetta. Það hefur ekki verið vandamál fyrir okkur að fá fólk til að starfa í nefnd- um. En við væntum þess að menn átti sig fyrr en síðar á því að þab er verið að vinna að málefnum flokksins en ekki einhverjum eigin hagsmunum sem menn hér slá fram órökstutt," segir Jóhann. -En verður Jóhann bcejarverk- frceðingur eftir þessa breytingu? „Nei, enda má segja að um- sóknin hafi nú verið fyrst og fremst til að láta reyna á það hvort menn stæðu við gerða samninga. Það er þó endahnút- urinn á því að samningar yfir höfuð stóðu ekki. Það hefur ekkert upp á sig að semja stöð- ugt um það hvernig á að starfa í meirihluta og hvaða árangri á að ná ef ekki er eftir því farið. Hvort það heitir þetta atriði eða eitthvað annað." „Ég harma þá yfirlýsingu," segir Jóhann um yfirlýsingu Davíðs Oddssonar, forsætisráð- herra og formanns Sjálfstæðis- flokksins, þess efnis að Sjálf- stæðisflokkurinn eigi að vinna gegn nýja meirihlutanum í Hafnarfirði. „En ég sé hins vegar ekki að þaö sé í anda Sjálfstæðisflokks- ins að vinna gegn þeim stefnu- málum sem hann hefur sjálfur sett fram. Því það hljóta að vera stefnumálin fyrir hönd bæjar- búa og Sjálfstæðismanna sem skipta máli, ekki kannski endi- lega hverjir hafa sest niður og komið þeim á framfæri. Og ég sé ekki fyrir mér að Sjálfstæðis- flokkurinn vinni gegn eigin stefnumálum," segirjóhann. TÞ Alls 145 manns sem vildu hœtta ab reykja sóttu 10 námskeib á Heilsuverndar- stöb Reykjavíkur: Um 70% „sprungu" eftir þrjá mánuði Af um 160 einstaklingum, sem sóttu 10 námskeið gegn reyking- um hjá Heilsuverndarstöð Reykja- víkur veturinn 1992/1993, voru 15% „sprungnir" eftir tvær vikur, 70% eftir þrjá mánuði og aðeins 17%^ voru ennþá reyklausir eftir áriö. Hér er miðað viö þá sem héldu algert reykbindindi frá fyrsta degi námskeiðsins, þ.e. höfðu ekki einu sinni tekið einn „smók". Sé hins vegar miðað viö „mild- ari" mælikvaröa, þ.e. daglegar reykingar á ný, þá voru 12% farin að reykja daglega eftir tvær vikur, um helmingurinn eftir þrjá mán- uði og þriðjungurinn var enn ekki farinn að reykja daglega eftir árið. Þátttakendur í námskeiðunum voru á aldrinum 19-69 ára. Um 2/3 voru konur og 1/3 karlar. ■

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.