Tíminn - 05.07.1995, Qupperneq 3
Miövikudagur 5. júlí 1995
3
VSÍ óttast ekki bakreikninga frá verkafólki vegna
meiri launabreytinga í öörum samningum:
Óbundnar hendur
gagnvart öbrum
Þórarinn V. Þórarinsson,
framkvæmdastjóri VSI, segir
ab verkalý&shreyfingin hafi
ekki leitab eftir neinum lof-
oröum frá atvinnurekendum
vi& samningageröina sl.
febrúar aö þeir semdu ekki viö
aöra um meiri launabreyting-
ar en kveöiö er á um í þeim
samningi. Af þeim sökum ótt-
ast hann ekki aö atvinnurek-
endur muni fá þaö í bakiö
seinna meir aö hafa gert betur
viö ýmsa hópa iaunafólks sem
sömdu seinna.
Eins og kunnugt er þá töldu
atvinnurekendur í ársbyrjun aö
samkeppnisstaöa atvinnulífsins
mundi ekki þola meiri launa-
breytingar en sem næmi 7% -
8% á tveggja ára samningstíma,
eöa til ársloka á næsta ári. Allt
þar framyfir mundi veikja sam-
keppnisstööuna gagnvart helstu
samkeppnislöndunum og bitna
illa á atvinnustiginu. Síöan þá
hafa samtök atvinnurekenda
gert nokkra samninga sem hafa
falið í sér töluvert hærri launa-
hækkanir og eru ríkið og sveitar-
félögin þar ekki undanskilin. En
launabreytingar þessara samn-
inga hafa verið á bilinu 10% -
20%.
Framkvæmdastjóri VSÍ segir
að vissulega séu þetta áhyggju-
efni og hefur „teygt" á ábur
markaðari launastefnu. En á
móti kemur að í flestum þessum
betri samningum hafa atvinnu-
rekendur alltaf fengið eitthvað á
móti, sem á að geta dregið úr
áhrifum þessara launakostnab-
arhækkana á framleiöslukostn-
ab einstakra greina atvinnulífs-
ins. ■
Tímamót hjá VMSÍ:
Kaupir þak yfir höfub
ar í nýju húsnæði.
Sambandið, sem var stofnað
1964, leigði fyrst aðstöðu á Suð-
urlandsbraut ábur en það fékk
abstöbu að Lindargötu 9. Þab
hús er í eigu sameignarfélags
Dagsbrúnar og Sjómannafélags
Reykjavíkur. Um nokkurn tíma
hafa staðið yfir viðræður á milli
félagsins og ríksins um hugsan-
leg kaup hins opinbera á hús-
inu. Náist ekki niðurstaöa í þær
viðræður verður einhverjum
öbrum bobib að gera tilboð í
húsib.
Verkamannasamband íslands
hefur fest kaup á rúmlega 120
fermetra skrifstofuhúsnæöi
fyrir starfsemi sína í Skipholti
50 c fyrir um 8,2 miljónir
króna.
Björn Grétar Sveinsson, for-
maður VMSÍ, segir að þetta sé í
fyrsta skipti í rúmlega 30 ára
sögu sambandsins sem þab fest-
jr kaup á eigin húsnæði undir
starfsemina í stab þess ab leigja.
Flutningar hafa staðið yfir síð-
ustu daga og á morgun,
fimmtudaginn 6. júlí, verða
skrifstofur sambandsins opnaö-
Frá blabamannafundi SÁÁ í gœr. F.v. TheodórS. Halldórsson, framkvœmdastjóri SAA, Helga Hannesdóttir geb-
lœknir og Þórarinn Tyrfingsson, formabur SÁA. Tímamynd: Pjetur
Ársskýrsla SÁÁ komin út:
Hassneysla minnkar en
sprautufíklum fjölgar
Bláedrú í banastuði
Á árlegri Staöarfellshátíö um
síöustu helgi vakti þaö sér-
staka athygli aö þangaö
komu nú á eigin vegum ung-
lingar sem áöur hafa sótt
slíkar hátíöir meö foreldrum
sínum, sem þá yfirleitt
höföu áöur veriö í meöferö á
Staöarfelli.
Leiörétting
Villa slæddist inn í mynda-
texta á forsíðu blaðsins í gær en
þar var unglingur frá Grenivík
ranglega kallabur Reynir Alfreð
Sveinsson. Reynir er frá Kópa-
vogi eins og raunar kom fram
annars staðar í textanum, en
pilturinn frá Grenivík heitir Sig-
urvin Hauksson. Tíminn bibur
Sigurvin velvirðingar á þessu. ■
Um 700 manns mættu á há-
tíðina að þessu sinni, eða fleiri
en nokkru sinni fyrr þrátt fyrir
að gestir þyrftu að tjalda í súld
og vakna upp við slagveðurs-
rigningu að morgni hátíðar-
innar. Sólin skein síðan á Stað-
arfellsgesti líkt og flesta lands-
menn á sunnudeginum.
Nokkrir landsþekktir tónlist-
armenn, þeirra á meðal Pálmi
Gunnarsson og Rut Reginalds,
settu saman hljómsveitina Álf-
ana fyrir Staðarfellshátíðina
sérstaklega og tókst flutningur
þeirra stórvel að sögn hátíbar-
gesta. Sérstök dagskrá, m.a.
íþróttamót, var haldin fyrir
mikinn fjölda barna og ung-
linga sem sóttu hátíbina. Há-
punkturinn var kvöldvaka við
varðeld sem tendraður var af
eldgleypi. ■
Á aöalfundi SÁÁ síöastliöinn
fimmtudag kom út ný árs-
skýrsla samtakanna þar sem
fram kemur aö neysluform
þeirra sjúklinga sem samtök-
in hafa afskipti af hefur
breyst verulega. Stórneyt-
endum á kannabisefni fer
fækkandi, dregiö hefur úr
amfetamín-neyslu og
sprautufíklum fjölgar.
Heildardrykkja landsmanna
hefur þó ekki aukist og hald-
ist nokkuö stööug þrátt fyrir
breyttar neysluvenjur al-
mennings.
Töluverð umræða hefur ver-
ið undanfarið um notkun á
skynbreytandi efnum, t.d.
Ecstasy. Þó kemur fram í fyrr-
nefndri ársskýrslu að enn
greinast 84% nýrra sjúklinga
hjá SÁÁ eingöngu meb áfeng-
isvanda. Það var ekki fyrr en
eftir áramót að menn urðu
varir við neyslu á Ecstasy. Þór-
arinn Tyrfingsson, formaður
SÁÁ, telur að sú staðreynd
sýni að forvarnarstarfsemi og
umræða hafi skilað sér. Hins
vegar hefur fjöldi unglinga, 19
ára og yngri, á Vogi tvöfaldast
á síðastliðnum 7 árum. í þess-
um hópi sem og öðrum hefur
dregið úr kannabisneyslu en
landadrykkja aukist að sama
skapi. Margir úr þessum hópi
eiga í félagslegum erfiðleikum.
Skortur á menntun og starfs-
reynslu og aukið atvinnuleysi
veldur því að margir þeirra
eiga erfitt með að fóta sig að
meðferð lokinni. Þeim til
hjálpar hefur SÁÁ staðið fyrir
aukinni félagsstarfsemi og
m.a. sett á fót félagsmiðstöð-
ina Úlfaldinn.
Að sögn Helgu Hannesdótt-
ur, geðlæknis á Vogi, hafa
menn mestar áhyggjur af
fjölgun sprautufíkla sem varla
þekktust á íslandi fyrir 1983. Á
síðustu fjórum árum hafa 416
einstaklingar komið inn á Vog
og verið greindir sem sprautu-
fíklar, þar af 110 á síðasta ári.
Um helmingur fíklanna er
smitaður af lifrarbólgu og telj-
ast því í áhættuhópi fyrir al-
næmi. Helga átelur stjórnvöld
fyrir stefnuleysi gagnvart þess-
um hópi. Móta þurfi stefnu
um hvernig meðhöndla eigi
þessa einstaklinga og hvort
ráð væri að gefa sprautunálar
eins og gert er víða í Evrópu.
Þórarinn telur þó að brátt
geti menn séð fyrir endarin á
fjölgun sprautufíkla samfara
minnkandi notkun kannabis-
efna þar sem sprautufíklarnir
hafi yfirleitt byrjað sem
kannabisneytendur.
Fjöldi karla er mun meiri en
kvenna í hópi sjúklinga SÁÁ.
Hafa meðferðir á vegum sam-
takanna tekið mið af mismun-
andi þörfum karla og kvenna.
Mikilvægur áfangi náðist í
byrjun ársins þegar komið var
á fót sérstakri meðferð fyrir
vímuefnasjúkar konur. í
henni er tekið á vandamálum
sem beinast fremur að konum
en körlum, svo sem fordóm-
um umhverfis, fjölskyldumál-
um og áfallahjálp.
Að lokum má geta þess að
Þórarinn Tyrfingsson var end-
urkjörinn formaður SÁÁ á að-
alfundinum eins og búist var
við. ■
Háskólinn á Akureyri:
Möguleikar á BS-námi
viö rekstrardeild
Frá Þórbi Ingimarssyni, fréttaritara
Tímans á Akureyri.
Eftirleiöis veröur mögulegt
aö ljúka BS-prófi í rekstrar-
fræöi frá Háskólanum á Ak-
ureyri en menntamálaráö-
herra hefur gefiö út reglugerö
þess efnis. Meö reglugeröinni
eru staöfestar ákveönar
skipulagsbreytingar sem
Ólafsfjörbur:
Hátíðarvika í tilefni 50 ára afmælis bæjarins
Frá Þórbi Ingimarssyni, fréttaritara Tímans
á Akureyri.
Ólafsfjaröarbær er 50 ára á þessu
ári og verður þeirra tímamóta
mebal annars minnst meb hátíb-
arhöldum dagana 7. til 16. þessa
mánabar. í tilefni afmælisins
mun forseti íslands, frú Vigdís
Finnbogadóttir, heimsækja Ólafs-
jörb og vera vibstödd vígslu húss
eldri borgara á stabnum auk þess
ab sitja kvöldverbarbob bæjar-
stjórnar og vera heibursgestur á
frumsýningu leikverks eftir Gub-
mund Ólafsson, rithöfund og
leikara, um sögu bæjarins.
Ólafsfjörbur fékk kaupstabarrétt-
indi í ársbyrjun 1945 og árib því
raunar allt afmælisár þótt efnt verði
til þessarar sumarhátíbar í tilefni
þess. Afmælisins var fyrst minnst
með hátíöarfundi bæjarstjómar í
byrjun ársins, um páska var efnt til
útivistarhátíðar og 22. apríl síðast-
liðinn fór fram sérstök menningar-
dagskrá í tilefni af ýmsum áföngum
í fræðslu- og menningarstarfi í bæn-
um. Þá er fyrirhugub ráðstefna í Ól-
afsfirði á komandi hausti þar sem
fjallaö verður um stöðu jaðar-
byggöa og 28. október er fyrirhuguð
afmælisárshátíð Ólafsfirbinga.
Sjálf afmælishátíðin hefst meb
dagskrá fyrir unglinga föstudags-
kvöldið 7. júlí en daginn eftir heim-
sækir forseti íslands bæinn. Sýning-
ar veröa opnar alla daga afmæli-
svikunnar og fimmtudaginn 13.
júlí heldur bæjarstjórn móttöku þar
sem alþingismenn, fyrrverandi bæj-
arstjórnarmenn og fulltrúar frá ná-
grannasveitarfélögum verða á með-
al gesta.
Afmælishátíðinni lýkur laugar-
daginn 15. júlí þegar boðið verður
upp á fjölbreytta dagskrá í Ólafsfirði
er standa mun yfir frá morgni fram
á nótt. ■
unniö hefur veriö aö á vegum
skólans aö undanförnu.
Fimm mismunandi sviö
munu veröa starfrækt viö
deildina eftir þessar breyting-
ar: almennt rekstrarsviö, iön-
rekstrarsviö, stjórnunarsviö,
markaössviö og sjávarútvegs-
sviö.
Þá er Háskólanum á Akureyri
einnig heimilað með reglugerð
þessari að bjóða framhaldsnám
á sviði gæðastjórnunar að
loknu BS-prófi og er það í fyrsta
skipti sem skólinn á kost á að
bjóða slíkt framhaldsnám. Meb
því opnast möguleikar háskól-
ans til þess að efla nám í gæða-
stjórnun og gera nemendum
kleift ab nýta það sem hluta
magistersprófs í samvinnu við
aðrar menntastofnanir á borb
við erlenda háskóla. Á síðasta
námsári stunduðu alls 385
nemendur nám við Háskólann
á Akureyri og luku 52 kandíd-
atsprófi á liðnu vori. Þá luku 20
nemendur tveggja ára námi í
rekstrarfræði við skólann. ■