Tíminn - 05.07.1995, Síða 4

Tíminn - 05.07.1995, Síða 4
4 Miövikudagur 5. júlí 1995 STOFNAÐUR 1 7. MARS 1 91 7 Útgáfufélag: Tímamót hf. Ritstjóri: jón Kristjánsson Ritstjórn og auglýsingar: Brautarholti 1, 105 Reykjavík Sími: 563 1600 Símbréf: 55 16270 Pósthólf 5210, 125 Reykjavík Setning og umbrot: Tæknideild Tímans Mynda-, plötugerö/prentun: ísafoldarprentsmiöja hf. Mánaöaráskrift 1550 kr. m/vsk. Verö í lausasölu 150 kr. m/vsk. Innflutningur landbúnabarvara Nú er komið að þeim tímamótum að ákvæði Gatt- samningsins, sem leyfa takmarkaðan innflutning landbúnaðarvara, hafa tekið gildi. Fyrsta mjólkur- afurðin er komin til landsins og í verslanir, en það eru íspinnar sem Sláturfélag Suðurlands flytur inn. Framkvæmd Gatt-samkomulagsins, sem snertir innflutning hingað til lands, hefur valdið deilum og á vafalaust eftir að verða til umræðu á næst- unni. Talsmönnum óhefts innflutnings þessara vara finnst vera skammt gengið. Það ber að minna á að víðtækt pólitískt sam- komulag tókst um að gefa innlendum landbúnaði tíma til þess að laga sig að þessum breyttu aðstæð- um. Ber í því sambandi að minna á að útflutnings- bætur hafa verið afnumdar hér á landi, og var þar gengið lengra heldur en í þeim löndum þar sem er að finna helstu keppinauta íslensks landbúnaðar. Hitt er ljóst að innflutningur landbúnaðarvara verður hafinn í einhverjum mæli. Það er nauðsyn- legt að um hann gildi skýrar og ákveðnar reglur, ekki síst um heilbrigðisskoðun, þar sem um ósoð- inn mat er að ræða. Fordæmin í því skipta miklu máli. Innflytjendur eiga að vita að hverju þeir ganga, og það er engum til góðs að hafa fjölmiðlafár í kringum hverja tollafgreiðslu á erlendum matvæl- um. Það er afar mikilvægt að allir hlutaðeigandi átti sig á því að óbætanlegt tjón getur hlotist af því, ef matvæli eru flutt til landsins sem uppfylla ekki heilbrigðiskröfur. Því verður að vanda sérstaklega til þessa þáttar. Fullyrt hefur verið að innflutningur matvæla verði til mikilla hagsbóta fyrir neytendur, ef hann væri fullkomlega frjáls. í þessu sambandi er það at- hyglisvert að í nágrannalöndunum er það þannig í raun, að á mjólkurvörum er sáralítill verðmunur og dæmi eru um það að mjólk sé dýrari þar heldur en hér á landi. Verðmunur er meiri á ýmsum kjöt- vörum. Alls er óvíst um hvernig verð á uppboðs- mörkuðum erlendis myndi skila sér hérlendis. Hins vegar er nauðsynlegt fyrir þá, sem vinna að framleiðslu, meðferð og sölu landbúnaðarafurða hér á landi, að huga að breyttum aðstæðum. ís- lenskar Iandbúnaðarvörur eru gæðavörur og hafa sterka hefð á markaðnum, eins og gefur að skilja, þar sem hann hefur verið verndaður. Verðlagið er veiki þátturinn og þarf að huga að öllum þáttum þess. Það er erfitt verkefni í þeirri stöðu sem land- búnaðurinn er í nú, en eigi að síður nauðsynlegt. íslendingum ber skylda til að fara eftir þeim samningsákvæöum sem hefur verið skrifað undir. Það á við um Gatt-samninginn. Okkur ber einnig að nýta þau tækifæri, sem samningurinn gefur til þess að flytja út landbúnaðarafurðir. Það er afar mikið hagsmunamál fyrir innlendan landbúnað að ekki verði slakað á klónni í þeim efnum. „Who drives like a lion?" Þá er nýr meirihluti kominn á koppinn í Hafnarfiröi og nýir bíl- stjórar sestir viö stýrið. „Who dri- ves like a lion with one hand on the stýri?" spuröi Ellert Borgar Þorvaldsson í fleygum söngtexta fyrir nokkrum áratugum ásamt spútnikhljómsveitinni Randver. Þá var svariö: „Bjössi on the milk- car, Bjössi women gold." En nú er Ellert Borgar sjálfur sestur viö stýriö sem forseti bæjarstjórnar og syngur meö nýju bandi, hljómsveitinni „Ingvar og Jói", sem stoliö hefur senunni í bæjar- málapólitíkinni í Firðinum og er aö gera allt vitlaust í Sjálfstæðis- flokknum. Kunnugleg baráttumál Ef marka má fréttir, verður það helsta viöfangsefni hins nýja meirihluta að takast á við afleita skuldastöðu Hafnarfjaröarbæjar og freista þess aö snúa blaðinu viö og byrja að borga niður skuldir. Vanhæfni gamla meirihlutans til aö fást viö fjármálin er nú að veröa ein helsta skýringin á nauö- syn þess að efna varð til nýs sam- starfs. Fjármálin, ásamt ímynd Hafnarf jarðar, er það sem stendur upp úr í málefnasamningnum hinum nýja, en þaö vill svo merkilega til að þetta eru ná- kvæmlega sömu málin og stóðu upp úr hjá gamla meirihlutanum líka. Þá voru menn ákveðnir í aö afmá spillingarstimpilinn af stjórnmálum bæjarins eftir langa setu kratanna þar. í málefna- samningi gamla meirihlutans var talað um að kippa fjármálunum í liðinn, því Hafnarfjöröur var orö- inn meö skuldugri sveitarfélögum GARRI og kominn í vond mál í þeim efn- um. Fyrir ári, þegar gamli meiri- hlutinn tók viö, stóö enda um- ræöan og rifrildiö um þaö hvort Hafnarfjöröur væri verr staddur eftir stjórn kratanna en önnur sveitarfélög. Garri man ekki betur en aö kratarnir sjálfir hafi kannast viö aö skuldirnar væru miklar, þó þeir héldu því jafnframt fram að einhverjir endurskoðendur úr Reykjavík vissu ekkert í sinn haus um það hvað væri debet og hvað kredit í hafnfirsku bókhaldi. Skipt um hlutverk Þannig hefur þaö gerst í Hafn- arfirði aö syndaselir gærdagsins eru orðnir háheilagir postular dagsins í dag, en postular gær- dagsins eru orðnir aö syndasel- um. Umræöan og umræöuefnin eru þó í nokkuð föstum skorðum, þó deiluaöilar hafi skipt um hlut- verk, þaö er rifist um fjármálin og ímjnd bæjarins. I öllu þessu umróti og hlut- verkaskiptingum pólitíkusanna er þó einn eðlisþáttur sem stendur upp úr í hafnfirskum stjórnmál- um. Þaö er vantrúin á reykvíska leiðsögn; nánast afneitun á því aö eitthvað sem talið er gilda í Reykjavík geti gilt í Hafnarfirði. Þannig kom fram hjá krötunum á sínum tíma aö ekki væri hægt að láta reykvíska endurskoðendur skilja hafnfirskt bókhald. Nú kemur það fram hjá sjálfstæðis- mönnum að reykvískur flokksagi gildir ekki í Hafnarfirði. Sumir segja aö það hafi veriö eins og að fara meö fallbyssu á spörfugla- veiðar þegar Davíð Oddsson, for- maður og æðsti prestur Sjálfstæð- isflokksins og forsætisráðherra lýðveldisins, bannfærði þá Jóa Begg og Ellert Borgar. En ekkert virðist hrína á þeim söngfuglun- um. Þeir segja bara að Davíð hafi ekki fengið réttar upplýsingar, þ.e. hafnfirskar upplýsingar, og viti því ekkert um hvað hann er að tala, enda með aðsetur í Reykjavík. Þeir halda því ótrauðir sínu striki, söngfuglarnir úr Firðinum, og „stíga bensínið í botn á fyrsta gíri", enda forsöngvarinn í for- setastóli vanur vörubílataktinum ekki síður en sjálfur Hagvagna- og Hagvirkisforstjórinn Jói Begg. Garri Sínum augum lítur hver á silfrið Silfursjóburinn frá Miöhúsum rannsakaöur á fundarstaö. Kristján Eldjárn og Þór Magnússon, fyrrverandi og núverandi þjóöminjaveröir. Myndina tók jón Kristjánsson, þáverandi fréttaritari Tfmans. „Sjá, tíminn hann er fugl sem flýgur hratt," segir Omar Khayy- am í kvæöabálki sínum Rubayat, og þessi tilvitnun hefur æði oft vériö notuð þegar litið er yfir far- inn veg. Mér komu þessar ljóðlínur í hug þegar ég sá það í umfjöllun um silfursjóðinn fræga frá Mið- húsum, að hann fannst árið 1980 og 25 ár eru nú liðin frá þeim at- buröi. Bitastæð frétt Þegar þetta gerðist var ég frétta- ritari Tímans á Austurlandi og var að reyna að sinna því verki eftir föngum. Ég man eftir því eins og það hefði gerst í gær, þegar hringt var í mig og Sigrún húsfreyja í Miðhúsum stakk að mér þeirri frétt að silfur hefði fundist í hús- grunni sonar hennar og tengda- dóttur. Ég brá við og fór og tók mynd af sjóðnum margfræga, og fór aftur á staðinn daginn eftir, þegar þeir Þór Magnússon og Kristján Eldjárn voru að rannsaka grunninn nánar, og tók fleiri myndir. Mér er þetta í fersku minni af því að þaö var ekki á hverjum degi sem við fréttaritarar í dreif- býli fengum slíkar fréttir til þess að senda. Ég hafði hins vegar ekki hugmyndaflug til þess að gera mér grein fyrir eftirleiknum nú fimmtán árum síðar. Vísindi eba þrá- hyggja Ég ætla ekki að hætta mér út í umræðui um vísindalega hugsun. Ég sinni stjórnmálum en ekki vís- indum. Þeirri skoðun minni leyni ég þó ekki, að mér finnst það bréf, sem kynnt héfur verið í fjölmiðl- um til enska fornleifafræðingsins Graham- Campbells, ekki bera vott um að honum væri faliö aö hafa vísindin ein að vopni við rannsókn sjóðsins. Bollaleggingar um námskeið Halldórs í Miðhús- um í handmennt og lagni þeirra febga Hlyns og hans við gerð ým- issa muna, hljóta að flokkast und- ir dylgjur en ekki vísindi. Á víbavangi Mér er líka ómögulegt að skilja að fullyrðingar Guðmundar Magnússonar og Bjarna Einars- sonar um að „sjóðurinn í heild geti vitaskuld ekki verið eldri en yngsti hluti hans" beri vott um vísindalega hugsun. Þessi fullyrð- ing ber miklu fremur vott um þrá- hyggju en vísindi. Mér vitanlega hefur aldrei verið fullyrt að sjóðurinn hafi legið í grunni hússins á Miðhúsum frá því á víkingaöld, þótt hann sé frá þeirri tíð. Þab þarf ekki vísinda- mann til þess að hugsa sér það að hann kunni að hafa verið grafinn þar, eða hreinlega týnst þar síöar. Margt skeður á skemmri tíma en þúsund árum. Hins vegar þarf mikið hugmyndaflug til þess að láta sér detta það í hug að smíða slíkan silfursjóð og grafa hann í jörð, til þess að finna hann óvænt þegar svo stæði á aö Kristján Eld- járn, fyrrverandi forseti íslands og fyrrverandi þjóðminjavörður, væri í heimsókn á Egilsstöðum. Málatilbúnaðurinn í kringum þetta silfursjóðsmál hefur þreytt fólkið í Miðhúsum, sem geröi það eitt sem gera átti þegar sjóðurinn fannst, ab láta vita af því til réttra aðila. Ég skil því ósköp vel þótt þolinmæði þeirra Hlyns og Eddu í Miðhúsum sé þrotin. Efasemda- mennirnir í þessu silfursjóbsmáli ættu að biðja þau afsökunar. Svo geta þeir haldið áfram að beina sinni vísindalegu hugsun að sjóbnum og uppruna hans. Jón Kr.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.