Tíminn - 05.07.1995, Blaðsíða 6

Tíminn - 05.07.1995, Blaðsíða 6
6 Miðvikudagur 5. júlí 1995 Séö yfir hluta Fossvogsdals. Meöalstœrö íbúöa í sérbýli fór upp í 576 m3 á árunum 1992-93: Einbýlishús aldrei stærri og færri Fullgerb einbýlishús og ann- ab sérbýli (rabhús/sérhæbir) voru færri á árinu 1993 held- ur en nokkurt annab ár síb- ustu fjóra áratugina a.m.k., abeins 656 talsins. Aftur á móti hafa slíkar íbúbir aldrei verib stærri en þær sem lokib var vib á árunum 1992 og 1993, eba um 576 m’ sam- kvæmt tölum um fullgerbar íbúbir á landinu öllu í skýrslu Húsnæbisstofnunar. Áætlab flatarmál þessara íbúba gæti verib 180-190 m2 að meðaltali. í hálfan annan ára- tug á undan var meðalstærð sérbýlis um 539 m3 og breyttist þá lítið ár frá ári. En fyrir 1976 byggði Meðal-Jóninn aðeins um 500 m3 einbýlishús. Ef hús- byggjendur hefbu enn byggt svo hóflega árið 1993, hefðu þeir fengið 100 húsum fleira út úr þeim 377 þúsund m3, sem lokið var smíði á þab ár. Margumræddir erfiðleikar við sölu stórra íbúðarhúsa virð- ast því síður en svo hafa dregið úr stórhug þeirra sem á annað borb leggja út í húsbyggingar, þótt slíkum hafi hins vegar fækkað umtalsvert síðustu árin. Menn viröast þannig annað hvort byggja stórt eða láta það eiga sig. Meðalstærð fullgerbra íbúða í fjölbýlishúsum (6 íbúbir o.fl.) hefur líka abeins einu sinni (ár- ið 1984) verið meiri heldur en árin 1992-93, þegar íbúðir í fjölbýli mældust um 344 m3 að meðaltali (kringum 115 fer- metrar). Alls var lokið smíbi á um 1.680 íbúöum í fyrra og um 1.630 íbúðum árib ábur, sem er svipaður fjöldi og verið hefur allt frá árinu 1980 (1.655 ab meðaltali á ári). En næstu átta ár þar á undan (1972-80) var aldrei lokið vib færri en 2 þús- und íbúðir ár hvert (2.190 ab meðaltali á ári). Mjög er hins vegar mismun- andi hvernig þessar íbúðir skiptast milli fjölbýlis og sér- býlis. Svo langt sem tölur Hag- stofunnar um slíka skiptingu ná (1956), urðu nýjar íbúðir í sérbýli flestar árið 1982, tæp- lega 1.440 talsins. Sem fyrr seg- ir hafa þær aldrei oröið færri en 1993, þegar aðeins var lokið vib 656 íbúðir í sérbýli. Og tvö næstu ár þar á undan var lokið við rúmlega 800 slíkar íbúðir, en þá varð ab fara allt aftur til 1976 til að finna dæmi um færri en 800 fullgerðar íbúðir í sérbýli. Dalvík: Hreinn hf. flytur norbur Frá Þórbi Ingimarssyni, fréttaritara Tímans á Akureyri: Hreinn hf., sem er hreinlætis- vörudeild Nóa-Síríus í Reykja- vík, hefur skipt um eigendur, því Dalvíkurbær hefur fest kaup á fyrirtækinu og hyggst flytja starfsemi þess norður í byrjun september. Kaupverb þess er um 14 milljónir króna og talib ab tilkoma þess muni skapa fimm til sex ný störf á Dalvík, auk annarra áhrifa sem af starfsemi þess leiba. Hreinn hf. framleiðir ýmsar hreinlætisvörur og má þar nefna handsápur og þvottaefni, auk þess sem fyrirtækið flytur inn skyldar vörur. Þegar hefur verið stofnað sérstakt hlutafélag á Dalvík um hreinlætisvöru- framleiðsluna og gert er ráð fyr- ir ab það hljóti hið gamla nafn fyrirtækisins. Sala hreinlætis- vöruframleiðsludeildar Nóa-Sír- íus er liður í þeirri ætlun for- ráðamanna fyrirtækisins í Reykjavík að einbeita sér að sæl- gætisframleiðslu, en áður hefur kertaverksmiðja verib seld til Borðeyrar og sérvörudeild til fyrirtækis í Reykjavík. Nokkurt óhagræði verður þegar mismun- andi starfsemi á borð við fram- leiðslu sælgætis og hreinlætis- vara er undir sama þaki, og mun það eiga sinn þátt í þeirri á- kvörðun forrábamanna Nóa-Sír- íus að einbeita sér að sælgætis- framleiðslunni. ■ aii Hópurinn sem vann aö göngustígalagningunni í kjarrinu viö Noröurá. Umhverfisverkefni í Noröurárdal: Göngustígar við Glanna Unnib hefur verib undanfarib ab því ab leggja göngustíga í grennd vib fossinn Glanna í Norburá í Borgarfirbi. Þab er Ungmennafélag Stafholt- stungna sem gengist hefur fyrir verkefninu. Göngustígarnir eru um 500 m langir og er m.a. um ab ræba nýjan göngustíg ab laxastiganum vib Glanna og nýjan útsýnisstab af árbakkan- um. Verkefnið er unnið meb góbfúslegu leyfi og hvatningu landeigenda á Hrebavatni. Göngustígalagningin er hluti af stærra verkefni um lagfæringu, merkingu og kortlagningu gönguleiða í nágrenni Vestur- landsvegar, frá Svignaskarði að Grábrók, sem unnið verbur á næstu misserum. Þetta umrædda verkefni við Glanna er styrkt af Borgarbyggð, Verkefnasjóði UMFÍ, Menningar- sjóði Kaupfélags Borgfirðinga og Sigurjóni Valdimarssyni, bónda og hreppstjóra á Glitstöðum í Norðurárdal. Verkstjórar við verk- iö voru þær Jóhanna Jóhanns- dóttir og Jóhanna B. Magnúsdótt- ir umhverfisfræðingur. TÞ, Borgamesi Unniö aö gerö göngustíga í nágrenni Glanna í Noröurárdal.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.