Tíminn - 05.07.1995, Síða 9

Tíminn - 05.07.1995, Síða 9
Mibvikudagur 5. júlí 1995 IWffiRi 9 UTLOND UTLOND UTLOND UTLOND UTLOND UTLOND UTLOND UTLOND Bandaríski rithöfundurinn Norman Mailer rœbir um Lee Harvey Oswald og innsta eöli Bandaríkjamanna: Rótlaus og hræddur eins og allir Bandaríkjamenn Fyrir stuttu kom út hjá Random House í Bandaríkjunum 800 síbna bók eftir rithöfundinn Norman Mailer um Lee Harvey Oswald, manninn sem talið er ab hafi myrt John F. Kennedy árib 1963. Bókin nefnist „Oswald's Tale: An American Mystery". í tilefni af útkomu bókarinnar var tekib vibtal vib Mailer í þýska tímaritinu Der Spiegel. Mailer var m.a. spurður ab því hvers vegna í ósköpunum hann væri að bæta einum doörantinum enn við allan þann aragrúa af bók- um sem skrifaður hefur verið um Kennedy-málið, en alls munu yfir Alþjóöa viöskiptastofnunin: Abildarríkin oröin 100 Cenf — Reuter Sex mánuöum eftir að Alþjóð- lega viðskiptastofnunin (WTO) var stofnub eru aðildarríki henn- ar orðin 100. Þau síöustu sem bættust í hópinn voru Egypta- land, Pólland og Sviss. 29 ríki til viðbótar eru langt komin meb undirbúning að að- ild. Öll þessi ríki voru aðilar að GATT, hinu almenna samkomu- lagi um verslun og viöskipti, sem nú hefur lokið hlutverki sínu. Þqr að auki hafa 28 ríki, sem ekki voru aðilar að GATT, sótt um ab- ild að Alþjóðlegu viðskiptastofn- uninni, en þar á meðal eru Rúss- land og Kína. ■ London — Reuter John Major hlaut 218 atkvæbi í leiðtogakjöri íhaldsflokksins í Bretlandi í gær, en John Red- wood hlaut 89 atkvæði. 12 at- kvæði voru ógild, 8 þingmenn skiluðu auðu og tveir skiluðu ekki atkvæðaseðli sínum. Þetta þýbir ab u.þ.b. hundrab þingmenn íhaldsflokksins styðja Major ekki í embætti leið- Norman Mailer. 2.000 bækur hafa veriö gefnar út um það til þessa. „Það stóð aldrei til," segir Mailer. Hins vegar hefði Larry Schiller, sem hann hafði áður unnið með, komist í gögn frá KGB um Oswald. „Hann spurði mig hvort ég hefbi ekki áhuga á því aö fljúga með sér til Hvíta-Rússlands og skrifa bók um Oswald í Minsk. Ég hafði alltaf haft áhuga á Osw- ald. Ég sló því til og vann að rann- sóknum í næstum því hálft ár, með stuttum hléum, í Minsk og Moskvu. Á þessum tíma fékk ég tækifæri til að gera mér mjög góða mynd af persónuleika Oswalds." — Og hvemig kom hann þér fyrir sjónir? „Hann kom mér hvorki fyrir sjónir sem morðingi né sérvitring- ur, heldur sem ungur maður sem toga. Fyrstu viðbrögð við kosn- ingunum voru engu að síður þau aö úrslitin nægöu til að treysta Major í sessi í embætt- inu. John Redwood óskaði Major til hamingju með sigurinn, sagði hann hafa unnið heiðar- legan sigur samkvæmt reglun- um og sagðist virða það. var nýbúinn aö gifta sig og var nú að reyna að komast burt með konu sinni." í bókinni er Oswald lýst sem gíf- urlega metnaðargjörnum manni, en sjálfsefinn hafi stöðugt nagað hann og pólitískt séð hefði hann verið töluvert ruglaður í ríminu. Þýsku blaöamennirnir spurðu Ma- iler aö sjálfsögbu þeirrar óhjá- kvæmilegu spurningar hvort hann liti svo á að Oswald hefði verið einn að verki eða hvort hann hefði einungis verið einn þátttakandinn í stóru samsæri. „Eftir aö Oswald hafði verið skotinn hélt ég eins og flestir Bandaríkjamenn að hann hefði ómögulega getað gert þetta upp á eigin spýtur. Nú hef ég skipt um skoðun. Ég er ennþá ekki end- anlega sannfærður um ab Oswald hafi verið einn að verki. En nú veit ég að honum var trúandi til þess. Tilræðið passar vel inn í skapgerð- areinkenni hans. Hann hafði ab- stöðu til að gera það, hann taldi sig hafa ástæðu til þess og hann fékk tækifæri til þess." Mailer er einnig spurður að því hvað sé sérstaklega bandarískt við sögu Oswalds. „Oswald var auövit- að undantekning, en undantekn- ing sem segir heilmikið um Banda- ríkin. Margt í persónueinkennum haris er bandarískt í innsta eðli sínu." — Hvemig þá? „Taumlaus metnabur hans, trú hans á algjört frelsi einstaklingsins, óbilandi sannfæring hans um ab geta gert allt sjálfur. Hann var vinstri maður, en hafði enga trú á félagslegri samvinnu heldur treysti algjörlega á einstaklinginn. Oswald hafði mjög margþættan persónu- leika — hann var jafn flókinn og flestir Bandaríkjamenn verða á lífs- leiðinni, vegna þess að þeir eiga sér varla nokkurs staðar fastar rætur." Á sjöunda áratugnum lýsti Mail- er því yfir ab hann stefndi að því að breyta hugsunarhætti samtíma- manna sinna. „í dag er það orðið miklu erfiðara," segir Mailer nú. „Hvab varbar tímamótabreytingar á vitundarlífi fólks, hef ég víst tek- ið einum of stórt upp í mig. En ég hef enn fullan vilja til þess ab Major nábi meirihluta Oswald meb eiginkonu sinni í Minsk árib 1962. breyta hugsunarhætti Bandaríkja- manna, því mér finnst hann við- bjóðslegur enn sem fyrr. Við Bandaríkjamenn erum ótrúlega vitlausir þegar haft er í huga hvaða kosti við höfum, hve háþróaðir vib erum og hvað saga okkar hefur ver- ib einföld í samanburði við sögu margra annarra landa. Viö erum gagnslausir, heimskir og illgjarnir vegna þess að sem stendur er ekk- ert kalt stríð sem getur vakið með okkur metnað fyrir hönd föbur- landsins." — Hver ber ábyrgð á því? „Það hefur heilmikið með græðgi að gera, af því að við erum svo rík þjóð. En vegna þess að við erum þessa dagana í þann veginn að glata forskoti okkar á velferðar- svibinu, breiðist óttinn út um allt. Ég held að það sé til sérstakur bandarískur ótti, sem er sérstaklega einkennandi fyrir þetta land. Við erum þjóð fólks sem var hrakið úr landi og dæmt í útlegð — fólkið, sem kom til Ameríku, átti allt að baki reynslu af einhvers konar höfnun í heimalandi sínu. Það greinir okkur líka frá öðrum þjóö- um: annars vegar erum viö at- hafnaglaðari en aðrar þjóbir, en hins vegar höfum við miklu minna sjálfsöryggi. Þar við bætist fyrirbæri sem nú orðib má sjá um allan heim, en sem er sérstaklega áberandi í Bandaríkjunum: rótleysi einstak- lingsins. Fæstir Bandaríkjamenn geta nú á dögum fundið húsib sem þeir fæddust í. Þess vegna er óttinn í Bandaríkj- unum meiri en annars staöar — jafnvel þótt þab sé auðvitað ekki hægt ab sanna það. Mig grunar að hinn dæmigerði Bandaríkjamaður sé óttaslegnari en dæmigerðir Frakkar, Þjóðverjar eba Bretar, enda þótt þessi lönd eigi sér líka stór vandamál og hafi þurft ab líða meiri þjáningar en Bandaríkin." Byggt á Der Spiegel Átak í söfnun dagblaða, tímarita og annars prentefnis til endurvinnslu er liafiö á höfuðborgarsvæðinu. Söfnunargámar eru víðsvegar og vel merktir. í Efra- og Neðra-Breiðholti verða fleiri söfnunargámar en í öðrum hverfum. Hverjum gámi í Breiðholtshverfunum tveimur er ætlað að taka við dagblöðum, tímaritum og öðru prentefni frá um 250 heimilum, en annars staðar eru því sem næst 1800 heimili um hvern gám, enda eru þeir gámar mun stærri. m l|l S0RPA

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.