Réttur - 01.02.1921, Page 63
Baðstofuhjal.
63
Almenna sögu, landafræði og náttúrufræði er sjálfsagt að
kenna, þótt hið íslenzka sitji alstaðar í fyrirrúmi og sé þunga-
miðjan í allri kenslunni.
Stærðfræði þarf og að kenna, þá, er einkum kemur sveita-
mönnum að gagni.
Flestir skólar hér á landi hafa nær eingöngu starfað að
því, að þroska andlegu hæfileika nemendanna og troða í þá
bókviti. Pess vegna eru skólarnir sakaðir um — og vafa-
laust að nokkru sekir um, að gera nemendurna miður færa
til líkamlegrar vinnu. í sumum erlendum skólum er nú varið
eins miklum tíma til líkamsmentunar, eins og til bóklega
námsins. Unglingaskólinn verður að kenna leikfimi og íþróltir
miklu meira en tíðkast hefir um skóla hér á landi. Þeir eiga
að hreysta ungu kynslóðina og gera hana, ekki jafn færa,
heldur miklu færari til líkamlegrar vinnu, en annars hefði
orðið. Sjálfsagt er að kenna almenna skólaleikíimi, þótt hún
sé ekki sérstaklega íslenzk. Helzt ætti að kenna heimilisleik-
fimi líka, með böðum og öllu, sem fylgir, en einkum þarf
að kenna skíðaferðir og skauta, knattleik, glímur og sund.
Til líkamsmentunarinnar er gert ráð fyrir 2 stunda kenslu á
dag allan skólatímann og auk þess íþróttanámsskeiðum haust
og vor fyrir þá sem vilja.
Ungmennafélögin liafa sett líkamsmentun einna efst á stefnu-
skrá sína. Pað er því skýlaust hlutverk þeirra, að koma henni
inn í skólana, þegar þau eiga þess kost.
Eitt af hinum þýðingarmestu verkefnum unglingaskólans er,
að innræta nemendum ást á vinnunni og virðingu fyrir henni,
áhuga og nokkra fæmi. Skólinn á að stunda búskap, og
nokkuð af búverkunum eiga nemendur að vinna. Skólaheim-
ilið á að snfða ssin mest eftir fyrirmyndarheimili í sveit, eins
og þau eru bezt og hafa verið. Gengi heimilisiðnaðarins á
skólinn að efla, en þegar nemendur eru komnir vel á veg
með að læra liver sinn þátt heimilisiðnaðarins, ættu þeir að
sitja — eða standa — við vinnu sína á kvöldvökum, meðan
einn les hátt fyrir alla íslendingasögur.
Gert er ráð fyrir sérstakri hússtjórnardeild við skólann og