Réttur - 01.07.1972, Page 2
Nokkur atriöi um
íslenzku
kaupfélögin
Kaupfélögin eiga sér rœtur í frelsisbaráttu
19. aldar. Þau eru alíslenzk að uppruna,
því að ljóst er, aö forvígismenn þeirra
þekktu ekki í upphafi erlendar fyrirmynd-
ir, sem um var að ræöa (félag vefaranna
í Rochdale). Þeir voru fátækir menn en
ókúgaðir, framsýnir og djarfir. Þeir leystu
vandamál viðskiptanna af eigin ramleik
samkvæmt eigin hugmyndum. Þessir
brautryðjendur skildu, að viðskiptalegt
og fjárhagslegt sjálfstæði var undirstaða
þjóðfrelsisins.
Saga samvinnufélaganna er snar þáttur í
heillandi endurreisnarsögu þjóðarinnar í
nærfellt heila öld. Kaupfélögin eru í dag
kjarni íslenzkra byggða, hvarvetna um
landið. Það er eðlileg afleiðing af lýðræðis-
legu skipulagi þeirra. Þau eru samsign
fólksins á hverjum stað, tæki þess til að
tryggja sér hagkvæm og réttlát viðskipti.
Afrakstur samvinnuverzlunar rennur til
fólksins sjálfs, ýmist sem endurgreiddur
arður eða afl þeirra hluta, sem gera skal
á hverjum stað: atvinnu, samgangna, fé-
lagsmála, menningarmála.
Kaupfélögin skapa tryggingu fyrir því, að
þeir f jármunir, sem fólk vinnur fyrir hörð-
um höndum, komi því sjálfu að fullum
og beinum notum. Fjármagn verður ekki
flutt burt af heimastöðvum, né eignir
þeirra seldar, nema með vilja hins al-
menna félagsmanns: bóndans, verka-
mannsins, sjómannsins, skrifstofumanns-
ins, sem á kaupfélagið og hefur ávallt end-
anlegt vald um rekstur þess gegnum
kjörna fulltrúa sína á fundum félagsins
og í stjórn þess. í samvinnufélagi hafa all-
ir jafnan atkvæðisrétt og allir sömu skil-
yrði til áhrifa. Þau starfa fyrir opnum
tjöldum. Umræður á fundum þeirra eru
frjálsar og öllum heimil gagnrýni. Grund-
völlur þessara miklu samtaka, sem fólkið
hefur myndað sér til þess að leysa vanda-
mál daglegs lífs, er lýðraeði og jafnrétti.
Samvinnufélögin eru íslenzk að uppruna
og alinnlent fyrirtæki. Fjármagn þeirra
er eign fólksins sjálfs, rekstur þeirra und-
ir eftirliti og úrskurðarvaldi hins al-
menna félagsmanns. Þau eru í heild
stærsta fyrirtæki landsins og hafa þess
vegna öðrum fremur bolmagn til að efla
innlent framtak, óháð hvers konar er-
lendri hlutdeild. Lýðræðisskipulag þeirra
tryggir, að þau geta aldrei orðið öðrum
háð, méðan sá mikli fjöldi landsmanna,
sem skipar þau, vill eigið framtak í eigin
landi. Vegna sögu sinnar, skipulags og
fjölda félagsmanna eru þau einn af
traustustu hornsteinum íslenzks lýðræðis.
íslendingar. Njótið arðs af eigin viðskipt-
um í eigin fyrirtækjum. Eflið hlutdeild
yðar í þjóðfélaginu með því að ganga í
kaupfélag. Með vakalidi þátttöku í sam-
vinnufélagi eigið þér kost á að tryggja
yður réttlát viðskipti.
SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA