Réttur


Réttur - 01.07.1972, Page 7

Réttur - 01.07.1972, Page 7
Alfrxði Mmningimjóðs Hafin er útgáfa á flokki uppflettirita meS al- fræðibókarsniði, þar sem hverri fræðigrein um sig verða gerð skil sjálfstætt í handhægri bók. Vænta má árlega tveggja til þriggja binda nú um nokkurt árabil. Fyrstu bindi safnsins eru þessi: Bókmenntir eftir Hannes Pétursson skáld. Ritið geymir uppflettiorð, er snerta allar greinar bókmenntafræði (bókmenntagreinar, stefnur, bragarhætti, stílbrögð o. fl.), og hvílir megin- áherzlan á íslenzku efni. Stjörnufræði — Rímfræði eftir dr. Þorstein Sæ- mundsson. Ritið skiptist í tvo hluta. í hinum fyrri er að finna skýringar á nærfellt 600 atrið- um úr stjörnufræði, geimvísindum og skyldum greinum, í hinum síðari er greint frá merkingu og uppruna helztu orða úr almanökum og tímatali að fornu og nýju. Meðal efnisflokka, sem væntanlegir eru í safni þessu bráðlega, eru þessir: Rithöfundatal - Jarðfræði - Veðurfræði - Læknisfræði - Tónlist - Lögfræði - Eðlisfræði - Stærðfræði - Ásatrú og þjóðtrú. BÓKAÚTGÁFA MENNINGARSJÓÐS

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.