Réttur - 01.04.1977, Qupperneq 12
Á 75 ára afmæli
Sambands ísL samviimufélaga
Sambandið og kaupfélögin hafa reynst traust-
ustu stoðir byggðanna víðs vegar um land.
Þau munu eftir megni halda áfram að gegna
því hlutverki. En ætla verður, að þeir sem ráða
lífi og dauða í fjármála- og viðskiptaheimi
þjóðarinnar, sýni í verki að þeir meti þetta
landvarnastarf.
Magnús H. Gíslason
(Þjóðviljinn 18 .febr. 1977)
Samvinnufélög framleiðenda og neytenda hafa
gert Sambandið að voldugri efnahagsstofnun,
sem starfar á grundvelli íélagslegrar hugsjón-
ar, lýðræðis og jafnréttis allra íélagsmanna.
Benedikt Gröndal
(Afmæliskveðja Alþýðuflokks-
ins til SÍS, Alþbl. 22. febr. 1977)
Á 75 ára afmæli Sambandsins ber að meta að
verðleikum framlag þess til íslenskrar atvinnu-
uppbyggingar, en vara eindregið við frekari
útþenslu þess.
Morgunblaðið
(Leiðari, 20. febr. 1977)
Ekki leikur á tveim tungum, að verkalýðshreyf-
ingin og samvinnuhreyfingin eru og hafa verið
þær tvær öndvegissúlur, sem borið hafa uppi
það velferðarþjóðfélag sem hér hefur þróast á
þessari öld.
Björn Jónsson, forseti ASÍ
(Afmæliskveðja ASÍ til Sam-
bandsins, Tíminn 20. febr. 1977)
Kaupfélögin voru eign fólksins sjálfs, ávöxtur
samtakamáttar þess, og þeirra hagur, þegar
öll kurl komu til grafar. Það stóð vörð um
samvinnuhreyfinguna, hvernig sem að henni
var vegið af þeim, sem ofsjónum sáu yfir við-
gangi hennar.
Jón Helgason
(Tíminn, 20. febr. 1977)
Gildi samvinnufélagsskaparins er meira en
það, sem hægt er að leggja á fjárhagslega
vog. Hitt er ekki síður mikilsvert, að hann
glæöir félagsandann og samhuginn. Því verk-
efni þarf að sinna ekki síst á viðsjárverðum
og óráðnum tímum eins og þeim sem nú eru.
Þórarinn Þórarinsson
(Tíminn, 20. febr. 1977)
Samvinnustarfið í landinu á undanförnum ár-
um hefur bætt lifskjör fólks meira en nokkur
önnur félagsmálahreyfing hefur gert og það
hefur einnig verið fjölmörgum hinn besti fé-
lagsmálaskóli, sem völ hefur verið á.
Dagur
(Leiðari 23. febr. 1977)
Samvinnuhreyfingin þarf að eignast forustu
sem hefur vit til þess að standa fast við hlið
verkalýðshreyfingarinnar í kjaraátökum, for-
ustu sem er nægilega framsýn til þess að
skynja þær hættur sem nú steðja að íslensku
þjóðinni, forustu sem er nógu skynsöm til þess
að samfylkja með launafólki gegn ásókn er-
lendra auðhringa og handlangara þeirra, for-
ustu, sem ekki lætur eld hugsjónanna tala ,,í
fölskva hjá gröfum frumherjanna".
Svavar Gestsson
(Þjóðviljinn, 20. febr. 1977)
Samvinnustefnan eins og hún fæddist íslend-
ingum var fyrst og fremst fagnaðarerindi fá-
tækustu stétta þjóðfélagsins, eins og raunar í
öðrum löndum. Þeim uppruna, því frumboð-
oröi, mega forustumenn samvinnuhreyfingar
aldrei gleyma.
Andrés Kristjánsson
(Ný þjóðmál, 22. febr. 1977)