Vísir - 10.10.1977, Síða 1

Vísir - 10.10.1977, Síða 1
Allt um íþrótta- viðburði helg- arinnar í dag Hann stakk bara nól í fótinn ó mér og... ## Guðjón Erlendsson markvörður Fram í handknattleik lœknaður með kínversku nólarstunguaðferðinni „Hann stakk bara nál I fótinn á mér, lét mig svo hafa plástur til aft setja yfir, og sagöi að ég vröi góður af meiðslunum. Svona cinfalt var það”. Þetta sagði Guðjón Erlends- son markvörður Fram i hand- knattleik er við ræddum við hann i gærkvöldi, en um helgina gerðist það að kinverskur lækn- ir komst með prjónana sina i fótinn á Guðjóni og læknaði hann samstundis! „Þetta er alveg furöulegt, og þaö er varla að ég sé farinn að tráa þessu enn. Ég get nú hreyft fótinn og snúið honum á allar hliöar, en það var mér ekki mögulegt áður. Eg er alveg gáttaður á þessu! fcg er búinn að eiga við þessi meiösli á ökla að striða i 13 mánuöi, og hef verið frá æfing- um og keppni. Þetta lýsti sér þannig að ég gat ekki hlaupiö, og ekki snúið neitt upp á fótinn fyrir miklum sársauka sem þvl fylgdi, og ég er búinn að ganga á milli lækna með þetta án árangurs. En þessi Kinverji vissi greini- lega hvað hann var að gera. Hann þuklaði aðeins á mér ökl- ann, og sagði samstundis aö þetta væri ekkert mál. Hann spurði bara hvort ég ætiaði að fara að keppa strax! Siðan stakk hann nálinni i fót- inn á mér rétt fyrir neöan hné og nuddaði aðeins yfir á eftir. Rétti mér plástur með cinhverju smyrsli á, og sagði mér að liafa liann á i nokkra daga. fcg verð að trúa þessu þótt það sé' furöulegt. Ég er búinn að snúa Jætinum á allar hliðar fram og til haka og hoppa og gera allskonar æfingar og það bólar ekkert á sársauka. Hann vill bara ekki koma. Ætliég fariekki bara á æfingu strax á morgun” sagöi Guðjón að lokum, um leið og hann lýsti enn einu sinni yfir undrun sinni á þessari óvæntu lækningu kin- verska læknisins með prjónana sina. gk- ' Þorbjörn Guömundsson kominn á fullri ferð inn á linuna I leik Vals og Vikings I gærkvöldi, og þeir Þorbergur Aðalsteinsson og Viggó Sigurösson koma engum vörnum við. Ljósm. Einar Standard í efsta sœtið „Það gengur vel hjá Standard Liege og Asgeiri Sigurvinssyni”, sagði Stefán Halldórsson, knatt- spyrnumaður i Belgiu, þegar við ræddum við hann i gærkvöldi, en Standard hafði þá nýlokið við að sigra belgisku mcistarana FC Brugge með fjórum mörkum gegn tveimur. Þvi miður reynist ekki unnt að ná i Asgeir þessa dagana, hann er nýfluttur og hefur ekki fengið sima. ,,Ég tel góðar likur á þvi að Standard takist að sigra i 1. deild- inni i ár”, sagði Stefán. „Liðið er geysilega sterkt og Ásgeir er þar aðalmaðurinn og blöðin hér kepp- ast við að hrósa honum. Hann fær ekkert nema lof i blöðunum, enda held ég að það megi fullyrða að þetta sé besta keppnistimabil hans hér. Standard náði forust- unni með marki frá Riedel, en Davis jafnaði og Lambart kom Brugge yfir 2:1. En þá skoraði Riedel tvivegis fyrir Standard og Nickel innsiglaði sigurinn. Þeir eru sterkir hjá Standard, og mörkin þeirra i þessum leik voru gullfalleg” sagði Marteinn.. Fjögur liðeru nú efst og jöfn i 1. deildinni i Belgiu. Það eru meist- ararnir FC Brugge, Standard Liege, Anderlecht og Winterslag, öll með 15 stig. „Það gengur ekkerthjá okkur i Royal Union, og um helgina töp- uðum við fyrir Waterschei á úti- velli með 3:1. Staðan var þó 1:1 i siðari hálfleiknum og Union átti mun meira i leiknum. En við fengum á okkur mark og þá var allt buið hjá okkur. Við erum nú neðstir i deildinni en Waterscheier á toppnum, hef- ur aðeins tapað einu stigi.” —gk Jafntefli hjó Fram og Haukum Þrátt fyrir að Framarar hefðu haft yfirhöndina nær allan leikinn gegn Haukum i 1. deild tslands- mdtsins i handknattleik I gær- kvöldi, voru það þeir sem máttu þakka fyrir jafnteflið er upp var staðið, en úrslitin urðu 21:21. Framararnir byrjuðu vel, og þeir komust fljótlega i 4:1. Þeir héldu forustunni Ut allan hálfleik- inn og munurinn var oftast þetta 1-3 mörk. Staðan I hálfleik var 10:8 fyrir Fram. Þegar leiknar höfðu verið 20 af 30 mi'nútum i siðari hálfleiknum var staðan 17:14 fyrir Fram, og svo virtist sem Framarar væru með unninn leik i höndum sér. Sennilega hafa þeir einnig álykt- að sjálfir að svo væri, þvi að þeir fóru að slaka á i vörninni. Þetta var Elias Jónasson fljót- ur aö notfæra sér, og á stuttum tima skoraði hann fjögur mörk ifyrir Hauka, og var þá staðan orðin jöfn, 19:19. Ámi Hermannsson kom Hauk- unum yfir 20:19 þegar rúmar tvær og hálf minúta voru til leiks- loka, en stuttu siðar var honum vikið af leikvelli f 2 minútur. Ámi Sverrisson jafnaöi 20:20 fyrir Fram þegar ein minúta var eftir, en Haukarnir voru ekki af baki dottnir. Guðmundur Haraldsson náði forustunni 21:20 fyrir Hauka þegar 44 sek. voru til leiksloka, og svo jafnaði Pétur Jóhannesson fyrir Fram úr vitakasti þegar 15 sek. voru eftir og þar við sat, Jafnteflið var sanngjarnt i þessari viðureign, en vissulega var það slök frammistaða Fram- ara undir lokin sem kostaði þá annað stigið i þessum leik. Mörk Fram: Arnar 5 (4), Sigur- bergur Sigsteinsson og Birgir Jó- hannsson 3 hvor, Gústaf Björns- son, Atli Hilmarsson og Arni Sverrisson 2 hver, Pétur Jó- hannesson, Guðjón Marteinsson og Jóhannes Helgason eitt hver. Mörk Hauka : Elias Jónasson 6, Andrés Kristjánsson 5 (2), Ami Hermannsson og Ingimar Haraldsson 3 hvor, Sigurgeir Marteinsson 2, Guðmundur Haraldsson og Stefán Jönsson eitt hvor. Dómarar voru Kjartan Stein- back og Kristján Om Ingibergs- son. Þeir voru svipaðir ieikmönn- unum i þessum leik, góðir á köfl- um, en gerðu slæmar skyssur þess á milli. gk—• Víkingar lögðu meistarana! Það var sannkölluð úrslita- stemning i Laugardalshöllinni i gærkvöldi þegar Valur og Vik- ingur léku þar i 1. deild tslands- mdtsins I handknattleik. Þarna áttust við tvö efstu liðin úr mótinu ifyrra, þau lið sem flestir álita að komi til meö að berjast um íslandsmeistaratitilinn I ár einnig. — Vikingur sigraði i gær- kvöldi með 19:18 eftir hörkubar- áttu, og var sigur þeirra verð- skuldaður. Vikingarnir byrjuðu með miklum látum og skoruöu fjögur fyrstu mörkin, og það var ekki fyrr en eftir 9 minútur að Vals- menn komust loks á blaö með marki Steindórs Gunnarssonar. Þessi munur hélst áfram út hálfleikinn, Vikingur hafði ávallt frumkvæðið I sinum höndum og staðan i hálfleik var 10:7 þeim i vil. Um tima I siðari hálfleiknum leit Ut fyrir að Vikingarnir myndu vinna stórsigur gegn Islands- meisturum Vals. Þeir voru komnir með 6 marka forustu, 16:10, en þá tók leikurinn skyndi- lega nýja stefnu. I markið hjá Val kom ungur piltur, Brynjar Kvaran, og hann lokaði markinu næstu minút- urnar. Valsmenn tviefldust viö þetta, og þeir skoruðu næstu 5 mörkin i leiknum. Staðan orðin 16:15 fyrir Viking og skyndilega komin geysilega mikil spenna i leikinn. Ólafur Einarsson skoraöi þá 17. mark Vikings sem hafði ekki skorað i einar 9 mfnútur, en Jón P. Jónsson sem virtist loksins vera búinn að „stilla miðið” skoraöi strax með fallegu lang- skoti, staðan 17:16 fyrir Viking og rúma tvær minútur eftir. En lengra komust Valsmenn ekki. Arni Indriðason lyfti sér fyrir utan Valsvörnina og skoraði sitt fyrsta mark i leiknum með langskoti og Páll Björgvinsson skoraði siðan 19. mark Vikings með fallegu gegnumbroti. Og þó Valur skoraði tvö siðustu mörkin kom það fyrir ekki, úrslitin voru ráðin og Vikingarnir fögnuöu mikið i' leikslok. Vi'kingsliðið er svo sannarlega ekki árennilegt fyrir andstæðinga sina. Liðið hefur innan sinna raða hvorki meira eöa minna en 7 menn sem eru i landsliðshópnum i dag, og spá min er sú aö þeir verði ekki apðsigraðir i vetur. Þó sýndi liðiö ekkert sérstakan leik aö þessu sinni, enda e.t.v. ekki von. Þarna var taugaspenn- an og það sem fylgir leik toppliða i fyrirrúmi, barátta og harka á báða bóga. Það er sama sagan hjá Val, það er nóg um mannskap og ekki færrien 5 úr landsliðshópnum. En munurinn á þeim og Vikingunum , er mikill, og liggur aðallega I þvi hversu þyngri og svifaseinni þeir eru. En það vita allir hvað þessir piltar geta, og skyldi enginn af- skrifa þá þótt þeir töpuðu þessum leik. Dómarar voru Karl Jóhannsson og Hannes Þ. Sigurðsson og dæmdu vel. «ir_

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.