Réttur - 01.10.1979, Blaðsíða 16
ÚRVALSBÆKUR FRÁ IÐUNNI
Hannes Pétursson: KVÆÐAFYLGSNI
Um skáldskap eftir Jónas Hallgrímsson. í bókinni er fjallað
um nokkur kvæði Jónasar og jafnframt varpað Ijósi á ævi-
feril skáldsins. Kjörbók skáldskaparunnenda.
MÁNASILFUR
Safn endurminninga. Gils Guðmundsson valdi. í þessari bók
eru úrvalsþættir eftir 26 höfunda og fyrirhugað að safnið
verði í nokkrum bindum. Mánasilfur er fjölbreytilegt sýnis-
horn íslenskrar frásagnarlistar, skuggsjá íslensks mannlífs
fyrri tíðar.
Stefán Hörður Grímsson: LJÓÐ
Hringur Jóhannesson listmálari gerði myndskreytingar.
Hannes Pétursson: KVÆÐASAFN 1951—1976
Jóhannes Geir listmálari myndskreytti
— Þessar bækur eru heildarsöfn af Ijóðum tveggja af lisí-
fengustu skáldum samtíðarinnar. Til útgáfunnar er vandað
eftir föngum, og áformað að þessum bókaflokki verði haldið
áfram.
Haraldur Jóhannsson: PÉTUR G. GUÐMUNDSSON
OG UPPHAF SAMTAKA ALÞÝÐU
Viðtöl við Þorstein Pétursson um störf föður hans, en Pétur
var einn stofnenda Dagsbrúnar og helsti forustumaður í ís-
lenskri verkalýðshreyfingu á upphafsskeiði hennar.
Að lokum minnum við á „ALDIRNAR“, hið vinsæla ritverk
sem rekur á lifandi hátt í máli og myndum sögu þjóðarinnar
síðustu 370 ár. Út eru komin níu bindi. Kjörgripir á hverju
menningarheimili.