Vísir - 24.10.1977, Page 1
Allt um íþrótta-
viðburði heíg-
arinnar í dag
Börkur og
Arni til
Akureyrar
Allar likur eru á þvi að 1.
deildarliði KA i knattspyrnu muni
berast góður liðsauki fyrir kom-
andi keppnistimabil, en þá leikur
liöiö i fyrsta skipti i 1. deild.
Börkur Ingvason úr KR mun
leika með KA næsta sumar, og
miklar likur eru á þvi að Arni
Stefánsson fari norður og setjist
þar aö.
Þetta mun verða mjög mikill
styrkur fyrir KA liðið, Arni er
eins og flestir vita annar lands-
liðsmarkvarða okkar og mjög
góður sem slikur, og Börkur
Ingvason er mjög sterkur varnar
maður i mikilli framför og mun
styrkja KA-vörnina mjög mikið.
N'ú hefur verið frá þvi gengið að
Jóhannes Atlason muni þjálfa
KA-liðiðnæsta sumar en hann var
einnig með liðið nú i sumar þegar
það vann sér rétt til að leika I 1.
deild.
Þá hafa þær sögur gengið
fjöllunum hærra að Gisli Torfa-
son frá Keflavík væri einnig að
fara norður, en er við ræddum við
hann kvaðst hann ekki vita til
þess að svo væri a.m.k. hefði ekk-
ert verið rætt við sig.
gk-.
Piazza og
Einar fengu
verðlaun
g ■ .
"J: • fm M^fjl
JjrjL ET jfl " iM |ImF"’ jli'>lf J ]ji rn
í Sb| 1 1 1 tm m m m 1 A ■ LJÁ | i
Reykjavikurmeistarar KR i körfuknattleik 1977. i aftari röö frá vinstri eru Steinar Jónsson formaður KR, Kristinn Stefánsson, Einar Bolla-
son, Andrew Piazza, Kolbeinn Pálsson, Bjarni Jóhannesson, Jón Sigurðsson, Gunnar Jóakimsson, Eirikur Jóhanncsson, Carsten
Christenssen, Arni Guömundsson, Agúst Lindal, Birgir Guðbjörnssor. og Helgi Agústsson, liðsstjóri. i fremri röð eru Reykjavikurmeistarar
KR I 4. fl. óg litli pilturinn fremst á myndinni'heitir Hclgi Gunnar llelgason og er „lukkutröU" meistaraflokksliðsins. Visismynd Einar.
KR tók stúdentana í
kennslu í körfubolta
— KR sigraði með 103 stigum gegn 70 og tryggði sér þar með
Reykjavíkurmeistaratitilinn í körfuknattleik annað órið i röð
Andrew Piazza, þjálfari og
leikmaður KR varð stighæsti
leikmaður Reykjavikurmótsins i
körfuknattleik sem lauk um helg-
ina. Piazza skoraði alls 142 stig I
5 leikjum eða 28,4 stig i leik að
meðaltali. — Næstur í stigaskor-
un varö Rick Hockenos Val en
hann skoraði 117 stig, eða 23,4 stig
i leik að meðaltali.
Einar Bollason hlaut ein-
staklingsverðlaun fyrir bestu
vltahittni I mótinu. Einar tók 23
vítaskot og hitti dr 18 þeirra en
það gerir 78,3% hittni.
Bandarikjamaðurinn Michael
Wood sem leikur með Armanni
kom þar næstur. Hann tók 32 vita-
skot og hitti úr 23 eða samtals
78,1% hittni og munaði þvi litlu á
tveimur efstu mönnum.
gk-.
Aukakeppni
þarf hjó
konunum
1R sigraöi KR I leik liðanna I
meistaraflokki kvenna I Reykja-
vfkurmótinu I körfuknattleik um
helgina með 54 stigum gegn 44, og
urðu þau úrslit til þess að leika
þarf allt mótið upp hjá kvenfólk-
inu að nýju.
Þrjú lið tóku þátt I mótinu, og
fóru leikirnir þannig að K sigraði
1R — siðan sigraði KR-liö 1S og
svo vann ÍR lið KR sem fyrr
sagöi. öll liðin hafa þvi tvö stig,
og þvi verður að keppa á nýjan
leik.
KR hafði fádæma yfirburði I úr-
slitaleik sinum gegn 1S I Reykja-
vikurmótinu I körfuknattleik sem
fram fór I Hagaskólanum á
laugardaginn. KR sigraði með 103
stigum gegn 70 og tryggöi sér þar
með Reykjavfkurmeistaratitilinn
annað árið i röð.
Eins og KR lék i fyrri hálfleik
var ekki nokkur von fyrir IS-
menn að halda i viö þá. KR-
ingarnir léku stórkostlegan
körfuknattleik og var sama hvort
um var að ræða vörn eða sókn,
þaö var sannkallaður meistara-
bragur á liðinu, og það er ljóst að
KR verður ekki stöðvað svo auð-
veldlega i körfuboltanum f vetur.
Innan skamms stóð á töflunni
24:8, og var raunar aldrei nein
spurning um þaö hvort liðið
myndi sigra, einungis var spurt
aö þvi hvað KR myndi sigra meö
miklum mun.
Það er erfitt að gera upp á milli
leikmanna KR, en þó held ég að
enginn geti móðgast þótt snill-
ingurinn Jón Sigurösson sé nefnd-
ur þar fyrst. Sá frábæri leikmaö-
ur fellurm jög vel inn i KR-liöið og
er reyndar þegar farinn að
stjórna spili liðsins að verulegu
leyti. Snilli hans er mikil, og þaö
hefur ekki veriö neinn smávegis
fengur fyrir KR að fá þessa
stjörnu.gegn IS áttihann margar
stórsnjallar sendingar sem gáfu
siðan körfu, og sjálfur skoraði
hann 26 stig á fjölbreyttan hátt.
Andrew Piazza, þjálfari KR og
framherji, var einnig i miklu
stuði i leiknum, og skoraði hvorki
meira eða minna en 50 stig. Var
hittni hans i fyrri hálfleik alveg
stórkostleg, og raunar ekki nema
tvö fyrstu skotin sem fóru ekki i
körfu IS. Hann skoraði á fjöl-
breytilegan hátt, með langskot-
um, með gegr.umbrotum og tveim
gullfallegum körfumeftir enn fal-
legri sendingar Jóns Sig. Þá gaf
Jón boltann upp og lét hann koma
við körfuhringinn, þar sem
Piazza var mættur og tippaði
boltanum i körfuna.
Fleiri mætti nefna, Kolbein
Pálsson, Einar Bollason, Bjarna
Jóhannesson og Gunnar Jóakims-
son, breiddin er mikil hjá KR og
liöið verður ekki hvað sist sterkt
sökum þess.
IS-liðið lék þennan leik ekki vel,
en ástæöan fyrir þvi er eingöngu
sú aö leikmenn IS voru hreinlega
yfirspilaðir af miklu betra liöi.
Þeir sem skáru sig þar úr voru
Jón Héðinsson og Kolbeinn
Kristinsson. Stighæstir þeirra
voru Jón Héðinsson með 23 stig,
og Bjarni Gunnar Sveinsson sem
lék sinn 200. leik með meistara-
flokki 1S með 19 stig.
Dómarar voru Þráinn Skúlason
og Sigurður Valur Halldórsson og
voru slakir.
Valur— Ármann: 77:63
Valsmenn tryggöu sér á föstu-
daginn 2. sætið i mótinu er þeir
sigruðu Armann meö 77 stigum
gegn 63, eftir að hafa haft yfir i
hálfleik 39:30. Var sigur Vals
aldrei i hættu i leiknum. Stig-
hæstu menn Vals voru Torfi
Magniisson með 19 stig og Rick
Hockenos meö 18 stig, sá siöar-
nefndi með mjög góða hittni.
Hjá Armanni var Atli Arason
stighæstur með 19 stig, Jón
Björgvinsson með 17.
En lokastaöan i meistaraflokki
karla i Reykjavikurmótinu i
körfuknattleik varð þessi:
KR 5 5 0 463:339 10
Valur 5 4 1 376:337 8
IS 5 3 2 433:391 6
Fram 5 2 3 398:412 4
Armann 5 1 4 442:407 2
IR 5 0 5 303:458 0
gk —
Bœði Valur og FH
komust í 2. umferð
— Valsmenn unnu bóða leikina í Fœreyjum en FH
kemst ófram þrátt fyrir tap í Finnlandi
Bæöi FH og Valur tryggðu sér
um helgina rétt til að leika I 2.
umferð Evrópukeppninnar I
handbolta.
Valsmenn léku tvo leiki I Fær-
eyjum gegn færeysku meist-
urum Kyndils. Eftir erfiða ferö
til Færeyja, gengu Valsmenn til
fyrri leiksins á föstudagskvöldiö
og unnu öruggan sigur 23:15
eftir að Kyndill hafði haft yfir I
hálfleik 8:7!
1 siðari hálfleik voru yfirburð-
ir Vals enn meiri. Þeir unnu þá
30:16, og þvi sigruðu þeir sam-
tals meö 55 mörkum gegn 29 og
eru þvi komnir i 2. umferö
Evrópukeppni meistaraliða.
Valsmenn róma mjög allar
móttökur I Færeyjum sem þeir
segja að hafi veriö til fyrir-
myndar.
Mikill áhugi var fyrir leikj-
unum IFæreyjum, troðfullt hús
á fyrri leiknum, en mun færri á
slöari leiknum af skiljanlegum
ástæðum.
FH tapaði 21:25 I siöari leik
sinum I keppni bikarmeistara
gegn finnska liðinu Kiffen.
Vegna verkfallsins er ekkihægt
að hringja til útlanda, og höfum
við þvi litlar fregnir af leiknum.
En FH er komiö I 2. umferð meö
samanlagða markatölu 50:38.