Réttur - 01.10.1976, Blaðsíða 10
Feröaásetlun
okkar fyrir 1977 er nú á lokastigi undirbúnings og verður birt almenningi í
lok janúar.
Hún verður fjölbreyttari en í fyrra og verð í sumum tilfellum hlutfallslega
lægra miðað við verðbólguþróun s.l. árs.
Meðal staða sem farið verður á eru:
Júgoslavía: (Portoroz) sem naut mikilla vinsælda á s.l. ári. Aðstaða til að
fara í heilsubrunna (SPA-KURORT), 5x3ja vikna ferðir og 2x2ja vikna ferðir.
Fyrsta flokks hótel með hálfu fæði. Kjörið fyrir þá sem vilja njóta sumar-
leyfisins og hvílast. Mjög vinsæll staður.
Spánn: Mallorka og Ibiza,, sem farið var til í fyrsta sinn í fyrra og líkaði
mjög vel.
Mjög sennilega verður efnt til hópferða á Portúgal (Algarve) nýjung, Sovét-
ríkjanna, Kína o. fl. staða.
Þá minnum við á vikulegar ferðir frá og með maí til og með sept. til Kaup-
mannahafnar, Osló og Stokkhólms. Þar bjóðum við hagkvæmustu kjör sem
völ er á hér á landi. Að öðru leyti eru fyrir hugaðar 2 ferðir á mánuði aðra
mánuði ársins.
Ferðir til London verða vikulega allt árið og þar bjóðum við bestu fáanleg
kjör.
Þá er í undirbúningi að efna til ferða til Luxembourg, Frankfurt, New York
og Chicago að minnsta kosti einu sinni í mánuði á hópferðarkjörum, og
ýmislegt annað ótalið hér.
Hafið samband við okkur áður en þér leitið annað. Kynnið ykkur kjörin og
fáið áætlun. Skipuleggjum einnig allar ferðir einstaklinga og hópa eftir
óskum. Seljum flugfarmiða, járnbrautar- og ferjufarmiða.
STYÐJIÐ FERÐASKRIFSTOFU LAUNÞEGANNA.
LAHDSÝN-ALÞYÐUORLOF
Skólavörðustíg 16, Reykjavík. Sími 28899-