Réttur - 01.10.1987, Page 15
Þórbergur Þórðarson:
Mítt rómantíska æðí
Þetta eru dagbækur, bréf og önnur óbirt
rit Þórbergs frá árunum 1918-1929. eins
konar framhald af Ljóra sálar minnar sem
út kom í fyrra. Hér er kímni og sfrákskapur
Þórbergs upp á sitt besta. Hann var einstakur
bréfritari og i bókinni er að finna mörg
skemmtileg sendibréf sem hann skrifaði
vinum sínum á þriðja áratugnum. flest til
Vilmundar Jónssonar landlæknis. Þá eru birt
dagbókarbrot úr hinum fraegu orðasöfnunar-
leiðöngrum Þórbergs og frásögn af fyrstu
utanlandsferð hans þar sem hann dvaldi
fyrst í Englandi en sótti svo alþjóðaþing
guðspekinga ( París. Hér eru líka birtir
fyrirlestrar um guðspeki. jafnaðarstefnu.
esperanto og önnur hugðarefni Þórbergs.
Mesta forvitni munu þó eflaust vekja bréf
sem varpa Ijósi á tilurð Bréfs tíl Láru og þá
ekki siður á hin sterku viðbrögð sem bókin
vakti.
Helgi M. Sigurðsson tók safnið saman.
það er 213 bls.. prýtt 50 gömlum Ijósmynd-
um sem margar hverjar hafa ekkí birst áður.
Verð: 2.490,-
IEE»
Mál og menning Eð