Lesbók Morgunblaðsins - 29.04.2006, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 29.04.2006, Blaðsíða 8
8 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 29. apríl 2006 Ég verð að sýna þér myndir, sagði Ragnar Axelsson ogsýndi mér bunka af ljósmyndum. Hann hafði verið aðþvælast um landið þegar hann heillaðist af klökumsem velktust um og bráðnuðu í fjörunni neðan við Jök- ulsárlón á Breiðamerkursandi. Skrifa um hvað? spurði ég. Skoð- aðu myndirnar, sagði hann, sérðu ekki andlitin, þarna eru augu, lengst inni í ísnum og þarna er einhver vera og yf- irborðið er sérkennilega gárótt eins og drekahúð. Myndirnar voru tærar og fallegar og þarna voru vissulega augu og andlit og þau voru greinilega ævaforn. Til að ímynda sér hvað getur mögulega búið í ísnum má byrja á því að leita í smiðju Masaru Emoto. Hann er japanskur vís- indamaður sem hefur rannsakað og gefið út bækur um vatn og ís- kristalla. Í bókinni Falin skilaboð í vatni segir hann frá rann- sóknum sem hófust af tilviljun þegar honum datt í hug að kanna betur máltækið ,,engir tveir ískristallar eru eins.“ Hann frysti vatn og tók myndir af kristöllunum og komst að því að það var vissulega eitthvað til í þessu máltæki. En hann vildi kanna hvers vegna vatnið tók á sig svo ólíkar myndir, hvað hefði áhrif á ís- myndunina og formin sem vatnið tók á sig þegar það fraus, hvers vegna sumir kristallar voru eins og demantar, ægifagrir og reglulegir en aðrir ósamhverfir, dökkir eða sundraðir. Lind- arvatn var þannig gjörólíkt kranavatni Tókýóborgar sem tók ekki á sig neina mynd þegar það fraus. Rannsóknir Emotos tóku óvænta stefnu þegar hann ákvað af rælni að sjá hvaða áhrif tónlist og hljóðbylgjur hefðu á vatnið. Þannig ljósmyndaði hann ís sem myndaðist þegar hann spilaði 5. sinfóníu Beethovens, Mozart, Bach og ,,Let it be“ eftir Bítlana. Í öllum tilfellum mynduðust einstaklega skærir og fallegir krist- allar en ,,Heartbreak Hotel“ eftir Elvis Presley varð frekar ljót- ur og sundraður ískristall, sömuleiðis allt dauðarokk. Emoto gekk síðan ennþá lengra og skrifaði ,,ég elska þig“ á miða. Hann límdi miðann á vatnsflösku og geymdi hana í nokkrar klukku- stundir. Hann frysti vatnið og ljósmyndaði ísinn sem varð auðvit- að ægifagur. Áfram hélt hann og skrifaði orðið ,,takk“ á 10 tungumálum og áhrifin voru söm. Hann bar saman myndir af ís úr vatni sem hafði verið hlaðið með orðunum ,,engill“ ann- arsvegar og ,,satan“ hinsvegar og andstæðurnar voru eins og við var að búast. Hann tók myndir af vatni sem barnahópur hafði hlaðið með því að syngja vögguvísu og hrópa ,,þú ert falleg“. Þá mynduðust sérlega fallegir og fullkomnir kristallar sem hann ljósmyndaði og birti í bók sinni. Það skiptir ekki öllu máli hversu fullkomin eða raunsæ vísindi þetta eru. Lífið yrði talsvert leiðinlegra ef einhver afsannaði að orð eða hugsanir skiptu máli. Með rannsóknum sínum og ljós- myndum þykist Emoto hafa sannað að hugsanir og orð hafi bein áhrif á efnisheiminn, ekki síst vatnið í heiminum. Maðurinn er 70% vatn, yfirborð jarðar er 70% vatn og heilinn sjálfur um 90% vatn og Emoto vill meina að jákvæðar og fallegar hugsanir skili sér beinlínis út í veröldina. Emoto segir að alveg eins og jöklar ’Emoto segir að alveg eins og jöklar geymaótrúlegt magn upplýsinga um veður og loftslag þá geymir vatn heimsins ómældar leifar af minningum þeirra lífvera sem vatnið hefur runnið í gegnum á hringrás sinni.‘ Eftir Andra Snæ Magnason andri@simnet.is

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.