Morgunblaðið - 18.01.2006, Side 3
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. JANÚAR 2006 C 3
READING sigraði WBA, 3:2, í
framlengdum leik í bikarnum í
gær eftir að hafa lent 2:0 und-
ir. Leroy Lita var hetja Read-
ing en hann skoraði öll mörk
liðsins. Ívar Ingimarsson og
Brynjar Björn Gunnarsson
léku báðir allan leikinn fyrir
Reading sem mætir Birm-
ingham í næstu umferð.
Gylfi Einarsson kom inná á
87. mín. í liði Leeds sem féll úr
leik eftir hetjulega baráttu
gegn Wigan. Liðin skildu jöfn,
3:3, en Wigan hafði betur í
vítakeppni.
Stoke skreið áfram með því
að leggja utandeildarliðið
Tamworth í vítakeppni. 1:1
var staðan eftir venjulegan
leiktíma og framlengingu og
jafnaði Paul Gallacher metin
fyrir Stoke á 80. mínútu.
Reading
fór áfram
VIGGÓ Sigurðsson þjálfari íslenska
landsliðsins í handknattleik segir
að hann viti ekki mikið um landslið
Serbíu/Svartfjallalands sem Íslend-
ingar mæta í fyrsta leiknum í riðla-
keppni Evrópumótsins í Sviss. En
liðin mætast fimmtudaginn 26. jan-
úar í Sursee í C-riðli keppninnar.
Danir eru næstir í röðinni og
Íslendingar mæta Ungverjum í
lokaleik riðilsins sunnudaginn 29.
janúar. Danir lögðu Serba í tvígang
í Belgrad um s.l. helgi og segir
Viggó að hann muni ekki fá mikla
hjálp frá Dönum. „Við erum að
vinna í því að fá upptökur af þess-
um leikjum en ég hef ekki miklar
upplýsingar um Serbíu/Svartfjalla-
land. Við fáum örugglega upptökur
frá leikjunum, en ekki frá Dönum,
enda skil ég það vel, við erum sam-
an í riðli með þeim. Serbarnir eru á
sömu skoðun en við höfum upp á
efni frá þessum leikjum, það er allt
í vinnslu,“ sagði Viggó í gær og
vildi ekki segja hvaðan hann fengi
upptökurnar.
Ulrik Wilbek þjálfari danska
landsliðsins sagði við danska ríkis-
útvarpið eftir leikina í Belgrad að
danska liðið hefði aldrei leikið eins
vel undir hans stjórn. Fyrri leikinn
unnu Danir 31:24 en í síðari leikinn
28:27.
„Danir eru með sterkt lið og það
vitum við. Það verður mikil spenna
í þessum riðli enda eru öll fjögur
liðin mjög áþekk að getu að mínu
mati – það er ómögulegt að spá um
úrslit,“ sagði Viggó.
Viggó segir Serba
vera óþekkta stærð
átti í litlum vandræðum með. Hún varði
alls 23 skot, þar af tvö vítaköst og myndu
flestir markverðir vera stoltir af slíkri
frammistöðu. Hvað þá þegar tekið er með í
reikninginn að hún tognaði aftan í læri í
upphitun fyrir leikinn! Ingibjörg Jónsdótt-
ir var kjölfestan í vörn liðsins og Pavla
Plaminkova raðaði inn mörkum í sókninni.
Hjá HK stóðu hinir ungu markverðir liðs-
ins, Ólöf Ragnarsdóttir og Valborg Ólafs-
dóttir, fyrir sínu og vörðu samtals 15 skot.
Sú fyrrnefnda er jafnframt með afbragðs-
góðar hraðaupphlaupssendingar sem sam-
herjar hennar nýttu bara ekki sem skyldi
að þessu sinni. Í sókninni bar langmest á
Auksé Vysniauskaité sem sýndi fína takta.
Alfreð Finnsson þjálfari ÍBV segir get-
umuninn vera minni á liðunum en úrslitin
gefa til kynna: „Við höfum ekki verið að
spila neitt sérstaklega vel eftir jól en náð-
um vörninni upp í síðasta leik og héldum
því áfram í dag. Mjög grimm og góð vörn
hjá okkur varð til þess að þær áttu aldrei
möguleika á því að koma boltanum fram
hjá okkur. Þá fengum við einföld mörk úr
hraðaupphlaupum og eftirleikurinn varð
frekar auðveldur. Við unnum góðan sigur í
dag, en það verða góð lið í pottinum næst
og því of snemmt að fara að spá í bikarúr-
slitin, þó það sé vissulega draumurinn að
komast í Höllina,“ sagði Alfreð.
armúr
var
stur
LARS Christiansen hornamaður
danska landsliðsins sem leikur með
þýska úrvalsdeildarliðinu Flensburg
er orðinn markahæsti leikmaður
danska landsliðsins frá upphafi.
Christiansen skaust uppfyrir Erik
Veje Rasmussen þegar hann skoraði
átta mörk gegn Serbum um síðustu
helgi. Hann hefur þar með skorað
1.020 mörk í 212 leikjum sínum með
Dönum en Rasmussen skoraði 1.015
mörk í 233 leikjum.
CHRISTIANSEN sem verður í
eldlínunni með Dönum á Evrópu-
mótinu þar sem Íslendingar eru í
riðli með Dönum, Ungverjum og
Serbum sagðist vera stoltur yfir því
að hafa slegið metið. ,,Þetta er frá-
bært og ég er mjög stoltur yfir þessu
meti. Fyrir fimm til sex árum sagði
ég að ómögulegt yrði að ná þessu
meti en nú hefur mér tekist það,“
sagði Christiansen við danska rík-
isútvarpið.
MARTINA Hingis vann í gær
öruggan sigur á Veru Zvonarevu frá
Rússlandi, 6:1 og 6:2, í 1. umferð á
opna ástralska meistaramótinu í
tennis sem nú stendur yfir í Mel-
bourne. Hingis vann þar með sinn
fyrsta sigur á einu af risamótunum í
fjögur ár en hún sneri aftur á tenn-
isvöllinn í lok ársins eftir nokkurra
ára hlé frá íþróttinni. Hingis hefur
þrívegis hrósað sigri á opna ástr-
alska mótinu en alls hefur hún leikið
sex sinnum til úrslita.
ROGER Federer besti tennisleik-
ari heims vann auðveldan sigur á
Úsbekanum Denis Istomin í þremur
settum, 6:2, 6:3 og 6:2. Flestir spá því
að Federer vinni mótið en Svisslend-
ingurinn hefur verið afar sigursæll á
undanförnum mánuðum.
ÁSTRALINN Lleyton Hewitt er
einnig spáð góðu gengi en hann lenti
í vandræðum með andstæðing sinn
Hewitt mætti Tékkanum Robin Vik
og hafði betur í hörkuleik sem stóð
yfir í tæpar fjórar klukkustundir,
6:4, 2:6, 5:7, 7:6 og 6:3.
STEPHEN Hendry, sem sex sinn-
um hefur sigrað á breska Masters-
mótinu í snóker, er úr leik í keppn-
inni í ár en hann féll úr keppni gegn
landa sínum Alan McManus frá
Skotlandi. Hendry tapaði eftir að
hafa verið 4:2 yfir en McManus vann
fjóra síðustu rammana og tryggði
sér sigur. McManus sigraði á þessu
móti árið 1994 en þar hafði hann bet-
ur gegn Hendry í úrslitum, 9:8.
LUIS Garcia, miðvallarleikmaður
Liverpool, er meiddur á hné og hann
verður líklega frá keppni í tvær vik-
ur. Garcia fór til sérfræðings í
Barcelona á föstudaginn en forráða-
menn Liverpool voru hræddir um að
Garcia þyrfti að fara í uppskurð.
Garcia sleppur að öllum líkindum við
það en hann gæti þó þurft að fara í
uppskurð eftir HM í sumar.
FÓLK
Eftir leik liðanna í deildarkeppn-inni á laugardaginn áttu flestir
von á öðrum eins slag; annað kom á
daginn. Fyrstu þrjú mörk leiksins
voru heimastelpna og svo virtist sem
liðið hefði náð að hrista af sér tapið
umrædda. En um leið og Hauka-
stelpur brutu ísinn héldu þeim engin
bönd og áttu FH-stelpur ekkert svar
við kraftmiklum leik þeirra. Afar
sterkur varnarleikur og frábær
hraðaupphlaup í kjölfarið skópu átta
marka forskot Hauka þegar flautað
var til leikhlés.
Hafi FH-stelpur haft einhverja
trú á að þær gætu komist aftur inn í
leikinn þá voru Haukastelpur ekki
lengi að sýna fram á að ekkert slíkt
myndi gerast. Hvert Haukamarkið á
fætur öðru leit dagsins ljós og það
var alveg sama hvað liðið gerði, allt
lék í höndunum á því.
Mestur varð munurinn á liðunum
sautján mörk og er það hreint út
sagt ótrúlegt þegar það er haft í
huga að hér var á ferð liðið í öðru
sæti deildarinnar, Haukar, og liðið í
fjórða sæti, FH.
Ef leita skal skýringa á þessu stór-
tapi FH er nærtækast að líta til leiks
liðanna á laugardag og álykta út frá
þróun og úrslitum hans að FH-stelp-
ur hafi þá hreinlega misst alla trú á
að liðið gæti lagt Hauka að velli að-
eins nokkrum dögum síðar.
Pekarskyté lék vel
Hljómar kannski sem einföld
skýring en það er ekki svo ólíklegt að
andlega hliðin hjá FH hafi hreinlega
orðið fyrir það miklum skaða á laug-
ardaginn að ekki hafi tekist að lappa
upp á hana á aðeins þremur dögum.
Hins vegar skal það ekki tekið af
Haukastelpum að þær léku af mikl-
um móð og þegar liðið nær góðum
takti í varnarleik sinn opnast í kjöl-
farið allar flóðgáttir hvað varðar
hraðaupphlaup.
Snilldarsendingar Ragnhildar
Þegar slíkt gerist á ekkert lið hér
á landi möguleika gegn því. Litháinn
Ramune Pekarskyté lék afar vel í
þessum leik og það sama má segja
um löndu hennar, markvörðinn
Kristinu Matuzevieiute. Guðbjörg
Guðmannsdóttir lék feikivel hvort
sem var í vörn eða sókn. Þá má ekki
gleyma Ragnhildi Guðmundsdóttur
sem stjórnaði leik Hauka af festu en
sérlega gaman var að sjá glæsilegar
sendingar hennar teiga á milli sem
fljótir leikmenn Hauka voru ekki
lengi að nýta sér. Minnti á góðan
bakvörð úr ameríska fótboltanum!
Annars var liðið að spila sem heild og
virkar ógnarsterkt.
Hin eldfljóta Hanna Guðrún Stef-
ánsdóttir var enda ánægð eftir leik
en sagðist ekki hafa búist við svona
miklum yfirburðum.
„Eftir síðasta leik þá bjóst maður
við þeim mun grimmari. Við hins
vegar vorum afar ákveðnar og lögð-
um upp með það að spila góða vörn
og fá hraðaupphlaup og það tókst
líka svona vel og liðið er á réttri leið.“
Þess má geta að Haukar skoruðu úr
þrettán hraðaupphlaupum en FH úr
þremur.
Þóra bar af í FH-liðinu
Þóra B. Helgadóttir var
yfirburðaleikmaður af útimönnunum
í liði FH, hélt sínu striki allan tímann
en fékk litla hjálp. Laima Miliaus-
kaite varði vel í fyrri hálfleik. Líklegt
er að aðrir lykilleikmenn FH vilji
gleyma þessum leik sem fyrst enda
brugðust þeir algjörlega og hreint
með ólíkindum að fylgjast með hruni
þessa liðs sem hingað til í vetur hefur
verið að standa sig svo vel.
„Eitthvað var það, það gekk ekk-
ert upp,“ sagði Þóra B. Helgadóttir
eftir leik þegar hún var spurð hvort
ósigurinn á laugardaginn hefði setið
svona fast í liði FH.
„Mér fannst við ekki vera með á
nótunum og gerðum þeim hreinlega
auðvelt fyrir með slökum leik,“ sagði
Þóra en hún er eins og margir vita
landsliðsmarkvörður í knattspyrnu.
Morgunblaðið/Golli
Ramune Pekarskyte, stórskyttan í liði Hauka, er hér tekin föst-
um tökum af FH-ingnum Þóru B. Helgadóttur í gær.
Haukar kafsigldu
FH í Krikanum
Í GÆRKVÖLDI mættust í annað sinn á örfáum dögum FH og Haukar í
Kaplakrika í handknattleik kvenna og aftur höfðu Haukastelpur sig-
ur. Í fyrri leiknum glutruðu FH-stelpur niður unnum leik og í gær-
kvöldi var það augljóst að sá ósigur sat í liðinu og fyrir utan fyrstu
mínúturnar sá liðið aldrei til sólar. Ótrúlegur stórsigur Hauka, 21:36,
því staðreynd og liðið komið í undanúrslit SS bikarkeppninnar.
Eftir Svan Má Snorrason