Morgunblaðið - 02.02.2006, Side 1
2006 FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR BLAÐ C
DÓRA STEFÁNSDÓTTIR TIL LIÐS VIÐ MALMÖ FF / C7
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N AB L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
Serbum/Svartfellingum. Þá er Roland Eradze
einnig meiddur. Wolfgang Gutschow, umboðs-
maður Einars, fylgdist vel með gangi mála í gær
og stóð vaktina fyrir utan sjúkrastofuna í íþrótta-
höllinni í St. Gallen. Gutschow sagði við Morg-
unblaðið að forráðamenn Grosswallstadt væru
mjög áhyggjufullir þar sem Einar væri annar ís-
lenski landsliðsmaðurinn sem slasast alvarlega á
tveimur dögum en hann er félagi Alexanders Pet-
erssons hjá Grosswallstadt. Þjálfari Grosswall-
stadt var í beinu símasambandi við Gutschow á
meðan hann beið frétta af Einar í gær.
EINAR Hólmgeirsson leikur ekki meira með ís-
lenska landsliðinu í handknattleik á Evrópumeist-
aramótinu í handknattleik í St. Gallen. Hann fékk
þung högg á nefið í vörninni á 10. mínútu leiksins
við Króata. Við höggið datt hann á gólfið og fékk
þá heilahristing. Það er að minnsta kosti mat
Brynjólfs Jónssonar, læknis íslenska landsliðsins.
Atvikið leit mjög illa út og ljóst að bæði höggin,
sem Einar fékk, voru mjög þung. Einar fór á
sjúkrahús, en hann var kominn á hótel landsliðs-
ins í gærkvöldi.
„Hann verður ekkert meira með okkur hérna á
EM,“ sagði Viggó Sigurðsson landsliðsþjálfari í
samtali við Morgunblaðið. „Það er mikið áfall að
missa Einar út og enn eitt áfallið sem við verðum
fyrir á skömmum tíma,“ sagði Viggó.
Einar byrjaði leikinn af miklum krafti í gær,
skoraði tvö mikilvæg falleg mörk sem komu
króatísku vörninni og markverði hennar, Vlado
Sola, algjörlega í opna skjöldu.
Áður hefur Alexander Petersson orðið að yf-
irgefa hópinn vegna meiðsla, einnig Jaliesky
Garcia. Þá má ekki gleyma því að Ólafur er enn
þjáður eftir höggið sem hann fékk á síðuna gegn
Einar Hólmgeirsson úr leik á EM
Við spiluðum ágætlega að mínumati mest allan tímann. Það
komu tímar sem við hikstuðum að-
eins og leikurinn bar þess merki að
leikmenn beggja liða voru svolítið
þreyttir.“ Guðjón var langt frá því að
vera sáttur við hvernig íslenska liðið
leysti þá stöðu að vera einum leik-
manni fleiri á vellinum gegn Króöt-
um á lokakafla leiksins. „Við vorum
tveimur leikmönnum fleiri síðustu
mínútuna og gátum minnkað muninn
í eitt mark en þá gerðum við mistök
sem gerði það að verkum að þeir
komust fram og skoruðu. Þetta var
klaufaskapur af okkar hálfu en það
er mitt mat á úrslitum þessa leiks.
Við vorum í stöðu til þess að vinna
þennan leik.“
Hornamaðurinn sagði að á loka-
mínútu leiksins, er íslenska liðið var
tveimur fleiri en Króatar, hafi verið
sett upp að leita að opnu færi hvar
sem það gæfist en úrvinnslan hafi
hins vegar ekki tekist sem skyldi.
„Við erum sex á móti fjórum og það
eru engin leikkerfi í gangi í slíkri
stöðu, við finnum bara fría manninn.
En það tókst því miður ekki.“
Guðjón er á þeirri skoðun að leik-
urinn gegn Norðmönnum eigi eftir
að verða erfiður. Sérstaklega í ljósi
þess að liðin hafa leikið marga leiki í
aðdraganda EM. „Við þekkjum þá
vel og þeir þekkja okkar lið vel. En
markmiðin okkar hafa ekki breyst.
Við erum að ég held með þetta í okk-
ar höndum og vinnum við leikinn
gegn Norðmönnum fer þetta von-
andi vel,“ sagði Guðjón Valur.
Guðjón Valur Sigurðsson eftir tapleikinn gegn ólympíumeisturum Króata á EM í Sviss
„Vorum í stöðu til þess
að vinna þennan leik“
„VIÐ vorum sjálfum okkur verst-
ir og þetta var leikur sem við
áttum aldrei að geta tapað,“
sagði Guðjón Valur Sigurðsson,
leikmaður íslenska landsliðsins
í handknattleik, í St. Gallen í
Sviss í gær eftir 29:28 tap liðs-
ins gegn Króatíu í næstsíðasta
leiknum í milliriðli Evrópumóts-
ins. Úrslitin voru Guðjóni mikil
vonbrigði en hann skoraði síð-
asta mark leiksins rétt fyrir
leikslok en alls skoraði hann 8
mörk í leiknum og tvö síðustu
mörkin í leiknum er staðan var
29:26 Króötum í vil.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Einar Hólmgeirsson byrjaði leikinn mjög vel gegn Króötum og skorar hér sitt annað mark með þrumuskoti.
Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson í St. Gallen
seth@mbl.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA