Morgunblaðið - 02.02.2006, Side 2
EM Í HANDKNATTLEIK
2 C FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Íþróttir Morgunblaðsins Kringlunni 1 , 103 Reykjavík, sími 5691100, netfang sport@mbl. is
Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri , sos@mbl. is Auglýsingar
sími 5691111 netfang augl@mbl. is Bréfsími 5691110 Prentun Prentsmiðja Morgunblaðsins
FORRÁÐAMENN spænsku Evr-
ópumeistaranna munu hafa velt
þeim möguleika fyrir sér að kló-
festa Snorra Stein Guðjónsson,
leikstjórnanda íslenska lands-
liðsins og þýska félagsins GWD
Minden. Eftir því sem heimildir
Morgunblaðsins herma þá hafa
forráðamenn félagsins sett sam-
an lista með sex leikstjórnendum
sem þeir vilja skoða frekar hvort
geti verið álitlegur kostur fyrir
lið þeirra vegna næstu leiktíðar.
Snorri Steinn mun vera í þeim
hópi en er ekki efstur á blaði eft-
ir því sem sömu heimildir herma.
Snorri á eitt ár eftir af samningi
sínum við GWD Minden.
Málið hefur hvorki verið rætt
við Snorra né umboðsmann
hans, Wolfgang Gutschow. Hann
sagðist í samtali við Morg-
unblaðið í St. Gallen í gær ekkert
hafa heyrt frá forráðamönnum
Barcelona varðandi Snorra.
Gutschow sagðist harma að slík-
ar fregnir væru á sveimi um
þessar mundir, hvort sem sann-
leikskorn væri í þeim eða ekki,
þar sem slíkt gæti truflað ein-
beitingu leikmannsins meðan á
Evrópumótinu stendur. „Á með-
an ekki hefur verið haft sam-
band við mig þá hefur ekkert
gerst í þessu máli,“ sagði
Gutschow.
Snorri á
lista hjá
Barcelona
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Snorri Steinn Guðjónsson
skorar gegn Króötum.
Eftir Ívar Benediktsson í St. Gallen
SNORRI Steinn Guðjónsson er
næst markahæsti leikmaður
Evrópumótsins í Sviss og Guð-
jón Valur Sigurðsson er í 3.–4.
sæti eftir leiki gærdagsins.
Snorri Steinn hefur skorað 37
mörk, fimm mörkum minna en
Siarhei Rutenka frá Slóveníu
sem skoraði 10 mörk gegn Þjóð-
verjum í gær og er markahæst-
ur með 42 mörk.
Guðjón Valur og Kristian
Kjelling frá Noregi eru jafnir í
3.–4. sætinu með 32 mörk hvor.
Ólafur Stefánsson er kominn í
16. sætið á markalistanum með
24 mörk en hann hefur aðeins
leikið þrjá leiki af fimm og skor-
að 8 mörk í hverjum þeirra. Að-
eins Rutenka er með betra með-
alskor en hann af öllum
leikmönnum mótsins.
Snorri og
Guðjón við
toppinn
■ Úrslit / C6
Ég er hálfpartinn búinn að gefaþað frá mér að við komumst í
undanúrslit. Ég þekki það að bíða
eftir því að einhver annar vinni ein-
hverja leiki fyrir mann. Það gerist
aldrei,“ sagði Ólafur – á meðan
kemur Mirza Dzomba, félagi hans
úr spænska liðinu Ciudad Real, og
hrósar Ólafi. „Hann er besti leik-
maðurinn í heiminum,“ sagði
Zomba og brosti.
Var andstuttur
„Það er leikur á morgun [í dag]
og við þurfum að vinna hann,“ bætti
Ólafur við. Hann var greinilega
mjög ósáttur við úrslit leiksins en
hann skoraði sjálfur átta mörk.
Ólafur sagði að íslenska liðið
hefði lagt áherslu á að stöðva Ivano
Balic, leikstjórnanda Króatíu, og
leikið framar í vörninni en áður í
þessu móti. „Ég var eitthvað and-
stuttur í þessum leik og fékk því að
„hvíla“ mig mikið í hægra horninu.
Ásgeir Örn Hallgrímsson og Heimir
Örn Árnason voru að vinna ,,merki-
lega“ vinnu í vörninni og þeir voru
mun ákveðnari en ég í varnarleikn-
um.“
Um lokakafla leiksins sagði fyr-
irliðinn að hornamenn liðsins hefðu
átt að fá frí skot, hvernig sem úr-
vinnslan hefði tekist. „Við ætluðum
að stimpla á þá og fá frítt skot úr
horni. Hornamennirnir eru alltaf
dauðafríir í svona stöðu.“
Erfi þetta ekki við Arnór
Ólafur taldi að hann hefði getað
hjálpað Arnóri Atlasyni aðeins bet-
ur í því atviki er Ivano Balic komst
inn í sendinguna frá Arnóri sem var
ætluð Ólafi.
„Ég veit það ekki, kannski átti ég
að koma meira á móti Arnóri en
hornamaðurinn (Balic) var kominn í
mig og Ásgeir Örn Hallgrímsson
var því alveg frír í horninu. Arnór á
eftir að lifa með þessum mistökum,
það er ýmislegt sem við þurfum að
draga á eftir okkur. Ég mun ekki
erfa þetta við Arnór. Ég talaði við
hann eftir leikinn og hughreysti
hann með því að segja við hann að
það kæmu fleiri stórmót eftir þetta.
Kannski komumst við ekki í undan-
úrslit að þessu sinni en hann á eftir
að vaxa sem leikmaður eins og allir
leikmenn liðsins. Það er heiður fyrir
mig að fá að vera með þeim í liði
næstu 2–3 ár og styrkja liðið og
hjálpa þeim. Ég held að við getum
gert góða hluti saman á næstu ár-
um.“
Ólafur fékk mikið högg á við-
kvæmt svæðið á vinstri síðunni í
leiknum í gær og heyrðist sárs-
aukaóp frá fyrirliðanum eftir þau
átök en Ólafur er með brotið brjósk
í rifbeinum eftir gríðarlegt högg
sem hann fékk frá varnarmanni í
fyrsta leiknum, gegn Serbíu/Svart-
fjallalandi. „Ég ætla ekki að fara
væla yfir þessu höggi. Þetta var
vont en ég er ekkert verri eftir
þennan leik en ég var fyrir leikinn.“
Örvhentu skytturnar í íslenska
liðinu hafa fallið úr leik í tveimur
leikjum í röð, fyrst Alexander Pet-
ersson sem kjálkabrotnaði í gær, og
síðan Einar Hólmgeirsson, sem
fékk gríðarlegt högg á nefið í upp-
hafi leiksins gegn Króatíu. Einar
kom ekkert meira við sögu og ólík-
legt að hann leiki fleiri leiki á þessu
móti. „Einar var að sjóðhitna í upp-
hafi leiksins og ég veit ekki hvernig
þetta hefði farið ef hann hefði verið
með allan leikinn. Það var ekki
gaman að sjá Einar eftir höggið,
hann var nánast með „golfkúlu“
fyrir ofan augað og gríðarlega bólg-
inn.“
Ólafur var ekki alveg búinn að
átta sig á því hvaða hugarfar yrði
til staðar í leiknum gegn Norð-
mönnum, lokaleik íslenska liðsins í
millriðlinum í St. Gallen. „Tilhlökk-
un verður efst á listanum hjá okk-
ur,“ sagði Ólafur Stefánsson.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Birkir Ívar Guðmundsson markvörður hafði nóg að gera á milli stanganna í leiknum gegn Króatíu í St. Gallen í gærkvöldi.
„Ég er hálfpartinn búinn að gefa það frá mér að við komumst í undanúrslit,“ sagði
Ólafur Stefánsson, eftir tapleikinn gegn ólympíumeisturum Króata í St. Gallen
Aldrei reynst vel
að treysta á aðra
„VIÐ þurfum núna að treysta á einhverja aðra og það hefur aldrei
reynst happadrjúgt í mínu handboltalífi,“ sagði Ólafur Stefánsson
fyrirliði íslenska landsliðsins eftir 29:28 tapleikinn gegn Króatíu í
St. Gallen í gær. Ólafur var ekki bjartsýnn á að íslenska liðið myndi
ná því að komast í undanúrslit keppninnar.
Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson í St. Gallen
seth@mbl.is